Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 28
28 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ AUGLÝSINGARLandsbankans semdunið hafa á lands- mönnum í kringum lands- leiki Íslands í handknattleik undanfarið þykja mér væg- ast sagt athyglisverðar. ,,Við Íslendingar erum engum líkir,“ segir Landsbankinn og telur upp ýmsar ástæður þess, sumar allspaugilegar, og má segja að húmorinn bjargi auglýsingunni fyrir horn hvað blákalda þjóð- rembu varðar. Tónlistin sem leikin er undir hefði þó sæmt sér vel í góðri þjóð- ernislegri áróðursmynd og eins finnst mér slagorðið ,,við Íslendingar erum eng- um líkir“ dansa á fínni línu smekklegheita nú á tímum þegar augljóst virðist að heimurinn hefði gott af því að þjóðir hættu að hugsa um það sem aðgreinir þær og einbeittu sér í auknum mæli að því sem sameinar þær. Ég hef dvalið um tíma sem útlendingur í tveimur löndum, Frakklandi og Bandaríkjunum. Þessi lönd byggja þjóðir sem eru mjög stoltar og ánægðar með sig og sem útlendingur náði ég aldrei almennilega að tengja við þá stemmningu, hvað þá að ég upplifði mig sem hluta af heildinni. Ég var gestur. Og það var líka allt í lagi því ég hef hvorki hug á að ger- ast Frakki né Kani. En ég get vel sett mig spor þess sem hefði viljað gerast franskur eða kanskur og geri ég það finn ég að það hefði verið heldur snúið mál að verða fullgildur meðlimur þessara þjóða, menning- arlega og hugarfarslega. Það er líklega frekar erf- itt að finnast land sem mað- ur flytur til besta land í heimi, og þó svo að fólkinu sem er fætt og uppalið þar finnist landið sitt best allra landa þá er spurning hvaða tilgangi það þjónar að vera sífellt að tönnlast á því. Fólki sem kemur í nýtt land og vill setjast þar að hlýtur að finnast slagorð á borð við ,,við Íslendingar erum eng- um líkir“ stuðandi. Þetta er eins og að koma í partý til einhvers sem talar um það hátt og snjallt yfir borðum hvað hann og hans heim- ilisfólk sé nú ofsalega ein- stakt. Það væri sennilega auðvelt að fá á tilfinninguna að maður væri annars flokks og satt að segja er ég ekki viss um að ég myndi nenna að staldra lengi við heima hjá einhverjum sem væri svona upptekinn af sjálfum sér. Kannski truflar umrædd auglýsing mig sérstaklega eftir að hafa dvalið í Banda- ríkjunum nú í vetur sem leið, þar sem harmleikurinn 11. september breyttist smám saman í alveg skelfi- legt ,,melódrama“ með þjóð- rembulegum undirtóni. Bandaríkjamenn máttu allt eftir 11. september. Þeir máttu hata alla, þeir máttu hefna sín, þeir máttu hrópa ,,við erum besta þjóð í heimi“ eins hátt og þeir gátu. Smátt og smátt birtist bandaríski fáninn í öllum gluggum, á öllum bílum, á fatnaði og öðrum búnaði og gjarnan fylgdu slagorð á borð við ,,Hræðist þetta“! Þá var athyglisvert að sjá að erlendir eigendur veit- ingastaða fánaskreyttu staði sína einna mest og var erfitt að fá annað á tilfinninguna en að þeir gerðu það til að fyrirbyggja skemmdarverk eða annað ofbeldi gegn sér, en nóg var um slíkt þrátt fyrir það. Ég verð að við- urkenna að sú stemmning sem ríkti í Bandaríkjunum í vetur vakti mér hálfgerðan óhug. Ég held það hljóti að vera varasamt að þjóð líti svo stórt á sig að hún telji sig yfir allar aðrar hafnar, fyrir utan hvað það er leið- inlegur eiginleiki. Eins saknaði ég þess í þeirri sjálfskoðun sem fór í gang meðal bandarísku þjóð- arinnar í vetur, að hún tæki galla sína einnig til athug- unar. Þegar þjóðern- iskenndin fer úr hófi fram er jú hætta á að þjóðin sjái sjálfa sig í svo miklum dýrð- arljóma að hún verði blind á eigin vankanta. Í ljósi þessa mætti alveg hnýta aftan við áðurnefnda auglýsingu Landsbankans, sérstaklega með tilliti til at- burða undanfarinna daga þar sem gestrisni Íslendinga fór lönd og leið og fram- koma okkar við erlent fólk sem hingað vildi koma var til skammar. Já, við Íslendingar erum engum líkir; við eigum svo fáar löggur að við getum ekki virt tjáningarfrelsi í landinu okkar. Við Íslendingar erum eng- um líkir; við meinum fólki aðgang að landinu okkar á grundvelli