Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 8

Morgunblaðið - 29.10.2002, Side 8
KÖRFUKNATTLEIKUR 8 B ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fræðslunefnd KSÍ heldur ofangreind þjálfaranámskeið í nóvember samkvæmt kennsluskrá KSÍ um þjálfaramenntun. Námskeiðin eru haldin í Reykjavík og í Reykjaneshöll og eru bæði bókleg og verkleg og því þurfa þátttakendur að hafa með sér útbúnað til knattspyrnuiðkunar alla dagana. Dagskrá námskeiðanna má sjá á heimasíðu KSÍ www.ksi.is. Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ sem veitir allar nánari upplýsingar í síma 510 2900. GÓÐ ÞJÁLFUN - BETRI KNATTSPYRNA ÞJÁLFARAMENNTUN KSÍ Næstu þjálfaranámskeið framundan KSÍ IV (fyrri hluti D-stigs) 1 - 3. nóv. KSÍ II (B-stig) 8.-10. nóv. og 15.-17. nóv Þetta var mikill stórkarlaleikur,ekki góður körfuboltaleikur að mínu mati. Mikið um snertingar og erfitt að hlaupa kerf- in. Leikurinn því fremur hægur og alls ekki sami bragur á mínu liði og í und- anförnum leikjum. Við töpuðum fyr- ir þeim hérna í fyrra og því eru þessi tvö stig kærkomin. Þessi leikur er kannski ákveðinn forsmekkur af því sem koma skal í Kjörísbikarnum en þar mætast þessi lið aftur,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga að leik loknum. Bestir í liði gestanna voru þeir Maurice Carter og Axel Kárason. Michail Andropov var einnig drjúgur og blokkaði ein sjö skot auk þess að vera mikil hindrun í teig gestanna. Hjá heimamönnum áttu þeir Páll Axel Vilbergsson og Páll Axel Vil- bergsson fínan leik. Bjarni Magnús- son og Jóhann Ólafsson áttu einnig báðir fína innkomu. Jóhann stal sigr- inum ef svo má að orði komast með því að setja niður sjö síðustu stig heimamanna. Snæfell fór illa að ráði sínu Það eru oftar en ekki smáatriðisem skilja að lið sem eigast við á körfuknattleiksvellinum en í leik KR og nýliða Snæ- fells sl. sunnudags- kvöld má segja að gestirnir úr Stykkis- hólmi hafi hent frá sér sigrinum á einu slíku. Besti mað- ur KR-inga í leiknum, Bandaríkja- maðurinn Darrell Flake, fór af velli með fimm villur er rúmar sex mín- útur lifðu af leiknum og áttu flestir von á að Snæfell myndi herja á vörn KR undir körfunni þar sem Flake var sterkur fyrir. Þess stað fóru gestirnir afar illa að ráði sínu og lé- legt skotval og skortur á skynsemi varð þeim að falli á lokakafla leiks- ins. Ingvaldur Magni Hafsteinsson tók sóknarleik KR í sínar hendur í síðari hálfleik og réð mestu um að sigurinn féll þeirra meginn að þessu sinni, 80:72, á meðan Hlynur Bær- ingsson fór fyrir liði Snæfells í sókn- arleiknum að þessu sinni. Það er ólíkt á komið með þessum liðum þar sem breiddin í KR-liðinu hefur verið að aukast frá því í sumar og í þessum leik var Óðinn Ásgeirs- son í fyrsta sinn í leikmannahópi KR frá því að hann skipti úr Þór frá Ak- ureyri. Bárður Eyþórsson, þjálfari nýliða Snæfells, gat hinsvegar ekki leyft sér mikið í innáskiptingum því liðið má ekki við því að hvíla lykil- menn liðsins nema stundarkorn og að mati þess sem þetta skrifar bar mest á því er leikstjórnandinn Helgi Guðmundsson fór á varamannbekk- inn. Á þeim stundum var leikur Snæ- fells afar stirður í sókn og varla heil brú í ákvörðunum leikmanna liðsins. Óðinn Ásgeirsson er kærkomin viðbót við lið KR og var greinilega staðráðinn í því að láta að sér kveða í leiknum. „Ég hef beðið lengi eftir þessum leik eftir allt ruglið í haust með gamla liðinu á Akureyri. Því hef ég verið að stúdera