Morgunblaðið - 01.05.2003, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2003 B 5
NSJÁVARÚTVEGUR Frá hugmynd
að fullunnu verki
Rennismíði Hönnun: Gísli B.
SAMHERJI hf. er í hópi umsvifa-
mestu sjávarútvegsfyrirtækja lands-
ins. Rekstur Samherja byggist á fjór-
um meginstoðum, sjófrystingu,
landvinnslu á bolfiski, rækjuvinnslu
og vinnslu uppsjávarafurða. Undan-
farin ár hefur aukin áhersla verið
lögð á fiskeldi.
Samherji fagnar um þessar mund-
ir tveimur áföngum, Útflutnings-
verðlaunum forseta Íslands og 20 ára
afmæli. Í því tilefni er hér stiklað á
stóru í sögu og starfsemi fyrirtæk-
isins samkvæmt upplýsingum frá því.
Félagið hefur yfir að ráða talsverð-
um veiðiheimildum í uppsjávarfiski,
en mjöl og lýsi eru mikilvægustu að-
föng í framleiðslu á fiskeldisfóðri.
Fiskeldisstarfsemi Samherja tekur
til flestra þátta í fiskeldi, þ.e. klaks,
seiðaframleiðslu, matfiskeldis, slátr-
unar, pökkunar og markaðssetning-
ar afurðanna. Áform eru um umtals-
verða aukningu í framleiðslunni á
næstu misserum.
Starfsmenn Samherja eru um 800.
Þar af eru sjómenn um 300 og um 500
manns starfa í landi, víðsvegar um
land.
Viðburðarík ár
Nokkrir punktar úr sögu Samherja:
Árið 1972 er Samherji hf. stofnaður í
Grindavík um útgerð togara.
Árið 1983 kaupa frændurnir Krist-
ján Vilhelmsson, Þorsteinn Már
Baldvinsson og Þorsteinn Vilhelms-
son nær allt hlutafé í Samherja hf.
Þeir flytja aðsetur félagsins til Ak-
ureyrar, breyta skipi þess Guðsteini
GK í frystiskip sem hlýtur nafnið Ak-
ureyrin EA.
Árið 1985 á Samherji hf. þátt í stofn-
un fyrirtækisins Hvaleyri hf. í Hafn-
arfirði og kaupir það fyrirtæki eignir
Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar sem á
tvo togara og frystihús.
Árið 1986 tengist Samherji hf.
rækjuveiðum er félagið á hlut að
stofnun Oddeyrar hf. um kaup og
rekstur samnefnds skips.
Árið 1990 kaupir Samherji hf. meiri-
hluta í Söltunarfélagi Dalvíkur hf.
Sama ár kaupir Samherji hf. allt
hlutafé í Hvaleyri hf. og félögin eru
sameinuð.
Árið 1992 hefur fyrsta nýsmíði fé-
lagsins, Baldvin Þorsteinsson EA,
veiðar.
Árið 1993 stofnar Samherji Strýtu
hf. ásamt Landsbanka Íslands og
KEA á Akureyri upp úr þrotabúi K.
Jónssonar & Co hf. Strýta er lagmet-
is- og rækjuverksmiðja og pökkunar-
stöð.
Árið 1994 er Framherji aps. í Fær-
eyjum stofnaður með 30% eignarhlut
Samherja og gerir hann út Akraberg.
Árið 1995 er Þorsteinn EA keyptur
(áður Helga II RE) sem markar upp-
haf þátttöku Samherja í veiðum og
vinnslu uppsjávarfiska. Hluti Dalvík-
urbæjar í Söltunarfélagi Dalvíkur
einnig keyptur. Samherji GmbH er
stofnaður og kaupir 49,5% eignarhlut
í Deutsche Fishfang Union GmbH í
Þýskalandi.
