Morgunblaðið - 12.01.2003, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. JANÚAR 2003 B 11
ferðalög
M
eð hverjum fórstu til Austurríkis um
jólin?
„Við fórum stórfjölskyldan, foreldrar
mínir, systkini og þeirra börn og svo eig-
inmaður minn, Ægir Birgisson, og börn-
in okkar, Andrea Líf og Guðmundur Birgir.“
Fóruð þið á eigin vegum?
„Já, við flugum þann 20. desember til Kaup-
mannahafnar og þaðan til Zürich í Sviss og ókum
svo til St. Anton í Austurríki. Þetta er lítill og nota-
legur skíðabær. Ég hafði ekki prófað að skíða þar
fyrr en núna um jólin en heillaðist af staðnum þegar
ég var stödd þar í fyrra um sama leyti og þar var
haldið heimsmeistaramótið í alpagreinum.“
Hvað gerðuð þið um jólin?
„Það var mjög jólalegt í St. Anton, snjór, jólaljós og
austurrísk jólastemning sem er alveg einstök. Jólin
eru háannatími á þessum slóðum og fólk þarf að
panta gistingu með löngum fyrirvara. Bretar voru
áberandi svo og Svíar, Danir og Hollendingar.
Við vorum á skíðum fram yfir hádegi og á aðfanga-
dagskvöld fórum við á hótel sem heitir Sport hotel
og þar borðaði fullorðna fólkið frábæra sjö rétta
máltíð en börnin fengu að panta það sem þau vildu.“
Auður segist hafa tekið með jólaljós til að skreyta
herbergið og síðan voru valdir nokkrir pakkar sem
teknir voru upp á aðfangadagskvöld. Annars voru
pakkarnir opnaðir heima á gamlárskvöld.
Voru fleiri Íslendingar á þessum slóðum?
„Við hittum eina fjölskyldu sem var á skíðum á Lech-
svæðinu.
Kosturinn við þetta skíðasvæði í St. Anton er að það
er hægt að skíða milli nokkurra skíðasvæða og það
gera margir. Skíðasvæðin sem hægt er að fara yfir á
frá St. Anton eru St. Christoph, Stuben, Zurs og
Lech.“ Auður segir að St. Anton sé mjög krefjandi
og skemmtilegt skíðasvæði en ekki fyrir algjöra byrj-
endur. „Þessi staður hentar þeim sem eru vanir.“
Hafið þið oft verið í útlöndum á jólum?
„Nei, aldrei áður en við höfum töluvert farið á skíði á
öðrum árstímum. Mér fannst það góð tilbreyting að
vera í Austurríki um þessi jól. Ég efast um að ég
gæti hugsað mér að vera fjarri Íslandi öll jól en það
er gaman að breyta til.“
Voruð þið heppin með gistingu?
„Já, við vorum ánægð, hótelið var í miðbænum og
aðeins um 100 metra gangur í skíðalyfturnar. Flest
hótel í bænum eru rekin af fjölskyldum og þau eru
mátulega stór og notaleg.“
Á að fara annað á skíði á næstunni?
„Nú bíðum við bara eftir góðu skíðafæri á Akureyri
en þangað förum við gjarnan á skíði.“
Ellefu manna stórfjölskylda ákvað að breyta til um jólin og fara á skíði til St. Anton í Aust-
urríki. Auður Björk Guðmundsdóttir er ein úr fjölskyldunni.
Auður Björk Guðmundsdóttir segir að frá þessu skíða-
svæði sé hægt að skíða inn á önnur þekkt skíðalönd.
Horft yfir litla skíðabæinn St. Anton í Austurríki en
þar var mjög jólalegt um að litast í desember.
Systurnar Ingunn og Auður Björk ásamt dóttur
Auðar, Andreu Líf.
Héldu jól í litlum
skíðabæ í Austurríki
Gagnlegar vefsíður fyrir áhugasama:
www.stantonamarlberg.com og
www.arlberg.com og
www.skiarlberg.com
Á HINN bóginn fór ég að velta fyrir
mér að það væri þá eins gott að ekki
yrðu miklar rigningar hér í Damask-
us á næstunni því þá hrekkur síminn
minn úr sambandi og tjóir ekki að
reyna að gera neitt í því meðan vatnið
fossar úr loftinu. Það er einn síma-
viðgerðarmaður í hverfinu mínu í
Sjalan og sá hefur hvorki undan né
telur hann ástæðu til að flýta sér sér-
staklega nema maður gauki að hon-
um aukapeningi.