leikkerfi KR á blöðum sem Ingi Þór Steinþórsson þjálfarinn minn hefur sent mér norð- ur á Akureyri. Ég get ekki æft mikið með liðinu fram að áramótum en þetta var ágætis byrjun fyrir liðið og mig. Við unnum og það skiptir höf- uðmáli þótt að leikurinn sjálfur hafi ekki verið góður af okkar hálfu,“ sagði Óðinn. Lið Snæfells á eftir að vinna leiki í vetur á baráttuandanum einum og sér því mikið vantar í heildarmynd liðsins í vörn sem sókn. Lýður Vign- isson er nánast eina skytta liðsins og þrátt fyrir að Hlynur Bæringsson hafi tekið rispu í 4. leikhluta með þremur þriggja stiga körfum í röð er fátt um fína drætti hjá liðinu fái það svæðisvörn á sig. Clifton Bush er ekki sá leikmaður sem kemur til með að bera liðið á herðum sínum í sókn og vörn en það er eflaust gott fyrir efnilega leikmenn á borð við Lýð, Hlyn, Jón Ólaf Jónsson og Helga Guðmundsson. „Það sáu allir að við vorum ekki með mikla reynslu í farteskinu á lokakafla leiksins. Boltinn átti að fara inní teig þar sem KR voru veikir fyrir en þess í stað fóru menn á skot- æfingu fyrir utan þriggja stiga lín- una. Það skipti engu máli hvað ég sagði, menn voru of uppteknir við að skora fjögur til fimm stig í hverri sókn eftir að við lentum undir í fyrsta sinn í lok þriðja leikhluta. Við munum samt læra af þessu,“ sagði Bárður og fannst dómarapar leiksins ekki hafa séð hlutina í réttu ljósi. Lið KR er bersýnilega ekki búið að finna rétta taktinn í sóknarleik sínum, sem var stirður, hugmynda- snauður allt þar til Ingvaldur Magni tók af skarið í síðari hálfleik. Steinar Kaldal náði ekki að stjórna leik liðs- ins á þann hátt að menn væru að skora mikið af auðveldum körfum og greinilegt að liðið saknar þeirra Her- berts Arnarsonar og Arnars Kára- sonar sem lék að vísu með gegn Snæfelli en á enn langt í land eftir meiðsl. Liðin verða hinsvegar ekki dæmd af þessum eina leik því mikið er enn eftir af „forkeppninni“ áður en aðal- fjörið hefst í lok mars er úrslita- keppnin hefst. Sigur Hamarsmanna kom þeim í opna skjöldu Boðið var upp á góðan körfu-knattleik á sunnudagskvöld þegar Haukar tóku á móti Hamar á Ásvöllum. Leikmenn Hamars komu Hafn- firðingum heldur betur á óvart með hröðum leik og áttu fyllilega skilið sín fyrstu stig í deild- inni. Leiknum lauk 96:104 og hefði munurinn hæglega getað orðið meiri ef ekki hefði verið fyrir Stevie John- son hjá heimamönnum. Gestirnir byrjuðu leikinn af mikl- um krafti og náðu fljótt yfirhöndinni. Mest bar þar á Robert O’Kelly en hann átti stórleik og skoraði 41 stig, þar af 16 í fyrsta leikhluta. Hauk- arnir voru hins vegar óöruggir í sín- um leik og lykilmenn eins og Marel Guðlaugsson og Predrag Bojovic náðu sér aldrei á skrið. Í öðrum leik- hluta juku leikmenn Hamars hægt og bítandi forskot sitt meðan ekkert gekk né rak hjá heimamönnum. Undir lok leikhlutans var munurinn kominn í 12 stig, 48:60. Í þriðja leik- hluta hrukku Hafnfirðingar í gang og náðu að klóra í bakkann. Þeir minnkuðu muninn í tvö stig en kom- ust ekki nær því gestirnir sigldu framúr á ný, að lokum voru það tvær þriggja stiga körfur Gunnlaugs Er- lendssonar sem gerðu út um leikinn og færðu jafnframt Hamar sinn fyrsta sigur í vetur. „Sigurinn kom mér eiginlega í opna skjöldu, Hauk- arnir eru skipulagðir og vel þjálfaðir, við spiluðum svæðisvörn á þá og það gekk upp. Það var frábært að sigra og sérstaklega í Hafnarfirði“, sagði Pétur Ingvarsson leikmaður og þjálfari Hamars. Haukarnir