Árið 1996 er Friðþjófur hf. á Eski-
firði keyptur en fyrirtækið gerir út
Sæljónið SU og fiskverkun. Sölufyr-
irtækið Seagold Ltd. er stofnað
ásamt Gústaf Baldvinssyni til þess að
sjá um sölu á sjófrystum afurðum
Samherja. Samherji kaupir breska
útgerðarfyrirtækið Onward Fishing
Company Ltd. Í lok ársins er Hrönn
hf. á Ísafirði, sem gerir út einn öfl-
ugasta frystitogara landsins, Guð-
björgu ÍS, sameinuð Samherja hf.
Árið 1997 er allur rekstur Samherja
hf. og dótturfélaga á Íslandi samein-
aður í nýtt hlutafélag sem hlýtur
nafnið Samherji hf. Á sama tíma
kaupir félagið 98% hlutabréfa í Fiski-
mjöli & lýsi hf. í Grindavík. Í mars er
brotið blað í sögu Samherja hf.
Ákveðið er að gera félagið að almenn-
ingshlutafélagi og eru bréf þess
skráð á Verðbréfaþingi Íslands. Í
árslok eru Friðþjófur hf. og Fiski-
mjöl & lýsi hf. síðan sameinuð Sam-
herja hf. Samstarf, um markaðsstarf
í Bandaríkjunum, með Síldarvinnsl-
unni og SR-mjöli hafið, með stofnun
Úthafssjávarfangs.
Árið 1998 er tæplega 50% hlutur
keyptur í Rifi ehf. í Hrísey sem gerir
út rækjubátinn Svan EA. Samherji
kaupir einnig hlut í Fiskeldi Eyja-
fjarðar. Samherji er útnefndur sem
eitt af 500 framsæknustu fyrirtækj-
um Evrópu á árinu.
Árið 1999 er rækjuverksmiðjunni á
Dalvík lokað en starfsmannaaðstað-
an í Strýtu er bætt með nýju hús-
næði. Langþráðar dýpkunarfram-
kvæmdir í höfninni í Grindavík koma
sér vel fyrir fyrirtækið og er farið í
aðgerðir til að bæta löndunar- og
hráefnisaðstöðuna hjá F & L. Sam-
herji kaupir hlut í Kaldbak en dregur
sig út úr rekstri Úthafssjávarfangs.
Árið 2000 segir Þorsteinn Vilhelms-
son sig úr stjórn Samherja hf. og sel-
ur sinn hlut í félaginu. Friðþjófi á
Eskifirði er lokað en eignarhlutur í
Hraðfrystistöð Þórshafnar er auk-
inn. Samherji hf. sameinast BGB-
Snæfelli á Dalvík sem á sex skip og
fiskvinnslur á Dalvík, Stöðvarfirði og
í Hrísey. Tvö skipanna eru seld strax.
Hlutafé í félaginu er aukið í kr.
1.660.000.000.- Fjölveiðiskipið Vil-
helm Þorsteinsson EA bætist í flot-
ann. Stefnan er sett á fiskeldi með
fjárfestingum bæði í Íslandslaxi í
Grindavík, Sæsilfri í Mjóafirði og
Víkurlax í Eyjafirði á árinu. Farið er í
talsverðar breytingar á rækjuvinnslu
Strýtu sem og endurbætur í F & L í
Grindavík. FAB GmbH er stofnað
sem móðurfélag DFFU og Huss-
mann & Hahn. Samherji selur sinn
hlut í Samherja GmbH en eignast
35% hlut í FAB GmbH.
