Morgunblaðið - 04.05.2003, Qupperneq 31
Í fréttum heyrist þess
töluvert oft getið að
brotist hafi verið inn í
sumarbústaði, verð-
mætum stolið og ým-
islegt eyðilagt. Hægt er
að gera eitt og annað til
að draga úr líkum á inn-
brotum í sumarhús.
„Til að fara yfir örygg-
ismál gæti verið gott að
hugsa eins og þjóf-
urinn,“ segir Sigurhans
Karlsson starfsmaður í
Assa-umboði sem ný-
lega gaf út bækling um
þessi mál sem fáan-
legur er í flestum bygg-
ingavöruverslunum.
„Áríðandi er t.d. að
frágangur á öllum
gluggum og útihurðum
sé góður og með við-
urkenndum örygg-
isvörum. Til eru sér-
stakir gluggalásar sem
setja má á opnanlega
glugga og gerir mönn-
um erfitt fyrir að opna
þá. Tvöfaldar læsingar á
útihurðum eða auka-
læsingar geta hindrað
inngöngu og einnig
hindra þær þjófinn í að
komist út um útidyr
með feng sinn. Þá er
skynsamlegt að skilja
ekki eftir verkfæri sem
þjófum gæti orðið að
gagni við innbrot, svo
sem axir, kúbein og
þess háttar. Sumarhús
ættu með öðrum orðum
að vera þannig úr garði
gerð að þjófar telji það
vera of áhættusamt og
fyrirhafnarsamt að
brjótast þar inn.
Öryggi
gegn inn-
brotum
Gluggalás
Vandaðar læsingar auka
öryggi gegn innbrotum.
Þ
eim fjölgar sífellt
sem sitja á sólar-
dögum eða síð-
kvöldum og njóta
þess að slaka á í heitum
potti í garðinum heima hjá
sér. Ýmsir selja heita
potta. Bergur Hjaltason hjá
Húsasmiðjunni er með á
hreinu hvernig á að setja
niður heita potta, enda á
fyrirtækið von á pottasend-
ingu næstu daga.
„Þetta eru akryl-pottar
sem auðvelt er að þrífa og
verða þeir til í mörgum lit-
um,“ sagði Einar.
Pottarnir eru frá Kanada
en styrkingarefni úr trefja-
plasti er sprautað utan á
þá og allir fylgihlutir verða
fáanlegir að sögn Bergs.
„Undirbúa þarf vel nið-
ursetningu heitra potta.
Þegar keyptir eru pottar án
nudds eru þeir yfirleitt
settir á palla en einnig er
hægt að setja þá beint í
jörðina. Ef pottur er settur
í jörð þá þarf að láta hann
liggja í sandi og þjappa vel
undir sæti þannig að hann
sé stöðugur. Þegar pottur
er settur í pall, sem er al-
gengur frágangur, þá er
nauðsynlegt að hann hafi
stuðning undir sætin og
botn. Þar er burður pott-
anna, ekki má láta þá ein-
göngu hanga á brún potts-
ins. Best er að klæða utan
um pottana með gagn-
vörðu pallaefni eða öðru
endingargóðu timbri til
stuðnings pottinum. Nauð-
synlegt er að potturinn
standi vel upp úr pallinum
til að minnka slysahættu.
Þannig hentar ágætlega
að fella miðju pottsins nið-
ur í pallinn en láta sætin
vera uppi á pallinum.
Ef hins vegar er um
fullbúinn pott að ræða
með klæðningu og öllum
búnaði frá framleiðanda
þá eru þeir pottar settir
beint á pallinn eða jörðina
og enginn frekari frágangur
nauðsynlegur.
Lok þarf að hafa á pott-
unum sem útbúa má úr
segldúk eða smíða úr léttu
efni, hægt er að fá ein-
angruð lok sem halda hita
á vatninu í pottinum.
Til að forðast sýkla og
gróðurmyndun í potti þarf
að nota klór eða tilsvar-
andi efni reglulega. Inn-
fluttir tilbúnir pottar eru
oftast með „ozinator“, en
það er tæki sem framleiðir
útfjólubláa geisla sem
eyða um það bil 80% af
gerlum.
Gott er að hafa klórmæli
til að hafa stjórn á hve
mikið af efninu er notað,
einnig er gott að hafa hita-
stýrð blöndunartæki til að
stjórna hitastigi vatnsins.
Þá er best að hafa hitastill-
inn í frostfríu rými t.d. inn-
an húss eða í bílskúr. Ef
um fullbúna innflutta potta
er að ræða eru þeir með
hitunarbúnaði þannig að
auðvelt er að nota pottinn
án þess að hitaveita sé til
staðar. Þar sem hitaveita
er má nota hana fyrir full-
búna potta. Vatnið er þá
tengt við stút á pottinum
og sett á hann yfirfall.
Varðandi frárennsli þá
þarf að koma fyrir loka og
50 mm vatnsleiðslu í frá-
rennsli. Ekki er heppilegt
að frárennsli af heitum
pottum fari í rotþrær, bæði
er um mikið vatnsmagn að
ræða og eins eru notuð
efni í pottana til sótt-
hreinsunar sem koma í
veg fyrir rotnun.“
Heitir
pottar eru
notalegir
Heitur pottur eins og Húsasmiðjan flytur inn, nema að þeir
verða án nudds til að byrja með.
Bylting fyrir hendur !
Gardeners
Hand Recovery
Helstu útsölustaðir:
Reykjavík: Blómaval,
Lyf og heilsa Kringlunni,
Villeroy & Boch Kringlunni
Kópavogur: Tekk Vöruhús
Mosfellsbær:
Hlín Blómahús, Fína
Hveragerði: Náttúrubúðin
Höfn: Húsgagnaval
Ísafjörður: Efnalaugin Albert
Heildsöludreifing HeggÍs ehf. www.ferli.is/heggis
Kornamaski
Silkimjúkar hendur
á aðeins 20 sekúndum!
Sími 588 55 30
Pétur Pétursson, löggiltur fasteignasali,
Þekking - öryggi - þjónusta
SUMARBÚSTAÐUR Í GRÍMSNESI
Úr landi Hæðarenda, Grímsnesi, glæsilegur sumar-
bústaður. Um er að ræða 2ja hæða, 52 fm sumarbústað
með 12 fm aukahúsi. 100 fm verönd/sólpallur. Glæsilegar
innréttingar. Plankaparket og flísar á gólfum. Gaseldavél og
vönduð eldhústæki. 2 herbergi undir súð. Tæplega hektara
eignarland sem er afgirt. Vegur og vandað hlið. Landið
liggur að og afmarkast af Búrfellslæk sem er fiskgengur.