Morgunblaðið - 04.05.2003, Qupperneq 18
E
platré hafa ekki ver-
ið algeng sjón í ís-
lenskum görðum
hingað til – en það
gæti farið að breytast.
Í Gróðrarstöðinni Mörk
fara nú fram athuganir og
prófanir á eplatrjám sem
hentað gætu vel íslensk-
um aðstæðum. Það eru
þeir Jóhannes B. Jónsson
og Jón Þórir Guðmunds-
son garðyrkjufræðingar
sem hafa með höndum
þessar athuganir.
„Þetta byrjaði af fullri al-
vöru í fyrravetur, þá fórum
við að ná okkur í efnivið til
að gera athuganir á,“
sagði Jóhannes B. Jóns-
son.
„Áhuginn kviknaði við
að við sáum nokkur epla-
tré í görðum á höfuðborg-
arsvæðinu sem skiluðu
uppskeru. Þetta voru göm-
ul eplatré í eldri hverfum
borgarinnar. Tvö þessara
trjáa bera ríkulegasta upp-
skeru. Þau eru bæði í
mjög góðu skjóli og njóta
vel sólar. Það eru raunar
lykilatriði í ræktun epla-
trjáa.
Annað þessara trjáa er
væntanlega af gamalli
rússneskri sort og því var
plantað sem aðkeyptri
plöntu á sínum tíma,
reikna má með að þetta
umrædda tré sé um 30
ára gamalt. Hitt tréð er
sennilega eitthvað eldra
en við vitum ekki hvaðan
það kom.“
Hverskonar sortir epla-
trjáa eruð þið að skoða í
Mörk?
„Við höfum verið að
viða að okkur sortum frá
norðlægum slóðum, t.d.
frá Kanada, Norðurlöndum
og Rússlandi.“
Hafið þið verið að kyn-
bæta þessar sortir eitt-
hvað?
„Nei, það reynum við
ekki fyrr en við höfum
sortirnar og því erum við
að byrja á um þessar
mundir. Kynbætur taka
áratugi.“
Hvaða sortir líst ykkur
best á? „Þessi gamla
rússneska sort er áhuga-
verð, hún heitir ‘Trans-
parente Blanche’, hún ber
gulgræn epli, nokkuð vel
sæt. Þau stærstu sem við
höfum séð eru á við góðar
mandarínur. Eplin af hinu
trénu verða heldur minni
en það getur verið af því
að það er ekki nægilega
vel hirt.
Eplatré þurfa góða grisj-
un greina og aldina og
verða að fá góðan áburð.
Fylgjast þarf vel með
mögulegum skor-
dýraplágum.“
Eru þessi eplatré mjög
blómstrandi á vorin?
„Já, þau eru mjög blóm-
sæl á vorin – verða bók-
staflega eitt haf af bleik-
um og hvítum blómum.“
Eruð þið tilbúnir að
selja plöntur núna?
„Já, við eigum plöntur
en þær eru keyptar inn er-
lendis frá en reikna má
með að næsta vor mun-
um við eiga íslenskar
eplatrjáaplöntur til að
selja. Þess má geta að í
Mörk erum við einnig að
gera frumathuganir á
kirsuberjatrjám og ýmsum
öðrum ávaxtatrjám. Eitt og
annað af slíku er til sölu
núna.“
Íslensk
eplatré í
athugun
Morgunblaðið/Golli
Rússneska eplatréð fullum blóma í fyrrasumar.
Morgunblaðið/Golli
Þó að eplin af rússneska eplatrénu séu ekki jafnstór og þau sem maður á að venjast út úr búð eru þau mjög gómsæt og
frískleg á bragðið.
Morgunblaðið/Jim Smart Morgunblaðið/Jim Smart
Jóhannes B. Jónsson með kanadíska sort, Rescue, af eplatré í potti,
þetta er ein harðgerasta sortin í Ameríku og ber lítil, rauð epli, sæt og
bragðgóð.
Ofurlítið eplatré sem seinna verður
kannski stórt og ber sæta ávexti.