Morgunblaðið - 16.06.2002, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 16.06.2002, Blaðsíða 40
MINNINGAR 40 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Inger Steinsson, útfararstjóri, s. 691 0919 Ólafur Ö. Pétursson, útfararstjóri, s. 896 6544 Bárugötu 4, 101 Reykjavík. S. 551 7080 Vönduð og persónuleg þjónusta. Kransar - krossar Kistuskeytingar • Samúðarvendir Heimsendingarþjónusta Eldriborgara afsláttur Opið sun.-mið. til kl. 21 fim.-lau. til kl. 22 ✝ Guðmundur ElísGuðmundsson fæddist í Hafnar- firði 27. janúar 1942. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi 11. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóna Guðmunds- dóttir, f. 11.1. 1911, d. 20.5. 1991, og Guðmundur Þor- geirsson, f. 10.6. 1915, d. 20.10. 1998. Systir Guðmundar Elísar er Elísabet, f. 2.12. 1944, maki Ísidór Her- mannsson, f. 18.1. 1947, börn þeirra eru Guðmundur Jón, Hermann, Elmar Daði og Ísidór Hinrik og barna- börnin Guðmundur Þorgeir og Fróði Guðmundssynir og Hilmir Atli Elmars- son. Hálfsystkini Guðmundar Elísar eru Gústaf Sæ- mundsson, f. 1933, Laufey Sæmunds- dóttir, f. 1935, og Gunnar Engilberts- son, f. 1937, d. 1997. Guðmundur Elís bjó allan sinn aldur í Hafnarfirði. Útför Guðmundar Elísar verð- ur gerð frá Fríkirkjunni í Hafnafirði þriðjudaginn 18 júní og hefst athöfnin klukkan 13.30. Góður drengur er genginn. Guð- mundur Elís Guðmundsson lauk jarðvist sinni á líknardeild Lands- spítalans 60 ára að aldri. Hann var ókvæntur og barnlaus, en hans verður sárt saknað af mörgum, en sárast af systur sinni Elísabetu, af manni hennar Ísidóri og sonum þeirra og sonarsonum, sem öll voru honum mjög kær. Hann sýndi ótakmarkaðan kær- leika og umhyggju. Þar á bæ var hann alltaf kallaður „Elli frændi“ og einnig af tengda- fólki systur hans. Þetta klæddi hann afar vel, því hann var í raun og veru bróðir og frændi allra sem hann umgekkst. Hann átti mörg áhugamál og starfaði af alúð í mörgum félögum, sem öll voru mannbætandi hið ytra og hið innra. Hann var meðal annars félagi í Guðspekifélagi Íslands og stúkunni Fjólu í Kópavogi, og þar var hann sami góði bróðirinn eins og alls staðar, tilbúinn að láta gott af sér leiða og hjálpaði til við allt sem þar sem hann gat því við komið. Ég er viss um að hann hefur aldrei hugsað „hvað getið þið gert fyrir mig?“ Heldur „hvað get ég gert fyrir ykkur?“ því þannig kom hann fram gagnvart sínum sam- ferðamönnum. Hann skilur eftir sig stórt skarð meðal frænda sinna og vina, og ég sendi þeim öllum mínar innilegustu samúðarkveðjur. Við öll sem áttum því láni að fagna að vera samferðamenn þessa góða manns, „Ella frænda“, mun- um í dag kveðja hann með djúpri virðingu og þakklæti. Sælir eru hjartahreinir því þeir munu guð sjá. Drottinn blessi Guðmund Elís Guðmundsson. Guðrún Hulda Guðmundsdóttir. Fyrir 25 árum átti Ferðafélag Íslands 50 ára afmæli. Í tilefni þess voru það sumar skipulagðar all- margar ferðir á fjallið Esju. Þetta framtak félagsins vakti mikla at- hygli og varð mörgum hvatning til hollrar hreyfingar og útiveru. Ég sem þetta rita tók nokkurn þátt í þessu fyrirtæki. Fljótlega tók ég eftir því að ungur