Árið 2001 eru hlutabréf Samherja hf.
skráð rafrænt hjá Verðbréfaskrán-
ingu Íslands. Fjárfestingum er hald-
ið áfram í fiskeldi með hlutafjárkaup-
um í Silfurstjörnunni í Öxarfirði og
aukið við hlut félagsins í Sæsilfri og
Íslandslaxi. Samherji hf. leggur enn-
fremur til hlutafé í Íslandsfugl á Dal-
vík í formi ónýttra húseigna. Sæblik-
inn ehf. er stofnaður í helmingseign
Samherja á móti Síldarvinnslunni til
að annast sölu á uppsjávarafurðum
félaganna. Kavíarframleiðsla sem
hefur verið í Strýtu flyst til Huss-
mann & Hahn. Í lok ársins er Baldvin
Þorsteinsson EA seldur til DFFU og
nefndur Baldvin NC. Jafnframt festi
félagið kaup á Hannover NC (áður
Guðbjörg ÍS) og fékk skipið nafnið
Baldvin Þorsteinsson EA. Í kjölfarið
var skipið sent í lengingu til Lett-
lands.
Árið 2002 er eignarhlutur aukinn í
Síldarvinnslunni í Neskaupstað.
Eignarhlutur er keyptur í SR-mjöli
og Finnbogi Jónsson og Kristján Vil-
helmsson eru kjörnir í stjórn SR-
mjöls í kjölfarið, Finnbogi sem
stjórnarformaður. Eignarhlutur er
einnig keyptur í Kaldbaki fjárfest-
ingarfélagi hf. Fyrsta skip Samherja
Akureyrin EA-10 er seld til Onward
Fishing Company eftir fengsælan og
farsælan feril hjá félaginu. Í staðinn
er Sléttbakur EA keyptur og nefnd-
ur Akureyrin EA-10. Kambaröst var
seld á árinu. Í desember kemur Bald-
vin Þorsteinsson EA-10 heim frá
Lettlandi talsvert breyttur og lengd-
ur.
Árið 2003 hlýtur Samherji hf. Út-
flutningsverðlaun forseta Íslands.
Fyrirtækið kaupir hlut í norska sjáv-
arútvegs- og fiskeldisfyrirtækinu
Fjord Seafood ASA í Noregi, sem er
eitt af stærstu fyrirtækjunum á sínu
sviði í heiminum. Fyrirtækin tvö
gera með sér víðtækan samstarfs-
samning sem m.a. tekur til samstarfs
félaganna í fiskeldi og sölu sjávaraf-
urða.
Sívaxandi umsvif í 20 ára sögu útgerðar og
fiskvinnslu hjá Samherja
Reksturinn
á fjórum
meginstoðum
Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Baldvin Þorsteinsson EA siglir út Eyjafjörðinn áleiðis á miðin.
NAVIS ehf. er nýstofnað fyr-
irtæki til að annast skipahönnun,
ráðgjöf og eftirlit. Þrír af stofn-
endum eru skipatæknifræðingar
og fyrrum starfsmenn Skipatækni
ehf. sem lýst var gjaldþrota fyrr á
þessu ári. NAVIS hefur keypt
gagnagrunn Skipatækni af
þrotabúi fyrirtækisins, þ.e. teikn-
ingar, smíðalýsingar og önnur
gögn vegna skipa sem Skipatækni
hannaði.
NAVIS býður viðskiptavinum
sínum þjónustu eins og skipa-
hönnun, teikningar og útreikn-
inga sem varða allt frá smærri
breytingum og viðhaldi skipa til
heildarlausna vegna nýsmíði;
Stöðugleikaútreikninga og halla-
prófanir; Hönnun stálmannvirkja;
Hagkvæmnisathuganir og ráðgjöf
á sviði skipahönnunar, rekstrar-
og gæðastjórnunar; Eftirlit með
framkvæmdum; skoðun á skipum
og tjóna- og vöruskoðun.
Eigendur NAVIS eru Agnar
Erlingsson verkfræðingur, Frí-
mann A. Sturluson skipatækni-
fræðingur, Herbert Bjarnason,
skipatæknifræðingur og vélstjóri,
Hjörtur Emilsson skipatæknifræð-
ingur og Hraunhöfn-Lavaport
ehf. Fyrirtækið er í sama húsi og
NAVIS. Það flytur inn veiðarfæri
og sinnir ráðgjöf í sjávarútvegi.
