Morgunblaðið - 09.10.2002, Síða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 17
AGORA fyrir atvinnulífið – fagsýning
10. og 11. október
Fagsýningin veitir fulltrúum atvinnulífsins einstakt tækifæri til að kynna
sér nýjungar og þjónustu á sviði hugbúnaðar, fjarskipta, hátækni og
þekkingarþróunar. Allir gestir fagsýningar fá afhent strikamerkt
nafnspjald og nýjasta eintak af Tölvuheimi.
AGORA – fagsýning þekkingariðnaðarins Laugardalshöll
10.–12. október 2002
Dagskrá AGORA
15.00 –19.00
Opin öllum
1.– 9. okt. 1500 kr.
Keypt á staðnum 10.–11. okt. 2100 kr.
Opin öllum laugardaginn 12. okt 800 kr.
Miðaverð ef gengið er frá pöntun á agora.is
www.agora. is
Allir
velkomnir,laugardaginn12. október
Hátíða
rkvöld
verður
og Ag
ora
verðla
unin í S
úlnasa
l Hóte
l Sögu
,
föstud
aginn
11. ok
tóber
• Salu
rinn o
pnar k
l. 18:4
5
• Hana
stél í b
oði iðn
aðar-
og viðs
kiptará
ðuneyt
is
• Þríré
ttaður
hátíða
rmats
eðill
• Ávar
p heið
ursges
ts
Ingibja
rgar S
ólrúna
r Gísla
dóttur
, borg
arstjó
ra
• Agor
a verð
launin
– verð
launaa
fhendi
ng
• Skem
mtidag
skrá
• Gullf
oss og
Geysir
spila u
ndir d
ansi
Í KJÖLFAR kaupa Hewlett-Packard
á Compaq og samruna fyrirtækjanna
í HP hafa kviknað ýmsar spurningar
um hvaða áhrif það eigi eftir að hafa
hér á landi þar sem Opin kerfi hafa
lengi verið heildsali með vörur frá HP
og selt að auki í smásölu en Tæknival
og síðar ACOTæknival selt tölvubún-
að frá Compaq. Fyrir skemmstu
sendi ACOTæknival frá sér fréttatil-
kynningu þar sem fram kom að fyr-
irtækið hefði gert samstarfssamning
við HP um sölu á búnaði frá Hewlett-
Packard á heimilismarkaði. Í tilkynn-
ingunni segir meðal annars að með
samningnum tryggi verslanasvið
AcoTæknivals sér beinan aðgang að
HP og að fyrirtækið verði eina ís-
lenska fyrirtækið sem HP muni gera
slíkan samning við.
Henrik Sinnbeck er framkvæmda-
stjóri einkatölvusviðs Hewlett-Pack-
ard í Danmörku og sér einnig um
samskipti við samstarfsaðila fyrir-
tækisins. Hann segir að kaup Com-
paq á HP muni ekki hafa nein áhrif á
skipan mála hjá þeim íslensku fyrir-
tækjum sem fyrirtækið hefur átt
samskipti við í gegnum árin, þ.e. Opn-
um kerfum, sem haft hafa HP-vörur í
heildsölu og selt að auki til fyrirtækja,
og ACOTæknivali, sem var áður smá-
sali á Compaq-vörum og verður nú
viðurkenndur smásali á HP-tölvubún-
aði, en í því felst meðal annars að fyr-
irtækið fær aðgang að ýmislegu sam-
starfi Hewlett-Packard með
smásölum í Danmörku, markaðs-
starfi og ýmissi þekkingu. Aukinheld-
ur megi nefna að smásölum almennt
sé vitanlega leyfilegt að
kaupa HP vörur í heild-
sölu „Við hyggjumst
ekki gera neina einka-
samninga við íslensk
fyrirtæki og samningur
HP við ACOTæknical
um smásölu á HP-bún-
aði til heimila felur ekki
í sér að önnur fyrirtæki
séu útilokuð frá því að
gera slíka samninga við
okkur. Eins og málum
er háttað er einn heild-
sali á HP-vörum á Ís-
landi, Opin kerfi, sem
eru og verða með í heil-
sölu allan tölvubúnað
sem HP framleiðir, allt frá stórtölvum
í smærri búnað fyrir heimili, og munu
allar nýjar HP-vörur verða fáanlegar
frá Opnum kerfum. Hvað samninginn
við ACOTæknival varðar gefur hann
fyrirtækinu kost á að kaupa HP-
vörur hvort sem er af Opnum kerfum
eða heildsölum í Danmörku.
Við höfum ekki gert neinn einka-
samning við neitt íslenskt fyrirtæki
og stendur ekki til að gera slíkan
samning, við semjum við hvert það
fyrirtæki sem hefur bolmagn til að
veita þá þjónustu sem við krefjumst.“
Meðal þeirra atriða sem nefnt hef-
ur verið að muni geta haft áhrif á
stöðu íslenskra fyrirtækja til HP er
að ólíklegt sé að Opin kerfi muni geta
haldið áfram að selja HP-vörur í smá-
sölu og vera jafnframt heildsali enda
tíðkist slíkt ekki almennt hjá fyrir-
tækjum í nágrannalöndum okkar.
