Morgunblaðið - 09.10.2002, Blaðsíða 37
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 2002 37
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ATVINNA ÓSKAST
Þrítug, lífsglöð og drífandi
kona óskar eftir vinnu. Ég hef unnið við bók-
hald, launauppgjör, almenn skrifstofustörf og
afgreiðslu. Ég bý yfir mjög góðri tölvukunnáttu
og hef gott vald á íslensku og ensku í töluðu
og rituðu máli. Ég er heilsuhraust, dugleg og
metnaðarfull. Upplýsingar hjá Önnu Jónu í
síma 660 5799 eða anna@saxon.is .
Starfskraftur óskast
Starfskraftur á miðjum aldri óskast í vinnu, 4—5
tíma á dag, við útsaum (bróderingu), merkja
á fatnað. Þekking á saumavélum og tölvukunn-
átta æskileg en ekki skilyrði. Þarf að geta byrjað
sem fyrst. Reglusemi og stundvísi áskilin.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
eða á box@mbl.is, merktar: „S — 12829.“
Afgreiðslustarf
— vaktavinna
Glæsilegt fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu
óskar eftir starfskrafti, á aldrinum 25—50 ára,
til afgreiðslustarfa. Starfið felst m.a. í símsvör-
un, sölu á vörum og þjónustu ásamt bókunum
og léttum þrifum.
Við leitum eftir reyklausum, glaðlegum og dug-
legum einstaklingi með ríka þjónustulund sem
hefur gott vald á 1—2 tungumálum.
Umsóknir skilist til auglýsingadeildar Mbl. eða
á box@mbl.is fyrir kl. 18.00 þriðjudaginn
9. október, merktar: „A — 12815.“
FRÁ HJALLASKÓLA
• Kennara vantar í 2/3 stöðu
Kennslugreinar eru heimilisfræði og enska
Launakjör skv. kjarasamningum KÍ og Launa-
nefndar sveitarfélaga.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um
stöðuna.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 554 2033.
Starfsmannastjóri
KÓPAVOGSBÆR
Kennarar
Laus er til umsóknar 1 kennarastaða við Lauga-
landsskóla í Holtum, Rang., frá áramótum. Um
er að ræða bekkjarkennslu í 4. bekk þar sem
nemendafjöldi er 11.
Laugalandsskóli er heilsdagsskóli með góða
vinnuaðstöðu, 100 km frá Rvík. Gott húsnæði
á staðnum, leikskóli og stutt í alla þjónustu.
Umsóknarfrestur til 23. október 2002.
Veffang: http://laugaland.ismennt.is/
Netfang: laugholt@ismennt.is .
Upplýsingar veitir skólastjóri í vs.
487 6540 og hs. 487 6585.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FÉLAGSSTARF
Vörður - Fulltrúaráð sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík
Fundur vegna prófkjörs
Fundur í Verði - Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík verður
haldinn í Valhöll í dag, miðvikudaginn 9. októ-
ber, kl. 17.30.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar Varðar - Fulltrúaráðsins um
að fram skuli fara sameiginlegt prófkjör í
Reykjavíkurkjördæmunum tveimur vegna
framboðs til alþingiskosninganna vorið 2003.
2. Ræða formanns Sjálfstæðisflokksins, Davíðs
Oddssonar, forsætisráðherra.
Vinsamlega athugið, að fundurinn er eingöngu
opinn þeim, er setu eiga í Fulltrúaráði sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík.
Stjórnin.
BÁTAR SKIP
Bátur til sölu
Til sölu er dragnóta- og línubáturinn Diddó
BA 3 (1464) ásamt eftirfarandi aflahlutdeildum:
Þorskur 15.000 kg
Ýsa 5.000 kg
Ufsi 2.687 kg
Karfi 2.923 kg
Nánari upplýsingar í síma 450 2100. Tilboð
óskast send á oddi@oddihf.is .
TILKYNNINGAR
Bókaútgefendur
Skilafrestur vegna kynninga og auglýsinga í
Bókatíðindum 2002 rennur út 14. október nk.
Ritinu verður sem áður dreift á öll heimili á
Íslandi.
Frestur til að leggja fram bækur vegna
Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2002
rennur út 28. október nk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Félags
íslenskra bókaútgefenda,
Barónsstíg 5, sími 511 8020.
Félag íslenskra bókaútgefenda.
