Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 10

Morgunblaðið - 04.05.2003, Page 10
F élagasamtök hafa eftir því sem árin hafa liðið eignast fleiri og fleiri sum- arhús, oft í sérstaklega skipulögðum sum- arhúsabyggðum. Sum- arhús sem byggð eru fyrir félagasamtök eru oft ekki alveg eins og bústaðir sem fólk er að kaupa til einkanota. Fyrirtækið SG-hús á Selfossi hefur selt fjöl- marga bústaði til fé- lagasamtaka. „Líklega eru bústaðirnir sem við höfum selt til fé- lagasamtaka komnir yfir 400, sagði Óskar G. Jónsson hjá SG-húsum. En á hvern hátt skyldi þurfa að ganga öðruvísi frá slíkum bústöðum en þeim sem einstaklingar kaupa? „Í svona bústöðum eru alltaf nýjar og nýjar fjöl- skyldur að koma. Því þarf allt að vera sérlega vand- að. Ýmislegt er því öðru- vísi. Ég ætla að byrja á að tala um vatnið. Í fyrsta lagi þarf vatnsinntakið að vera þannig frágengið að það sé auðvelt að tæma neysluvatnslögn þegar húsið er yfirgefið á vetr- um. Bústaðir fé- lagasamtaka eru oft ekki notaðir á vetrum nema um helgar og þá á skipu- lagðan hátt. Þessu er öðruvísi farið með einkabústaði sem fólk heimsækir eftir vild á ýmsum tímum. Bústaði félagasamtaka þarf að vera auðvelt að yfirgefa í skyndi, þeir þurfa því að hafa lokað ofnakerfi, forhitara og frostvara á kerfinu, svo ekki frjósi þótt rafmagn fari. Til öryggis getur verið nauðsynlegt að hafa for- hitara á neysluvatni ef vatnið er of heitt í krön- unum. Félagabústaðir eru byggðir eins og heilsárshús Félagabústaðir eru byggð- ir upp í alla staði eins og um heilsárshús sé að ræða, 200 millimetra steinull í lofti 150 milli- metra steinull í veggjum, K-gler í gluggum, tveggja punkta læsingar á lausa- fögum í gluggum, harðvið- arútihurðir, svo eitthvað sé nefnt. Félagabústaðir eru líka alltaf settir á steyptar undirstöður en því oft öðruvísi farið með einkabústaði, einkum áð- ur fyrr. Félagabústaði þarf í upphafi að hugsa þannig að þeir henti fyrir tvær fjölskyldur sem slá sér kannski saman eða að gesti ber að garði. Þá er gjarnan verið með eitt stórt hjónaherbergi með breiðu og góðu rúmi og helst fataskáp. Þá eru höfð eitt eða tvö minni herbergi þar sem er verið með eitt breitt rúm og koju fyrir ofan svo her- bergið rúmi þrjá. Persónu- lega er ég ekki hrifinn af svefnloftum í fé- lagabústöðum, þau skapa ýmiskonar slysahættu. Þá þarf í félagabústöð- um að vera stórt baðher- bergi þar sem er stutt í heita pottinn og jafnvel hurð beint út á veröndina. Stofan og eldhúsið þurfa að vera rúmgóð þar sem geta setið til borðs 8 til 10 manns. Útigeymsla þarf og að vera rúmgóð, svo hægt sé að geyma grill og útihúsgögn. Lóðinni fylgja svo ein- hver leiktæki t.d. lítið hús og rólur.“ Er mikill áhugi á fé- lagabústöðum? „Það virðist vera meira um það núna að minni fyrirtæki séu að koma sér upp kannski einum bú- stað. Svo er alltaf tals- vert um að einstaklingar kaupi tilbúna bústaði og láti setja þá niður eða kaupi þá á mismunandi byggingarstigi.“ Úr hvaða viði eru ykkar bústaðir? „Að meirihluta til greni sem við kaupum frá Finn- landi. Bústaðir okkar eru hannaðir af Sigurði Kjart- anssyni og hafa hlotið vottun Rannsóknarstofn- unar byggingariðnaðarins. Alltaf eru húsin aðlöguð að óskum hvers og eins viðskipavinar, tekið tillit til staðsetningar í sam- bandi við sólarátt og fleira.“ Hús af því tagi sem SG-Selfossi hafa selt mörgum félagasamtökum. Að ýmsu þarf að hyggja sérstaklega í húsum sem reist eru fyrir félagasamtök. Sumarhús fyrir félaga- samtök Það vefst fyrir ýmsumsumarhúsaeigend-um að koma í gott horf frárennslismálum húsa sinna og er raunar þar „pottur brotinn“ í mörgum tilvikum. Sveinn Áki Sverrisson hjá VSB Verkfræðistofu hefur mikla þekkingu á þessum málaflokki. „Yfirleitt er ekkert frá- rennsliskerfi í kringum sumarbústaði eins og er í bæjarfélögum. Þess vegna þarf að koma skolpi frá húsum í þar til gerðar rotþrær,“ sagði Sveinn Áki. „Rotþró hreinsar skolp það vel að það megi setja það út í jarðveg. Rotþró er stór geymir úr plasti með einu eða fleiri hólfum og í rotþrónni á sér stað líf- rænt niðurbrot á úrgangi. Frárennsli frá þökum er leitt um sérkerfi og má ekki að leiða inn í rotþró. Í frárennsli eru notuð PVC eða PP plaströr sem fást í byggingarvöruversl- unum. Tryggja þarf lagnir gegn frosti Kalt neysluvatn má fá úr lækjum og tjörnum en í sumarhúsabyggðum er yf- irleitt séð um það mál sér- staklega af landeiganda. Vatnið er leitt inn í hús- in um plaströr og helsta hættan sem þarf að tryggja gegn er frost. Það er gert með því grafa lagn- ir það djúpt að frost nái ekki til þeirra eða um einn metra – eftir aðstæðum þó. Þar sem ekki eru hita- veitur þarf að framleiða heitt neysluvatn með raf- magni. Settur er í bústað- inn kútur, rafhitaður, slíkir kútar fást í bygging- arvöruverslunum. Loks þarf að hita bú- staðinn. Ef ekki er hita- veita á staðnum til að láta renna í gegnum ofna eru notaðir rafmagnsofnar undir glugga. Ef um hita- veitusvæði er að ræða er öruggast að leggja í bú- staðina lokað ofnakerfi með varmaskiptum.“ Hvað ef ekki er hægt að komast í vatn? „Þá eru til kerfi með uppsöfnun á regnvatni. Þá eru keyptir geymar sem safnað er regnvatni í og talið er óhætt að drekka slíkt vatn. Einnig er hægt að grafa brunna eins og gert hefur verið frá ómunatíð á Ís- landi. Dælur fást til að dæla vatni upp úr brunn- unum.“ Bæklingur um frárennslismál sumarhúsa að koma út Nú er hjá Rannsókn- arstofnun byggingariðn- ararins verið að búa til leiðbeiningar fyrir sum- arhúsaeigendur og hönn- uði slíkra húsa um hvern- ig eigi að ganga frá lagnakerfum þannig að þau séu örugg gagnvart leka og frosti. Bæklingur, svokallað RB-blað, um þetta efni á að koma út núna í maí. Í þessum bæklingi verður fjallað um öll lagnamál sem koma til greina í einum sum- arbústað. Frárennslismál sumarhúsa Lagnakerfi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.