Morgunblaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 5
Bílasala Suðurlands - Fossnesi 14 - 800 Selfossi
www.toyotaselfossi.is • toyotaselfossi@toyotaselfossi.is
480 8000 480 8000
SELFOSSI
Nissan Terrano ll SE 2,4, bensín, árg.
2001, 5 gíra, ekinn 47 þús. 33" breyttur.
Verð 2.630 þús.
Toyota Rav 4 2,0, árg. 2000, sjálfsk.,
ekinn 84 þús. Verð 1.890 þús.
Toyota Landcr. 80 VX dísel turbo, árg.
1997. Sjálfsk. Ekinn 156 þús. 33"
breyttur m/leðri o.fl. Verð 3.990 þús.
AC Fire Cat F7 Sno Pro., árg. 2003.
Ekinn 900 mph. Neglt belti o.fl. Geggj-
uð græja. Sumartilboð 900 þús. stgr.
Ath.: Ekkert prútt, engin skipti.
Vantar bíla á skrá og staðinn! Brjálað að gera í „sveitinni“
Vantar t.d. Bmw X5! Diesel 90-100 Cruisera o.fl.
Við hana er tengd multitronic-
reimskiptingin, sem menn þekkja
einnig úr A6, með handskiptivali í
gírstönginni. Saman býður þessi
eining upp á fágaðan akstur frem-
ur en spennandi.
En það er fyrst og fremst und-
irvagn Audi A4 Avant sem heillar.
Fjöðrunin er stinn og veggripið
aðdáunarvert. Auðvelt er að
stjórna bílnum á mikilli ferð í
beygjum og hann lætur vel að
stjórn. Hann er útbúinn ESP-stöð-
ugleikastýringu sem þrælvirkar án
þess að vera um of afskiptasöm.
Vilji menn láta tæknina um lönd
og leið er einfalt að aftengja ESP-
ið með einum hnappi í mælaborð-
inu.
Bíllinn er vel einangraður og lít-
ið sem ekkert veghljóð berst inn í
hann og aðeins þægilegt murr frá
vélinni þegar hún er sett á háan
snúning í handskiptivalinu. Einu
hnökrarnir við undirvagninn er
stýringin sem mætti vera nákvæm-
ari. Bíllinn hefur tilhneigingu til að
rása á sundurskornu vormalbikinu
og leita í rásirnar en þarna getur
verið um að kenna hjólbörðum.
Audi A4 Avant er virkilega vel
smíðaður og fágaður aksturbíll.
Nokkrir keppinautar eru á mark-
aðnum, eins og t.d. BMW 318 To-
uring, sem kostar í grunnútfærslu
3.528.000 kr. sjálfskiptur og Lexus
IS 300 Sportcross sem kostar frá
3.100.000 kr. beinskiptur og
Mercedes-Benz C180 Kompressor,
sem kostar sjálfskiptur 3.875.000
kr.
gugu@mbl.is
!
"
!
"!
# $% &'
( ! )
!
$ )*+
!
& '! , - !
.!/!! 0"! 234
5%*!
467
!8 9)
)*
/ :
3
#$""% "% &'"! ()"%
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2003 B 5
bílar
MMC Galant
GLS 2500 V6,
f.skr.d. 22.11.2000,
ek. 32 þús. km., 4 dyra,
sjálfskiptur, 17“ álfelgur,
sóllúga, leðurinnrétting,
vindskeið o.fl.
Verð 2.490.000.
YFIR 200 keppendur eru skráðir til leiks, þar á meðal
mjög góðir ökumenn frá Bretlandi og Svíþjóð. Ekið er
samfleytt í 6 klukkustundir og keppa menn ýmist í ein-
staklingsflokki eða í tveggja manna liðakeppni.