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Allsherjaratkvæðagreiðsla verður viðhöfð um
kjör fulltrúa á ársfundi Alþýðusambands
Íslands, sem haldinn verður í Reykjavík dagana
31. okt. og 1. nóv. nk. Tillögur skulu vera um
4 aðalmenn og 4 til vara.
Tillögum, ásamt meðmælum, samkvæmt lög-
um félagsins, skal skila á skrifstofu Verslunar-
mannafélags Hafnarfjarðar, Lækjargötu 34D,
eigi síðar en kl. 12.00 á hádegi miðvikudaginn
16. október nk.
Kjörstjórn Verslunarmanna-
félags Hafnarfjarðar.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 18 1831098 Kk.
HELGAFELL 6002100919 VI
I.O.O.F. 7 18310097½ Fl.
I.O.O.F. 9 1831097½ Rk
GLITNIR 6002100919 III
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Í kvöld kl. 20.00: Hjálparflokk-
ur. Brigader Ingibjörg Jónsdóttir
talar. Allar konur velkomnar.
Háaleitisbraut 58
Samkoma í Kristniboðs-
salnum í kvöld kl. 20.30.
„Æsingur í Efesus“.
Jónas Þórisson talar.
Kaffisala eftir samkomu.
Allir hjartanlega velkomnir.
STJÓRN Samtaka atvinnulífsins
lýsir í ályktun ánægju samtakanna
með fjárlagafrumvarp ríkisstjórn-
arinnar. Hún leggur áherslu á mik-
ilvægi þess að útgjaldaáætlunin
vaxi ekki í meðförum Alþingis né
verði langtímahugsun frumvarps-
ins fórnað, hvetur ríkisstjórnina til
að koma böndum á útgjaldaþenslu
heilbrigðiskerfisins og fagnar því
að hreyfing sé á ný komin á einka-
væðingu ríkisfyrirtækja.
Ályktun SA fer hér á eftir:
„Samtök atvinnulífsins lýsa
ánægju sinni með þá ábyrgu rík-
isfjármálastefnu sem boðuð er með
fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinn-
ar fyrir árið 2003. Frumvarpið ein-
kennist fremur af langtímahugsun
en þeirri staðreynd að kosið er til
Alþingis á næsta ári, sem lýsir sér
vel í níu milljarða króna framlagi
til að laga skuldastöðu lífeyrissjóðs
ríkisstarfsmanna. Ráðgerður ellefu
milljarða króna afgangur er mjög
viðunandi árangur í núverandi ár-
ferði.
Stöðugleiki er nú aftur að nást í
íslensku efnahagslífi og aðhalds-
semi í opinberum útgjöldum er
mikilvæg forsenda þess að hann
haldist. Verði af fyrirhuguðum
stóriðjuframkvæmdum hafa for-
sendur frumvarpsins breyst nokk-
uð og eykst þá enn mikilvægi að-
haldssemi í fjármálum hins
opinbera, til þess að sporna gegn
hugsanlegum þensluáhrifum fram-
kvæmdanna. Samtök atvinnulífsins
leggja því áherslu á mikilvægi þess
að útgjaldaáætlunin vaxi ekki í
meðförum Alþingis og að þeirri
langtímahugsun sem einkennir
frumvarpið verði ekki fórnað.
Ljóst er að helstu veikleikar
fjárlagafrumvarpsins eru sem fyrr
í heilbrigðiskerfinu. Finna þarf
haldbærar skýringar á endurtek-
inni framúrkeyrslu á því sviði og
hvetja Samtök atvinnulífsins rík-
isstjórnina til þess að leita allra
leiða til að koma böndum á út-
gjaldaþenslu kerfisins. Frekari út-
boð þjónustuverkefna hljóta að
koma til greina í því sambandi.
Samtök atvinnulífsins lýsa sér-
stakri ánægju með að hreyfing
virðist á ný komin á framkvæmd
einkavæðingar ríkisfyrirtækja,
með viðræðum við hugsanlega kjöl-
festufjárfesta í ríkisbönkunum.
Það er löngu tímabært að þeim
kafla einkavæðingarsögunnar ljúki
og hér komist á sambærilegt fyr-
irkomulag á fjármálamarkaði við
það sem ríkir í nágrannalöndum
okkar. Með einkavæðingu er stuðl-
að að virkari samkeppni og aukinni
framleiðni í efnahagslífinu, sem
aftur rennir styrkari stoðum undir
batnandi lífskjör í landinu.“
Stjórn SA lýsir ánægju
með fjárlagafrumvarpið