Morgunblaðið - 03.03.2003, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.03.2003, Qupperneq 12
INGI Sigurðsson, bæj- arstjóri í Vestmannaeyjum, leikur með ÍBV í úrvals- deildinni í knattspyrnu í sumar. Útlit var fyrir að hann myndi leggja skóna á hilluna eftir síðasta tímabil en Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, sagði við Morgunblaðið í gær að Ingi væri byrjaður að æfa. „Hann kemur inn í þetta hjá okkur þegar hann er tilbúinn og verður okkur örugglega mjög mikilvægur, enda með mikla reynslu sem verður dýrmæt fyrir okkar unga lið,“ sagði Magnús. Ingi, sem er 34 ára, er leikjahæsti leikmaður ÍBV í efstu deild með 198 leiki og verður því að öllu óbreyttu fyrsti Eyjamaðurinn til að fara yfir 200 leiki með félag- inu í deildinni. Hann og hinn 38 ára gamli Birkir Krist- insson verða langelstu leik- menn Eyjaliðsins í sumar. Bæjar- stjórinn tekur fram skóna FÓLK  DAÐI Lárusson, markvörður knattspyrnuliðs FH, fór meiddur af velli eftir aðeins 20 mínútna leik gegn Grindavík í deildabikarnum á laugardaginn. Daði fékk slæma byltu og haltraði út af, meiddur á mjöðm.  HELGI Valur Daníelsson lék all- an leikinn með Peterborough sem vann óvæntan útisigur á Crewe, 1:0, í ensku 2. deildinni í knattspyrnu á laugardaginn. Peterborough komst með sigrinum í fjögurra stiga fjar- lægð frá fallsæti deildarinnar sem er besta staða liðsins í vetur.  VIKTOR B. Arnarsson lék allan leikinn með TOP Oss sem tapaði, 1:0, fyrir Haarlem í hollensku 1. deildinni. Jóhannes Harðarson lék allan leikinn með Veendam sem tapaði 1:3 heima fyrir Helmond Sport í sömu deild.  HELGI Kolviðsson var varamað- ur og kom ekki við sögu hjá Kärnt- en þegar lið hans tapaði, 0:1, heima fyrir Pasching í austurrísku úrvals- deildinni á laugardaginn. Austur- ríska knattspyrnan hófst þá á ný eftir langt vetrarfrí.  EYJÓLFUR Sverrisson var ekki í leikmannahópi Herthu Berlín sem tapaði, 1:0, fyrir Hamburger SV í þýsku 1. deildinni í gær.  STJÓRN spænska knattspyrnu- stórveldisins Barcelona ákvað á laugardag að liðið tæki þátt í Int- ertoto-keppninni næsta sumar ef það ynni sér ekki Evrópusæti með öðrum leiðum. Barcelona hefur tek- ið vel við sér undir stjórn Radomirs Antics en þarf að eiga góðan loka- sprett til að komast nógu ofarlega í 1. deildinni til að ná inn í UEFA- bikarinn.  KLEBERSON, miðjumaður bras- ilísku heimsmeistaranna í knatt- spyrnu, hefur mikinn hug á að leika með Newcastle og nýtur þar með- mæla frá sjálfum Ronaldo, landa sínum.  RONALDO lék undir stjórn Bobbys Robsons, knattspyrnustjóra Newcastle, bæði hjá PSV Eind- hoven og Barcelona, og hælir hon- um á hvert reipi. „Heiðursmaður sem veit allt um leyndardóma knattspyrnunnar,“ sagði Kleberson og vitnaði í félaga sinn. Eins og síðustu 2 ár þarf aðvinna 11 bolta til að vinna lotu en samt verður að muna tveimur stigum og því getur teygst úr lotunni. Síðan vinnur sá sem fyrr vinnur fjórar lotur leikinn. Þetta fyrirkomulag þykir mörgum bjóða uppá meiri spennu því augnabliks slökun getur kostað lotu. Fyrirfram var búist við að Guð- mundur myndi verja titla sína í einliðaleik, tvíliða og tvenndarleik. Sú varð raunin enda kappinn æft og keppt erlendis síðustu ár. Í ein- liðaleik mætti hann Kjartani Briem úr KR í undanúrslitum og hafði 4-0 sigur eins og á móti félaga sínum Markúsi Árnasyni úr Víkingi í úr- slitum. Markús þurfti að hafa mik- ið fyrir að komast í úrslitaleikinn því í undanúrslitum þreytti hann 7 lotu leik við Víkinginn Sigurð Jóns- son. Markús var kominn með væn- lega stöðu með þrjár lotur gegn einni en Sigurður sýndi mikla bar- áttu þegar hann jafnaði 3-3. Í oddalotunni skiptust þeir á um að komast yfir en Markús vann loks 14:12. Guðmundur og Markús unnu Kjartan og Sigurð Jónsson úr Vík- ingi í úrslitum í tvíliðaleiknum. Þar urðu í 3. til 4. sæti kapparnir Krist- ján Jónasson og Bjarni Bjarnason en þeir unnu einmitt Guðmund og Markús í úrslitum 1994. Spennan var öllu meiri í meist- araflokki kvenna. Þar háði Hall- dóra harða glímu við Guðrúnu G. Björnsdóttur úr KR og vann 4-1 en Aldís Rán Lárusdóttir úr KR lagði stöllu sína Kristínu Ástu Hjálm- arsdóttur í hinum undanúrslita- leiknum. Í úrslitum vann Halldóra fyrstu lotuna naumt en Aldís næstu. Þá spýtti Halldóra í lófana, sigraði næstu með herkjum en fjórðu örugglega og staðan 3-1 en Aldís vann næstu lotu 11:8. Vinna þarf fjórar lotur til að vinna leikinn og í æsispennandi leik vann Hall- dóra 12:10. „Ég átti alls von á að vinna hana, ekki vegna þess að ég hef ekki unnið hana áður heldur vegna þess að hún er búin vera úti í Svíþjóð og æft þar af krafti,“ sagði Halldóra eftir leikinn. „Ég var því ekkert búin að spila við hana síðan í október og hélt að hún væri ennþá betri. Það var mikil spenna í mér í undanúrslitunum en þegar úrslitaleikurinn sjálfur var byrjaður var allt í lagi.