hafa nú leikið tvo leiki án sigurs og er það áhyggjuefni að lykilmenn þeirra, að undanskildum fyrrnefndum Stevie Johnson, eru ekki að leika vel. „Fyrst og fremst var það varnar- leikurinn sem klikkaði. Það var sama hverjir fóru inná, það gekk ekkert upp. Við fáum ekkert gefins þannig að það þýðir ekkert annað en að rífa sig upp úr þessu og mæta brjálaðir í næsta leik,“, sagði Marel Guðlaugs- son. Sigur ÍR eftir sviptingar Blikum tókst ekki að fylgja eftirgóðum leik þegar þeir hrifsuðu forystuna af ÍR í Smáranum á sunnudaginn því Breiðhyltingar náðu naumu forskoti á ný með góðri baráttu og héldu til leiksloka í 100:95 sigri. Gestirnir voru sterkari í byrjun og voru komnir með tólf stiga forystu um miðjan annan leikhluta. En þeir gættu ekki að sér því Kópavogsbúar, eftir tvo sigurleiki í röð, vita vel að þeir eru nógu góðir til að snúa taflinu við. Það gerðist með tólf stigum í röð og Breiðablik hafði nauma forystu fram í miðjan þriðja leikhluta. Þá tóku ÍR-ingar, með Eugene Christ- opher í broddi fylkingar, við sér og náðu naumri forystu. Ekkert mátti útaf bregða og þrátt fyrir að fimm ÍR-ingar væru komnir með fjórar villur tókst þeim að spila góða vörn, sem dugði til sigurs. Blikar sýndu oft ágætan leik en vantaði stöðugleikann. „Við komum ekki sem lið í leikinn heldur var bara einstaklingsframtak í byrjun en þeg- ar við spilum sem lið í vörninni fór að ganga betur og við komumst yfir en okkur vantaði að halda því og vítin hefðu mátt detta niður í lokin,“ sagði Loftur Þór Einarsson, sem átti góð- an leik og tók 13 fráköst. „Okkur var spáð tíunda sæti deildarinnar en er- um að vinna liðin fyrir ofan okkur og við ætlum í úrslitakeppnina, ég lofa því.“ Ásamt Lofti voru Friðrik Hreinsson, Pálmi F. Sigurgeirsson og Eyjólfur Jónsson góðir. Breiðhyltingar geta verið sáttir með sigur því þeir voru ekki mjög sannfærandi. „Við vorum komnir með fína forystu í byrjun en klúðr- uðum henni,“ sagði Ólafur J. Sig- urðsson ÍR-ingur eftir leikinn. „Það kom smá deyfð yfir hópinn þegar mönnum var skipt inná af vara- mannabekknum því það tekur tíma að komast í takt við leikinn. Við kom- umst samt aftur inn í leikinn, settum litlu mennina aftur inná sem gekk mjög vel og um leið og við gerum tvær körfur í röð hljóp líf í liðið,“ bætti Ólafur við og er sáttur við gengi liðsins. „Liðsandinn er mjög góður, við hittumst mikið og förum yfir leik okkar og mótherja. Það kom fyrir að við mættum í leik bara til að spila en ekki til að vinna og það fór illa.“ Hjá ÍR var Eugene kraftmikill á köflum eins og Eiríkur Önundar- son, Ómar Örn Sævarsson tók flest fráköst og varði tvö skot. Grind- víkingar ósigraðir Morgunblaðið/Kristinn Arnar Kárason, KR, brýst í gegnum vörn Snæfells þar sem Sigurbjörn Þórðarson og Hlynur Bæringsson bíða hans. GRINDVÍKINGAR héldu sigurgöngu sinni áfram í úrvalsdeildinni í körfuknattleik er þeir fengu Tindastól í heimsókn á sunnudags- kvöld, 84:77 – og hafa þeir fagnað sigri í leikjum sínum í deildinni. Leikurinn byrjaði fjörlega og bæði lið hittu vel. Páll Axel Vilbergsson og Darrel Lewis voru allt í öllu hjá heimamönnum og settu niður 37 af 54 stigum heimamanna í fyrri hálfleik. Garðar Vignisson skrifar Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar Andri Karl skrifar Stefán Stefánsson skrifar Valsmenn uppkskáru sín fyrstustig í vetur þegar þeir heimsóttu Njarðvíkinga í gærkvöldi. Lítið var skorað í leiknum en þeim mun meira var