Morgunblaðið - 29.10.2002, Blaðsíða 9
KÖRFUKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. OKTÓBER 2002 B 9
Njarðvíkurstúlkur voru mjögákveðnar í byrjun leiks og
komust í 10:0. Heimastúlkur áttu
ekkert svar við
ákveðnum leik
þeirra og leiddu
gestirnir eftir fyrsta
leikhluta 12:23.
Heimastúlkur komu ákveðnar í
næsta leikhluta og náðu að jafna
leikinn og komast í fyrsta skipti yfir
í leiknum eftir fjórar mínútur í öðr-
um leikhluta. Jafnt var eftir þetta þó
að frumkvæðið væri nokkuð í hönd-
um heimastúlkna og gestirnir máttu
játa sig sigraða í lokin, 85:79. Best í
liði gestanna var Sacha Montgom-
ery sem var allt í öllu hjá þeim. Hjá
heimastúlkum átti Denise Shelton
skínandi leik og var á köflum sem
þessi leikur væri einvígi á milli þess-
ara erlendu leikmanna. Þá áttu þær
Sigríður A. Ólafsdóttir og Erna Rún
Magnúsdóttir fínan leik.
„Þetta var hörkuleikur en mikið
um sviptingar. Við náðum 10–12
stiga forskoti en misstum það jafn-
hratt niður. Slæmu kaflarnir voru
lengri í dag en þeir góðu. Þær unnu
þetta á góðri þriggja stiga nýtingu á
meðan við nýttum ekki hæðina hjá
okkur í seinni hálfleik eins og við
gerðum í fyrri hálfleik,“ sagði Einar
Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvík-
urstúlkna.
Létt hjá Keflavík
Keflavík vann auðveldan sigur á
nýliðum Hauka, 86:52, og er í topp-
sæti deildarinnar með fullt hús stiga
eftir fjóra leiki. Keflavíkurkonur
gerðu nánast út um leikinn á upp-
hafskafla hans. Þær komust í 22:6
og Haukarnir áttu litla möguleika
eftir það. Marín Rós Karlsdóttir átti
mjög góðan leik fyrir Keflavík. Hún
skoraði 18 stig, tók 9 fráköst og
vann 5 sinnum boltann af leikmönn-
um Hauka. Í hinu unga liði Hauka
var það helst Hrefna Stefánsdóttir
sem stóð upp úr.
Stúdínur án stiga
Íslandsmeistarar KR-inga gerðu
góða ferð í Kennaraháskólann og
sigruðu Stúdínur, 66:41, í leik sem
lengi var í járnum. ÍS er þar með
enn án stiga en KR hefur sex stig
eins og Grindavík í 2.–3. sæti. Hanna
Kjartansdóttir fór fyrir liði KR-inga
og átti stærstan þátt í sigri Vest-
urbæjarliðsins. Hanna skoraði 23
stig og tók vel á annan tug frákasta.
Helga Þorvaldsdóttir lék einnig vel
en hún setti niður 15 stig og átti 10
stoðsendingar. Stúdínur léku ágæt-
lega í fyrri hálfleik en í þeim síðari
hrökk allt í baklás og skoruðu þær
aðeins 14 stig á móti 36 hjá KR.
Shelton vann einvígið
ÞAÐ var hörkuleikur á laugardag sem heimastúlkur úr Grindavík og
gestirnir úr Njarðvík buðu upp á í 1. deild kvenna í körfuknattleik.
Heimastúlkur sigruðu 85:79 eftir að hafa verið undir lengstum í
fyrri hálfleik. Um helgina fagnaði Keflavík sigri á Haukum og KR-
stúlkur á Stúdínum.
Garðar
Vignisson
skrifar
ÍT ferðir – IT Travel, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal,
sími 588 9900, póstfang: itferdir@itferdir.is
www.itferdir.is Geymið auglýsinguna
Knattspyrnuskóli
Bobby Charlton
Kynningarfundur laugard. 2. nóv. kl. 13:00
í Félagshúsi Þróttar í Laugardal
Ian Bateman skólastjóri og yfirþjálfari skólans
verður á fundinum.
Ian getur heimsótt félög 1. og 2. nóv.
og verið með æfingu og fræðslu fyrir leikmenn
og þjálfara. - Hafið samband sem fyrst!
