Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 5

Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 5
KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 B 5 ÞÝSKU meistararnir Borussia Dortmund nálgast Bayern Münch- en á toppi þýsku 1. deildarinnar í knattspyrnu. Bayern gerði aðeins jafntefli á heimavelli, 3:3, við Hann- over á laugardaginn en Dortmund gerði á meðan góða ferð til Bremen og vann heimamenn í Werder, 4:1. Þar með skilja þrjú stig liðin að, Bayern er með 23 stig en Dortmund 20, og ekki er ólíklegt að keppnin um þýska meistaratitilinn í vetur verði einvígi þessara tveggja liða. Brasilíumaðurinn Ewerthon gerði heldur betur usla þegar hann kom inn á sem varamaður hjá Dort- mund 16 mínútum fyrir leikslok. Hann hafði aðeins verið inn á í nokkrar sekúndur þegar hann kom liði sínu í 3:1 og innsiglaði sigurinn með öðru marki áður en yfir lauk. Giovane Elber skoraði tvö marka Bayern gegn Hannover en nýlið- arnir nýttu sér vel varnarmistök Bæjara í leiknum. Það var varn- armaður Bayern, Samuel Kuffour, sem færði gestunum stigið að lok- um með sjálfsmarki skömmu fyrir leikslok. Eyjólfur Sverrisson sat á vara- mannabekk Herthu Berlín sem gerði jafntefli, 1:1, við Leverkusen. Dortmund sækir að Bayern Danny Murphy kom Liverpoolyfir seint í leiknum en Dean Richards virtist búinn að tryggja Tottenham stig þegar hann jafnaði 8 mínútum fyrir leikslok. En Mich- ael Owen tók til sinna ráða, hann lék varnarmenn Tottenham grátt og var felldur af Steve Carr. Víta- spyrna, og úr henni skoraði Owen sjálfur af mikilli yfirvegun. Gerard Houllier, knattspyrnu- stjóri Liverpool, hældi Owen á hvert reipi eftir leikinn. „Michael sýndi mikinn styrk með því að taka víta- spyrnuna sjálfur. Hann er aðeins 22 ára en ræður við svona lagað. Þetta var ekki auðveld vítaspyrna, staðan var ekki 5:0, við vorum á lokamín- útunum í hörkuleik gegn góðu liði,“ sagði Houllier. Glenn Hoddle, kollegi hans hjá Tottenham, tók í sama streng. „Munurinn á liðunum í dag var Michael Owen. Við gerðum allt sem við gátum til að halda honum niðri en hann komst tvívegis innfyrir vörn okkar og í annað skiptið náði hann í vítaspyrnuna sem réð úrslit- um. Þetta var að sjálfsögðu víta- spyrna, ég áfellist ekki Carr en Owen er eldfljótur og þetta voru eðlileg viðbrögð. Lið Liverpool sýndi að það hefur styrk til að knýja fram sigur í erfiðum leikjum og á mjög góða möguleika á að vinna meistaratitilinn í vetur,“ sagði Hoddle. „Verðum sterkari þegar erfiði kaflinn er að baki“ Þriðji ósigur Arsenal á átta dögum var óvæntur, 1:2 á heimavelli gegn Blackburn. Edu skoraði fyrir bæði lið í fyrri hálfleik, kom Blackburn yf- ir með skrautlegu sjálfsmarki en jafnaði síðan beint úr aukaspyrnu. Dwight Yorke skoraði sigurmark Blackburn, sem varðist með kjafti og klóm eftir það. Yfirburðir Arsenal voru miklir í leiknum og áttu leik- menn liðsins 27 skot að marki, en bandaríski markvörðurinn Brad Friedel var í miklum vígamóði og varði hvað eftir annað glæsilega. Leikmenn Blackburn áttu eitt skot að marki, en skoruðu tvö mörk – annað sjálfsmark Arsenal. En það eru mörkin sem telja þegar uppi er staðið, en ekki markskotin. „Við höfum vissulega áhyggjur eftir þessa tapleiki og nú reynir á andlegan styrk liðsins. En það eru allir mjög einbeittir og ég er sann- færður um að við verðum enn sterk- ari þegar þessi erfiði kafli er að baki. Fótboltinn er stundum óútskýran- legur, mínir menn gáfu allt í leikinn og fengu næg marktækifæri til að sigra. Ef liðið spilar svona áfram kemst það fljótt aftur á sigurbraut,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsen- al. „Þetta var langt frá því að vera okkar besti leikur og við hefðum al- veg eins getað tapað 5:2. En heppnin var loksins á okkar bandi,“ sagði Graeme Souness, stjóri Blackburn. Chelsea í þriðja sætið Chelsea læddi sér upp í 3. sæti deildarinnar með því að sigra WBA, 2:0. Eiður Smári Guðjohnsen sat á varamannabekk Chelsea allan tím- ann en Lárus Orri Sigurðsson kom inn á sem varamaður hjá WBA á 67. mínútu. Jimmy Floyd Hasselbaink virðist nú kominn í gang og gerði fjórða mark sitt á tímabilinu og Graeme Le Saux skoraði það síðara. Leikmenn WBA voru mjög óheppnir, þeir áttu skot í stöng og slá og Carlo Cudicini varði mark Chelsea af snilld. Claudio Ranieri, knattspyrnu- stjóri Chelsea, sagði eftir leikinn að lið WBA hefði alla burði til að halda sér í deildinni. „Liðið vinnur vel sam- an