Vísir - 26.06.1980, Blaðsíða 13
12
VÍSIR
Fimmtudagur
26. júni 1980.
— „Forsetinn á aö vera hreinskilinn og
heiðarlegur maður og það er nauðsynlegt
að hann sé mannþekkjari. Hann þarf að
hafa víðtæka reynslu í farangrinum. öll
reynsla er góð, en ég held að pólitísk
reynsla sé nauðsynleg I þessu embætti",
— sagði Albert Guðmundsson m.a. í
kynningarviðtali í Vísi 29. janúar s.l.
Albert Guðmundsson er fæddur í
Reykjavík 5. október 1923. Hann er sonur
Guðmundar Gislasonar, gullsmiðs í
Reykjavík sem lést árið 1935. Kona hans
og móðir Alberts var Indíana Katrín
Bjarnadóttir. Eftir lát föður síns ólst
Albert að mestu upp hjá ömmu sinni
Ingibjörgu Guðmundsdóttur sem bjó á
Smiðjustíg 6 í Reykjavík.
Albert brautskráðist frá Samvinnu-
skólanum 1944. Hann hélt til náms í
verslunarfræðum við Skerry's College í
Glasgow og lauk þaðan próf i árið 1946 og
frá Glasgow hélt hann til framhalds-
náms í London.
Albert varð atvinnumaður i knatt-
spyrnu fyrstur Norðurlandabúa og var
hann einn þekktasti knattspyrnumaður
Evrópu á sinum tíma.
Albert sneri heim til islands árið 1956
og sneri sér aö kaupsýslu og varð jafn-
framt áhrifamaður í íþróttahreyfing-
unni og hefur hann verið formaður og í
stjórn margra félaga og félagasamtaka.
Albert hefur átt sæti í borgarstjórn
Reykjavíkur i fjölda ára og tók sæti á
Alþingi sem þingmaður Reykvíkinga
árið 1974.
Albert er kvæntur Brynhildi Jóhanns-
dóttur og eiga þau þrjú börn, Helenu
Þóru f. 1947, Inga Björn f. 1952 og Jóhann
Halldór f. 1958.
ALBERT GUÐMUNDSSON
PÉTUR THORSTEINSSON
„Forsetinn á að vera hreinskilinn og
sannorður en þó orðvar. Heilsteyptur,
þannig að tortryggni gæti ekki í sam-
skiptum við hann. Hann þarf að hafa
menntun og þekkingu bæði varðandi
innanlandsmál og málefni annarra
landa. Og forseti islands á að vera góður
íslendingur." — Þannig fórust Pétri J.
Thorsteinssyni m.a. orð I kynningarvið
tali við Vísi 29. janúar s.l.
Pétur er fæddur í Reykjavík 7.
nóvember 1917. Hann ber nafn afa síns,
Péturs J. Thorsteinssonar, sem um langt
skeið rak útgerð og fiskverkunarstöð á
Bíldudal við Arnarf jörð.
Pétur lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 1937, viðskipta-
prófi frá Háskóla Islands 1941 og
lögfræðiprófi 1944.
Pétur réðst til starfa I utanríkisþjón-
ustunni árið 1944 og hefur f rá þeim tfma
helgað starfskrafta sína utanrfkis- og
viðskiptamálum íslands. Hann var
skipaður sendiherra f Moskvu 1953, þá 35
ára gamall og starfaði hann þar til árs-
ins 1961. Eftir það var hann sendiherra í
Bonn, Parfs og Washington en kom heim
árið 1969 og tók við stöðu ráðuneytis-
stjóra í utanrfkisráðuneytinu sem hann
gegndi i sjö ár og var hann jafnframt
ritari utanrfkismálanefndar Alþingis.
Frá árinu 1976 hefur Pétur verið sendi
herra Islands f átta Asíulöndum með
aðsetur á tslandi. Pétur hefur setiö f jöl-
margar ráðstefnur og fundi fyrir islands
hönd og verið nefndarformaður í samn-
ingum við erlend ríki.
