Morgunblaðið - 12.01.2003, Qupperneq 6
6 B SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sælkerar á sunnudegi
Steingrímur Sigurgeirsson Hanna Friðriksdóttir Áslaug Snorradóttir
BJÖRGVIN Mýrdalmun keppa fyrir Ís-lands hönd í mat-reiðslukeppninni Bocuse d’Or, sem
haldin verður í Lyon í Frakk-
landi síðar í þessum mánuði.
Björgvin hélt í byrjun vikunnar
til Frakklands þar sem hann
verður í eins konar æfingabúð-
um hjá franska matreiðslu-
meistaranum Philippe Girardon,
sem rekur veitingahús skammt
suður af Lyon. Girardon kom til
Íslands sem gestakokkur í Perl-
unni fyrir tæpum áratug og hef-
ur haldið góðum tengslum við
íslenska kokka síðan og m.a. að-
stoðað alla keppendur Íslands á
Bocuse d’Or.
Björgvin er 24 ára gamall og
verður því yngsti keppandinn á
Bocuse d’Or að þessu sinni. Ald-
urinn hefur hins vegar ekki
hamlað Björgvini til þessa.
Hann vann sigur í keppninni um
titilinn matreiðslumaður ársins
árið 2000 einungis ári eftir að
hann útskrifaðist úr kokkanámi.
Hann varð í þriðja sæti í keppni
norrænna matreiðslumeistara
árið 2001 og nú er sem sagt
komið að því að keppa á heims-
meistaramóti kokka, Bocuse
d’Or. Björgvin hefur starfað við
veitingahús allt frá fjórtán ára
aldri. Undanfarin ár hefur hann
starfað í Perlunni og á Grillinu
sem og í veiðihúsum.
Frá því í september hefur
hann hins vegar ekki gert neitt
annað en að undirbúa sig fyrir
keppnina í Frakklandi. Hann
hefur, líkt og fyrri keppandi,
fengið aðgang að æfingaeldhúsi
hjá fyrirtækinu Ísbergi í Sunda-
borgum og þar hefur hann unn-
ið að því að þróa fram keppn-
isréttina og elda þá síðan aftur
og aftur og aftur. Miklu skiptir
að hvert handtak sé þaulæft.
Kokkarnir hafa fimm klukku-
stundir og 35 mínútur til að
koma réttunum frá en þurfa þá
einnig að verka jafnt kjöt sem
fisk og undirbúa allt hráefni frá
grunni. Að þessu sinni verður
eldað úr norskum sjóbirtingi og
frönsku nautakjöti, lund og
hala. Ég átti þess kost á dög-
unum að sjá afraksturinn hjá
Björgvini og það fer ekki á milli
mála að hann hefur lagt gíf-
urlega vinnu í undirbúninginn.
Hvert smáatriði úthugsað og
réttirnir frumlegar útfærslur á
sígildum þemum.
Hann er þriðji Íslendingurinn
sem keppir á Bocuse d’Or en
áður hafa þeir Sturla Birgisson
og Hákon Már Örvarsson tekið
þátt í keppninni með frábærum
árangri. Sturla lenti í fimmta
sæti og Hákon í því þriðja.
Þessi árangur hefur vakið
áhuga erlendra fjölmiðla og
komu kanadískir sjónvarps-
menn frá stöðinni Food Net-
work til Íslands til að fylgjast
með undirbúningi Björgvins í
tengslum við þátt um keppnina.
Björgvin er raunar ekki alveg
ókunnugur keppninni heldur,
hann var aðstoðarmaður Sturlu
árið 1999.