sem ein heild og beitir mjög hættulegum skyndisóknum, sem komu okkur í opna skjöldu. Ef leik- menn WBA halda áfram á þessari braut geta þeir forðað sér frá falli. „Búinn að gleyma hvernig ætti að fagna“ Diego Forlan skoraði langþráð mark fyrir Manchester United, það fyrsta í úrvalsdeildinni, og tryggði liði sínu jafntefli gegn Aston Villa, 1:1. „Ég var nánast búinn að gleyma því hvernig maður fagnar marki. Þetta er búinn að vera erfiður tími, maður reynir að leiða pressuna hjá sér en markaleysið var búið að valda mér miklum áhyggjum,“ sagði arg- entínski sóknarmaðurinn sem hafði aðeins gert eitt mark, úr vítaspyrnu, í 35 fyrstu leikjum sínum fyrir Man- chester United. AP Michael Owen hefur leikið vel að undanförnu og skorað grimmt. Hér fagnar hann marki sínu gegn Tottenham ásamt Milan Baros. „Michael Owen sýndi mikinn styrk“ LIVERPOOL er komið með fjögurra stiga forystu í ensku úrvals- deildinni eftir hagstæð úrslit um helgina. Liverpool náði að knýja fram sigur á Tottenham, 2:1, í hörkuleik en á meðan tapaði Arsenal sínum þriðja leik á einni viku, 1:2, gegn Blackburn á heimavelli, og Manchester United varð að sætta sig við jafntefli á heimavelli, 1:1, gegn Aston Villa. Liverpool er nú eina ósigraða liðið í deildinni og virðist til alls líklegt á meðan mesti vígamóðurinn virðist vera að renna af Arsenal eftir frábæra byrjun ensku meistaranna á tíma- bilinu. ÁRNI Gautur Arason var besti markvörður norsku úr- valsdeildarinnar í knatt- spyrnu í ár, samkvæmt ein- kunnagjöf netmiðilsins Nettavisen. Árni Gautur fékk 5,38 í meðaleinkunn í 24 deildaleikjum með Rosenborg og varð í 6. sæti af öllum leik- mönnum deildarinnar. Efstur varð Tommy Berntsen, varn- armaður frá Lyn, sem fékk 5,58 í meðaleinkunn. Tryggvi Guðmundsson hjá Stabæk varð annar Íslending- anna í deildinni, í 22. sæti með 5,12. Marel Baldvinsson, félagi hans, var í 35. sæti með 5,00, Helgi Sigurðsson hjá Lyn varð 64. með 4,75, Bjarni Þorsteinsson hjá Molde var í 121. sæti með 4,29, Indriði Sigurðsson hjá Lilleström var í 128. sæti með 4,18, Gylfi Einarsson hjá Lilleström var í 130. sæti með 4,17, Jóhann B. Guðmundsson hjá Lyn var í 145. sæti með 4,00 og Ólafur Stígsson hjá Molde var í 155. sæti með 3,91 í meðaleinkunn. Aðrir Íslendingar náðu ekki nægilega mörgum leikjum til að komast á einkunnalistann hjá Nettavisen en á honum eru 176 leikmenn, eða rúm- lega 14 að meðaltali frá hverju liði í deildinni. Árni stiga- hæsti mark- vörðurinn FÓLK  JAMES Beattie skoraði þrennu fyr- ir Southampton á sunnudaginn þegar lið hans vann Fulham, 4:2, í ensku úr- valsdeildinni. Fulham komst í 2:0 á fyrstu 25 mín. en Beattie skoraði þrjú mörk á næstu 28 mínútum og Brett Ormerod bætti fjórða markinu við.  LEE Carsley kom Everton upp í efri hluta deildarinnar með því að skora sigurmarkið gegn West Ham á útivelli, 1:0. West Ham hefur enn ekki unnið á heimavelli til þessa, í sex leikj- um.  CRAIG Bellamy, sóknarmaður Newcastle, fór til Bandaríkjanna í gær en þar gengst hann undir rann- sókn á hné. Bellamy var skorinn þar upp í maí, en fór að finna fyrir meiðsl- unum á ný í síðustu viku. Ekki liggur ljóst fyrir hvort hann þarf að fara í annan uppskurð.  DAVID Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, fékk sitt fimmta gula spjald á tímabilinu á laugardag, þegar Manchester United lék við Aston Villa. Hann verður þar með í leik- banni þegar lið hans mætir nágrönn- um sínum í Manchester City þann 9. nóvember.  ÞAÐ verður síðasta viðureign fé- laganna á Maine Road, þar sem City hefur leikið í 80 ár. Félagið er að byggja nýjan leikvang, City of Man- chester Stadium, sem verður tekinn í notkun á næsta ári.  DENNIS Bergkamp framherji Arsenal gæti átt yfir höfði sér þriggja leikja bann. Aganefnd enska knatt- spyrnusambandsins bíður eftir skýrslu Grahams Barbers, dómara, vegna atviks í leik Arsenal og Black- burn á laugardaginn. Sjónvarpsupp- tökur frá leiknum sýna að Bergkamp steig viljandi ofan á Nils-Eric Johans- son. Barber sá ekki atvikið en líklegt er að hann bæti því á skýrsluna sem þýðir að Hollendingurinn fer í bann.  ROY Keane fyrirliði Manchester United hyggst ekki áfrýja dómi enska knattspyrnusambandsins sem dæmdi hann á dögunum í fimm leikja bann og 20 milljón króna sekt fyrir ummæli í ævisögu hans þar sem hann sagðist viljandi hafa reynt að slasa Norð- manninn Alf Inge Håland.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.