Morgunblaðið - 09.10.2002, Qupperneq 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 7
„Corolla uppfyllir
allar kröfur.“
Ingvar Magnússon
Slökkviliðsmaður
COROLLA - TILFINNINGIN ER GÓÐ Það hefur aldrei verið
hagkvæmara en nú að eignast nýjan Corolla, bíl ársins 2002. Komdu strax og reynsluaktu vinsælasta
bíl á Íslandi, fyrr og síðar, og þú finnur hver ástæðan er. Verð frá 1.599.000. www.toyota.is.
Ég var að leita að traustum bíl sem færi vel
með f jölskylduna í löngum akstr i og gæti dregið
t ja ldvagn. Í stuttu mál i uppfyl l i r Corol la a l lar
okkar kröfur. Hann er frábær í akstr i , ótrúlega
rúmgóður og mjög sparneyt inn.
Öll þjónusta Toyota var t i l fyr i rmyndar, bæði
l ipur og vönduð. Meira að segja heimil is-
hundurinn, Tópas, fékk óvæntan glaðning;
sérsniðna mottu aftur í , sem hann er yf i r s ig
ánægður með.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
18
80
9
0
9/
20
02
…og þú finnur af hverju!
Bíll ársins 2002
REYNSLU
AKSTUR
Á ANNAÐ þúsund manna hafa
séð handritasýningu Árnastofn-
unar og Þjóðmenningarhúss, en
sýningin var opnuð á laugardag í
Þjóðmenningarhúsi við Hverf-
isgötu. Er aðsóknin langt umfram
það sem aðstandendur sýning-
arinnar bjuggust við.
Gestir lækka róminn
Á laugardaginn voru um 150
boðsgestir á sýningunni en á
sunnudaginn var hún opnuð al-
menningi. Komu þá 750 manns og
talsvert margir hafa skoðað sýn-
inguna síðan. Þótt sýningin hafi
upp á ýmislegt annað að bjóða en
ævagömul handrit fer ekki milli
mála að þau hafa langmesta að-
dráttaraflið. Dýrgripirnir eru
geymdir í sérhönnuðum gler-
skápum í dimmu herbergi þar
sem sérstöku ljósi beint að þeim.
Að sögn Málfríðar Finnbogadótt-
ur, skrifstofustjóra Þjóðmenning-
arhúss, lækka sýningargestir
málróminn þegar komið er inn í
handritaherbergið svo stemmn-
ingin minnir á það sem gerist er
fólk stendur andspænis helgi-
dómi. Jafnan er maður við mann
í kringum glerskápana og segir
Málfríður að foreldrar komi á
sýninguna með börnum sínum og
allir hafi jafngaman af því að
virða fyrir sér gersemarnar.
Á sýningunni er m.a. um 700
ára gamalt handrit, Konungsbók
eddukvæða, ásamt 14 öðrum
handritum, sem er vandlega
gætt, enda um ómetanlega dýr-
gripi að ræða.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jónas Kristjánsson, fyrrver-
andi forstöðumaður Árnastofn-
unar, og Ármann Snævarr,
fyrrverandi háskólarektor og
hæstaréttardómari, voru með-
al sýningargesta um helgina.
Mikil aðsókn að
handritasýninguEngar stór-
ar breyt-
ingar á
rekstrinum
TVEGGJA daga vinnufundi lög-
reglustjóraembættisins í Reykjavík
lauk í gær að Skógum undir Eyja-
fjöllum. Að sögn Ingimundar Einars-
sonar, varalögreglustjóra, eru engar
stórar breytingar ráðgerðar á rekstri
lögreglunnar í náinni framtíð.
Á fundinum var unnið að undir-
búningi rekstrar- og starfsáætlunar
fyrir næsta ár og farið yfir fjárhag
embættisins. Ingimundur segir að
rætt hafi verið um með hvaða hætti
unnt sé að bregðast við minni fjár-
veitingum til embættisins. „Við erum
nánast að kafa í allan reksturinn og
spyrja hvar við getum mætt þessu,
hvar við getum gert betur, hvar við
getum breytt um áherslur,“ segir
hann.
Engar stórbreytingar
Hann segir ekki tímabært að
greina frá efni fundarins. Eftir sé
meðal annars að skila rekstraráætlun
til dómsmálaráðuneytisins en ljóst að
engar stórar breytingar verði gerðar
og reksturinn verði með mjög svip-
uðu sniði og í fyrra.
Heildarframlag til embættisins er
röskar 1.900 milljónir og eru fjárveit-
ingar samkvæmt fjárlögum eilítið
lægri nú en í fyrra, eða sem nemur
rúmum 5 milljónum króna.
Á vinnufundinum í Skógum komu
saman lögreglustjóri og varalög-
reglustjóri, yfirlögregluþjónar, fjár-
málastjóri og starfsmannastjóri.
Lögreglustjóra-
embættið í Reykjavík
fundar í Skógum
Til aðstoðar
munaðarlaus-
um og eyðni-
smituðum
HUNGRAÐIR í sunnanverðri Afr-
íku munu njóta góðs af landssöfn-
un Rauða kross Íslands sem fram
fór á laugardag. Rúmlega 28 millj-
ónir króna söfnuðust og yfir 2.000
sjálfboðaliðar gengu í hús um allt
land og söfnuðu fé í bauka.
Rauði krossinn hafði sett sér
það markmið að fá 2.000 sjálfboða-
liða til starfa og safna 20 millj-
ónum króna. Það markmið náðist
því og vel það. „Við erum hrærð
og glöð yfir viðbrögðum lands-
manna og afar þakklát þeim sem
gengu til góðs og söfnuðu,“ sagði
Þórir Guðmundsson, upplýsinga-
fulltrúi Rauða krossins.
750 þúsund þurfa aðstoð
Féð verður notað til verkefna í
sunnanverðri Afríku þar sem Al-
þjóða Rauði krossinn er að dreifa
matvælum til íbúa fimm landa
vegna hungursneyðar. Stefnt er að
því að nota söfnunarfé frá Íslandi
og fleiri löndum til að aðstoða 750
þúsund manns fram yfir næstu
uppskeru sem verður í apríl.
„Rauði krossinn leggur áherslu á
að aðstoða fjölskyldur alnæmis-
smitaðra, aldraða og munaðarlaus
börn,“ segir Þórir. „Þarfir hvers
svæðis eru misjafnar. Sum staðar
er fólk t.d. farið að borða útsæðið.
Þar verður dreift matvælum svo
það geti sett útsæðið í jörð í nóv-
ember og fengið nauðsynlega upp-
skeru í apríl.“
Söfnunarsími Rauða kross Ís-
lands, 907 2020, er enn opinn, en
með því að hringja í hann færast
1.000 krónur til söfnunarinnar á
næsta símreikning.
Landsmenn gáfu rúmar
28 milljónir til söfnunar
Rauða krossins
♦ ♦ ♦