Erlendir ökumenn í toppbaráttunni
2nd Transatlantic Offroad Challenge, eins og keppnin
heitir, er nú haldin í annað sinn. Í fyrra mættu rúmlega 100
keppendur og létu mjög vel af keppninni. Einar Sigurð-
arson og Helgi Valur Georgsson unnu í liðakeppninni í
fyrra og mæta saman á ný til að verja titilinn. Titilvörnin
verður þó ekki þrautalaus því Ragnar Ingi Stefánsson sem
vann í síðustu þolaksturskeppni í Íslandsmótinu hefur
fengið hinn öfluga Breta, Tony Marshall, til liðs við sig og
ætla þér sér stóra hluti á þessu móti. Annar mjög góður
ökumaður frá Bretlandi að nafni James Marsh er á leið-
inni. Marsh hefur bæði keppt á breskum meistaramótum
og í heimsmeistarakeppninni með góðum árangri. Hann
mun keppa með Viggó Viggóssyni sem hafnaði í þriðja sæti
í fyrra. Þeir munu því eflaust gera atlögu að toppnum.
Einn fremsti ökumaður Evrópu þátttakandi
Karl Gunnlaugsson var einn af okkar bestu þolakst-
ursmönnum síðustu aldar, en hefur síðustu misseri mest
einbeitt sér að brekkuklifri. Hann mun keppa á Klaustri
með einum fremsta ökumanni Evrópu, Per Gunnar Lund-
mark. Per Gunnar keppti til að mynda í Paris Dakar-
rallinu nú í vetur og hafnaði í 6. sæti í vélhjólaflokki og
vann á 2 sérleiðum. „Ætli hann keyri ekki 13 hringi og ég 1
hring,“ sagði Karl er hann var spurður út í keppnisáætlun
helgarinnar. „Hann mun aka KTM-hjólinu mínu og ég fæ
kannski að taka 1 hring til að prófa brautina. Lið þeirra
Karls og Pers Gunnars gæti því orðið spútnik-lið keppn-
innar og komið mjög á óvart í baráttunni.
Lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á Kirkjubæjarklaustri
Kjartan Kjartansson á Kirkjubæjarklaustri er skipu-
leggjandi keppninnar. Aðspurður sagði Kjartan að mark-
miðið væri að gera góða keppnisbraut, skemmtilega
keppni fyrir keppendur og að koma Kirkjubæjarklaustri á
heimskortið í þolakstri. Ferðaþjónustuaðilar á svæðinu
njóta einnig góðs af keppninni en um 500 manns munu
dvelja þessa helgi á Kirkjubæjarklaustri vegna keppninn-
ar.
Unglingar og ein stúlka verða með
Mótið er haldið í landi Efri-Víkur. Samhliða keppninni
verður keppt í unglingaflokki og kvennaflokki. Þónokkrir
unglingar hafa skráð sig en aðeins er vitað um eina stúlku
sem leggur í keppnina. Að móti loknu verður slegið upp
mikilli grillveislu í hlöðu Efri-Víkur og að verðlauna-
afhendingu lokinni hefst dansleikur fyrir hópinn.
Dirt Bike Rider og Morgunblaðið á svæðinu
Hið heimsþekkta torfæruhjólatímarit Dirt Bike Rider
mun enn á ný senda blaðamenn til að fylgjast með keppn-
inni og taka þátt í henni. Morgunblaðið verður að sjálf-
sögðu á staðnum, bæði með fulltrúa á bakvið linsuna og
ökumann í keppninni og mun gera úrslitum keppninnar
skil í næstu viku.
Alþjóðleg þol-
aksturskeppni
á Kirkjubæjar-
klaustri
Stærsta íslenska akstursíþróttakeppni ársins
fer fram næstkomandi laugardag þegar haldin
verður alþjóðleg þolaksturskeppni á Kirkjubæj-
arklaustri. Bjarni Bærings segir hér frá
keppninni.
Þolakstur er stærsta akstursíþróttakeppni á Íslandi.
Valdimar Þórðarson mun keppa í liði með heimsþekktum
ökumanni.
DILBERT mbl.is
Hámarkshraði: 202 km
klst.
Drif: Framdrif með stöð-
ugleikastýringu.
Gírkassi: Multitronic-
sjálfskipting.
Hjólhaf: 2.650 mm.
Verð: 3.400.000 kr.
Umboð: Hekla hf.
Audi A4 Avant
2.0 Multitronic