Hafnfirðingur, nýliði á þessum vettvangi, mætti oftar en aðrir og var sýnilegt að hann naut þess að takast á við þetta fjall. Við urðum brátt mál- kunnugir og féll vel á með okkur. Þetta var Guðmundur E. Guð- mundsson smiður, sem verður jarðsettur nk. þriðjudag. Þetta sumar var Guðmundi ör- lagaríkt, því þá tengdist hann Ferðafélagi Íslands þeim böndum, sem aldrei rofnuðu, og þar eign- aðist félagið einn sinn traustasta og fórnfúsasta velunnara, sem var ávallt boðinn og búinn til að ganga til liðs við félagið við lausn þeirra verkefna sem vinna þurfti. Guð- mundur starfaði í mörg ár í bygg- inganefnd félagsins og þær stundir eru ótaldar sem hann eyddi við að vinna að viðhaldi, endurbótum og nýsmíði sæluhúsa þess og hann taldi ekki eftir þær frístundir sem fórnað var til að koma þeim verk- um í höfn. Á aðalfundi félagsins 11. mars 1987 var Guðmundur gerður að kjörfélaga Ferðafélags Íslands í þakklætisskyni fyrir „fórnfúst starf í þágu félagsins“, eins og það er orðað í fundargerð og þá vægilega til orða tekið. Guðmundur hafði yndi af ferða- lögum, og fór margar ferðir í hópi góðra félaga víðsvegar um landið bæði á skíðum og ekki síst fótgang- andi með allan farangur á bakinu. Við áttum þar samleið af og til og þægilegri og notalegri ferðafélaga var ekki unnt að kjósa sér. Hann var ávallt glaður í sinni, ljúfur og hjálpsamur og vildi leysa allra vanda af fremsta megni. Síðustu mánuðirnir voru Guð- mundi erfiðir, en hann lét ekki bugast. Eins og góðra ferðamanna er siður þarf að huga að mörgu, þegar lagt er upp í langferð, og hafa alla hluti á réttum stað. Ég er þess fullviss, að það hefur Guð- mundur gert nú sem endranær og eins og ávallt áður reiðubúinn til að mæta því sem að höndum ber með æðruleysi og brosi á vör. Með þessum fáu orðum þakka ég Guðmundi Ella þær stundir, sem við áttum saman og ég veit, að undir þau orð mín taka allir okkar góðu félagar í Ferðafélagi Íslands sem kveðja hann með virðingu og þökk fyrir trausta vináttu á liðnum árum. Tómas Einarsson. Fyrir nokkrum árum mynduðum við nokkrir kunningjar hóp til að iðka saman sameiginlegt áhugamál okkar, badminton, okkur til ánægju og hressingar. Einn í hópn- um var Guðmundur Elís Guð- mundsson sem við höfðum allir þekkt áður um lengri eða skemmri tíma. Ekki er ofmælt þótt sagt sé að Guðmundur hafi verið sá okkar sem mest og best hélt okkur við badmintoniðkunina bæði hvað ástundun og reglufestu snertir. Komu sér þar vel þeir eðliskostir sem mest einkenndu Guðmund, ná- kvæmni og vandvirkni, vinafesta og greiðvikni. Um þessa þætti í manngerð Guðmundar geta margir borið. Guðmundur starfaði og ferðaðist mikið með Ferðafélagi Íslands og þau eru ófá handtökin sem hann vann í þágu félagsins, ekki síst á fjöllum uppi. Þeir sem með honum voru sáu strax að þar var aldrei kastað höndum til verka. Það var að verðleikum að hann var kjörinn heiðursfélagi félagsins fyrir nokkr- um árum. Guðmundur var ekki hávaðamað- ur í þeim skilningi að hann væri mikið fyrir að trana sér fram en í þröngan hóp, ekki síst yfir kaffi- bolla, var hann hvers manns jafn- oki og svo trúr var hann vinum sín- um að eftir