Morgunblaðið - 03.03.2003, Síða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. MARS 2003 B 3
ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, brá
sér til meginlandsins um helgina og sá tvo leiki þar
sem íslenskir knattspyrnumenn voru í eldlínunni.
Hann byrjaði á því að sjá Bochum og Hannover í
þýsku deildinni á laugardaginn og fór síðan yfir til
Belgíu þar sem hann sá Lokeren og Mechelen leika í
gær.
„Þetta var nú ansi erfitt hjá Þórði [Guðjónssyni] og
félögum í Bochum. Þórður stóð sig samt vel, lagði sig
allan fram og vann vel. Hann er líka með hættulegar
aukaspyrnur en lið Bochum er dálítið opið á miðjunni
og Þórður fékk því ekki mikla hjálp þar. Hægri
vængurinn hjá þeim er teknískur en hægur og ég
hefði viljað sjá Þórð leika þar,“ sagði Atli í samtali
við Morgunblaðið eftir leikinn í Þýskalandi.
Þórður var í byrjunarliði Bochum en var skipt út af
á 74. mínútu.
Hann sagði heimamenn í raun aldrei hafa átti
möguleika gegn Hannover. „Hannover hefði getað
verið þremur til fjórum mörkum yfir í hálfleik, en
þeir skoruðu tvívegis fyrir hlé. Heimamenn náðu síð-
an að skora fyrir miðjan síðari hálfleikinn og fengu
nokkur færi eftir það en þau nýttust ekki,“ sagði Atli.
Atli sá Þórð
standa sig vel
FÓLK
SVEINN Margeirsson úr UMSS,
gerði tilraun til þess að bæta Íslands-
metið í 3.000 m hlaupi innanhúss á
Opna sænska meistaramótinu um
helgina. Tilraun Sveins fór forgörð-
um. Hann kom í mark á 8.16,76 mín.,
og hafnaði í 6. sæti. Hann var um 5
sekúndum frá Íslandsmeti Jóns Dið-
rikssonar, UMSB. Gauti Jóhannes-
son, UMSB, varð í 12. sæti í 3.0000 m
hlaupinu á 8.41,70.
RAGNAR Frosti Frostason, úr
UMSS, komst ekki í úrslit í 800 m
hlaupi á mótinu. Honum tókst ekki
að fylgja eftir góðum árangri á Opna
danska meistaramótinu á dögunum.
Ragnar hljóp nú 1.56,13 mín.
ÓLAFUR Margeirsson, UMSS,
keppti einnig í undanrásum 800 m
hlaupsins og kom í mark á 2.03,45
mín. Þá hljóp hann 1.500 m á 4.10,90
og varð í 14. sæti af 19 keppendum.
KÁRI Steinn Karlsson, frá UMSS,
rak lestina í 1.500 m hlaupinu á
4.20,52 mín. Kári Steinn keppti einn-
ig í 3.000 m hlaupi og kom í mark á
9.19,57 mín. – um 10 sekúndum frá
eigin Íslandsmeti í flokki 17–18 ára.
ARNDÍS María Einarsdóttir, úr
UMSS, varð síðust í undanrásum í
400 m hlaup 60,29 sek. og hljóp 800 m
á 2.21,61 mín.
FRÍÐA Rún Þórðardóttir, úr ÍR,
sem vann 3.000 m hlaupið á Opna
danska meistaramótinu, náði sér
ekki á strik í 3.000 m hlaupinu í Sví-
þjóð, hafnaði í 6. sæti á 10.10,14 mín.,
sem er talsvert frá hennar besta.
Fríða Rún hafnaði einnig í 6. sæti í
1.500 m hlaupi, kom í mark á 4.41,52
mín.
CHRISTIAN Olsson vann þrístökk
karla með yfirburðum á Opna
sænska mótinu í Stokkhólmi. Hann
stökk 17,37 m sem er aðeins 8 sentí-
metrum frá lengsta stökki ársins. Þá
fóru þeir Stefan Holm og Staffan
Strand á kostum í hástökki karla,
stukku báðir yfir 2,32 og ljóst er að
þeir gera báðir tilkall til gullverð-
launa á HM eftir hálfan mánuð.
ÞAÐ sama á við löndu þeirra,
Kajsu Bergqvist í hástökki kvenna.
Hún vann þá grein í Stokkhólmi með
yfirburðum, stökk 2 metra og hefur
ekki verið sigruð í greininni í vetur.
STACY Dragila endurheimti í gær
heimsmetið í stangarstökki kvenna
þegar hún stökk 4,78 m á bandaríska
meistaramótinu. Gamla metið, 4,77
átti Svetlana Feofanova frá Rúss-
landi. Þær mætast á HM innanhúss í
Birmingham eftir hálfan mánuð.
GAIL Devers bætti bandaríska
metið í 60 m grindahlaupi er hún
hljóp á 7,74 sekúndum á bandaríska
meistaramótinu í frjálsíþróttum í
Boston á laugardagskvöldið. Devers
átti sjálf gamla metið, 7,78 sek.
ska meistaramótinu í Stokkhólmi
Morgunblaðið/RAX
Ljósmynd/Göran Len
Sunna Gestsdóttir varð önnur í langstökki á sænska meist-
aramótinu í frjálsíþróttum innanhúss um helgina.
Þrátt fyrir annað sæti á Opna sænska meistaramótinu í gær
var Þórey Edda Elísdóttir nokkuð frá sínu besta.
