Morgunblaðið - 16.06.2002, Qupperneq 42
MINNINGAR
42 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Ég kveð þig, elsku
Hanna mín, með harm
í hjarta. Það var fyrir
rúmum sjö árum er ég
kynntist Stebba þín-
um að þið Bárður tók-
uð mér opnum örmum inn í fjöl-
skyldu ykkar. Mér finnst allt of
stutt síðan og vildi svo heitt að við
hefðum haft meiri tíma. Þið Bárður
hjálpuðuð okkur unga parinu ómet-
anlega við að hefja okkar búskap.
Ég á eftir að sakna mikið að geta
ekki leitað til þín, því þar sem for-
eldrar mínir búa úti á landi varstu
ötul að gefa mér ráðleggingar.
Þér var mikill metnaður að þitt
fólk menntaði sig og varstu mjög
stolt þegar Stebbi útskrifaðist sem
atvinnuflugmaður. Aldrei mun ég
gleyma þegar að þið hjónin gáfuð
mér gjöf í þakklætisskyni fyrir að
styðja hann í gegnum námið. Svona
vartstu, gleymdir engum. Svo þeg-
ar ég útskrifaðist ásamt Siggu svil-
konu frá hársnyrtibraut varstu
JÓHANNA MAGGÝ
KRISTJÁNSDÓTTIR
✝ Jóhanna MaggýKristjánsdóttir
fæddist á Siglufirði
25. maí 1941. Hún
lést á heimili sínu í
Kópavogi 4. júní síð-
astliðinn og var útför
hennar gerð frá
Digraneskirkju 14.
júní.
ekki síður stolt. Við
áttum svo góðar
stundir, í ófá skiptin,
þegar ég lagði á þér
hárið, permaði, stríp-
aði eða klippti og þá
var oft hlegið yfir líð-
andi stundu.
Þú varst snyrti-
manneskja mikil,
hvort sem átt er við
útlit þitt eða heimili
ykkar hjóna. Þú varst
hreinskilin og það mat
ég mikils, virti og tók
mér til fyrirmyndar.
Atorka þín var mikil
og væri ég sjálfsagt ekki búin að
labba upp Esjuna enn ef þú hefðir
ekki drifið mig af stað. Þrátt fyrir
að þú næðir ekki toppnum gladdist
þú með okkur, mér, Bárði og
Hönnu litlu nöfnu þinni fyrir að
komast alla leið.
Garðurinn í Hrauntungunni var
þitt yndi og reyndir þú af mikilli
þolinmæði að vekja þann áhuga hjá
mér sem garðyrkjan var þér. Ég
held að þér hafi ekkert litist á að-
farir mínar í fyrstu. En eitt get ég
sagt þér nú, áhugi minn er kvikn-
aður og skal ég reyna að hjálpa
Bárði að halda garðinum fallegum
sem fyrr.
Það var alltaf gott að kíkja inn í
Hrauntungunni og munu þær
minningar sem eins og svo margar
aðrar hlýja manni um hjartarætur
um ókomna tíð.
Þrátt fyrir erfið veikindi studdir
þú og fjölskyldur okkar Stebba í að
láta brúðkaup okkar verða að veru-
leika í desember s.l.
Nú þegar þrautir þínar eru á
enda hvílir þú hjá Guggu systur
þinni og er það huggun á erfiðri
stundu. Ég bið góðan guð að
styrkja Bárð og alla fjölskyldu þína
á sorgarstundu.
Minning þín lifir, takk fyrir allt.
Þín tengdadóttir,
Elín Björg.
Mín góða æskuvinkona Hanna
Maggý er borin til hinstu hvílu í
dag. Svo fljótt tók þessi illi sjúk-
dómur hana sem greindist sl. sept-
ember. Ekki óraði mig fyrir því hve
mikil alvara væri á ferðum fyrst
þegar hún sagði mér af lasleika sín-
um sl. sumar. Þá vorum við báðar
staddar í Danmörku en Hanna var
þar á ferðalagi með nöfnu sína að
efna loforð við hana, því vildi hún
ekki breyta þótt heilsan væri ekki
alveg eins og hún átti að vera, en
kannski vissi það enginn nema hún.
