Morgunblaðið - 14.04.2003, Qupperneq 1
2003 MÁNUDAGUR 14. APRÍL BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
VIÐTAL VIÐ SIGURÐ INGIMUNDARSON /B2, B3
Morgunblaðið/Kristján
Björgvin Björgvinsson frá Dalvík hafði ástæðu til að fagna árangri sínum á Skíðamóti Íslands.
Hann var sigurvegari í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppninni. Sjá umsögn um mótið á B6, B7.
Fyrir leikinn var búist við knatt-spyrnuveislu af hálfu Lokeren
þar sem lið Lommel er gjaldþrota og
aðeins tveir atvinnu-
menn eru eftir í röð-
um félagsins. Leik-
urinn líktist því
meira æfingaleik en
deildaleik.
Rúnar skoraði strax á 3. mínútu og
rétt á eftir var Marel felldur og
dæmd vítaspyrna en Davidts mark-
vörður varði frá Arnari Grétarssyni.
Marel var aftur á ferðinni þegar hann
lagði upp annað mark Lokeren fyrir
Rúnar, 2:0. Rétt fyrir leikhlé skoraði
Marel þriðja markið með fallegum
skalla.
Arnar Þór Viðarsson fékk fyrsta
færi síðari hálfleiks þegar hann átti
hörkuskalla í þverslá. Rúnar innsigl-
aði þrennuna þegar hann var felldur
utan vítateigs, tók aukaspyrnuna
sjálfur og skaut yfir varnarvegginn
og í bláhornið, 4:0. Tólfta mark Rún-
ars í deildinni í vetur. Það var síðan
Arnar Grétarsson sem átti lokaorðið,
gerði fimmta markið eftir skemmti-
legan samleik við Rúnar, og það var
jafnframt 16. mark Arnars í deildinni.
„Íslendingarnir fjórir voru lang-
bestir í þessum leik,“ sagði Paul Put,
þjálfari Lokeren, á blaðamannafundi
eftir leikinn en hann var ekki ánægð-
ur með aðra leikmenn liðsins og taldi
að þeir hefðu ekkert viljað beita sér í
leiknum.
Það hefur aðeins einu sinni áður
gerst að öll fimm mörk erlends at-
vinnuliðs hafi verið íslensk. Þá var
það reyndar einn og sami maðurinn
sem gerði þau öll; Atli Eðvaldsson,
núverandi landsliðsþjálfari, sem
skoraði 5 mörk þegar Düsseldorf
vann Frankfurt, 5:0, í þýsku 1. deild-
inni fyrir 20 árum.
Rúnar með þrennu
fyrir Lokeren
RÚNAR Kristinsson skoraði sína fyrstu þrennu sem atvinnumaður
þegar Lokeren vann stórsigur á Lommel, 5:0, í belgísku 1. deildinni
í knattspyrnu á laugardagskvöldið. Íslendingar skoruðu öll mörkin í
leiknum því Arnar Grétarsson og Marel Baldvinsson sáu um hin tvö.
Þau hefðu getað orðið fleiri því Arnar Grétarsson nýtti ekki víta-
spyrnu snemma leiks – markvörður Lommel varði frá honum.
Kristján
Bernburg
skrifar frá
Belgíu
Gísli til
liðs við
Gróttu/KR
GÍSLI Guðmundsson, hand-
knattleiksmarkvörður sem
lék með Selfossi í vetur og
var jafnframt þjálfari liðs-
ins, hefur ákveðið að ganga
til liðs við Gróttu/KR á
næstu leiktíð en hann tók
ákvörðun um það fyrir
nokkru að flytja á höf-
uðborgarsvæðið frá Sel-
fossi. Ágúst Jóhannsson,
þjálfari Gróttu/KR staðfesti
þetta í samtali við Morg-
unblaðið í gær. „Gísli er
góður markvörður með
mikinn metnað auk þess að
vera heilsteyptur persónu-
leiki. Hann fellur því vel inn
í okkar leikmannahóp,“
sagði Ágúst. Hlynur Morth-
ens hefur varið mark
Gróttu/KR undanfarin ár
og heldur því áfram á
næstu leiktíð að sögn
Ágústs. „Koma Gísla verður
bara til að auka breiddina í
okkar leikmannahóp,“ sagði
Ágúst og bætti því við að
vel kæmi til greina að fá að
minnsta kosti einn leikmann
til viðbótar fyrir næstu leik-
tíð. „Við erum að skoða
okkar mál í rólegheitum, en
það gæti alveg eins verið að
fleiri handknattleiksmenn
bætist í okkar hóp.“
Auk þess að leika með
Selfossi var Gísli um nokk-
urt skeið á milli stanganna í
marki ÍBV.
BÍLDSHÖFÐI 510 8020
SMÁRALIND 510 8030
SELFOSS 480 7000
WWW.INTERSPORT.IS