“ Morgunblaðið/Stefán Fyrsti sigur Halldóru ■ Tvítugur / B2 Stefán Stefánsson skrifar FASTIR liðir voru á dagskrá á Íslandsmótinu í borðtennis, sem fram fór í TBR um helgina en einnig var bryddað upp á nýjungum. Guð- mundur Eggert Stephensen vann meistaraflokkinn í tíunda árið í röð en Halldóra Ólafs sigraði í fyrsta sinn í meistaraflokki kvenna og saman unnu þau tvenndarleikinn. Rúmlega hundrað þátttak- endur frá tíu félögum voru skráðir til leiks, þar á meðal tveir frá íþróttafélaginu Dímon frá Hvolsvelli. Íslandsmeistararnir Halldóra Ólafs og Guðmundur E. Stephensen. Hjálmar Þórarinsson, sóknarmað-urinn efnilegi sem er nýorðinn 17 ára, skoraði þrennu fyrir Þrótt í leiknum, á aðeins 20 mínútna kafla í fyrri hálfleik. Þar með hefur Hjálmar gert þrjár þrennur nú þegar á tíma- bilinu en hann skoraði tvær slíkar í Reykjavíkurmótinu. Sören Her- mansen, hinn danski félagi hans í framlínunni, skoraði tvö markanna og hefur því gert 5 mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum fyrir félagið en hann gerði þrennu gegn FH. Birkir magnaður þegar níu Eyjamenn lögðu Víking Birkir Kristinsson fór á kostum í marki ÍBV sem vann Víking, 1:0, í Egilshöll. Tveir þeirra voru reknir af velli, Hafþór Atli Rúnarsson á 35. mínútu og Bjarnólfur Lárusson á 51. mínútu, en Bjarni Rúnar Einarsson náði samt að skora sigurmark ÍBV úr snöggri sókn á 60. mínútu. Birkir sá síðan til þess að Víkingar skoruðu ekki og varði m.a. vítaspyrnu á glæsi- legan hátt rétt fyrir leikslok. „Birkir var frábær, við hefðum aldrei innbyrt þennan sigur án hans, tveimur mönn- um færri,“ sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV. FH-ingar hafa fengið mikið af mörkum á sig að undanförnu og þeir lágu fyrir Grindavík, 4:1, í Reykja- neshöllinni á laugardaginn. Leikur- inn var þó jafnari en tölurnar segja til um. Alfreð Jóhannsson kom Grinda- vík yfir í byrjun leiks en Guðmundur Sævarsson jafnaði fyrir FH-inga. FH var sterkari aðilinn lengi vel en gaf eftir þegar á leið og Grindvíking- ar skoruðu þrívegis á síðustu 23 mín- útunum. Sprækir Keflvíkingar skelltu Skagamönnum Þórarinn Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Keflvíkinga og Magnús S. Þorsteinsson eitt þegar þeir lögðu Skagamenn, 3:2, í Fífunni. Hjálmur Dór Hjálmsson og Garðar B. Gunn- laugsson svöruðu fyrir ÍA. Keflvík- ingar verða greinilega sterkir í 1. deildinni í sumar. „Ég tel að þetta hafi verið mjög sanngjarn sigur í góð- um leik tveggja mjög ungra liða og við hefðum getað skorað fleiri mörk. Þórður Þórðarson varði frábærlega í marki Skagamanna,“ sagði Zoran Daníel Ljubicic, fyrirliði og langelsti leikmaður Keflvíkinga. Framarar voru snöggir að afgreiða Stjörnuna, 4:0, í Fífunni. Þeir skor- uðu öll mörkin á fyrsta hálftímanum og gerði Kristján Brooks tvö þeirra. Talsverð forföll voru í liði Framara vegna meiðsla, marga lykilmenn vantaði en það kom ekki að sök. Þriðja þrenna Hjálmars í ár ÞRÓTTARAR, nýliðarnir í úrvalsdeildinni í knattspyrnu, héldu sann- kallaða markaveislu þegar þeir mættu Haukum í Reykjaneshöll á laugardaginn. Þróttarar sigruðu, 8:2, og hafa þar með gert 12 mörk í tveimur fyrstu leikjum sínum í deildabikarnum en þar lögðu þeir FH-inga að velli, 4:2, í fyrsta leiknum. ■ Úrslit /B10 Sjötíu og tveggja ára í úr- slitum SEXTÍU og tvö ár voru á milli kappanna í úr- slitaleik 1. flokks á Ís- landsmótinu í borð- tennis um helgina. Emil Pálsson keppti bæði í meistaraflokki og fyrsta flokki, í meistaraflokki vann hann leik áður en Guð- mundur Stephensen lagði hann að velli en í 1. flokki hlaut hann silfur eftir tap fyrir Magnúsi K. Magn- ússyni úr Víkingi. Emil er 72ja ára og Magnús fimmtán. „Ég vildi auð- vitað komast lengra en var ekki alveg með ein- beitinguna á hreinu,“ sagði Emil eftir mótið. „Ég hef oft spilað við þessa stráka áður og unnið en Magnús var nógu yfirvegaður núna til að vinna mig.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.