Morgunblaðið - 26.02.2003, Qupperneq 8
8 B MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Hjólalegusett
Öxulhosur
Tímareimar
BÍLA-
VARAHLUTIR
w
w
w
.d
es
ig
n
.is
©
2
0
0
3
VOLKSWAGEN Touareg samein-
ar fullboðlega eiginleika til aksturs
utan vega og til aksturs í borginni.
Þar fylgir VW þróun sem hefur átt
sér stað undanfarin misseri hjá
bílaframleiðendum sem elta mark-
aðinn og kröfur kaupenda eins og
skottið á sér. Menn vilja aflmikla
lúxusjeppa, sem á malbikinu eru
eins og hágæða fólksbílar í akstri,
og gefa jafnframt grindarbyggðum
jeppum ekkert eftir í drifgetu utan
vega. VW-menn voru lengi að taka
við sér og bjóða valkost inn á þenn-
an ört vaxandi markað en nú er
hann kominn í líki Touareg og bíll-
inn var biðarinnar fullkomlega
virði.
Touareg er alls enginn alþýðu-
vagn, enda skýr stefna hjá VW að
færa framleiðsluna að hluta í lúx-
usflokk og nú þegar eru komnir
tveir bílar alla leið þangað, þ.e. lúx-
usfólksbíllinn Phaeton og lúxus-
jeppinn Touareg.
Rennilegur og aflmikill
Touareg er jeppi með sambyggða
yfirbyggingu og grind og búinn
einu fullkomnasta fjórhjóladrifs-
kerfi sem á boðstólum er. Hann er
boðinn hérlendis með tveimur vél-
argerðum enn sem komið er, þ.e.
V6 220 hestafla bensínvél og V10
313 hestafla dísilvél. Innan tíðar
bætist síðan við V8, 312 hestafla
bensínvél. Við prófuðum bílinn ný-
lega við íslenskar aðstæður með V6
vélinni og loftpúðafjöðrun.
Bílnum er sem best lýst í þremur
orðum: Aflmikill, fágaður og rík-
mannlegur. Hann lætur í raun lítið
yfir sér að utan og virkar á marga
við fyrstu sýn eins og hann sé nú
ekki til stórræðanna. Kannski eins
og ofvaxinn langbakur eða jepp-
lingur með stórum hjólum. En um-
fram allt virðast hönnuðir hafa haft
að leiðarljósi að gera bílinn renni-
legan og hæfan til að kljúfa loftmót-
stöðu með sem minnstri fyrirhöfn.
Á grillinu og afturhleranum eru
risavaxin einkennismerki VW,
framlugtirnar eru fíngerðar linsu-
lugtir en að aftan eru stórar aft-
urlugtir á bretti og ná út á aftur-
hlera. Krómlistar eru umhverfis
glugga og á sílsum og grilli. Allt er
fremur stórt og traustvekjandi í
sniðum; t.a.m. hliðarspeglar og
hurðarhúnar. Í hliðarspeglunum
neðanverðum eru stefnuljós sem
setja bæði fallegan svip á bílinn og
auka umferðaröryggið.
Lykillaust aðgengi
VW-mönnum hefur sannarlega
tekist vel upp í hönnun innanrým-
isins. Bíllinn slær út alla keppi-
nauta sína í frágangi, efnisvali og
stíl. Sætin eru stór og styðja vel við
líkamann og milli framsæta er stór
geymslustokkur sem er hreyfan-
legur og virkar vel sem armhvíla.
Ökumannssætið er með upphitun. Í
prófunarbílnum voru framsætin
með rafstillingu og minni og öll
sætin leðurklædd. Þetta er auka-
pakki sem kostar 450.000 kr. Sömu-
leiðis var prófunarbíllinn með lyk-
illausu aðgengi að hurðum sem er
sérlega þægilegur búnaður. Í stað
þess að þrýsta á hnapp til að opna
hurðir er nóg að vera í námunda við
hurðir með lykilinn í vasanum til
þess að þær opnist. Ekki þarf held-
ur að taka lykilinn upp þegar inn í
bílinn er komið heldur nóg að
þrýsta á hnapp í námunda við gír-
stöngina til að ræsa bílvélina. Þeg-
ar bíllinn er síðan yfirgefinn nægir
að þrýsta á hnapp í hurðarhúninum
utanverðum til að læsa bílnum.
Lengi er hægt að dveljast við
smáatriði í hönnun og útbúnaði
bílsins en um leið verður að gæta
þess að margt af þessu er aukabún-
aður og kostar sitt. Þannig er t.d.
fjögurra svæða loftfrískunarbúnað-
ur, viðarskreyting í mælaborði,
fjölrofa stýrishjól og sóllúga, svo
fátt eitt sé nefnt, aukabúnaður.
Meðal aukabúnaður eru einnig raf-
læsingar á fram- og afturdrifi.
Duglegur utan vega
Af framansögðu mætti ætla að
hér væri fyrst og fremst um mal-
biksbíl að ræða en svo er þó alls
ekki. Touareg hentar ekki síður til
aksturs utan vega. Veghæðin er
23,7 cm þegar bíllinn er á gorma-
fjöðrun og allt að 30 cm á loftpúða-
fjöðrun, og hjólhafið er mikið. Hann
er líka með háu og lágu drifi og mis-
munadrifslæsingu. Þá eru fáanleg-
ar læsingar á fram- og afturhás-
ingu. Bíllinn sem var prófaður var
með loftpúðafjöðrun sem er lúxus
sem kostar 330.000 kr. aukalega.
Með henni er sem sagt hægt að
hækka veghæðina í 30 cm og þá er
bíllinn líka fær í flest, ekki síst í
djúpan snjó. Sömuleiðis er hægt að
lækka veghæðina niður í 16 cm,
sem hentar vel við hraðakstur og
þegar verið er að hlaða bílinn. Auk
Touareg – meistara-
smíð frá Volkswagen
REYNSLUAKSTUR
Volkswagen Touareg
Guðjón Guðmundsson
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Veghæð í bílnum með loftpúðafjöðrun og drifi er stjórnað með snúningstökkum.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Veghæð 30 cm …
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Touareg er ekki með mesta farang-
ursrýmið af keppinautunum.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Touareg lætur eins og fólksbíll á malbikinu. Upptak er 9,9 sekúndur og hámarkshraðinn 206 km/klst.