dularfulls nafna- lista sem virðist hafa dottið af himnum ofan. Við Íslendingar erum eng- um líkir; við lokum fólk inni í barnaskóla og sviptum það ferðafrelsi, en neitum að við- urkenna að það sé í haldi ,,því skólinn er svo huggu- legur“. Við Íslendingar erum eng- um líkir; við byggjum sjálf- stætt lýðræðisríki, en heft- um frelsi friðelskandi fólks til ferða og tjáningar. Nei, við Íslendingar erum engum líkir. Birna Anna á sunnudegi Við Íslendingar erum engum líkir Morgunblaðið/Jóra bab@mbl.is L ISTAMENN eru sífellt að tak- ast á við og tjá samtíma sinn. Á síðustu áratugum hefur ljós- myndin verið sá miðill sem listamenn hafa talið hæfa hvað best til að takast á við núið og síaukinn hraða tímans. Um ný- liðin árþúsundamót reyndu ótal listamenn að skapa verk sem sýndu breytinguna og þróun mála – breytingu sem í raun var þó aðeins ný töluruna í vestræna tímatalinu. Eitt áhugaverðasta verkið sem ég hef séð koma úr þessari árþúsundasmiðju er eftir Frakka á áttræðisaldri, þekktan fótósjúrnalista og tískuljósmyndara, Frank Horvat að nafni. Hann skráði í ljósmyndum dagbók í mynd- um; allt árið 1999 var hann að taka myndir og valdi síðan eina eða tvær frá hverjum ein- asta degi ársins. Þetta er tilgerðarlaust verk, einfalt og einlægt; heilsteypt og áhugaverð skráning á lífi fullorðins Evr- ópubúa á þessu tiltekna ári. Árið 2000 sýndi Horv- at dagbókina á veggjum sýningasala og þá kom einnig út bók með úrvali mynda: „1999 – A Daily Report“. Á heimasíðu Horvats (www.horvatland.com) er grein þar sem hann segir drifkraftinn bakvið verkið ekki hafa verið núllin þrjú í ártalinu sem var að birtast, heldur sú tilfinning hans að aldrei í sögu mannsins hafi átt sér stað jafn miklar breytingar á lífsstíl og gildum í lífi manna og við lok 20. aldar. „Jafnvel framtíðarsýnin í skáldsögum Orwells og Huxleys, sem ég gleypti í mig á unglingsárum, auðveldaði mér ekki að sjá fyrir þá blöndu tungumála og manngerða sem ég upplifi í neðanjarð- arlestinni í London; fjölbreytnina í græn- meti, alls staðar að og frá öllum árstímum, sem blasa við í kjörbúðum; fáránlegt handa- patið á götum Rómaborgar, þar sem vegfar- endur (og ökumenn) þrýsta farsímum að eyrum sér með annarri hendi og leggja með hinni dramatískar áherslur á samtal sitt við ósýnilegan viðmælandann; eða einfaldlega smellina í mús þess sem kallar orðin og myndirnar upp á skjáinn.“ Það sem Horvat undrast samt ennþámeir er að á sama tíma og heimurinnverður sífellt einsleitari og tækninfullkomnari, þá breytist annað varla neitt. Þannig sér hann í fréttum sjónvarps- ins, kvöld eftir kvöld, hvar verið er að myrða konur og börn í nafni trúarlegra öfga eða haturs úr fortíðinni. Horvat segist lifa með þessum öfgum en ekki gera sér far um að sýna þá í dagbók sinni. Í myndunum vill hann sýna sinn eigin persónulega sjóndeild- arhring og um leið þakka örlögunum fyrir að vera fæddur inní og fá að lifa á þessum ein- stöku en grimmu tímum. Í verkefninu setti hann sér að vera sífellt opinn fyrir öllu því sem væri á seyði í kringum sig, að velta fyrir sér hverri hreyfingu, hverjum hlut. Og hann vitnar í Goethe, sem sagði: Það erfiðasta af öllu er það sem talið er auðveldast: að sjá í raun það sem er fyrir framan augu manns. Það er mun erfiðara að sjá heimilið og næsta nágrenni ferskum augum, en fjar- lægar slóðir. Þessvegna er líka svo spenn- andi að skoða sjónrænar dagbækur. Margir ljósmyndarar hafa tekist á við dagbók- arhugmyndina, enda er myndavélin í eðli sínu skráningartæki og fólk notar hana venjulega til að skrásetja sitt daglega líf og uppákomur í fjölskyldunni. Nokkrir ljós- myndarar hafa vakið athygli með persónu- legum dagbókum í myndum á síðustu ára- tugum. Nan Goldin skrásetti líf sitt og vina sinna á austurströnd Bandaríkjanna og vakti athygli fyrir „berorðar lýsingar“ á kynlífi, vímuefnanotkun og ofbeldi; Max Pam setur saman dagbækur um ferðir sínar um heim- inn; Lee Friedlander myndar sig og konu sína, börn og barnabörn. Frank Horvat er ekki að sýna fréttnæma