Morgunblaðið - 29.10.2002, Qupperneq 12
Hilmar
aftur
til KR
HILMAR Björnsson,
knattspyrnumaður, skrif-
aði í fyrradag undir
tveggja ára samning við
Íslandsmeistara KR og er
hann þar með fjórði nýi
leikmaðurinn sem Vestur-
bæjarliðið fær til liðs við
sig á skömmum tíma, en í
síðustu viku innsigluðu
KR-ingar samninga við
Scott Ramsey, Garðar Jó-
hannsson og Kristján Örn
Sigurðsson. Hilmar, sem
er 33 ára gamall, hefur
lengst af sínum ferli leikið
með KR-ingum en frá
árinu 1997 hefur hann
leikið með Helsinborg í
Svíþjóð, Fram og síðast
FH, þar sem hann var fyr-
irliði og einn besti leik-
maður liðsins undanfarin
tvö ár.
Hilmar hefur leikið 186
leiki í efstu deild, þar af
116 með KR, og þrívegis
hefur hann leikið með ís-
lenska A-landsliðinu.
Sigurður áfram
með Aftureldingu
SIGURÐUR Þórir Þorsteinsson hefur framlengt samning sinn um
þjálfun knattspyrnuliðs Aftureldingar. Gengið var frá því um um
helgina og er samningur Sigurðar við liðið til tveggja ára en er
uppsegjanlegur af beggja hálfu að lokinni næstu leiktíð gerist þess
þörf.
Sigurður hefur þjálfað Aftureldingu undanfarin tvö ár og undir
hans stjórn kom liðið á óvart í 1. deildinni í sumar og var lengi í
baráttu um sæti í efstu deild eftir að hafa óvænt hlotið sæti í deild-
inni er lið Leifturs og Dalvíkur gengu í eina sæng eigi svo löngu áð-
ur en keppni hófst. Þegar upp var staðið varð Afturelding í 4. sæti í
1. deild í sumar, en árið áður hafði liðið orðið í þriðja sæti 2. deildar
undir stjórn Sigurðar.
GRÓTTA/KR leikur báða leiki sína
í þriðju umferð Áskorendakeppni
Evrópu í handknattleik gegn
portúgalska liðinu Fransisco de
Holanda ytra, en forsvarsmenn
Gróttu/KR ákváðu að taka boði
forvígismanna portúgalska liðsins.
Upphaflega stóð til að liðin
mættust hér á landi 9. eða 10. nóv-
ember og viku síðar ytra. Vegna
þessarar breytingar fer fyrri leik-
ur liðanna fram föstudaginn 15.
nóvember og sá síðari tveimur
dögum síðar.
Fransisco de Holanda er á meðal
sterkustu handknattleiksliða
Portúgals um þessar mundir og sit-
ur nú í 2. sæti 1. deildar þar í landi.
Íslensk lið hafa á undanförnum
árum farið nokkrum sinnum til
Portúgal í Evrópukeppninni –
Haukar hafa tvisvar farið til Porto
og einu sinni til Lissabon – og þá
hafa Valsmenn leikið gegn Porto.
Grótta/KR leikur
báða leikina ytra
EINAR Örn Jónsson skoraði tvö
mörk fyrir Wallau Massenheim sem
sigraði Minden, 36:31, í þýsku 1.
deildinni í handknattleik á laugar-
daginn. Gústaf Bjarnason skoraði
þrjú mörk fyrir Minden í leiknum.
RÓBERT Sighvatsson og Sigurð-
ur Bjarnason skoruðu tvö mörk hvor
fyrir Wetzlar sem steinlá fyrir
Gummersbach, 33:17.
GYLFI Gylfason skoraði eitt mark
fyrir Wilhelmshavener sem tapaði
fyrir Lemgo á heimavelli, 31:41.
Lemgo hefur þar með unnið alla 10
leiki sína og markaskor liðsins er
ótrúlegt en það hefur gert 35,2 mörk
að meðaltali í leik til þessa.
RÓBERT Gunnarsson skoraði 7
mörk og Þorvarður Tjörvi Ólafsson
3 fyrir Århus GF gegn Skjern í
dönsku úrvalsdeildinni um helgina.
Það dugði ekki því Skjern vann leik-
inn, 28:26, á heimavelli Århus GF. Ís-
lendingaliðið hefur því dregist aftur
úr í toppbaráttunni og er í sjötta
sæti, fjórum stigum á eftir toppliði
Kolding.
PÁLMI Hlöðversson skoraði 3
mörk fyrir Fredericia sem tapaði
fyrir Bjerringbro, 31:21, og Sigur-
steinn Arndal skoraði eitt mark fyrir
Team Helsinge sem tapaði heima
fyrir Kolding í uppgjöri tveggja
efstu liðanna, 25:34.
GUNNAR Berg Viktorsson náði
ekki að skora þegar lið hans, Paris,
vann USAM Nîmes, 29:27, á heima-
velli í frönsku 1. deildinni í hand-
knattleik á laugardaginn.
HEIÐMAR Felixson skoraði 5
mörk fyrir Bidasoa þegar liðið tap-
aði enn einum leiknum í spænsku 1.
deildinni um helgina. Í þetta sinn
tapaði Bidasoa fyrri BM Altea,
29:24, á útivelli. Bidasoa er í 14. sæti
af 16 liðum í deildinni með 3 stig þeg-
ar 8 umferðir eru að baki.
