Morgunblaðið - 16.06.2002, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 16.06.2002, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. ÓLAFUR G. Sæmundsson næring- arfræðingur og stjórnarmaður í Beinvernd ritar greinina „Mjólk er holl“ (Mbl. 12. júní), sem svar við grein minni „Um beinin“ (Mbl. 6. júní), þar sem ég legg áherslu á neyslu magnesí- ums og náttúru- legs D-vítamíns til varnar bein- þynningu og bendi á skaðsemi gerviefnis, sem ranglega er kallað „D-vítamín“, að forðast beri gosdrykki, megrunar- fæði, ofneyslu fosfórs og próteíns og ofþjálfun. Ólafur tekur undir ofþjálf- un og óhófsneyslu próteina nema úr mjólk. Það er ekki sama, hvaðan illt kemur á þeim bæ. Ólafur vill ekki viðurkenna skaðsemi gerviefnis, svo- kallaðs „D-vítamíns“, sem víða um lönd er í mjólk og mjólkurafurðum. Ólafur sakar mig um „ýmsar rang- færslur“ en gefur í skyn, að af nógu sé að taka. Hann nefnir þó aðeins þrjár. Ólafur ritar: „1. Fullyrt er ranglega, að D-vít- amín í fæðu (reyndar er D-vítamín í mjólk nefnt sérstaklega til sögunn- ar) sé gerviefni og beinlínis heilsu- spillandi“. Þetta er hreint rugl hjá Ólafi. Ég bendi á, að D-vítamín sé til náttúrulegt og sem gerviefni og D- vítamín sem gerviefni, sem er í raun hormón, sem einkum finnst í mjólk og mjólkurvörum, er heilsuspillandi. Þetta stend ég við. (Sjá: The Preven- tion and Treatment of Osteoporosis). Ólafur talar um „D-vítamín í fæðu“. Skiptingin náttúrulegt D-vít- amín og „gervi D-vítamín“ er alls ekki virk hjá Ólafi. 2. Ólafur neitar því, að skortur á magnesíum sé talinn algengasta or- sök beinþynningar. Helstu „áhættu- þættir“ að mati Ólafs eru erfðir, kyn- ferði og hækkandi aldur. Er Ólafur að segja okkur, að Beinvernd sé að berjast við þessa drauga, sem mönn- um eru áskapaðir og í rauninni ekk- ert hægt að gera til varnar bein- þynningu? Í fyrri hluta greinar sinnar fellst Ólafur réttilega á, að óhófsneysla próteina stuðli að beinþynningu. Er Ólafur ekki þarna í mótsögn við sjálfan sig? Hann heldur sinni verndarhendi yfir ofneyslu próteina, ef þau koma úr mjólk. Er þetta trú- verðugur málflutningur? Ólafur telur skort á magnesíum vera bæði „lítilvægan og sjaldgæf- an“. Ég bendi á ritið : Cohen, L. and Kitzes R. „Infrared Spectroscopy and Magnesium Content of Bone Mineral in Osteoporotic Women,“ Isr J Med Sci, v. 17, p. 1123-1125, 1981. Þar kemur fram, að 80–85% af konum í USA fái minna en RDS af magnesium. Þetta var ritað fyrir 20 árum en þekking á mikilvægi magn- esíums hefur vaxið með hverju árinu. Rannsóknir fyrir 1998 sýndu, að magnesíum (án kalks) getur komið í veg fyrir beinþynningu. Er þá rétt hjá Ólafi að segja, að skortur á magnesíum sé bæði „lítilvægur og sjaldgæfur“? Í grein minni get ég um sjúkdóm- inn „calcinosis“, sem felur í sér of mikið kalk á hringferð um líkamann og sjúkdóma, sem af því stafa. Í rit- inu Elin, R. „Magnesium: The For- gotten Nutrient“ (1995) segir í laus- legri þýðingu: „Orsök calcinosis er mjög algengur skortur á magnesí- um. . . . Skortur á magnesíum er mjög alvarlegur og á grundvelli rannsókna sennilega algengasta or- sök beinþynningar. Hann hefur jafn- vel hlutverki að gegna við krabba- mein.“ Þetta er skrifað fyrir 7 árum. 3. Í minni grein reyni ég að benda á, að auglýsingar á mjólk og mjólk- urvörum feli í sér það sem ég nú mundi kalla: „Því meira mjólkur- þamb því betra fyrir beinin.“ Reglan „því meira, því betra“ gildir ekki um mjólkurneyslu. Þetta viðurkennir Ólafur í sinni grein, en hann talar ekki um „mjólk“, heldur „prótein“. Þarna er Ólafur aftur í mótsögn við sjálfan sig. Hann skrifar: „Fullyrt er ranglega, að þar sem mjólk er rík að próteinum og fosfór leiði mjólkur- drykkja beinlínis til kalktaps úr lík- ama.“ 8 línum síðar skrifar Ólafur: „Hvað varðar próteinneyslu þá ýtir of lítil neysla undir beinþynningu rétt eins og óhófsneysla.“ Þetta felur í sér, að Ólafur viðurkennir, að óhófsneysla mjólkur leiði af sér bein- þynningu. Gott hjá Ólafi. Hann er tvísaga. Ég hef nú hrakið fullyrðingar Ólafs um „rangfærslur“ og sýnt fram á, að „staðreyndir“ Ólafs eru rugl. Ég vonast til, að Ólafur taki fleiri „rangfærslur mínar“ til meðferðar, og sérstaklega hlakka ég til að lesa um hans álit á gosdrykkjum. JÓN BRYNJÓLFSSON, verkfræðingur. Um beinin 2 Frá Jóni Brynjólfssyni: Jón Brynjólfsson Vöggusæn gur vöggusett PÓSTSENDUM Skólavörðustíg 21  sími 551 4050  Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.