Aldrei heyrði ég hana bera sig
illa, hún sagði mér hlutlaust frá
stöðunni eins og hún var hverju
sinni alltaf þegar við töluðum sam-
an. Hún stóð sig eins og hetja. Hún
átti líka góða að, Bárður, með
gæsku sína og þolinmæði, og synir
og tengdadætur stóðu þétt við hlið
Hönnu, og heima í faðmi fjölskyld-
unnar fékk hún að kveðja.
Gamalt máltæki segir: „Í hvert
sinn sem við missum vin deyjum
við lítið eitt.“ Ég kveð mína kæru
æskuvinkonu og þakka henni vin-
áttu og tryggð. Okkar stundir sam-
an geymast og fyrir þær vil ég
þakka.
Fjölskyldunni allri sendi ég inni-
legar samúðarkveðjur. Það er mikil
þraut fyrir Rannveigu og Kristján,
aldraða foreldra, að sjá á eftir
tveimur dætrum úr sama sjúkdómi
með þriggja mánaða millibili.
Elsku Bárður, Guð styrki ykkur
og styðji og blessi minningar ykkar
um Hönnu.
Þórhildur Pálsdóttir (Heddý).
Á björtum júnídegi sofnaði Unna
mágkona mín sínum hinsta svefni á
sinn hljóðláta og hógværa hátt. Hún
var ekki manneskja sem lét hafa
mikið fyrir sér ef hún gat komist hjá
því og henni var hlíft við að eiga í
löngu dauðastríði eins og svo margir
mega reyna. Þó var langt frá að hún
gengi heil til skógar, einkanlega síð-
ustu árin, en hún þjáðist af ólækn-
andi vöðvarýrnunarsjúkdómi.
Ég hafði þekkt Unnu frá því hún
var lítil, lífsglöð, ljóshærð telpa sem
alltaf gekk með gleraugu því sjón
hennar var nokkuð skert frá fæð-
ingu. Þessi lífsgleði fylgdi Unnu í
UNNA SVANDÍS
ÁGÚSTSDÓTTIR
✝ Unna SvandísÁgústsdóttir var
fædd í Reykjavík l0.
desember 1940. Hún
lést í Reykjavík 7.
júní síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Sigríður Lauf-
ey Guðlaugsdóttir og
Ágúst Jónsson. Hún
var sjöunda í röð tíu
systkina. Systkini
hennar eru: Guð-
laugur Gunnar, f.
1926, Ólafur Helgi, f.
1927, d. l971, Vigdís
Sigurbjörg, f. 1929,
d. 1931, Victor Sævar, f. 1930,
Vigdís Elín, f. 1935, Skúli, f. 1936,
d. l997, Hrafnhildur Auður, f.
l942, d. l997, Ingi Björgvin, f.
1945, d. 2001, og Aldís, f. 1948.
Eftirlifandi eiginmaður Unnu
er Ólafur Kristófersson. Foreldr-
ar hans voru Nanna Jónsdóttir og
Kristófer Jónsson.
Útför Unnu fer fram frá Laug-
arneskirkju þriðjudaginn 18. júní
og hefst athöfnin klukkan 10.30.
raun alla tíð. Hún var
eintaklega jákvæð per-
sóna sem frekar sá
björtu hliðar tilverunn-
ar en þær dökku. Hún
gekk í barnaskóla og
átti við nokkra náms-
örðugleika að stríða en
þegar barnaskóla lauk
komst hún í framhalds-
deildir sem þá voru ný-
byrjaðar til að létta
undir með þeim sem
áttu ekki auðvelt með
nám. Þar lærði hún þau
fög sem best nýttust
henni og var einkum
handavinna hennar líf og yndi. Unna
var stundum í sveit á sumrin og
einnig passaði hún börn í Reykjavík
því hún var með eindæmum barngóð
og hafði gott lag á börnum. Þegar
hún varð eldri fór hún að vinna í fiski
á Kirkjusandi eins og svo margir í þá
daga. Hún var áreiðanlega vel liðin í
vinnu bæði af yfirmönnum og starfs-
fólki því hún var samviskusöm en lét
ekki sinn hlut fyrir neinum ef um
slíkt var að ræða. Seinna varð hún að
hætta í fiskvinnunni vegna þess að
hendur hennar þoldu ekki kuldann
sem óhjákvæmilega fylgdu því
starfi. Hún hætti því í fiskvinnunni
og nokkru síðar fékk hún vinnu á
Múlalundi og vann þar til margra
ára.
