Morgunblaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 13
VATNSVIRKINN ehf
Ármúla 21 · Sími 533 2020
www.vatnsvirkinn.is
ÞAKRENNUR
Frábærar Plastmo
þakrennur með 20 ára
reynslu á Íslandi.
Til í gráu, brúnu, hvítu
og svörtu.
Heildsala - Smásala
„ÞESSAR skepnur þykja nú ekki
lömb að leika sér við og voru taldar
geta tætt stakkinn utan af sjómönn-
um ef sá gállinn var á þeim,“ segir
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í
Kópavogi, þegar forvitnast er um
tildrög þess að fálkinn var tekinn
inn í fjölskylduna. „Pabbi var á tog-
ara við Grænland og það var vitlaust
veður þegar hann náði fálkanum.
Ég veit ekki hvort fuglinn ætlaði að
hvíla sig eða grípa fisk en að
minnsta kosti renndi hann sér niður
að bátnum. Pabbi hafði séð hann út
undan sér og þegar fálkinn var að
svífa yfir hann skaut hann upp lúk-
unni og greip í lappirnar á honum.“
Sigurður er ekki viss hvenær
þetta var en telur að þetta hafi verið
á seinni hluta sjötta áratugarins en
á þeim tíma var hann sjálfur farinn
að heiman. Hann kann þó vel söguna
af fálkanum enda hefur sjálfsagt
mikið verið um hann rætt í gegn um
tíðina.
Aðspurður segir hann pabba sinn
ekki hafa verið par banginn þrátt
fyrir að fuglar sem þessir ættu það
til að vera „helvíti grimmir“ eins og
hann orðar það. „Það var bara að
vera nógu fljótur. Svo tók hann sig
til og smíðaði strax utan um hann
búr og setti hann í það enda var
pabbi góður smiður og föndraði
mikið í öllu á milli himins og jarðar.
Þetta var heilmikið búr og hann
hafði fálkann í því og fór með hann
heim til Siglufjarðar.“
Sigurður segir þetta hafa verið
vandkvæðalaust enda pabbi hans
ættaður úr Grímsey „þar sem menn
kunna að umgangast fugla“.
Búrið haft opið inni á heimilinu
Sigurður segir að nýi fjölskyldu-
meðlimurinn hafi fengið ákveðið
frjálsræði inni á heimilinu en búrið
var allajafna haft opið þannig að
hann gæti valsað inn og út úr því að
vild.
„Hann var ekkert erfiður við okk-
ur og strákarnir bræður mínir
sögðu mér að hann hefði alltaf sest
efst á fataskáp frammi á gangi þar
sem hann stiklaði um og fylgdist
með heimilisfólkinu. Frá skápnum
var opið inn í eldhús þar sem krakk-
arnir sátu gjarnan á gólfinu. Þá
voru nú engir barnastólar heldur
var annaðhvort setið með yngstu
krakkana eða þeir bara látnir vera á
gólfinu og þeim hreinlega rétt eitt
og eitt bein eða matarbiti.“
Að sögn Sigurðar fylgdist fálkinn
grannt með þessum aðferðum.
„Hann átti það til að renna niður að
krökkunum þótt hann snerti þá
aldrei heldur tók hann með klónni í
beinið eða bitann og togaði. Það var
víst alveg kostulegt að sjá þá togast
á um matinn, fálkann og þann sem
þá var yngstur en það var Sævar
bróðir sem nú er látinn. Þá hefur
hann verið svona eins og hálfs til
tveggja ára.“
Endaði í bandarískum háskóla
Hann segir fálkann aldrei hafa
klórað eða bitið fjölskyldufólkið en
vera hans á heimilinu vakti óneit-
anlega athygli í Siglufirði. Meðal
annars fór Gísli með skepnuna í alla
bekki skólans til að sýna börnunum
hann og Sigurður tekur fram að þá
hafi búrið verið kirfilega lokað og
krökkunum banna að stinga fingr-
unum inn í það.
Inntur eftir endalokum fálkans
segir Sigurður það vera enn eitt
furðuverkið. „Pabbi vildi losna við
hann en ekki drepa hann og einhver
hafði frétt af því. Að minnsta kosti
fékk hann bréf frá háskóla í Banda-
ríkjunum sem rannsakaði svona
fugla og átti þá og vildi kaupa ein-
takið. Þeir sögðu honum að í Aust-
urlöndum gengju fálkar kaupum og
sölum fyrir stórar upphæðir en þeir
væru bara með ákveðið gjald fyrir
svona fugla og það væri fimm doll-
arar. Og það fannst pabba bara
fínt!“
Það voru svo Flugleiðir sem tóku
að sér að flytja fálkann yfir hafið
eftir að hann hafði dvalið á heim-
ilinu um nokkurra mánaða skeið.
