Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 8
G
arðhúsgögn verða
áleitin í hugum
manna þegar sólin
fer að skína og vor-
ið og sumarið á næsta
leiti. IKEA er komin með
nýja línu í sumarhús-
gögnum.
„Nýja línan einkennist af
léttleika, þetta eru viðar-
húsgögn sem eru mjög
smart hönnuð – þetta er
„design“-vara, sagði Lísa
Björk Óskarsdóttir mark-
aðsstjóri hjá IKEA.
„Um er að ræða sett,
stóla og borð og einnig
bekki á veröndina og
mjög skemmtilega
legubekki sem eru
hvítmálaðir, úr
tágum, talsvert
„öðruvísi“ hönn-
un en verið hef-
ur á mark-
aðinum.
Tréhús-
gögnin eru af
ýmsu tagi. Má
þar nefna felli-
stóla með eða
án arma, venju-
lega stóla með
háu baki sem
hægt er að fá
sessur af mis-
munandi gerðum í
og svo sófa og
bekki. Einnig erum við með
ýmis borð sem hægt er að
fella saman og jafnvel
stækka talsvert.
Þá erum við með strand-
stóla til að flatmaga í þegar
farið er í sólbað á verönd-
inni.
Við erum einnig með ým-
islegt annað sem tengist
garðinum og sumarhúsum.
Svo sem ýmiskonar leirker
til að hafa blóm í, sandala,
handklæði, strandmottur,
strandtöskur og meira að
segja frostpinnamót. Við
ætlum að hafa litríkt sumar
hér í IKEA.“
Staðlaðar einingar sem
passa víðast hvar
Hvaða þjón-
ustu veitið þið t.d. sumar-
húsaeigendum?
„Við reynum að ráð-
leggja þeim sem til okkar
leita hvað hentar best hvað
viðvíkur sumarhúsgögnum
og húsgögnum sem eru
sniðug í sumarhús. Svefn-
sófarnir okkar eru
mjög vinsælir í sum-
arhús, sem og ferða-
beddarnir og síðast en
ekki síst innréttingarnar
okkar sem hægt að raða
saman á ýmsan hátt.
Þetta eru allt staðlaðar
einingar sem passa víðast
hvar.
Tágahúsgögn og tágavör-
ur yfirleitt eru orðnar mjög
einkennandi fyrir sumarið
hér á Íslandi. Fólk kaupir
mikið alls kyns körfur til að
hafa blóm í og plastílát eru
líka vinsæl t.d. til að leggja
á borð. Þannig má búa til
litríka og skemmtilega
stemmningu í sumarhúsið
eða á veröndina.“
Nýr og glæsi-
legur legubekkur
á veröndina.
Hvítir pottar með hvítum blómum – vorlegt og létt. Húsgögn sem henta jafnt á ströndina sem á veröndina.Blóm í kerum verða sívinsælli í görðum og við inngang húsa.
Innrétting-
arnar í IKEA
eru staðlaðar
og henta vel
t.d. í sum-
arhús.
Litríkt sumar í IKEA
Á garðyrkjusýning-unni á sumardag-inn fyrsta hjá Garð-
yrkjuskóla ríkisins var
gestum og gangandi
boðið að smakka
óvenjulega káltegund –
hnúðkál. Gunnþór K.
Guðfinnsson, garðyrkju-
fræðingur og kennari við
skólann, var spurður
nánar um þetta kál,
sem smakkaðist sér-
staklega vel. „Þetta er
tiltölulega auðveld teg-
und í ræktun en hefur
eigi að síður lítið verið
ræktuð hér á landi,“
sagði Gunnþór. „Þetta
hefur verið ræktað í
skólanum undanfarin ár
fyrir sumardaginn fyrsta
en ekki náð almennri út-
breiðslu.
Eitthvað er þó um að
fólk rækti hnúðkál í
heimahúsum og ein-
staka garðyrkjumaður
hefur verið að þreifa sig
áfram með hnúðkáls-
ræktun en almennt er
það sjaldgæft í ræktun
og framboð því lítið.
Fræið er þó aðgengilegt
í ýmsum garðyrkjuversl-
unum og hægt er að
rækta það beint við úti-
sáningu, en þá mjög
snemma og þarf yf-
irbreiðslu t.d. með
akrýldúk. Slík ræktun er
háð góðum aðstæðum,
frjósamri mold og hlýj-
um stað – en ekki er að
vænta stórra hnúða ef
kálið er ræktað á þenn-
an hátt. Betra er að for-
rækta hnúðkál í köldu
gróðurhúsi, þá verða
hnúðarnir stórir og safa-
ríkir.“
Er eitthvað nýtt að
frétta frá matjurtarækt-
inni hjá ykkur á Garð-
yrkjuskólanum?
„Við höfum ekki verið
með neinar athuganir á
útimatjurtum undanfarið
en höfum í staðinn ein-
beitt okkur að ylrækt-
inni.
Tilraunir eru t.d. í
gangi með áburðargjöf í
lífrænni ræktun gúrkna.
Við erum að prófa
sveppamassa, fiskimjöl
og meltu. Árangurinn á
eftir að koma í ljós.
Sömuleiðis erum við
með lýsingartilraunir við
ræktun tómata og svo
erum við með tilraunir í
paprikuræktun.“
Gestir á sýningu í Garðyrkjuskóla ríkisins á sumardaginn fyrsta fengu að smakka ljúf-
fengt hnúðkál.
Hnúðkál er mjög
bragðgott en
fágætt í ræktun