Eigandi fyrirtækisins er Helgi
Kristjánsson, skipstjóri og útgerð-
artæknir.
Frímann, Herbert og Hjörtur
eru starfsmenn NAVIS og sá síð-
astnefndi er framkvæmdastjóri.
Agnar og Helgi koma að ein-
stökum verkefnum sem NAVIS
tekur að sér.
Nýtt fyrirtæki í skipahönnun og ráðgjöf
Starfsmenn NAVIS, Hjörtur Emilsson, Frímann A. Sturluson og Herberg Bjarnason.
MJÖG ör vöxtur hefur verið í
starfsemi Eimskips í Belgíu, en
félagið stofnaði eigin starfsstöð
þar í september árið 1999, með
fimm starfsmönnum. Upphaf-
lega byggðist starfsemin nær
eingöngu á þjónustu við ís-
lenska markaðinn, en mikið
vatn hefur runnið til sjávar og
er starfsmannafjöldi kominn í
sautján talsins og 80% af tekj-
unum má rekja til alþjóðlegrar
flutningastarf-
semi.
Starfsemi
Eimskips í Ant-
werpen er hluti
af rekstri Eim-
skips í Hollandi
og Belgíu. Í þessum löndum eru
nú starfandi um 100 starfsmenn
sem veita sérhæfða flutninga-
þjónustu um heim allan. Þar
sem umsvif Eimskips í Antwer-
pen hafa vaxið mjög ört er
nauðsynlegt að tvöfalda það
skrifstofurými sem nú er fyrir
hendi. Ráðist verður í það
brýna verkefni á næstu mánuð-
um.
Fjölmörg umboð
„Fyrir utan þjónustu við ís-
lenska markaðinn sem er um-
talsverð, hefur Eimskip í Ant-
werpen umboð fyrir fjölmörg
erlend flutningafyrirtæki. Þar
má fyrst nefna Iscont Lines,
sem er ísraelskt skipafélag sem
siglir á milli Ísrael, Belgíu,
Bretlands og Þýskalands með
vikulega þjónustu. Alls flutti
Eimskip Antwerpen um 27.500
gámaeiningar á síðasta ári á
milli Belgíu og Ísraels.
Fyrir tæpum 2 árum tók
Eimskip þátt í þróun flutninga
á milli Oslófjarðar og Antwer-
pen í samvinnu við Laline, sem
er norskt skipafélag. Þetta
samstarf á milli félaganna hefur
skilað góðum árangri og hafa
flutningar þarna á milli byggst
upp í 10.000 gámaeiningar á ári.
Eimskip er í samstarfi við
Kursiu Lininja, sem er skipa-
félag með beina þjónustu frá
Belgíu, Hollandi, Bretlandi og
Þýskalandi inn til Eystrasalts-
ríkja og Rússlands. Eimskip í
Antwerpen hefur séð um þessa
þjónustu í Antwerpen, en ný-
verið bætti Kursiu Linija einnig
Oostende í Belgíu sem við-
komuhöfn. Eimskip í Belgíu er
ábyrgt fyrir rekstri ásamt sölu-
og markaðssetningu í Oostende
og er meginfókus Norður-
Frakkland. Gert er ráð fyrir
verulegum vexti á þessu mark-
aðssvæði inn til Eystrasalts-
ríkja á næstunni. Nýverið fékk
Eimskip síðan umboð fyrir
Tarros sem er ítalskt skipafélag
með þjónustu í Miðjarðarhaf-
inu. Verkefni Eimskips í Belgíu
er að markaðssetja og tengja
Antwerpen við lönd í Miðjarð-
arhafinu. Þessi þjónusta hefur
farið vel af stað og þegar eru
umtalsverðir flutningar að eiga
sér stað,“ segir í frétt frá Eim-
skipi.
Ör vöxt-
ur hjá
Eimskipi
í Belgíu