Engin matreiðslukeppni í
heiminum fær jafnmikla athygli
og Bocuse d’Or, sem kennd er
við meistarakokkinn Paul
Bocuse, sem stofnaði hana og
heldur enn um taumana. Tug-
þúsundir gesta og hundruð fjöl-
miðlamanna fylgjast með
keppninni og andrúmsloftið er
líkast því sem gerist á æsi-
spennandi íþróttaleikjum þar
sem aðdáendur hvetja sína
menn til dáða. Dómarar að
þessu sinni verða ekki af lakari
gerðinni. Formaður dómnefndar
er Guy Savoy, sem rekur sam-
nefndan veitingastað í París, og
einnig mun t.d. Ferran Adria,
sem rekur þriggja stjarna stað-
inn El Bulli skammt frá Barce-
lona, eiga sæti í dómnefndinni.
Matur
S t e i n g r í m u r S i g u r g e i r s s o n
Morgunblaðið/Áslaug
Björgvin á Bocuse d’Or
Á fimm klukkustund-
um á að töfra fram
tvírétta þrettán
skammta máltíð frá
grunni úr sjóbirtingi
og nautakjöti.
matur@mbl.is
Lesendur eru hvattir til að senda sælkerum
hugmyndir, athugasemdir eða ábendingar. Um
getur verið að ræða ábendingar um áhugavert
efni, atburði eða uppákomur, stuttar sögur
tengdar efninu eða þá óskir um að eitthvað
sérstakt verði tekið fyrir. Ef efni er sent með
ósk um birtingu áskilur Morgunblaðið sér rétt
til að velja og hafna, stytta og breyta. Netfang
sælkerasíðunnar er matur@mbl.is.
CHILIPIPAR og cayennepipar er alls óskyldur
hinum eiginlega pipar. Hann er fenginn úr fræ-
hylkjum runna sem er upprunninn í Mið- eða Suð-
ur-Ameríku. Sömu ættar er paprikan (þess má
geta að á ítölsku ber chilipipar nafnið „peperonc-
ino“, sem þýðir lítil paprika). Tegundirnar eru líka
missterkar eftir stærð ávaxtanna, cayennepipar er
hvað smávaxnastur og jafnframt sterkastur, papr-
ikan mildust.
Spánverjar kynntust chilipipar af Aztekunum í
Mexíkó og fluttu með sér til Evrópu. Þetta sterka
krydd hefur löngum verið mikið notað af fátæku
fólki, því agnarögn af þessu kryddi getur gert
margt óætið ætt.
Fræhylki plantnanna eru þurrkuð og síðan möl-
uð í fíngert duft. Cayennepipar er yfirleitt blanda
af nokkrum chilipipartegundum. Í Ameríku er chili-
pipar notaður í óskyldustu rétti, svo sem bauna-
rétti (chili con carne), hrísgrjónarétti, kjöt-, fisk- og
grænmetisrétti.
Í uppskriftinni hér á eftir er chilipiparinn not-
aður ferskur.
Chilipipar
Morgunblaðið/Áslaug
Þessi réttur rífur úr manni hrollinn.
400 g spaghettí
3 msk. ólífuolía
2 hvítlauksgeirar
1 rauður pipar (chili)
1 msk. söxuð steinselja
Hitið heilan, flysjaðan hvítlauk í olíunni
ásamt söxuðum piparnum, þar til hvítlauk-
urinn er orðinn nokkuð brúnaður (en alls
ekki brenndur). Sjóðið spaghettíið „al
dente“ í söltu vatni, sigtið og færið í upp-
hitaða skál. Veiðið piparinn og hvítlaukinn
upp úr olíunni og blandið henni varlega
saman við pastað. Þeir sem þora borði
einnig piparinn og hvítlaukinn! Stráið
steinselju yfir.
SPAGHETTÍ MEÐ OLÍU,
HVÍTLAUK OG CHILI
BJÖRGVIN Mýrdal hefur opnað heimasíðu
um keppnina og undirbúning sinn fyrir
hanna. Hana má nálgast á hinni ágætu
heimasíðu þeirra freistingarmanna á
www.freisting.is/bocuse. Einnig er hægt að fá
upplýsingar um keppnina á heimasíðunni
bocusedor.com.
Heimasíða um
Bocuse d’Or