„Pabbi vildi ekki láta hann fyrr þótt
það væri fullt af mönnum sem vildu
fá hann í einhverja vitleysu. Hann
vildi hins vegar að hann yrði hjá
mönnum sem kynnu að umgangast
hann og það var ekki fyrr en þetta
bréf kom frá Bandaríkjunum að
hann fór.“
Fálki dvaldi á æskuheimili Sigurðar Geirdal bæjarstjóra á sjötta áratugnum
Þessi mynd af Gísla Sigurðssyni og fálkanum sem hann klófesti utan við Grænlandsstrendur var send út á jóla-
korti til ættingja og vina um það leyti sem fálkinn hafði aðsetur sitt á heimili hans.
Togaðist á um
mat við
yngstu börnin
Fálkar hafa löngum þótt heillandi dýr og
hættuleg og ber nýjasta kvikmynd Friðriks
Þórs Friðrikssonar vitni um það. Það eru hins
vegar fáir sem hafa kynnst þessum skepnum í
návígi, eins og fjölskylda Sigurðar Geirdal
gerði á sjötta áratugnum, þegar fjölskyldufað-
irinn, Gísli Sigurðsson í Siglufirði, tók græn-
lenskan veiðifálka í fóstur og ól hann á heim-
ilinu um nokkurra mánaða skeið.
Kópavogur
ÞAÐ voru kátir krakkar sem fylgd-
ust með því þegar samkomulag um
niðurgreiðslur Hafnarfjarðarbæjar
á íþróttaiðkun barna 10 ára og yngri
var undirritað í gær í íþróttahúsinu
við Kaplakrika. Samkomulagið gerir
ráð fyrir því að hvert barn í Hafn-
arfirði, sem er tíu ára og yngra, fái
allt að tvöþúsund króna niður-
greiðslu á þátttökugjöldum fyrir
hverja íþrótt sem það stundar.
Samningurinn er afturvirkur til 1.
september sl. og er gert ráð fyrir að
kostnaður bæjarins vegna hans
verði 10 milljónir á þessu ári en á
bilinu 30 – 40 milljónir árlega eftir
það.
Það var Guðmundur Rúnar Árna-
son, bæjarfulltrúi og formaður Fjöl-
skylduráðs Hafnarfjarðar, og Lúð-
vík Geirsson bæjarstjóri sem
skrifuðu undir samninginn fyrir
hönd Hafnarfjarðar og Friðrik
Ólafsson formaður Íþróttabanda-
lags Hafnarfjarðar og Óskar Ár-
mannsson, framkvæmdastjóri sem
skrifuðu undir fyrir hönd banda-
lagsins.
Krakkar úr Öldutúnsskóla voru í
leikfimikennslu þegar undirritunin
fór fram og er ekki annað að sjá en
að þeir séu spenntir á svip, enda
mun samkomulagið væntanlega
koma þeim til góða við frekari
íþróttaiðkun á næstunni. Er engu
líkara en þeir hafi stillt sér upp í
einskonar heiðursvörð meðan
stjórnendurnir munda pennana.
Samningur um niðurgreiðslur til íþróttastarfs frágenginn
Krakkar mynduðu heiðursvörð við undirritun
Morgunblaðið/Golli
Hafnarfjörður
ÞRIÐJI áfangi Salaskóla í
Kópavogi verður boðinn út á
næstunni en um er að ræða fjór-
ar sérkennslustofur auk stjórn-
unarrýmis. Áformað er að taka
áfangann í notkun haustið 2003.
Að sögn Stefáns L. Stefáns-
sonar, deildarstjóra fram-
kvæmdadeildar bæjarins, verða
nýju stofurnar fyrir raungrein-
ar og handmennt. „Við erum að
ljúka við fyrsta áfanga skólans
núna sem eru almennar
kennslustofur. Annar áfanginn
er að fara í gang og það á að
taka hluta hans í notkun um
næstu áramót. Svo er þriðji
áfanginn sem nú á að fara að
bjóða út.“
Gert er ráð fyrir fjórða
áfanga skólans en að sögn Stef-
áns mun það fara eftir þörfinni
hvenær ráðist verður í hann.
Verið er að vinna kostnaðar-
áætlun fyrir þriðja áfangann,
sem bjóða á nú út, og því eru
ekki haldbærar tölur fyrirliggj-
andi um hann.
Þriðji
áfangi
Salaskóla
boðinn út
Kópavogur