Vísir - 02.07.1980, Blaðsíða 24
wmm Miðvikudagur 2. júlí
síminnerðóóll
Veðurspá
dagsins
A Grænlandshafi er hægfara
1005 mb lægö. Hiti breytist
litiö.Suöurland til Vestfjaröa:
Sunnan og SA gola eöa kaldi
og rigning meö köflum I
fyrstu. Siöar hæg breytileg átt
og skúrir. Noröurland Vestra:
Hægviöri eöa sunnan gola.
Skýjaö og sumstaöar úrkomu-
vottur, einkum inn til
landsins.
Noröurland Eystra: Hæg-
viöri, vföa skýjaö. Hætt viö
smáskúrum sfödegis, einkum
fram til dala og inn til heiöa.
Stöku þokubakkar á
miöunum. Austurland aö
Glettingi: Hægviöri og bjart
fyrst, en meira skýjaö siö-
degis. Sumstaöar úrkomu-
vottur undir kvöld. SA land og
SA miö: Hægviöri, SV gola
eöa kaldi. Viöa dálitil rigning.
Veðrið hér
og bar
Klukkan sex I morgun:
Akureyri alskýjaö 12, Bergen
léttskýjaö 13, Helsinki skýjaö
14, Kaupmannahöfn rigning
13, Oslo skýjaö 15, Reykjavik
skýjaö 10, Stokkhólmur létt-
skýjaö 14, Þdrshöfn skýjaö 8.
Klukkan átján i gær:
Aþenaheiörikt 25, Berlinrign-
ing 14, Feneyjar skýjaö 22,
Frankfurtskúrir 13, Nuuksúld
4, London alskýjaö 14,
Luxembourg rigning 10, Las
Palmas léttskýjaö 25,
Mallorca léttskýjaö 24,
Montrealskýjaö 24, New York
léttskýjaö 24, Paris skýjaö 13,
Rómheiörikt 22, Malagaheiö-
rlkt 23, Vin skýjaö 20, Winni-
peg léttskýjaö 19.
Loki
segir
„Hluti af þessu er hreint siö-
leysi” segir Gvendur Jaki um
uppsagnirnar aö undanförnu.
Ætli þeir hjá Verkamanna-
sambandinu hafi fólk sérstak-
lega f aö flokka uppsagnir
sem „siölausar” og „ekki siö-
lausar”?
A ANNM ÞOSUND
NIANNS SAGT UPP
Horfur eru á að frystihús viða um land verði að
segja upp fólki eða senda það heim i sumarfri
þegar þorskveiðibannið gengur i gildi 9. júli n.k.
Einna verst mun ástandið vera i Eyjum þar sem
nokkur hundruð manns hefur verið sagt upp
störfum og á Raufarhöfn hefur 60-70 manns verið
sagt upp. Koma þessar uppsagnir verst við skóla-
fólk. Mun vera búið að segja upp á annað þúsund
manns um allt land.
Aö sögn Sveins Eiössonar
sveitarstjóra á Raufarhöfn
veröur eflaust erfitt aö útvega
þeim 60-70 mönnum sem sagt
hefur veriö upp störfum i frysti-
húsi staöarins vinnu þann tima
sem þorskveiöibanniö er I gildi.
Er þetta stór hluti vinnufærra
manna þvi á Raufarhöfn búa
um 500 manns.
A Þórshöfn hefur enn ekki
komiö til eiginlegar uppsagna
aö sögn sveitarstjórans Ólafs
Rafns, en þar er rætt um aö
senda starfsfólk i frystihúsinu I
sumarfrí. Starfsfólk i frysti-
húsinu er 60-70 en 430 ibúar eru á
Þórshöfn.
A Akranesi á stór hópur á
hættu aö missa vinnuna, en
þegar hefur öllu lausráönu fólki
tæplega 100 manns veriö sagt
upp. Litiö mun þar vera um
önnur atvinnutækifæri.
Frystihúsin á ísafirði hafa
ákveöiöaösenda starfsfólk sitt i
sumarfri meöan á þorskveiöi-
banninu stendur en alls mun þar
vera um 400 manns. Hins vegar
mun þar hægt aö fá aöra vinnu á
meöan aö frystihúsin loka.
Rekstur frystihúsanna á
Seyöisfiröi er mjög slæmur um
þessar mundir og er von á þvi aö
þar verði aö segja upp ein-
hverjum mannskap.
