Morgunblaðið - 24.02.2003, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.02.2003, Blaðsíða 7
HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2003 B 7  ARNAR Freyr Reynisson, mark- vörður HK, og Reynir Þór Reynis- son, markvörður Aftureldingar, eru bræður og mættust þeir í úrslitaleik bikarkeppninnar á laugardaginn. Þetta var í fyrsta skipti sem bræður, sem standa í markinu, mætast í bik- arúrslitaleik.  ARNAR Freyr var á undan bróður sínum að verja skot í úrslitaleiknum. Hann varði sitt fyrsta skot frá Daða Hafþórssyni, Aftureldingu, eftir 1,10 mínútu eftir fyrstu sókn Mos- fellinga.  REYNIR Þór varði fleiri skot þeg- ar upp var staðið, hann varði 21 skot en Arnar Freyr 18. Það kom hins vegar ekki í veg fyrir að yngri bróð- irinn, Arnar Freyr fagnaði sigri í leikslok.  ÞÁ má geta þess til gamans að systir þeirra bræðra, Elsa Hrönn Reynisdóttir, er framkvæmdastjóri HK.  ÓLAFUR Víðir Ólafsson, leik- stjórnandi HK, skoraði fyrsta mark úrslitaleiksins eftir 40 sekúndna leik í fyrstu sókn HK.  JALIESKY Garcia varð annar leikmaður HK til að komast á blað yfir markaskorara er hann skoraði með langskoti eftir 13,30 mín., leik. Fram til þess tíma hafði Ólafur Víðir séð um að skora mörkin fyrir HK, en hann gerði fimm fyrstu mörk liðsins.  SVERRIR Björnsson skoraði fyrsta mark Aftureldingar þegar 6,13 mínútur voru liðnar af leikn- umm og í fjórðu sókn liðsins í leikn- um. Sverrir skoraði eftir hraðaupp- hlaup.  ALLIR leikmenn HK fengu kjúk- ling að gjöf frá leikmönnum Aftur- eldingar fyrir viðureignina í bikar- úrslitunum.  JÓN Andri Finnsson, hornamaður Aftureldingar, vann fyrsta vítakast- ið í bikarúrslitaleiknum eftir 7,47 mín. Valgarð Thoroddsen skoraði úr vítakastinu og var það eina mark Valgarðs í leiknum.  BJÖRGVIN Gústafsson, vara- markvörður HK, kom aðeins tvisvar inn á í úrslitaleiknum, bæði skiptin freistaði hann þess að verja vítið. Það tókst honum í fyrra skiptið þeg- ar hann varði frá Jóni Andra, sem náði frákastinu og skoraði.  EINN leikmaður hvors liðs var kallaður í lyfjapróf í leikslok, Ólafur Víðir Ólafsson úr HK, og Jón Andri Finnsson, úr Aftureldingu.  AÐEINS þrír leikmenn Aftureld- ingar í úrslitaleiknum við HK léku með liðinu í úrslitum bikarkeppninn- ar fyrir fjórum árum þegar félagið komst í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn, þeir eru, Bjarki Sigurðs- son, Haukur Sigurvinsson og Jón Andri Finnsson. FÓLK „ÞAÐ er skemmtilegt að taka þátt í því að vinna loks eitthvað með fé- laginu, ekki síst þar sem það er far- ið að síga á seinni hluta keppnisfer- ilsins,“ sagði einn leikreyndasti leikmaður HK-liðsins, Jón Bersi Ellingsen, í leikslok á laugardag- inn. Jón Bersi hefur gengið í gegn- um súrt og sætt með HK á und- anförnum árum og er einn margra leikmanna liðsins sem eru uppaldir innan raða Kópavogsliðsins. „Í gegnum tíðina hefur okkur gengið vel gegn Aftureldingu og því var gott sjálfstraust í liðinu fyr- ir leikinn. Síðan bættist við barátta og leikgleði og þá var ekki að sök- um að spyrja. Málið var að hleypa Bjarka [ Sigurðssyni] ekki inn í spil- ið hjá Aftureldingu og taka síðan vel á hinum leikmönnum Aftureld- ingar, þetta heppnaðist,“ sagði Jón og bætti því við að leikmenn hefðu verið reynslunni ríkari eftir úrslita- leikinn í bikarnum við Hauka fyrir tveimur árum, þá varð HK að lúta í lægra haldi. „Þetta er stór stund fyrir HK og alla Kópavogsbúa því nú var félagið vinna fyrsta stóra mótið í bolta- íþróttum í fullorðinsflokki karla, það er ekki lítill áfangi,“ sagði bar- áttujaxlinn Jón Bersi Ellingsen, leikmaður HK. Mikið sjálfs- traust í liðinu „ÞETTA er stærsti dagur í sögu HK og að þessu erum við búnir að stefna í mörg ár,“ sagði baráttu- jaxlinn Alexander Arnarson við Morgunblaðið skömmu eftir að HK-ingar höfðu verið krýndir bik- armeistarar 2003. „Það hefur haldist ákveðinn kjarni í HK sem hefur byggt þetta sterka lið upp og nú erum við að uppskera. Ég held að tapleikurinn á móti Haukum fyrir tveimur ár- um hafi hjálpað okkur talsvert í þessum leik. Þá var mikil gleði að vera kominn í úrslitaleikinn en núna var ekki bara gleði heldur gífurlegt hungur í að vinna bik- arinn og það tókst. Óli kveikti neistann í okkar liði. Hann ætlaði að eiga leikinn og hann gerði það svo sannarlega ásamt Arnari Frey en ég tek samt ekkert af því að sigurinn var liðsheildarinnar.“ Árni þjálfari stappaði heldur betur í okkur stálinu á Hótel Nes- búð kvöldið fyrir leikinn. Ég get ekki sagt hvað hann sagði en fyrir mér er hann snillingur og eftir að hafa hlustað á hann þá vissi ég að við mundum vinna. Við erum ekk- ert orðnir saddir. Við eigum Val á miðvikudaginn og síðan Hauka og ef þessir leikir vinnast erum við í góðum málum í deildinni. Stefnan er að reyna að ná heimaleikja- rétti. Við megum alls ekki slaka á klónni og verðum að sýna að við erum sannir meistarar. HK er komið á kortið og nú höfum við opnað dyrnar.“ Gáfum aldrei færi á okkur „Við vorum einfaldlega betri frá upp- hafi og leikmenn Aftureldingar áttu aldrei neinn möguleika í okkur,“ sagði Arnar Freyr, markvörður HK. „Það kom aldrei neitt annað til greina en að vinna leikinn. Eftir að við skoruðum fyrsta mark leiksins þá horfðum við aldrei um öxl, gáfum ekkert færi á okk- ur,“ sagði Arnar og viðurkenndi að hann hefði verið örlítið taugaspenntur fyrir leikinn. „En um leið og ég varði fyrsta skotið þá var spennan á bak og burt. Ég reyndi að halda hugsunum vegna leiksins eins lengi frá mér og hægt var og það var ekki fyrr en ég fór að sofa á föstudagskvöldið sem ég fór sjá leikinn fyrir mér. Þegar ég vaknaði í morgun hélt ég áfram að velta vöngum og mesta spennan var í hádeginu, eftir það fjaraði hún út þar til að leiknum kom,“ sagði Arnar en bróðir hans Reynir Þór stóð í marki Aftureldingar og var besti maður liðsins. Arnar segist ekki hafa velt sér mikið upp úr þeirra staðreynd. „Þetta var fyrst og fremst leikur við Aftureldingu þótt bróðir minn hafi verið einn andstæðinga minna. Hann var þeirra besti maður, hélt þeim inni í leiknum og án hans frammistöðu hefð- um við örugglega unnið tíu marka sig- ur,“ sagði Arnar Freyr. Morgunblaðið/Árni Torfason nn ungi og efnilegi í liði HK, lék vörn Aftureldingar oft grátt og hér beita nsson og Haukur Sigurvinsson öllum brögðum til að stöðva Ólaf. úrslitaleikir fjögur töp ureldingar, varð að sætta sig við að með þremur félögum. Hann var í liði Víkings sem tapaði fyrir KA 1996, í ks nú. a að því að ég standi uppi sem sig- gunblaðið eftir ósigurinn á móti HK. Morgunblaðið/Árni Torfason Vilhelm Gauti Bergsveinsson, fyrirliði HK, er hér faðmaður af stuðningsmönnum Kópavogsliðsins. Að þessu höfum við stefnt í mörg ár nisson markvörður Aftureldingar  Arnar Freyr Reynisson, HK, 18 (þar af 4 til mótherja); 9 (1) langskot, 4 (2) eftir gegnumbrot, 2 (1) eftir gegnumbrot, 3 úr horni.  Björgvin Gústafsson, HK, 1/1 (þar af 1/1 til mótherja); 1 (1) vítakast.  Reynir Þór Reynisson, Aftureldingu, 21/1 (þar af 6 til mótherja); 8 (1) langskot, 3 (2) eftir gegnumbrot, 2 (1) eftir hraða- upphlaup, 2 (1) úr horni, 5 (2) af línu, 1 vítakast. Þannig vörðu þeir                               !" #" $    % $&  '                      

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.