einblínt á varnarleik- inn – á kostnað gæðanna. Gestirnir áttu sigurinn fyllilega skilið og spiluðu leikmenn Njarðvíkur langt undir getu. Leiknum lauk 66:70 eftir spennandi lokamínútur þar sem sig- urinn hefði getað lent hvorum megin sem var. Jafnræði var með liðunum framan af en um miðjan annan leikhluta hrökk Laverne S. Jr., leikmaður Vals, í gang og með hann fremstan í flokki náðu gestirnir sjö stiga forskoti áður en fjórðungnum lauk. Laverne skor- aði alls 29 stig í leiknum og var leik- mönnum Njarðvíkur afar erfiður. Heimamenn áttu í miklum erfið- leikum í sókninni og misnotuðu mörg góð færi. Einnig lenti Friðrik Stef- ánsson í villuvandræðum fljótlega í þriðja leikhluta og veikti það vörn heimamanna töluvert. Valsmenn héldu góðu forskoti á heimamenn þar til komið var í síðasta leikhluta en þá náði Ragnar Ragnarsson að minnka muninn niður í þrjú stig með tveimur þriggja stiga körfum í röð. Fór þá heldur betur að heyrast í áhorfendum sem lítið hafði farið fyrir í leiknum. Njarðvíkingar náðu forskotinu niður í tvö stig en nær komust þeir ekki því Laverne slökkti alla von með góðum leik í lokin og færði Valsmönnum fyrsta sigurinn í vetur. „Strákarnir spiluðu allir vel og skóp það fyrst og fremst sigurinn. Við lögðum upp með áherslu á vörnina og slepptum alveg sókninni. Það gekk upp og sjaldan sem Njarðvíkingar skora svo fá stig á heimavelli, “ sagði Bergur Már Emilsson, þjálfari Vals- manna. Þögn í Keflavík Þögnin ríkti í íþróttahúsi Keflavík-ur í gærkvöldi, áhorfendur létu lítið fyrir sér fara og oft mátti vel heyra lágvært suð í loftræstikerfinu þeg- ar heimamenn luku skylduverki sínu – unnu Skallagrím, 119:84. Í hálfleik munaði 34 stigum og útséð með úrslit svo að síðari hálfleik- ur var að mestu bið en Borgnesingar mega eiga að þeir héldu sjó og aðeins eitt stig bættist við eftir hlé. Keflvíkingar fóru mikinn og gerðu sig strax líklega til að gera út um leik- inn fyrir hlé en eftir 8 mínútur munaði aðeins 6 stigum, 24:18. Þá skildi leiðir og áður en flautað var til hálfleiks var staðan 63:29. Síðari hálfleikur hófst á þriggja stiga skotkeppni og þar höfðu gestirnir betur. Þeir söxuðu aðeins á forskotið en sigurinn var samt aldrei í hættu því Keflvíkingar héldu sínu striki og ekki mikið betur en það. „Við ætluðum að reyna halda haus út leikinn,“ sagði Keflvíkingurinn Sverrir Þór Sverrisson eftir leikinn en hann var atkvæðamikill. „Þetta var frekar létt en seinni hálfleikur frekar leiðinlegur hjá okkur því við höfðum ekki nógu gaman af þessu. Þessi leik- ur er búinn, hann var einn af þeim sem þurfti að vinna og það tókst auð- veldlega.“ Hjá Skallagrími var Pétur Sigurðs- son stigahæstur og átti góðan leik. „Við vissum að þetta yrði erfitt. Þeir yfirkeyrðu okkur í fyrri hálfleik og leikurinn var þá búinn. Við ætluðum að halda niðri hraðanum en það gekk ekki neitt og við hleyptum þeim upp í skotsýningu svo það var ekki von á öðrum úrslitum gegn þessu liði.“ Þrátt fyrir þriðja tapið í röð er engan bilbug að finna á Pétri. „Veturinn leggst ágætlega í mig. Við höfum spil- að þrjá leiki og stundum verið með unna stöðu en tapað niður. Það býr heilmikið í liði okkar en vantar eitt- hvað aukalega til að vinna fyrsta leik- inn. Ég hef trú á að við munum vinna leiki í vetur en við verðum líka að hafa trú á því.“ Valssigur í Ljóna- gryfjunni Andri Karl skrifar Stefán Stefánsson skrifar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.