Auðvitað er okkur ljóst að í augna-
blikinu eru verulegar blikur á lofti en
samt er ekki á Sýrlendingum að finna
að þeir séu plagaðir af stríðshræðslu.
Þeir héldu upp á nýárið með bravör
og gleði og síðan gengur allt sinn
vanagang.
Þegar gengið er á þá og spurt hvað
þeir haldi að gerist í Sýrlandi í tækni-
legu og fræðilegu og hernaðarlegu
tilliti ef atlagan verður gerð svara
flestir því til að væntanlega verði
flóttamannastraumur frá vesturhluta
Íraks yfir austurlandamærin til Sýr-
lands og raunar hefur fjöldi Íraka
sem hafa komið til Sýrlands síðustu
mánuði margfaldast. Og raunar
koma þeir fljúgandi líka því flogið er
einu sinni til tvisvar á dag milli
Damaskus og Bagdad. Vélar eru full-
ar hingað og fara tómar eða allt að því
til baka því sýrlenska sendiráðið í
Bagdad virðist mun sveigjanlegra en
það íraska varðandi veitingu vega-
bréfsáritana.
Íraska og bandaríska sendiráðið
nánast hlið við hlið
Gæslan við bandaríska sendiráðið
hefur margfaldast allra síðustu vikur
og var hún þó ærin fyrir. Þeir varð-
menn bera allir vopn núna en áður
var látið duga að þeir sem næst væru
inngangi í þetta virki sem bandarísku
sendiráðsbyggingarnar eru væru
vopnaðir.
Þótt ég hafi búið áður í Damaskus
hef ég svo sem aldrei sérstaklega
leitt hugann að því hvar íraska sendi-
ráðið væri hér í borginni. Mér þótti
mikil írónía í því þegar ég uppgötvaði
á röltinu á dögunum að það sendiráð
er í svo sem þriggja mínútna fjarlægð
frá því bandaríska svo það er ekki
langt að fara ef menn hafa á annað
borð einhvern áhuga á því að rabba
saman um heimsmálin.
Þegar ég kom heim aftur eftir stutt
jólafrí á Íslandi beið mín á stigapall-
inum kærkominn hlutur, þessi indæli
litli rafmagnsofn sem mun nú von-
andi ylja mér í svalanum hér á næstu
vikum. Ég hafði beðið um þennan ofn
nokkrum sinnum en húseigendamóð-
irin benti mér á að þetta væri full-
mikil tilætlunarsemi þar sem ég hefði
einn rafmagnsofn fyrir, ég hefði feng-
ið þrjár kaffikrúsir, tvö glös og fjóra
hnífa og meira að segja stóran pott
sem ég gæti raunar matreitt í fyrir
tuttugu manns. En hún hefur fyllst
skilningi og göfuglyndi á nýja árinu.
Ritarinn karlmaður
Svo bætti ég nokkrum myndum við
á fjölskylduvegginn, stillti upp fögr-
um kertastjaka sem ég hafði fengið
að gjöf heima og að svo búnu er mér
ekki til setunnar boðið með að halda
áfram með mína arabískutíma og
„rannsóknarvinnu“ um stöðu sýr-
lenskra kvenna. Ég nýt aðstoðar Im-
an Shaher, ljúfrar drúsakonu sem ég
hef komist í kynni við og aðaltúlks ut-
anríkisráðuneytisins og rithöfundar-
ins Bouthania Shaaban. Þegar ég
hringdi fyrst í hana varð ég hissa og
kát yfir því að heyra að ritarinn henn-
ar er karlmaður. Það eitt sagði mér
töluvert um stöðu kvenna í Sýrlandi.
Dagbók frá Damaskus
Tilætlunarsemi
að biðja um
rafmagnsofn
Óneitanlega er andrúmsloftið á svæðinu mínu að verða
nokkuð sérstætt. Alls konar áætlanir eru samdar um
hvernig við Norðurlandabúar eigum að bregðast við ef
Bandaríkjamenn ráðast á Írak, skrifar Jóhanna Krist-
jónsdóttir, og norrænu sendiráðin í Damaskus eru í
óða önn að skrá þá ríkisborgara sína sem ekki hafa
sinnt um það sjálfir.
Hvert ertu að fara?
Ertu á leið
til útlanda?
er með frábær tilboð
á bílaleigu bílum um allan heim.
Ekki eyða öllum gjaldeyrinum
í leigubíla. Pantaðu bíl hjá Hertz.
Hringdu og bókaðu
í síma 50 50 600