Unna giftist árið 1975 Ólafi Krist-
óferssyni, bankastarfsmanni og þau
áttu heimili sitt fyrst í Reykjavík en
síðan lengst af í Hafnarfirði. Þeim
varð ekki barna auðið en eftir að
Unna hætti vinnu á Múlalundi fór
hún á daggæslunámskeið og tók síð-
an börn í daggæslu meðan heilsan
leyfði.
Þau Unna og Ólafur ferðuðust
töluvert bæði innanlands og utan og
hafði hún og þau bæði mikla ánægju
af því. Þannig áttu þau mörg góð ár
saman áður en heilsu Unnu fór að
hraka verulega. Ennfremur var
heilsa Ólafs ekki góð heldur.
Fyrir tæpum tveimur árum fór
Unna á Hjúkrunarheimilið Skjól og
dvaldi þar til dauðadags. Þar fékk
hún þá umönnun sem hún þurfti og
hún kom sér vel við alla. Fjölskyldan
þakkar af alhug því góða starfsfólki
sem þar annaðist hana.
Góð kona er gengin. Nú fer ég
ekki út á Skjól og sé þar góða, glaða
brosið hennar þar sem hún situr við
borðið sitt við gluggann í borðstof-
unni og við rifjum ekki lengur saman
upp gamlar endurminningar og hún
spyr mig frétta af fjölskyldunni en
hún var með afbrigðum fjölskyldu-
rækin og þótti vænt um að vita um
allt sem var á döfinni hjá henni. Eftir
lifir hjá okkur minningin um góða
systur, mágkonu og frænku sem til
hinstu stundar hélt glaðværri rósemi
sinni og æðruleysi þrátt fyrir erfið
veikindi til margra ára.
Ólafi eiginmanni hennar votta
systkini Unnu og þeirra skyldulið
innilegustu samúð. Megi ljúfar
minningar hans um sína góðu eig-
inkonu létta honum söknuðinn.
Blessuð sé minning Unnu Svan-
dísar Ágústsdóttur.
Ásgerður Ingimarsdóttir.
Unna mín. Það var gaman að
kynnast þér og gaman að tala við þig
þegar ég kíkti til þín á Skjóli. Þú
varst glöð og hlóst og við töluðum
um daginn og veginn. Þú spurðir
mig um Aldísi systur þína og hvernig
henni liði. Við trúum því ekki að þú
sért horfin. Ég gat ekki litið til þín
síðustu dagana, hafði ekki tíma. Við
söknum góðrar stúlku og vonum að
við getum styrkt manninn þinn sem
nú á um sárt að binda. Guð veri með
okkur öllum sem syrgjum.
Aldís og Stefán.
!!"
!"
!
#$
"
% &'
( "
) $
*
*! (
+!
!+'
+!
!+!
!+'
!"
#$% $$
$ &
!' !
() !" (* ++
!"# $%&&
$%& !"# & '&(#& )##&((#
( !"# ((# # *# + &&
!#, " & !"# ((# -# *##
.# ./# &,&(0 1
!
!
"#
"$%$
&' (
'
" # $#
%& " # '( ) **+ #$
#&' ,%# , # ,%#-
$&-, # , # ,%#.
!
!"#"$
%
&
&
'
( )*
+ , -
!"#
$
! "!#$$
% ""& ' !#$$
(# "!#$$
& ""&
" ""&
) ! " ""&
% " ""&
" "!#$$
& * +