Morgunblaðið - 31.01.2003, Blaðsíða 1
2003 FÖSTUDAGUR 31. JANÚAR BLAÐ B
Í dag eru kínversk áramót
Kíktu í miðopnuna
Blað um Kína, kínverskar vörur,
mat og Kínverja á Íslandi
fylgir blaðinu í dag
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
JÓHANNES KARL Í SVIÐSLJÓSINU / B8
Keppni í milliriðlum lauk í gær-kvöld og þar gerðust þau stóru
tíðindi að Svíar komust ekki áfram
og enduðu í 13. sæti keppninnar.
Danir eru líka á heimleið og Ísland
er þar með eina Norðurlandaþjóðin í
hópi átta fremstu handknattleiks-
þjóða heims árið 2003.
Íslendingar mæta Rússum í Lissa-
bon klukkan hálftíu í fyrramálið.
Rússar hafa sótt sig mjög eftir mis-
jafna frammistöðu framan af keppn-
inni og unnu Dani og Egypta örugg-
lega í milliriðlinum. Þar á eftir leika
Júgóslavar við Ungverja. Sigurliðin
tryggja sér Ólympíusæti og spila um
5. sæti á sunnudaginn en tapliðin
mætast í hreinum úrslitaleik um sjö-
unda og síðasta Ólympíusætið.
„Það er enginn heimsendir hjá
okkur að hafa ekki komist í hóp fjög-
urra efstu og úr því sem komið er
tökum við stefnuna á fimmta sætið,“
sagði hornamaðurinn Einar Örn
Jónsson.
Spánverjar, Þjóðverjar, Króatar
og Frakkar spila til úrslita um
heimsmeistaratitilinn en þar leika
Spánverjar við Króata á morgun og
Þjóðverjar við Frakka. Úrslitaleik-
irnir um gull og brons fara síðan
fram á sunnudag. Þessar fjórar þjóð-
ir tryggðu sér Ólympíusæti í gær.
Íslendingar eina Norðurlandaþjóðin sem er í hópi þeirra átta bestu á HM
Morgunblaðið/RAX
Guðjón Valur Sigurðsson og Ólafur Stefánsson voru vonsviknir eftir tapið fyrir Spánverjum á HM.
Glímt við
rússneska
björninn
ÍSLENDINGAR berjast um helgina um þrjú sæti á Ólympíuleikunum
í Aþenu 2004, við Rússa, Júgóslava og Ungverja. Þetta er niður-
staðan eftir nauman ósigur gegn Spánverjum, 32:31, í gærkvöld.
Aðeins sú þjóð sem tapar báðum leikjum sínum í keppninni um
5.–8. sætið mun sitja heima en hinar þrjár komast á leikana. Fyrri
leikurinn er gegn Rússum í fyrramálið.
JÚGÓSLAVNESKU leikmennirnir
áttu bágt með að sætta sig við úr-
slitin á móti Þjóðverjum í gær,
jafntefli, 31:31, og flestir þeirra
voru afar niðurlútir þegar flautað
var til leiksloka. Stórskyttan
Nenad Perunicic féll algjörlega
saman og þurfti að leiða hann há-
grátandi af leikvelli. Perunicic,
sem leikur með Sigfúsi Sigurðs-
syni og Ólafi Stefánssyni hjá
Magdeburg, gat þó innst inni fagn-
að því hann er með þýskan rík-
isborgararétt sem hann öðlaðist í
haust. En þar sem Heiner Brand
landsliðsþjálfari Þjóðverja taldi
sig ekki hafa not fyrir Perunicic
með þýska liðinu leikur hann með
Júgóslövum þar sem hann hefur
tvöfalt ríkisfang.
Brast í grát
EVRÓPUÞJÓÐIR hafa tryggt sér tíu efstu sæt-
in í heimsmeistarakeppninni í handknattleik.
Þar með er ljóst að í næstu keppni, í Túnis eftir
tvö ár, verður Evrópa áfram með 13 lið í keppn-
inni, þrátt fyrir að eiga ekki gestgjafasætið eins
og í keppninni í Portúgal.
Heimsmeistararnir fá farseðil í næstu keppni,
ásamt gestgjöfunum, og síðan tryggja lið núm-
er 2 til 10 sinni heimsálfu HM-sæti, níu talsins.
Hver álfa, Evrópa, Asía, Afríka og Ameríka,
fær þrjú sæti þar fyrir utan og 24. sætið fellur í
skaut Eyjaálfu. Á síðustu heimsmeistaramótum
hefur Afríka átt fulltrúa í hópi tíu efstu þjóða,
Egyptaland, sem ekki nær svo langt í ár. Evr-
ópa vinnur því eitt sæti af Afríku, sem síðan fær
það til baka 2005 þar sem keppnin er haldin í
Túnis. Hlutföll heimsálfanna í þeirri keppni
verða því nákvæmlega þau sömu og í þessari.
Evrópa vinnur
HM-sæti
SÆNSKA sjónvarpssstöðin TV4 valdi Ólaf Stefánsson í heimslið sitt
sem það kynnti í þætti um heimsmeistarakeppnina í handknattleik í
fyrrakvöld. Þátturinn var í tengslum við útsendingu frá leik Svíþjóðar
og Ungverjalands.
Sérfræðingar stöðvarinnar sögðu að Ólafur væri óumdeildasti leik-
maðurinn í sinni stöðu, það væri engin örvhent skytta í heiminum sem
veitti honum neina samkeppni.
Hinir sex sem TV4 valdi í sitt heimslið voru hornamennirnir Johan
Pettersson frá Svíþjóð og Lars Christiansen frá Danmörku, rétthenta
skyttan Hussein Zaky frá Egyptalandi, leikstjórnandinn Stefan Löv-
gren frá Svíþjóð, línumaðurinn Dragan Skrbic frá Júgóslavíu og
markvörðurinn Kasper Hvidt frá Danmörku.
Ólafur valinn í
sænskt heimslið