Morgunblaðið - 24.02.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.02.2003, Blaðsíða 12
Sunna vann 200 m hlaupið, kom áundan danska meistaranum Sofíu Albitrup sem bætti danska metið í hlaupinu, hljóp á 24,33. „Ég vissi fyrir hlaupið að ég átti talsvert inni og málið var bara að töfra það fram.“ Sunna lét ekki þar við sitja heldur vann tvær aðrar greinar á mótinu, 60 m hlaup og langstökk. Hjó hún nærri Íslandsmeti Geirlaugar B. Geirlaugsdóttur, Ármanni, í 60 m hlaupinu, hljóp á 7,58 sek., sem er aðeins 4⁄100 úr sekúndum frá metinu. Þá stökk hún 6,09 metra í lang- stökki sem er þriðji besti árangur hennar innanhúss, en tveggja vikna gamalt Íslandsmet hennar er, 6,28 metrar. „Það styttist í metið í 60 metra hlaupinu. Ég geri atlögðu að því á sænska meistaramótinu innanhúss í Stokkhólmi um næstu helgi. Þá ætla ég að keppa í sömu greinum og um helgina, í 60 og 200 m hlaupi, og langstökki. Ég er mun sterkari en nokkru sinni áður og því er aldrei að vita hvað gerist í Svíþjóð,“ sagði Sunna. Um langstökkskeppnina sagði Sunna að hún hefði verið orðin þreytt eftir að hafa einbeitt sér að 60 og 200 m hlaupinu. „Það var held- ur ekki mikil keppni í langstökkinu og þegar ég náði að stökkva yfir 6 metra þá varð hálfgert spennufall. En ég er fyrst og fremst ánægð með að vera orðin örugg með 6 metra í langstökkinu, það er styrkleika- merki,“ segir Sunna Gestsdóttir. Sunna bætir sig jafnt og þétt um þessar mundir sem greinilega má sjá af því að hún hefur bætt Íslands- metið í langstökki í tvígang á síð- ustu vikum. Þá bætti hún árangur sinn í 200 m hlaupi á mótinu um fimmtung úr sekúndum og í 60 m hlaupi um 5⁄100 úr sekúndu. Met hjá Ragnari Frosta Ragnar Frosti Frostason, UMSS, setti Íslandsmet í flokki 21 til 22 ára í 800 m hlaupi þegar hann kom fjórði í mark á 1.54,07 mín. Gamla metið átti Brynjúlfur Hilmarsson, 1.57,4 og varð það komið nokkuð til ára sinni. Íslandsmet Þorsteins Þor- steinssonar í flokki fullorðinna, 1.53,26 stendur þó enn og eru rúmir þrír áratugir síðan það var sett. Frábært að endurheimta metið SUNNA Gestsdóttir úr UMSS setti Íslandsmet í 200 metra hlaupi á Opna danska meistaramótinu innanhúss í frjálsíþróttum á laug- ardag en keppt var í Malmö. Sunna hljóp á 24,30 sek og bætti met Silju Úlfarsdóttur, FH, um 2⁄100 úr sekúndu, en metið setti Silja 23. febrúar í fyrra á háskólamóti í Bandaríkjunum, 24,32 sek. „Það er frábært að endurheimta metið frá Silju,“ sagði Sunna í samtali við Morgunblaðið í gær, en hún var afar ánægð með árangur helg- arinnar. „Ég er í sjöunda himni með að hafa unnið þrjár greinar á mótinu.“ „ÞETTA er ekki spurningin um hvort heldur hvenær, það á ekki að vera neitt vandamál fyrir mig að stökkva hærra,“ sagði Þórey Edda Elísdóttir, stang- arstökkvari úr FH, eftir að hún vann stangarstökks- keppni Opna danska meistaramótsins í Malmö um helgina, lyfti sér yfir 4,30 metra en felldi naumlega í þrígang 4,41. Vala Flosadóttir, ÍR, varð önnur með 4,20 sem er hennar besti árangur innanhúss í vetur. Tvöfaldur íslenskur sigur var þar með staðreynd en danskur meistari varð Marie Bagger Bohn [áður Rasmussen] með 4 metra slétta. Þórey hóf keppni á því að fara yfir 4,10 m í annarri tilraun og var hátt yfir. „Ég var svolítið sein í gang því það var svolítið löng bið eftir keppninni, annars var 4,10 ekki mikið mál og ég var hátt yfir í annarri tilraun,“ sagði Þórey spurð um fallið í fyrstu tilraun við 4,10 m. Hún sleppti síðan 4,20 og reyndi næst við 4,30 og var hátt yfir í fyrstu tilraun, en 4,41 var henni óyf- irstíganlegur hjalli að þessu sinni. „Því er ekki að neita að það voru örlítil vonbrigði að fara ekki yfir 4,41 en ég stefni að því á næsta móti. Getan er fyrir hendi, spurningin snýst bara um að ná þessu fram,“ sagði Þórey sem keppti þarna á sínum gamla heima- velli í Malmö þar sem hún æfði um nokkurt skeið fyrir þremur til fjórum árum. „Þetta var bara eins og að koma heim, eftir langa útiveru.