Morgunblaðið - 04.05.2003, Síða 14
É
g var tvítugur þegar
ég og konan mín,
Auður Egilsdóttir,
byrjuðum að byggja
sumarbústað með hjón-
unum Tómasi Jónssyni og
Guðrúnu Þórdísi Axels-
dóttur, en við Guðrún erum
bræðrabörn,“ segir Einar
Elías Guðlaugsson flug-
stjóri sem á sumarbústað-
inn Skóga í landi Litlu-
Skóga í Stafholtstungum í
Borgarfirði.
„Forsaga þess að við
byggðum hér var að afi okk-
ar Guðrúnar og amma
keyptu Litlu-Skóga 10.
ágúst 1949, þau Einar
Kristjánsson og Guðrún
Guðlaugsdóttir, jörðin er
enn öll í sameiginlegri eigu
afkomenda þeirra. Afi dó
1966 en amma leyfði okkur
1968 að byggja bústað í
landinu, en hann mátti ekki
vera í sjónmáli frá gamla
bústaðnum sem afi hafði
reist.
Við vorum öll fjögur pen-
ingalítil en ákváðum samt
að láta til skarar skríða.
Það eina sem við keyptum
nýtt var grindarefni og svo
steyptum við undirstöður í
tunnur sem við Tómas gróf-
um svo niður. Við vorum
fljótir að reisa þetta enda
var bústaðurinn í upphafi
aðeins 30 fermetrar. Nokk-
urt hlé varð raunar á fram-
kvæmdum meðan ég vann
sem flugmaður í Afríku, en
eftir 1970 héldum við
áfram með bygginguna.
Sníktum umbúðir á grindina
Við nældum okkur í alls
kyns efni á grindina. Við
fengum t.d. umbúðir af inn-
fluttu spónaefni og söfn-
uðum hvers konar timb-
urumbúðum víða um bæ.
Við einangruðum þetta
með steinull og settum tvö-
falt gler í glugga. Við smíð-
uðum sjálfir glugga og dyr,
en efnið í hurðir og glugga
keyptum við.
Gólfið var lagt í upphafi
með þykkri spónaplötu en
seinna settum við panel of-
an á plötuna, svokallaðan
refapanel sem vinsæll hlýt-
ur að hafa verið í refabú. En
nú er allt parketlagt.
Við hjónin vorum með
eitt barn og konan ófrísk að
öðru og Guðrún og Tommi
voru að leggja drög að barni
þegar þetta allt var að ger-
ast. Börnunum fjölgaði svo
hratt og við vorum fyrr en
varði komin með fjögur
börn og þau Guðrún og
Tommi tvö börn og þá þurfti
að stækka bústaðinn. Þá
var ráðist í byggingu eld-
húss, salernis og geymslu-
skúrs. Við keyptum efni í
þessa viðbyggingu enda
vorum við þá orðin heldur
stöndugri. Þá var um leið
tekin utan af gamla bú-
staðnum fyrsta klæðningin
úr umbúðunum og settur
kúptur panell sem enn er
utan um bústaðinn.
Vatni höfðum við ekki að-
gang að í upphafi og urðum
því að safna regnvatni af
þaki í fjórar tunnur sem
taka 250 lítra hver. Þær
þjóna salerninu en drykkjar-
vatn fáum við nú úr lind
sem er 30 metra frá bú-
staðnum. Lindin kom upp
þegar grafinn var skurður í
nágrenninu vegna þess hve
lak mikið undir bústaðinn.
Landið fyrir ofan bústaðinn
er mýrlendi og kjarrivaxið
holt og mýri er fyrir neðan
hann, en bústaðurinn
stendur í grasivaxinni laut.
Gróðurinn tók fljótlega við
sér þegar búið var að girða
Við girtum svæðið af fljót-
lega eftir að við reistum bú-
staðinn og með árunum tók
gróðurinn stórstígum fram-
förum þegar rollur komust
ekki lengur í hann og jafn-
framt settum við niður dálít-
ið af trjám.
Nú er bústaðurinn 45 fer-
metrar og getur hýst í
tveimur svefnherbergjum
og stofu allt að tíu manns í
rúmi en fleiri hafa gist hér í
flatsæng.
Við höfum mikið verið
hérna allt frá því við byggð-
um bústaðinn og oft báðar
fjölskyldurnar saman, eink-
um fyrr á árum þegar börnin
voru lítil.
Satt að segja er það ei-
lífðarverkefni að halda við
svona bústað. Við erum
ekki með rafmagn en við er-
um með olíukyndingu og
sólarrafhlöðu svo sólin sér
um rafmagnið sem gefur
okkur ljós og áhorf á sjón-
varp.
Um þessar mundir eru
uppi hugmyndir um að setja
upp sólstofu yfir hluta af
veröndinni, sem er framan
við bústaðinn, en hún er 40
fermetrar. Sólstofan á að
vera tíu fermetrar. Enn er
þetta allt á umræðustigi en
ef af verður rís hér gler-
sólstofa innan tíðar. Við
munum að vanda sjá um
allar framkvæmdir sjálfir.
Ýmsir hafa hjálpað okkur í
gegnum árin, ættingjar og
vinir, en ekki síst hafa kon-
urnar og börnin tekið virkan
þátt í uppbyggingunni.“
Einar að bæsa við í pallinn fyrir framan sumarbústaðinn.
Byggðu sjálf bústað á unga aldri
Skógar á frumstigi.
F.v. Guðrún Þórdís Axelsdóttir með mynd af ömmu sinni og nöfnu, sem leyfði henni og Einari Elíasi að byggja bústað í
landi Litlu-Skóga. Næst Guðrúnu situr kona Einars, Auður Egilsdóttir, þá Tómas Jónsson maður Guðrúnar og yst til hægri
er Einar Elías Guðlaugsson.
Skógar í landi Litlu-Skóga í Stafholtstungum í Borgarfirði.
Bústaðinn Skóga í Litlu-Skógalandi reistu tveir kornungir menn með eigin höndum á árunum 1968 til 1971, þeir Einar Elías Guðlaugsson og Tómas
Jónsson. Þeir hafa byggt við hann og bætt og þarna hafa fjöskyldur þeirra átt margar yndisstundir síðan.