Vísir - 25.09.1980, Síða 14
vtsm
r™
Fimmtudagur 25. september 1980.
Staldrab vift Hrauneyjaríoss enhann mun hverfa þegar Hrauneyjarfossvirkjun kemst Igagnib.
! Grjötburður í
! Landmannaiaugum
Oröatiltækiö ,,aö leita langt
yfir skammt” hefur svo
sannarlega átt viö islendinga
siöasta áratuginn. Þegar enginn
var maöur meö mönnum nema
hann heföi fariö til Spánar eöa
annara álika staöa. Þessi ára-
tugur gæti þvi alveg eins veriö
kallaöur áratugur sólarlanda-
feröanna eöa álika skemmtilegu
nafni I islandssögunni.
En nú á þessum siöustu og
verstu veröbólgutimum viröist
þróunin vera að breytast, fólk
streymir ekki eins mikiö til
sólarlanda heldur viröist fólk
frekar vilja staldra viö og skoöa
náttúru landsins i rikara mæli en
áöur var. Hvort þaö er vegna
peningaleysis eöa skorts á
áhuga fyrir sólarlandaferðum
skal ósagt látið enda eru liklega
skiptar skoöanir á þvi eins og
öllu ööru.
Aftur á móti er þaö ekki vist
hvort þessi þróun sé til góös
fyrir land og þjóö. Aö visu
sparast verömætur gjaldeyrir a
þennan máta, en viökvæm
náttúra þolir ekki alltaf mikinn
straum af ferðamönnum sem
oft hugsa aðeins um sjálfa sig en
ekki þá sem á eftir komá.
Landmannalaugar eru vin-
sæll ferðamannastaður og þar
er mjög falleg og viðkvæm
náttúra. Fyrir nokkru bauð
Texti og
myndir
Gunnar
Þór
Gislason.
Náttúruverndarráð og Feröa-
málaráö Ferðafélaginu Görpum
I Hlíöaskóla i vinnuferö i Land-
mannalaugar og nú um siöustu
helgi var haldiö af stað.
Lagt var frá Hliðaskóla á
föstudagskvöldið i langferöabif-
reið meö um 30 félaga úr Ferða-
félaginu Görpum ásamt þrem
kennurum og Braga Þórarins-
syni frá Náttúruverndarráöi.
Ótrúlegt úrval af
leikfimi-
bolum
Danskir
bolir
• allar stærðir
• fjölmargar
gerðir
• verð frá
kr. 3.950.-
Leikfimiskór
og bal/ettvörur
SPORTVAL
ILAUGAVEGI 116. VIO HLEMMTORO
SIMAR 14390 Et 26690
Þegar komið var i Landmanna-
laugar var oröið það áliöið aö
litið var hægt ab gera annað en
aö ganga til náöa. Þegar risið
var úr rekkju árla á laugar-
dagsmorgun leist fólki ekki á
blikuna enda sást ekki til sólar
fyrir henni. En upp var risiö og
maginn mettur og siðan var
skipað i vinnuhópa og unnið
fram aöhádegi við aðútbúa nýtt
tjaldsvæöi viö Feröafélagsskál-
ann og hreinsa eldri tjaldsvæöi.
Eftir aö hafa matast i hádeginu
fór hópurinn i leiki sem sumum
hefðu þótt of ofbeldisfullir. En
eftir hádegi var gamaniö brátt á
enda og alvara vinnunnar aftur
á dagskrá.
Þegar liða tók á daginn voru
sumir farnir aö lýjast og alltaf
var fariö aö styttast milli hvild-
anna, en áfram var haldið enda
sáu kennararnir, sem eru
þekktir fyrir allt annað en aö
gefa nemendunum fri, um aö
halda krökkunum viö efnið. Þó
fór að fara um þá þegar
nemendurnir fóru að kyrja
þrælasöngva, enda var það haft
á orði, frekar i gamni en i
alvöru, að þessi vinna liktist
vinnunni i ónefndum sjónvarps-
þætti sem vakti mikla athygli og
umtal er hann var sýndur hér i
sjónvarpinu fyrir stuttu.
Þó að vinnan i grjótburöinum
væri erfiö var þaö þó frekar
hópurinn sem var aö tina
rusl sem kvartaði, enda voru
stúlkur þar i meirihluta, og var
það haft á orði aö eina leiðin til
að losna við ruslið úr hraungjót-
unum væri aö eldgos hæfist og
nýtt hraun rynniyfir þaö gamla.
Þvi að þótt að rusl væri tint i
átta stóra ruslapoka sást varla
högg á vatni.
Þegar stjórnendur vinnu-
flokkanna höfðu loks séö aum-
um á „þrælum” sinum var
haldið til skála og þar fengu lúin
bein hvild en allir heitt kakó.
Eftir nokkra hvild var kominn
órói á mannskapinn og var tekiö
á þaö ráö aö senda nokkra
garpa uppá Bláhnjúk til aö
virða fyrir sér útsýniö, en öör-
um var skipað i laugina til harö-
sperruúrtöku. Þaö vakti mikla
og verðskuldaða athygli aö eng-
inn stúlka skyldi treysta sér i
fjallgöngu eftir erfiöi dagsins.
Eftir mikiö erfiöi komust
nokkrir garpar uppá topp Blá-
hnjúksen eftir skamma viödvöl
fuku þeir niöur aftur. Sást litið
af þeim á niðurleið en þó er taliö
aö þeir hafi rúllaö niöur i
óreglulegri röö. A sunnudags-
morgun var Brandsgil skoðað af
mikilli visindalegri ná-
kvæmni, en niöurstööur úr þeim
rannsóknarleiöangri lágu ekki
fyrir þegar þessar linur eru
skrifaðar. Um hádegiö var siö-
an lagt af staö úr Landmanna-
laugum eftir gott baö.
Vignir Diego mundar hér hakann en Halldór Eyjólfsson og Björgvin
Ingvarsson fylgjast spenntir meö.
A leibinni til Eeykjavikur var
ekið framhjá Hrauneyjarfoss-
virkjun og sjálfur Hrauneyjar-
foss var skoöaöur en hann mun
hverfa eftir nokkra mánuði þeg-
ar virkjunin verður tekin i notk-
un. Siðan var Háifoss skoðaður
og haldið beinustu leið i bæinn
meö smá stoppi á Selfossi.
Komið var i bæinn um kvöld-
matarleytið og voru allir glaðir
og þakklátir Náttúruverndar-
ráði og Ferðamálarráði fyrir aö
hafa gefið kost á þessari vinnu-
ferð.
Unnið viö nýtt tjaldsvæöi.
Háifoss skoöaöur af mikilli athygli.
Leiöangur i Brandsgili.