Ég er mjög ánægður með aðþessar deilur skuli endanlega
vera til lykta leiddar og vil þakka
það sérstaklega
Kristni Kjærne-
sted, stjórnarmanni
í KR-Sport, fyrir
hans stóra þátt í
því máli, sem og þann mikla stuðn-
ing sem leikmenn KR hafa sýnt
mér á undanförnum vikum og átti
mikinn þátt í þessari ánægjulegu
lausn,“ sagði Guðmundur í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Guðmundur, sem er 28 ára gam-
all, hefur leikið með KR-ingum frá
1995 og var kjörinn leikmaður árs-
ins í úrvalsdeildinni 1999. Hann
átti í erfiðleikum vegna meiðsla á
síðasta tímabili og var aðeins
tvisvar í byrjunarliði KR í úrvals-
deildinni en tók þó alls þátt í 14
leikjum í deildinni. Í desember
gekkst hann undir aðgerð á hné,
eina af mörgum á ferlinum, og hef-
ur verið að byggja sig upp síðan.
Sér fram á nýja tíma
á nýju gervigrasi
„Ég hef ekkert þorað að sparka
bolta ennþá, hef fyrst og fremst
æft sjálfur í lyftingasal, en held að
ég geti farið að byrja hvað úr
hverju. Hingað til hef ég helst ekki
viljað spila fótbolta á gervigrasi á
veturna vegna þess hve slæm áhrif
það hefur haft á hnén á mér, en
með tilkomu nýja gervigrassins í
Egilshöll og Fífunni sé ég fram á
aðra og skemmtilegri tíma fram-
undan. Nú vildi ég vera 10 ára á
ný og geta æft við slíkar aðstæður.
Mér líst mjög vel á leikmannahóp-
inn hjá KR sem hefur stækkað frá
því í fyrra, samkeppnin verður
harðari og vonandi verður liðið
enn sterkara í framhaldi af því,“
sagði Guðmundur Benediktsson.
Guðmundur
með nýjan
samning við KR
GUÐMUNDUR Benediktsson knattspyrnumaður skrifaði á laug-
ardaginn undir nýjan samning við KR-Sport og leikur því með KR-
ingum í sumar. Samningurinn gildir út þetta tímabil, og með honum
lýkur langvinnum deilum milli Guðmundar og KR-Sport. Félagið
sagði upp launalið fyrri samningsins við hann, Guðmundur leitaði í
framhaldi af því til lögfræðings, og í ársbyrjun var honum bannað að
æfa með KR-ingum.
Morgunblaðið/Golli
Guðmundur Benediktsson í leik með KR gegn Fylki í fyrra.
Eftir
Víði
Sigurðsson
ÍSLENDINGARNIR fjórir og félagar
þeirra í Lokeren voru ekki í neinum vand-
ræðum með að sigra botnliðið Mechelen,
5:0, í belgísku 1. deildinni í knattspyrnu í
gær. Rúnar Kristinsson skoraði fyrsta
markið beint úr aukaspyrnu strax á 8.
mínútu, með lúmsku skoti í gegnum varn-
arvegginn. Arnar Grétarsson skoraði tvö
næstu mörk, það fyrra úr vítaspyrnu á 29.
mínútu og það síðara með gullfallegu
skoti, rétt innan vítateigs í bláhornið í
byrjun síðari hálfleiks. Rúnar lagði síðan
upp fjórða markið fyrir De Beule og Ban-
goura innsiglaði stórsigur Lokeren. Með
mörkunum tveimur hefur Arnar Grét-
arsson nú skorað 11 deildamörk fyrir
Lokeren í vetur.
Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari, var
mættur til Lokeren til að fylgjast með Ís-
lendingaliðinu og sagði við Morgunblaðið
að það hefði verið sérlega gaman að sjá
fjóra Íslendinga leika með einu af efstu
liðum Belgíu. „Öxullinn í mjög sterku liði
er byggður upp á íslensku leikmönnunum.
Það kemur mér ekki á óvart að Arnar Þór
Viðarsson sé í stóru hlutverki á miðjunni,
ég vissi að hann ætti eftir að leika þar þeg-
ar fram liðu stundir. Hann er mikill for-
ingi í liðinu og vel til þess fallinn að vera
fyrirliði þótt hann sé ungur að árum. Það
var mjög gaman að sjá Rúnar leika svona
framarlega á vellinum en hann hélt bolt-
anum gífurlega vel og er með frábært
auga fyrir því að opna fyrir samherja sína
með góðum sendingum.“
Atli hreifst einnig af leik Arnars Grét-
arssonar á miðjunni. „Arnar hefur greini-
lega breytt leik sínum til hins betra því
hann er farinn að stinga sér framar á völl-
inn þegar tækifæri gefast. Hann skilaði
hlutverki sínu frábærlega auk þess að
skora þessi tvö mörk. Marel Baldvinsson
er í nýrri stöðu sem vinstri vængmaður og
sinnti varnarskyldunum betur en í öllum
leikjum samanlagt sem ég hef séð hann í
til þessa. Hann hefur mikla hæfileika og
það verður gaman að sjá til hans þarna í
framtíðinni,“ sagði Atli Eðvaldsson.
Arnar skoraði tvö og
Rúnar eitt í stórsigri
Morgunblaðið/Golli
Arnar Grétarsson