HASLUM, vann sjöunda sigur sinn
í jafnmörgum leikjum í norsku 1.
deildinni í handknattleik um helgina.
Haslum sigraði Kjelsås, 26:18. Theo-
dór Valsson skoraði 3 mörk fyrir
Haslum, Heimir Örn Arnarson 2 en
Daníel Ragnarsson komst ekki á
blað. Þjálfari Haslum er Kristján
Halldórsson.
HALLDÓR Sigfússon skoraði 3
mörk, þar af eitt úr vítakasti, þegar
lið hans Friesenheim vann TSG Oss-
weil, 24:22, á útivelli í suðurhluta
þýska 2. deildarinnar í handknattleik
um helgina. Frisenheim-liðið, sem er
þjálfað af Atla Hilmarssyni, er sem
stendur í 3. sæti deildarinnar með 12
stig að loknum 8 leikjum, sjö stigum
á eftir forystusauðnum Kronau-
Östringen, sem reyndar hefur spilað
níu leiki.
ARNAR Geirsson var með 5 mörk
fyrir Gelnhausen sem tapaði fyrir
Düsseldorf, 29:27, sem einnig er í
suðurhluta þýsku 2. deildarinnar.
RAGNAR Árnason gekk frá fé-
lagaskiptum yfir í knattspyrnulið
Fram frá Stjörnunni um helgina og
skrifaði undir tveggja ára samning.
KRISTINN Tómasson sem leikið
hefur með Fylkis undanfarin 13 ár
hefur ákveðið að segja skilið við Ár-
bæjarliðið. Kristinn, sem er 30 ára
gamall, hyggst leita á önnur mið en
hann á að baki 81 leik með Fylkis-
mönnum í efstu deild og hefur skor-
að 23 mörk í þeim leikjum.
JÓN Arnór Stefánsson átti mjög
góðan leik með Trier í þýsku 1.
deildinni í körfuknattleik um
helgina. Jón skoraði 21 stig og átti 6
stoðsendingar en það dugði skammt
því Trier beið lægri hlut fyrir Bask-
ets Oldenburg, 87:73. Trier er því
enn án stiga eftir sex umferðir.
JOE Royle var í gær ráðinn knatt-
spyrnustjóri enska 1. deildarliðsins
Ipswich Town. Rolye, sem er 53 ára
gamall, gerði samning við Ipswich til
tveggja og hálfs árs.
FÓLK
burg mætti þar Rúnari Sigtryggs-
syni og félögum í Ciudad Real.
„Þetta var hörkuskemmtilegur leik-
ur þar sem liðin skiptust á um for-
ystu en við höfðum það á enda-
sprettinum og unnum 35:33. Ciudad
er greinilega mjög sterkt lið og
Rúnar lék í vörninni,“ sagði Alfreð
Fjögur lið tóku þátt í mótinu, semfram fór í Þýskalandi; Magde-
burg, Fotex Veszprém frá Ung-
verjalandi, Ciudad Real frá Spáni og
Kiel. Á föstudeginum var leikið í
Dessau, um 80 kílómetra suður af
Magdeburg, en þar var verið að
gera upp handboltahöllina. Magde-
en Ólafur Stefánsson hefur gert
samning við félagið og fer til þess
eftir þessa leiktíð. Christian Gaudin,
markvörður Magdeburg, varði víta-
kast þegar 20 sekúndur voru eftir
og Magdeburg gerði síðan síðasta
markið.
Í hinum leiknum vann Veszprém
lið Kiel, 31:23, og allt virðist í baklás
hjá Kiel, sem tapaði einnig leiknum
um þriðja sætið fyrir Rúnari og fé-
lögum 32:20.
Úrslitaleikurinn var spennandi og
þar mættust liðin sem léku til úr-
slita í Evrópukeppninni í vor í
Magdeburg. Þetta var endurtekn-
ing á þeim leik, mikil stemmning í
höllinni í Magdeburg og leikurinn í
járnum allan tímann. „Þetta vannst
bara á síðustu andartökunum,“
sagði Alfreð. Hann þótti sýna mikla
herkænsku undir lok leiksins þegar
hann skellti Nenad Perunicic inn á
og kappinn þakkaði fyrir sig með
tveimur góðum mörkum.
„Óli og Fúsi [Ólafur Stefánsson
og Sigfús Sigurðsson] léku báðir
mjög vel í þessu móti og í raun allt
liðið hjá mér. Það var virkilega gam-
an að sigra í þessu sterka móti og
þetta gefur okkur byr undir báða
vængi,“ sagði Alfreð.
AP
Bennet Wiegert, leikmaður hjá Magdeburg, faðmar Sigfús Sigurðsson að sér, eftir að að sigurinn
á ungverska liðinu Fotex Veszprem var í höfn í úrslitaleiknum í Magdeburg á laugardag.
Magdeburg varð meistari meistaranna í handknattleik í Evrópu
Ólafur maður mótsins
„ÞETTA var mjög skemmtilegt og ánægjulegt fyrir okkur að vinna
þetta,“ sagði Alfreð Gíslason, kampakátur þjálfari Magdeburg, en
liðið tryggði sér um helgina titilinn Meistarar meistaranna í hand-
knattleik. Enn ein skrautfjöðrin í hatt Alfreðs sem þjálfara. Það sem
meira var að Ólafur Stefánsson, leikmaður Magdeburg, var valinn
besti leikmaður mótsins og ungur Pólverji í liði Alfreðs, Grzegorz
Tkaczyk, varð markahæstur.