Eiginkona Péturs er Oddný
Thorsteinsson og eiga þau þrjá syni,
Pétur Gunnar f. 1955, Björgólf f. 1956 og
Eirík f. 1959.
13
VÍSIR
Fimmtudagur 26. júni 1980.
GUDLAUGUR ÞORVALDSSON
VIGDÍS FINNBOGADÖTTIR
„Forsetinn þarf að vera hógvær og
prúður en þó með nokkra reisn. Auk þess
þarf hann að vera mannkostamaður og
menn ætlast til að hann sé réttsýnn og
sanngjarn þótt það sé kannski erfitt að
skilgreina slík hugtök. Hann verður
einnig að vera sæmilega menntaður þvf
að það reynir á það í þessari stöðu," —
sagði Guðlaugur Þorvaldsson m.a. f
kynningarviðtali við Vísi 29. janúar s.l.
Guðlaugur er fæddur 13. október árið
1924 f Grindavfk þar sem hann ólst upp.
Hann er sonur Þorvaldar Klemenssonar
og Stefaníu Tómasdóttur og rekur ættir
sínar til sjómanna og bænda á Suður-
nesjum.
Guðlaugur stundaði nám f
Menntaskólanum á Akureyri og lauk
þaðan stúdentspróf i árið 1944 og næsta ár
kenndi hann við Héraðsskólann að Núpi i
Dýrafirði. Guðlaugur lauk prófi
i viðskiptafræðum frá Háskóla islands
árið 1950 en á háskólaárunum stundaði
hann ýmis störf
Guðlaugur starfaði á Hagstofu Islands
i 15 ár og vann þá jafnframt mikið fyrir
f jármálaráðuneytið, einkum f sambandi
við fjáriagagerð. Þá var Guðlaugur
stundakennari við Verslunarskóla
islands í n ár. Hann var ráðuneytisstjóri
í f jármálaráðuneytinu um eins árs skeið
er hann tók við prófessorsstöðu við
Háskóla islands. Arið 1973 var Guð-
laugur kosinn rektor Háskóians og
gegndi hann því starfi uns hann var
skipaður ríkissáttasemjari á s.l. ári.
Guðlaugur er kvæntur Kristínu Krist
insdóttur og eiga þau þrjá syni, Sfeinar
Þór f. 1951, Þorvald óttar f. 1959 og
Styrmi f. 1964
— „Ég held að forsetinn hljóti að vera
nokkurs konar spegilmynd þeirrar
manneskju sem þjóðin telur sig vera
sjálf — mynd sem stór hluti þjóðarinnar
sættir sig við. Hvort ég er sú mynd eða
ekki verða aðrir að dæma um en ég", —
sagði Vigdis Finnbogadóttir m.a. í viðtali
við Vísi 27. mars s.l. skömmu eftir að hún
hafði gefið kost á sér i embætti forseta
islands.
Vigdís er fædd 15. apríl 1930 f Reykja-
vík og þar ólst hún upp en sem barn var
hún einnig i sveit á sumrin austur í Gnúp-
verjahreppi. Húnerdóttir Finnboga Rúts
Þorvaldssonar hafnarverkfræöings og
síðar prófessors í verkfræði við Háskóla
Islands og Sigrfðar Eiríksdóttur
hjúkrunarkonu, sem lengi var formaður
Hjúkrunarfélags Islands.
Vigdis varð stúdent frá Menntaskól-
anum í Reykjavfk árið 1949, en hélt síðan
til náms í Frakklandi þar sem hún dvaldi
á f jórða ár. Einnig stundaði hún nám við
Háskóla islands og hefur hún háskóla-
próf í frönsku og frönskum bókmenntum
og f ensku. Vigdís stundaði einnig nám
um skeið í leikhúsf ræðum við
Kaupmannahafnarháskóla.
Kjördóttir Vigdísar er Ástrfður, sjö ára
gömul og er meðfylgjandi mynd tekin af
þeim mæðgum á heimili þeirra að Ara-
götu 2 í Reykjavfk.