A Siglufiröi eiga um 200
manns á hættu aö missa vinnu-
na meöan á þorskveiöibanninu
stendur.
1 Vestmannaeyjum er þegar
búiö aö segja upp milli 600-700
manns frá og meö 1. ágúst, en
vinnufærir i Eyjum eru um 2000.
Þarna mun vera um aö ræöa
farandverkafólk og skólafólk aö
stórum hluta og mun enga aöra
vinnu vera aö fá þar til sildar-
vertiöin hefst I byrjun septem-
ber. A.B/A.S./—HR
Vigdis Flnnbogadóttir efndi til blaöamannafundar I gær aö Aragötu 2, og var hún þar beöi mynduö og
spurö. —Visismynd: GVA.
Eignir eitt
búsund fyrir
hverja millj-
ón í skuid
Skiptameöferö á þrotabúi
Jóns Franklins Franklinssonar
útgeröarmanns er lokiö og
námu kröfur, sem lýst var i búiö
rúmlega 115 milljónum króna.
Forgangskröfur námu alls rúm-
lega 1.2 milljónum og upp i þær
fengust greiddar rúmar 116 þús.
krónur.
Aörar kröfur, sem lýst var I
búiö fengust ekki greiddar
þ.á.m. launakröfur, opinber
gjöld aö upphæö 15.3 milljónir
króna og krafa frá skipamiölun
Gunnars Guöjónssonar aö upp-
hæö 14.8 milljónir króna.
—Sv. G.
Vinningshafi í
sumargetrauninni
Dregiö hefur verið I sumarget-
raun Visis sem birtist 16. júni.
Vinningshafi er:
Elsa Björnsdóttir,
Tjarnarlundi 9 f, Akureyri.
Vinningur er Töfradiskurinn
Frá Hoover, verö kr. 105.730.
Vinningur er frá Fálkanum.
Margvísiegar heillaóskir bárust Vigdísi Fínnhogadéttur í gær:
Færðu vigdísi kassa
af nýflakaðri ýsui
„Ég er ekki enn oröin þreytt,
en þaö er fyrst i dag sem ég er aö
átta mig á þvf, aö ég er fyrr-
verandl forsetaframbjóöandi, nú-
verandi forsetaefni og verö-
andi forseti”, sagöi Vigdis Finn-
bogadóttir á fundi með blaöa-
mönnum i gær, en þá lýsti hún þvi
yfir aö hún myndi sem forseti
kalla blaöamenn á sinn fund hve-
nær sem hún sæi ástæöu til aö
segja þjóöinni hvaö henni lægi á
hjarta. Hingað til hefur þaö ekki
tiökast aö forsetinn efndi til
blaöamannafunda.
Stööugur straumur heillaóska
vlösvegar aö úr heiminum barst
Vigdisi 1 gær og I skeytabunkan-
um ægöi saman nöfnum þjóö-
höföingja, kvennasamtaka og
ótal annarra aöila.
„Þaö skeyti frá kvennasamtök-
um sem mér þykir vænst um kom
frá „Den grönlandske kvindefor-
ening” sem var meö þing I
Godthab. Jafnvel þangaö höföu
tlöindin borist”, sagöi Vigdls.
Meöan blaöamenn stöldruöu
viö á Aragötunni bárust kveöjur
og heillaóskir frá Jimmy Carter,
forseta Bandrikjanna og þar meö
höföu þjóöhöðingjar allra vest-
rænna rlkja látiö heyra frá sér.
En þaö voru ekki bara erlend
stórmenni sem vottuöu Vigdisi
viröingu slna. 1 gærmorgun komu
tveir skipverjar á skuttogaranum
Ingólfi Arnarsyni I heimsókn og
færöu henni kassa af nýflakaöri
ýsu meö þeim oröum aö þá hafi
grunaö aö húsiö væri oröiö fullt af
blómum. Vigdis sagðist einnig
hafa fengiö mikiö af skeytum frá
stuöningsmönnum annarra fram-
bjóðenda, stuöningsmenn Guö-
laugs heföu jafnvel sent sér
blómakörfu.
,„Þaö eru allar likur á þvi, aö
mitt fyrsta embættisverk sem
forseta veröi aö fara á minningar
hátiö um Jón Sigurösson, sem
haldin verður aö Hrafnseyri 3.
ágúst, og ég á erfitt meö aö hugsa
mér ánægjulegra verkefni I upp-
hafi embættisferilsins”, sagöi
Vigdis.
— P.M.