Morgunblaðið - 12.01.2003, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.01.2003, Qupperneq 2
2 B SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Silhouette er framleitt til að virka á þau svæði líkamans sem eru mest útsett fyrir fitu og uppsöfnun á fituvef, svo sem mjöðmum, rasskinnum, lærum og á kviðnum. Silhouette inniheldur 4% súrefni sem gefur öflugt nudd og nær- ingu til að losa um fitu og úrgangsefni innan frá, viðheldur heilbrigðri, teygj- anlegri og fallegri húð. Gefur öfluga rakagjöf sem endist allan daginn. Vinn- ur á sliti undan og eftir meðgöngu og einnig eftir megrun. ...fegurð & ferskleiki... Súrefnisvörur Karin Herzog Snyrtistofan Salon Ritz, Laugavegi, býður upp á Karin Herzog súrefnismeðferðir fyrir andlit og líkama. www.karinherzog.ch Náðu toppformi með Silhouette fyrir sumarið Eldur er bestur með ýta sonum og sólar sýn, heilyndi sitt, ef maður hafa náir, án við löst að lifa. Þetta erindi hefur löngumverið talið eitt fegursta íHávamálum. Það lýsirþeirri lífsskoðun að ekki sénóg að búa við gott líkam- legt atgervi og hafa góða heilsu, held- ur verði maður einnig að gæta sóma síns og lifa lastalausu lífi. Það fer vel á því að rifja það upp í upphafi samtals við Hilmar Örn Hilmarsson, nýkjör- inn allsherjargoða. Hilmar Örn gekk í Ásatrúarfélagið árið 1974 á 16 ára afmælisdaginn sinn. Þá fékk hann að heyra hefð- bundinn kveðskap hjá forvera sínum, Sveinbirni Beinteinssyni. „Hann opn- aði hjá mér ýmsar gáttir,“ segir Hilmar Örn. „Ég kynntist honum hægt og bítandi og myndi segja að við höfum verið orðnir vel málkunnugir 1976. Ég var feiminn við hann svona til að byrja með. Ári eftir að ég gekk í félagið var ég beðinn um að rista rúnakefli fyrir þá sem ætluðu að mót- mæla einhverri stóriðjuframkvæmd. Þeir vildu að ég risti rúnir til að ákalla ýmsa guði til að stoppa þetta, þar á meðal Þór. Ég sagði að ég væri nú ekkert viss um að Þór væri á móti stóriðju – þekkjandi hann. Þá brosti Sveinbjörn breitt og við náðum sam- an upp úr þessu. Þetta kveikti okkar vinskap. Og hann neitaði einmitt að yrkja við sama tækifæri.“ Þannig að hann var ekki á móti stóriðju? „Jú, hann var það, held ég. Hann var mikill náttúruverndarsinni, en vildi að við færum rétt að. Það þýðir ekkert að vera alltof kaþólskur í því hvaða guði maður velur á móti hinum og þessum hlutum.“ En hvað olli því að þú gekkst 16 ára í Ásatrúarfélagið? „Ég var kominn með brennandi áhuga mjög ungur. Þegar ég var 10 ára 1968, þá var Einar Pálsson, sem ég kalla alltaf frænda minn, með fyr- irlestur í Norræna húsinu um það sem hann kallaði rætur íslenskrar menningar. Ég gerðist ákafur fylg- ismaður hans, elti hann á röndum og sökkti mér ofan í allar hans kenning- ar. Eftir það var ekki aftur snúið. Ég hafði alla tíð mikinn áhuga á trúar- brögðum og las mér mikið til í þeim efnum. Það hélst fram eftir öllu. En ég steig eitt gráðugt hliðarspor og gerðist handgenginn guðinum Mammon, því ég ákvað að láta ferma mig 14 ára til að fá trommusett. Það var séð fyrir því, því ég fékk átta ein- tök af Íslenskum þjóðháttum eftir Jónas frá Hrafnagili og fjórtán eintök af Sjálfstæðu fólki. Þannig var mitt trommusett. Ég sneri því frá villu míns vegar og hallaði mér aftur að trúnni.“ Voru foreldrar þínir ásatrúar? „Nei, þeir voru góðir og gildir með- limir þjóðkirkjunnar, eins og öll mín fjölskylda. En mín sérviska var alltaf vel liðin og alveg frá því ég var krakki hef ég fengið að fást við það sem ég hef viljað og fengið góðan stuðning í því. Fjölskyldan var líka í vinfengi við mikla og góða presta, sem hafa haft gaman af því að þrátta um trúmál við mig og mér var stundum alveg um og ó hvað mér þótti þeir vera óstöðugir í trúnni. Það hjálpaði mér að taka af- stöðu á eigin forsendum.