var tekið. Ekki er vitað til að Guðmundur hafi sagt nei við nokkurn sem bað hann greiða. Oft gat græskulaus orðheppni hans kitlað hláturtaugar viðmælenda, ekki síst ef hnyttnar athugasemdir hans beindust að honum sjálfum. Réttlætiskennd Guðmundar og hreinlyndi leyfði enga meinbægni í garð annarra. Starfið var Guðmundi ætíð mikil lífsfylling en í frístundum hafði hann auk þess að ferðast, einkum á árum áður, mikið yndi af lestri bóka og vænt safn þeirra átti hann orðið á síðari árum. Þá hafði Guð- mundur mikið yndi af dansi og stundaði þá mennt drjúgum um langan tíma. Mikil eftirsjá er að Guðmundi sem nú er fallinn frá langt um ald- ur fram og stór er eyðan sem í hóp okkar badmíntonfélaganna er kom- in. Við minnumst hans með virð- ingu og hlýhug og biðjum systk- inum hans og öðrum aðstandendum styrks og huggunar við mikinn missi. Eiríkur, Guðmundur, Gunnar og Ólafur. Góður drengur er genginn, góður maður er dáinn. Minnir hann oft á máttinn maðurinn slyngi með ljáinn. Allra okkar kynna er ánægjulegt að minnast. Mér finnst slíkum mönnum, mannbætandi að kynnast. (Kristján Árnason frá Skálá.) Það er bjart yfir minningunni um Guðmund Elís vin okkar. Og nú við andlát hans hrannast upp minn- ingarnar, „margt ber að þakka og margs er að minnast“. Elli, eins og við jafnan nefndum hann, var fæddur í Hafnarfirði, sonur hjónanna Guðmundar Þorgeirsson- ar og Jónu Guðmundsdóttur. Eina yngri systur átti hann, Elísabetu, og þrjú hálfsystkini, sammæðra, Gústaf, Laufeyju, sem búsett er í Bandaríkjunum, og Gunnar, sem er látinn. Elli var á margan hátt sér- stæður maður, en öll hans skap- höfn einkenndist af dug og dreng- skap. Ungur lauk hann trésmíðanámi frá Iðnskólanum í Hafnarfirði og hann var víðlesinn og þekkti sögu Hafnarfjarðar mjög vel, sem og umhverfið í kringum þennan heimabæ sinn. Elli var mikill útivistarmaður og ferðaðist vítt og breitt um landið. Einnig var hann mikill Haukamaður og spilaði badminton til margra ára. Við hjónin eigum margar góðar minningar um Ella og minnumst þess hvað hann var hjálpsamur og vildi allt fyrir alla gera. Bónbetri manni höfum við varla kynnst og nutum við aðstoðar hans er við festum kaup á fyrstu íbúð okkar. Það fáum við aldrei fullþakkað. Elli var barngóður og naut sonur okkar gæsku hans í ríkum mæli. Elísabet og Ísidór, systir hans og mágur, hafa sýnt honum mikla umhyggju í erfiðum veikindum hans og vottum við hjónin þeim og fjölskyldum þeirra alla okkar sam- úð. Við kveðjum þennan trygga vin okkar með virðingu og þakklæti. Guð blessi minningu hans. Steinunn og Gunnlaugur Fjólar. GUÐMUNDUR ELÍS GUÐMUNDSSON                                                        ! "#$ %& ' ( )*#(  )*#%        & + (  %& (  & # &   (   ,  ( )*#   %& -. (   ,  ($                                                                                   !"# $%" &'% (  ) *)   ! +     , ) *)        -. * )    ''*) ) *)  ( (/  ( ( (/                                                        !"  # $ %&    '"(!"    )  # *  & + "  #  , "    - ".      -   #   - "#"    - !                           !       !" #
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.