atburði, íþróttaleiki eða átök; hann notar litla vasamyndavél og er að skrá hrynjandi hversdagslífsins, fólkið umhverfis og sitt nánasta umhverfi. Í mynd- unum birtast þannig börn hans og barna- börn, sambýliskona hans til tuttugu ára og ýmsir vinir, og þar á meðal heimsþekktir ljósmyndarar eins og Helmut Newton, Ed- ouard Boubat og Henri Cartier-Bresson. Horvat myndar á heimili sínu, sem er skammt fyrir utan París, og einnig í húsi fjölskyldunnar í Suður-Frakklandi. Þá heim- sótti hann öll lönd Evrópusambandsins árið 1999 og svipmyndir frá þeim birtast í mynd- um teknum úr bílum eða þaðan sem ljós- myndarinn er að þvælast um eins og hver annar ferðamaður. Þetta eru skyndimyndir teknar á röltinu. En þótt aðferðin sé í anda skyndi-myndanna, þá eru rammar ljósmynd-arans margir ákaflega fínir og meðuppröðun þeirra skapast heillandi sýn af hversdagslífinu. Í sumum myndanna sést ljósmyndarinn sjálfur; í skoðun hjá lækni, í klippingu eða sem tær sem standa uppúr baðvatni. Þá er áhugavert að velta fyrir sér tímastrúktúrnum í verkinu. Hann er settur upp á ólíkan hátt í bókinni og á vefnum, en á vefnum er nú hægt að skoða myndir fyrstu átta mánaðanna í einu flæði og skapar það ýmis hugrenningatengsl með þeim sem skoðar. Þetta er ljóðræn sýn á heiminn; götur, markaðir, dúfnaskítur, snjór á trjám. Þarna birtast þemu sem eru kunn- ugleg úr eldri myndum ljósmyndarans, eins og portrett af trjám í ýmsum myndum og farþegar í lestum. Og tíminn líður svo sann- arlega í þessu myndflæði: 4. maí myndar Horvat vin sinn ljósmyndarann Boubat á heimili sínu, Boubat er glaðhlakkalegur og horfir til himins. 4. júlí horfum við ofan í opna gröf hans. Á vef Horvats má sjá úrval úr öðrum helstu verkum hans. Þegar Horvat myndaði tísku fór hann oft þá leið að færa módelin út í hversdagslegt umhverfi; á bari, í neð- anjarðarlestir, á knattspyrnuleiki. Þetta eru oft ferskar myndir og bera ekki í sér leið- indin og dauðann sem eru svo yfirþyrmandi í þorra tískumynda. Margar þekktustu mynd- ir Horvats eru úr seríum hans af fatafellum og úr strippbúllum. Þær myndir eru iðulega munúðarfullar og hálf fáránlegar í senn. Þessar gömlu myndir koma upp í hugann þegar ein myndanna í dagbók Horvats er skoðuð en sú er frá Kristjaníu í Kaupmanna- höfn. Hún er tekin 19. júlí og sýnir hvar fatafella er að bera sig í sólskini úti á torgi; hópur fólks horfir á og í forgrunni tvö reið- hjól – þetta er danskur hversdagsleiki. Á áttunda áratugnum fór Horvat að missa áhugann á tískumyndum og þá fór hann að leika sér við að vinna myndir í tölvu. Hann bjó til myndir þar sem hann felldi dýr inní dramatískt umhverfi og aðrar þar sem hann skapaði engla og hverskyns goðsagnarverur. Þessi verk eru merkt tilraunum og leik, út- koman hátimbruð og dramatísk. Í því ljósi er ennþá áhugaverðara að sjá þetta látlausa flæði hversdagslífsins frá 1999, þess hyllingu lífsins og umhverfisins sem er tjáð með sér- stöku lita- og formskyni manns sem hefur reynt margt á ferlinum en skapar sitt besta verk þegar hann beinir linsunni að sér og sínum. Horvat er sjálfur ekki viss um hvern-ig þessi sýn hans muni standa íframtíðinni. Hann skrifar: „Þessisjóndeildarhringur getur ekki verið fullkominn. Það er ekki einu sinni víst að barnabörnin mín muni þekkja þetta sem bernskuheim sinn. Ef til vill sjá þau aðeins endurspeglun af minni sýn, mótaðri af tilvís- unum frá nítjándu öldinni, nærðar af upplif- unum á þeirri tuttugustu og ennþá forvitinni um hvað sá litli hluti af nýju árþúsundi sem bíður mín muni bera í skauti sér. Og þannig er þetta einskonar sjálfsmynd. Sem getur þýtt: bara ein blekking enn til að sleppa úr klóm tímans.“ Dagbók ljósmyndarans Ljósmynd/Frank Horvat Sunnudagur 18. apríl Cotignac, Frakklandi, „La Véronique”. Sjálfsmynd í baði. AF LISTUM eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Ljósmynd/Frank Horvat Þriðjudagur 19. janúar Boulogne-Billancourt, Frakklandi. Á Ambroise Paré-spítalanum, sjálfs- mynd fyrir læknisskoðun.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.