Sinnbeck segist ekki sjá
neitt því til trafala að
Opin kerfi haldi áfram
að selja beint til fyrir-
tækja samhliða því að
fyrirtækið sé heildsali
svo framarlega sem það
fylgir þeim samningum
sem það hefur gert við
HP. „Það hefur ekkert
breyst í samskiptum
Hewlett-Packard við ís-
lensk fyrirtæki og ég á
reyndar erfitt með að
átta mig á hvers vegna
umræða sem þessi hef-
ur farið af stað; í okkar
augum er allt eins og
það á að vera og hefur verið í áraraðir,
viðskipti að vanda. Ég legg mikla
áherslu á það að ekki stendur til að
gera neinar breytingar á samskiptum
Hewlett-Packard við íslensk fyrir-
tæki þótt þau samskipti séu að ein-
hverju leyti frábrugðin því sem gerist
í Danmörku.“
Samskipti Hewlett-Packard við íslensk fyrirtæki
Ekki stendur til að
gera neinar breytingar
Henrik Sinnbeck
HLUTABRÉF í Búnaðarbanka Ís-
lands að andvirði 931 milljónar króna,
á genginu 4,95, skiptu um hendur í
gær. Um er að ræða 188 milljónir
króna að nafnvirði, eða 3,5% hluta-
fjár. Ekki er ljóst hverjir endanlegir
kaupendur verða, en Morgunblaðið
hefur heimildir fyrir því að kaupend-
ur tveggja prósenta séu a.m.k. laus-
lega tengdir Þórði Magnússyni, for-
svarsmanni hins svokallaða
Gildingarhóps. Sem kunnugt er hefur
hópur fjárfesta undir forystu hans
lýst yfir áhuga á kaupum á hlut rík-
isins í Búnaðarbankanum.
Gildingarhópur með a.m.k. 11,5%
hlutafjár í Búnaðarbankanum
Verð hlutabréfa í BÍ hækkaði um
0,1 í gær, úr 4,85 í 4,95, eða 2,1%. Af
hluthafalista frá því síðdegis í gær má
ráða að Búnaðarbankinn keypti
hlutabréf í sjálfum sér og að meðal
seljenda voru Lífeyrissjóðir Banka-
stræti 7.
Fyrir tæpum tveimur vikum keypti
Búnaðarbankinn tæplega10% hlut í
sjálfum sér og seldi hann svo áfram.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir
því að kaupandi a.m.k. drjúgs hluta
hafi verið Þórður Magnússon og að-
ilar tengdir honum. Eftir þau við-
skipti átti sá hópur a.m.k. 9,5% í
bankanum, eftir því sem Morgun-
blaðið kemst næst. Samkvæmt því er
hlutur þeirra því nú 11,5% hið
minnsta.
Ef bornir eru saman hluthafalistar
fyrir og eftir viðskiptin í gær kemur í
ljós að hlutur BÍ stækkaði um 140
milljónir að nafnvirði, eða u.þ.b. 690
milljónir miðað við gengið 4,95. Að
sama skapi minnkaði hlutur Lífeyr-
issjóða Bankastræti 7 um 100 millj-
ónir, eða 495 milljónir miðað við sama
gengi.
Gera má ráð fyrir að hér sé sem
fyrr um framvirka samninga að ræða.
Því má reikna með að hlutur BÍ í
sjálfum sér minnki á næstu dögum,
um leið og í ljós kemur hverjir kaup-
endur hlutafjárins eru.
Mikil viðskipti
með bréf í BÍ
2% tengjast Gildingarhópi
SAMNINGUR Íslenskrar erfða-
greiningar og bandaríska lyfjaþróun-
arfyrirtækisins Merck, um þróun
nýrra meðferðarúrræða gegn offitu,
breytir í grundvallaratriðum ekki
verðmati bandaríska verðbréfafyrir-
tækisins JP Morgan á deCODE,
móðurfélagi Íslenskrar erfðagrein-
ingar.
Í nýrri greiningarskýrslu JP
Morgan á deCODE er ráðgjöf fyrir-
tækisins hlutlaus. Þar kemur fram að
ekki sé ástæða til að breyta fyrri af-
komuspá sem hljóðaði upp á að tap á
hlut á þessu ári yrði 1 Bandaríkjadal-
ur og að tap á hlut á næsta ári yrði
0,75 dalir. Hins vegar segir í skýrsl-
unni að samningurinn við Merck sé
viðurkenning á skilningi deCODE á
virkni gena svo og á aðferðafræði fé-
lagsins, en þetta geti nýst til þróunar
nýrra lyfja. DeCODE hafi með samn-
ingnum fundið leið til að markaðs-
setja gagnagrunnskerfi sitt án þess
að veita of víðtækan aðgang að grunn-
inum.
Fram kemur í greiningarskýrsl-
unni að JP Morgan spáir því að tekjur
deCODE á næsta ári muni nema um
73 milljónum Bandaríkjadala.
Óbreytt verðmat JP Morgan á deCODE