“ Þórey hefur hæst stokkið 4,40 m innanhúss í vetur en þriggja ára gamalt Norðurlandamet hennar er 4,51. Vala bætti sinn fyrri árangur í vetur um tíu sentí- metra, lyfti sér yfir 4,20 af miklu öryggi í fyrstu til- raun og er greinilega að sækja í sig veðrið á nýjan leik eftir að hafa átt erfitt uppdráttar síðasta árið. Vala hóf keppni á því að stökkva yfir 4 metra slétta í annarri tilraun. Eftir að hafa stokkið yfir 4,20 reyndi hún að sauma að Þóreyju með því að gera tilraunir við 4,30 en þær tókust ekki að þessu sinni. Stefna á sænska meistaramótið Þórey og Vala stefna að því að keppa á Opna sænska meistaramótinu innanhúss í Stokkhólmi um næstu helgi. Þar fá þær örugglega mikla keppni, m.a. frá sænska methafanum og Norðurlandameist- aranum í stangarstökki kvenna utanhúss, Kirsten Belin, sem hæst hefur stokkið 4,35 innanhúss í vetur. Þá verður æfingafélagi Völu, Hanna Mia Person, einnig á meðal þátttakenda ef að líkum lætur en hún er einnig mjög frambærilegur stangarstökkvari. Ljósmynd/Göran Len Sunna Gestsdóttir úr UMSS kemur í mark í 200 metra hlaupi á Opna danska meistaramótinu innanhúss í frjálsíþróttum á laugardag í Malmö. Þórey Edda vann í Malmö FYRRVERANDI heims- meistari í knattspyrnu, hinn 37 ára gamli Brasilíumaður Romario, hefur samið við knattspyrnulið frá Katar, Al- Sad. Samningurinn er til þriggja mánaða og fær framherjinn snjalli og um- deildi 117 milljónir ísl. kr. í laun frá félaginu á þessum tíma eða rétt tæpar 40 millj- ónir á mánuði. Khaled Jabr al-Nuaimi talsmaður félags- ins greindi frá. Romario mun leika sinn fyrsta leik með nýja liðinu 9. mars en gamla liðið hans, Fluminese í Brasilíu, hefur samþykkt tilboð frá Katar- liðinu og er Romario laus allra mála en hann lék með Barcelona og PSV Eind- hoven í Evrópu. Romario komst í feitan bita í Katar FÓLK Ljósmynd/Göran Len Fríða Rún Þórðardóttir kem- ur í mark í 3.000 m hlaupi.  FRÍÐA Rún Þórðardóttir, úr ÍR, sigraði í 3.000 metra hlaupi á Opna danska meistaramótinu á laugardag. Kom hún í mark á 9.50,9 mín., og var 5 sekúndum á undan næsta kepp- anda. Þá hljóp Fríða Rún á 4.39,09 mín., í 1.500 m hlaupi á sunnudag og hafnaði í 4. sæti.  SVEINN Margeirsson, UMSS, hafnaði þriðji í 3000 metra hlaupi á Opna danska meistaramótinu er hann hljóp á 8.15,18 mín, sem er að- eins 3,5 sekúndum frá Íslandsmeti Jóns Diðrikssonar. Þetta er besti ár- angur sem Sveinn hefur náð í grein- inni, jafnt innan- sem utanhúss. Bætti hann m.a. innanhússárangur sinn um 20 sekúndur.  SVEINN náði einnig athyglisverð- um árangri í 1.500 m hlaupi þegar hann kom sjötti í mark á 3.53,53 mín- útum.  STEFÁN Már Ágústsson, UMSS, varð sjötti í 800 m hlaupi á mótinu á 1.56,25 mín. Þá hljóp Ragnar Frosti Frostason, einnig úr UMSS, 400 m á 50,60 sek., og 200 m á 23,58 sek., sem er aðeins 1/100 úr sekúndu frá meti í flokki 21 til 22 ára.  KÁRI Steinn Karlsson, líka úr UMSS, setti met í 3.000 m hlaupi í flokki 17-18 ára, hjóp á 9.09,56 mín- útum. Bætti hann met Ólafs Mar- geirssonar, UMSS, um 17 sekúndur en metið setti Ólafur á síðasta ári.  ARNDÍS María Einarsdóttir, 16 ára stúlka um UMSS, bætti sig all- nokkuð í 800 m hlaupi á Opna danska mótinu. Hljóp vegalengdina á 2.19,41. Þá hljóp hún 400 m á 60,06 á sunnudag, en 800 m hlaupið var á laugardaginn. Hún hafnaði í 7. sæti í 800 m hlaupinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.