í Laugardal
BANDARÍSKA atvinnu-
mannadeildin í körfuknattleik,
NBA, vekur gríðarlega athygli í
Kína þessa dagana eftir að kín-
verski „risinn“ Yao Ming var val-
inn fyrstur allra í háskólavalinu
sl. vor. Ming sem er 2,26 metrar
á hæð mun leika með Houston
Rockets í vetur en allt að 300
milljón heimili í Kína geta nú séð
leiki frá NBA-deildinni sem hefst
í lok þessa mánaðar. Þess má
geta að um 270 milljónir manna
búa í Bandaríkjunum.
Michael Denzel talsmaður
NBA-deildarinnar í Kína segir að
tveggja áratuga starf sé nú að
skila sér en almenningur í Kína
hafi getað séð leiki frá NBA-
deildinni frá árinu 1982. Átta
nýjar sjónvarpsstöðvar munu
sýna leiki í vetur og við bætast
um 200 milljón heimili sem ná út-
sendingum NBA-leikjanna. Þrjá-
tíu leikir verða sýndir beint með
liði Houston Rockets og geta
Kínverjar séð allt að fjóra leiki í
hverri viku.
Met slegin í Kína
Fátt merkilegt gerist venjulega ásumrin hjá NBA-liðunum fyrir
utan leikmannaskipti. Sumarið í ár
var þó undantekn-
ing. Hinn ástkæri
Chick Hearns, út-
varps- og sjónvarps-
þulur Los Angeles
Lakers frá stofnun,
lést í slysi og Bison Dele, fyrrver-
andi leikmaður New Jersey og
Detroit, var myrtur af bróður sínum.
Að auki lentu ýmsir leikmenn í
vondum málum í viðureignum sínum
við löggæslu og dómsvöld. Allen
Iverson lenti næstum í fangelsi fyrir
slagsmál og hótaði fólki með
skammbyssu.
Shaquille O’Neal var ásakaður
fyrir að hafa verið of harðhentur við
eiturlyfjasala í Louisiana-ríki þar
sem hann var að hjálpa lögreglu-
stjóra staðarins við handtökur. Loks
var Chris Webber saksóttur af alrík-
isdómstól (enginn hér í landi vill
lenda í vandræðum hjá því góða
fólki!) fyrir að hafa logið að alrík-
islögreglunni í rannsókn á sakamáli.
David Stern, forseta NBA, hefur
eflaust liðið eins og foreldri sem fær
upphringingu frá lögreglunni um
miðja nótt með skilaboðum um að ná
í drukkinn ungling, og um leið og
hann kemur heim hringir lögreglan
enn á ný! Til að bæta gráu ofan á
svart fengum við loksins svarið við
spurningunni um hve langan tíma
það myndi taka önnur lönd að ná
Bandaríkjunum á alþjóðavettvangi í
körfuknattleik.
Tíu árum eftir að fyrsta drauma-
liðið vann ólympíutitilinn tapaði nú-
verandi útgáfa landsliðsins gegn
Argentínu, Júgóslavíu og Spáni, öll-
um á sínum heimavelli. Það sem
verra var fyrir deildina; flestu
íþróttaáhugafólki hér í landi var al-
veg nákvæmlega sama og ef eitthvað
var þótti tími til kominn að þagga
niður í þessum prímadonnum.
Fjögur sterkustu liðin
á vesturströndinni
Hér á vesturströndinni verður að-
alfjörið. Fjögur bestu liðin eru öll
hér og baráttan milli Los Angeles
Lakers, San Antonio Spurs, Sacra-
mento Kings og Dallas Mavericks
verður hörð. Flestir spekingar hér á
landi halda að það verði Kaliforn-
íuliðin Lakers og Kings sem munu
standa uppi á endanum, en Texaslið-
in gætu líka sett strik í reikninginn í
úrslitakeppninni.
Mikill metingur hefur nú myndast
milli Sacramento og Lakers eftir
baráttu liðanna í úrslitakeppninni
undanfarin ár og hefur undirritaður
ekki séð tvö svo góð lið sem hata
hvort annað jafnmikið síðan Boston
og Los Angeles börðust um titilinn á
tíma Larrys Birds og Magics John-
sons.
Enn á ný hafa körfuknattleiks-
spekúlantar velflestir spáð Sacra-
mento meistaratitlinum, en þeir
O’Neal og Kobe Bryant eru slíkir yf-
irburðamenn að ef þeir verða heilir í
úrslitakeppninni verður erfitt að sjá
að nokkuð muni breytast í vor í úr-
slitum Vesturdeildarinnar. O’Neal
er að jafna sig eftir uppskurð á
stórutánni og Bryant bætti á sig sjö
kílóum af vöðvamassa eftir strangt
lyftingaprógramm í sumar. Takið
eftir Kobe í vetur, hann á stutt eftir í
að verða yfirburðamaður líkt og
Michael Jordan var þegar hann var
upp á sitt besta.