“ Ertu trúaður? „Ég er afskaplega trúaður. Ég fann þessa trú hjá mér mjög sterkt sem barn. Ég hef einhvern tíma sagt að ég hafi skipt um trú eins og sokka á tímabili, því mér fannst gaman að vera hindúi á mánudögum, búddisti á þriðjudögum, aðhyllast íslam á mið- vikudögum o.s.frv. Það er af hinu góða að taka fyrir þessi trúarbrögð, sjá þræðina sem liggja sameiginlega í gegnum þau og líka það sem aðskilur þau. Ég hef alltaf fundið fyrir þessari sterku trúarþörf. Svo leitar maður sér að sínum stað í tilverunni. Fyrst maður er Íslendingur, þá er ásatrúin, þessi forni átrúnaður, á margan hátt inngreypt í tungumálið. Við erum með máltök og hugtök sem liggja eins og rauður þráður í gegnum þessa gömlu trú og gömlu hugsun, eins og að vera drengur góður, hreinskiptinn og sannur í sér. Þetta hefur borist til okkar um aldirnar. Mér finnst við aldrei hafa orðið almennilega kristin í þeirri sterku merkingu – að vera kristin. Kristnitakan var viðskipta- legs eðlis á sínum tíma og hinar fornu frásögur skiptu okkur alltaf miklu máli. Fram á 19. öld var verið að ríf- ast um þessa hryllilegu heiðnu arf- leifð, sem kemur til okkar í gegnum rímurnar. Það var haldið á lofti forn- um hetjum, guðum og vættum. Jafn- vel prestar ortu stóra bálka upp úr goðsögunum og afrit af Eddukvæð- unum voru fjölskyldugersemar sem fólk flutti með sér til nýja heimsins.“ Heldurðu að þú hefðir getað talað Þorgeir ljósvetningagoða ofan af ákvörðun sinni? „Nei, ég hefði staðið með honum. Því þetta var eina rétta ákvörðunin við þessar kringumstæður. En mér finnst gott að menn máttu blóta á laun. Svo var hægt að bíða þangað til umhverfið breyttist og það gerðum við.“ Þú nefndir einhvers staðar að þið sækið ekki trúfélaga heldur sæki þeir til ykkar. Er það í dúr við að blóta á laun – að þið sækið ekki út á við eins og önnur trúarbrögð? „Nei, ég segi ekki beint blóta á laun. En kristni er eingyðistrú sem er fyrir hinn breiða fjölda. Þar er strangt kveðið á um hvernig fólk á að hegða sér. Heiðnin er aftur á móti fjölgyðistrú fyrir einstaklinginn, þar sem hver maður trúir á sinn hátt. Hverjum manni er í sjálfsvald sett hvernig hann trúir, hvernig hann rækir sína trú og á hvað hann trúir. Menn geta valið út einn guð eða heitið á annan guð. Það er alltaf verið að búa til flokkslínur í trúarbrögðum, en þær eru ekki fyrir hendi í ásatrú. Þegar fólk hefur fundið á sér að það hneigist í þessa átt, að heiðni skipti það máli, þá er það líka búið að gera upp við sig hvert það stefnir og þá kemur það til okkar.“ Ertu fylgjandi aðskilnaði ríkis og kirkju? „Já, ég er það raunar. Mér finnst að fólk eigi að geta valið. Ég vil þjóð- kirkjunni ekki neitt nema gott og finnst hún gegna mikilvægu hlut- verki. En hún er ekki fyrir mig og það eru margir á sama báti og ég í þeim efnum.“ Finnst þér að ríkið eigi að veita jafnari stuðning til trúarbragða? „Trúfélögum er mismunað mjög mikið. Sóknargjöld hafa lækkað ískyggilega til þeirra söfnuða sem standa fyrir utan þjóðkirkjuna, þann- ig að við sitjum ekki við sama borð. Mér finnst það mjög slæmt, því á tímabili fannst mér góður vilji hjá stjórnvöldum að hafa jafnræði milli trúarbragða. En sum virðast aðeins réttari en önnur.“ Nú hefur verið hálfgerð Sturlunga- öld hjá Ásatrúarfélaginu áður en þú tókst við. „Já, það hafa komið upp deilur hjá Ásatrúarfélaginu áður, þó þær hafi kannski ekki farið jafn hátt, en verið alveg jafn erfiðar og afdrifaríkar. En þannig er í pottinn búið að þegar ég gekk í félagið voru þar 40 manns. Nú eru þar um átta hundruð manns. Þannig að umfang starfseminnar hef- ur vaxið það mikið að við verðum stundum að staldra við og endur- skipuleggja það.“ Talað var um að lögin væru óskýr og misbrestur á því að góð festa ríkti hjá félaginu varðandi fjármál, félaga- tal, lagabreytingar og skráningu fundargerða. „Já, þetta er það sem dómsmála- Finnst við aldrei hafa orðið almenni- lega kristin Morgunblaðið/Golli ’ Ég steig eitt gráð-ugt hliðarspor og gerðist handgenginn guðinum Mammon, því ég ákvað að láta ferma mig 14 ára til að fá trommusett. ‘ ’ Ég trúi á æðrimátt sem birtist okk- ur í fjölbreytileika náttúrunnar og mannlífsins. ‘ ’ Tolkien fann tilþess að Englendinga skorti goðafræði, eins og margar þjóð- ir í Norður-Evrópu. Það er búið að svipta þær fortíðinni og rit- skoða hana grimmi- lega í burtu. ‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.