Dallas verður ógnandi sem fyrr,
en varnarleikur liðsins mun enn
verða liðinu að falli þegar í barátt-
una kemur í úrslitakeppninni. San
Antonio virðist hafa bætt sig með
komu Argentínumannsins Eman-
uels Ginobilis í stöðu bakvarðar.
Hann á eftir að opna sóknarleikinn
fyrir Spurs. Vandamálið hér er að
Lakers hafa unnið átta af síðustu níu
leikjum liðanna í úrslitakeppninni.
Önnur lið munu ekki ógna veldi
þessara fjögurra liða, en það
skemmtilega við liðin í Vesturdeild-
inni er að á hverju leikkvöldi geta tíu
lið unnið hvern sem er.
Hornets og Nets
líklegust til afreka
Ekki er laust við að undirritaður
hafi hæðst að liðunum í Austurdeild-
inni undanfarin tvö ár, en yfirburðir
Lakers í lokaúrslitunum hafa stað-
fest bilið sem skapast hefur milli
bestu liða deildanna beggja.
Hér virðist sem tvö lið muni skera
sig úr, New Jersey Nets og New Or-
leans Hornets (sem fluttu í sumar
niður í mýrina í Mexíkóflóanum).
Nets tók stórt skref með því að
senda framherjann Keith Van Horn
og miðherjann Todd MacCulloch til
Philadelphia 76ers fyrir miðherjann
Dikembe Mutombo.
Forráðamenn Nets ákváðu að
MacCulloch væri ekki nægilega
sterkur í vörninni til að eiga við
bestu miðherjana í Vesturdeildinni.
Því miður fyrir Nets reyndi Phila-
delphia hið sama fyrir tveimur árum
þegar liðið fékk Mutombo frá Atl-
anta. Shaquille O’Neal átti ekki í erf-
iðleikum með hann þá og ekki hefur
Mutombo yngst neitt síðan.
Nets virðist samt yfirburðalið, en
Hornets ætti að eiga tækifæri á
efsta sætinu. Jamal Mashburn er nú
búinn að ná sér eftir erfið veikindi á
síðasta keppnistímabili og hann á
eftir að lyfta liðinu mikið.
Af öðrum liðum virðast Indiana
Pacers og Detroit Pistons eiga bestu
möguleikana, en eitthvað er ég
hræddur um að Boston Celtics muni
ekki eiga eins gott leiktímabil og síð-
ast. Liðið lét þá Kenny Anderson og
Rodney Rodgers fara og eitthvað er
ég hræddur um að nýir leikmenn
muni eiga erfitt með að fylla skarð
þeirra. Michael Jordan mun lyfta
Washington Wizards, þar sem Jerry
Stackhouse gæti gert góða hluti, en
þar vantar breiddina til að fara langt
í úrslitakeppninni.
Allar spár eru bara það; spár.
Enginn veit hvað gerast mun á
næstu mánuðum. Í fyrra héldu
margir að Orlando Magic yrði með í
baráttunni, en þá meiddist Grant
Hill og allt féll saman. Lakers reiðir
sig alfarið á þá Kobe Bryant og
Shaquille O’Neal og ef annar hvor
þeirra verður meiddur í úrslita-
keppninni er erfitt að sjá liðið vinna
fjórða titilinn í röð.
Los Angeles Lakers og Sacramento Kings slást um NBA-titilinn
Takið eftir
Kobe í vetur!
Reuters
Sjáið, hvað ég er orðinn sterkur…gæti Kobe Bryant, leikmaður
Lakers, verið að segja er hann sýnir vöðva á upphandlegg.
ENN á ný er tími til að spá í gengi liðanna í NBA-deildinni og spurn-
ing dagsins er sú sama og undanfarin ár: Getur nokkurt lið stöðvað
meistara Los Angeles Lakers? Eftir þrjá meistaratitla í röð munu
Lakers reyna að vinna titilinn fjórða árið í röð, sem hefur ekki gerst
síðan Boston hafði yfirburði í deildinni frá 1959 til 1966. Svarið er
það sama og það hefur verið undanfarin ár: Þar til bestu liðin í Vest-
urdeildinni ná að stöðva meistarana í úrslitakeppninni verður Lak-
ers að teljast sigurstranglegast, þrátt fyrir að hafa ekki sterkasta
leikmannahópinn.
Gunnar
Valgeirsson
skrifar frá
Bandaríkjunum