Morgunblaðið - 20.06.2003, Page 8

Morgunblaðið - 20.06.2003, Page 8
AUÐLESIÐ EFNI 8 FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ANNELI Jäätteenmäki, forsætis-ráðherra Finnlands, sagði af sér embætti síðast-liðinn miðvikudag. En afsögn hennar kemur aðeins tveimur mánuðum eftir að hún varð fyrsta konan til að gegna embættinu. Ástæðan fyrir afsögninni var sú að hún var staðin að því að hafa sagt þingi og þjóð ósatt er hún skýrði út hvernig leyni-skjöl hefðu komist í hendur henni fyrir þing-kosningarnar í mars. Búist er við að samsteypu-stjórn Miðflokksins, Sænska þjóðar-flokksins og Jafnaðarmanna-flokksins muni sitja áfram. En líklegast þykir að Matti Vanhanen varnarmála-ráðherra og vara-formaður Miðflokksins, flokks Jäätteenmäki, tæki við forsætisráðherra-embættinu. Jäätteenmäki hélt því fram, að hún hefði ekki óskað eftir leyni-skjölunum. En skölin notaði hún til að klekkja á Paavo Lipponen, þáverandi forsætis-ráðherra og leiðtoga jafnaðarmanna. Kvaðst hún hafa orðið mjög hissa er henni bárust þau. Sá, sem sendi henni þau, Martti Manninen, skýrði hins vegar frá því, að hún hefði beðið um skjölin og gefið honum upp óskráð faxnúmer sitt. Finnskir lögfræðingar segja, að hugsanlega verði Jäätteenmäki saksótt. Þá geti hún átt yfir höfði sér allt að tveggja ára fangelsi. Reuters Anneli Jäätteenmäki, forsætis-ráðherra Finnlands, sagði af sér embætti á miðvikudag. Talin hafa logið að þingi og þjóð Finnski forsætis- ráðherrann sagði af sér Á MORGUN munu 779 mannsútskrifast frá Háskóla Íslands. Er þetta stærsti hópur sem hefur útskrifast frá skólanum til þessa. Mun fleiri konur en karlar útskrifast frá skólanum í ár. Þær eru 497, eða 64% allra útskriftar-nema, en þeir aðeins 282, eða 36% útskriftar-nema. Munurinn á milli kynjanna hefur aldrei verið jafn-mikill. Úr hjúkrunarfræði-deild útskrifast 77 konur en enginn karl. Í verkfræði-deild eru karlarnir þó fleiri en konurnar. Þeir eru 87 en þær aðeins 26. Fleiri konur en karlar útskrifast frá HÍ Netfang: auefni@mbl.is ÍSLENSKA lands-liðið í knattspyrnu kvenna fór vel af stað í undan-keppni Evrópumóts lands-liða þegar það lagði Ungverja, 4:1, á Laugardals-velli. Þetta var jafnframt fyrsti leikur liðsins á stórmóti undir stjórn Helenu Ólafsdóttur, sem tók við þjálfun lands-liðsins snemma árs. Þá voru einnig margir leikmenn íslenska liðsins að stíga sín fyrstu skref með lands-liðinu, m.a. Margrét Lára Viðarsdóttir, 16 ára stúlka frá Vestmanna-eyjum. Hún skoraði fjórða mark íslenska liðsins. Hin þrjú mörk íslenska liðsins skoruðu þær Ásthildur Helgadóttir, Erla Hendriksdóttir og Olga Færseth. Ásthildur lék sinn 52. landsleik að þessu sinni og hefur engin íslensk kona leikið fleiri A-landsleiki. „Ég er mjög ánægð með sigurinn og gott að byrja mótið með sigri. Það var samt tauga-titringur hjá okkur, sérstaklega í fyrri hálfleik, og við þurfum að slípa liðið betur saman,“ sagði Ásthildur, fyrirliði liðsins, í leikslok. Auk Ungverja eru Rússar, Frakkar og Pólverjar í riðli með íslenska lands-liðinu í undankeppni EM. Næst leikur íslenska liðið við Rússa. Sá leikur fer fram ytra 9. ágúst. Morgunblaðið/Golli Íslenska liðið sigraði Ungverja með fjórum mörkum gegn einu. Stórsigur á Ungverjum KEPPNINNI Sterkasti maður Íslands lauk á þjóðhátíðar-daginn, 17. júní, en sigurvegarinn var Benedikt Magnússon. Benedikt er aðeins 20 ára og æfir kraft-lyftingar. Hann sagðist þakka krafta sína góðum mat og miklum æfingum. Keppnin um sterkasta manninn stóð í þrjá daga. Meðal keppnis-greina var drumba-lyfta. Þar lyfta keppendur 100 kílóa tré-drumbi yfir höfuð sér og sigrar sá sem lyftir drumbinum oftast. Keppendur þurftu líka að draga 18 tonna trukk sem þeir festu við sig með beisli og drógu áfram. Síðasti keppnis-liðurinn var svo burður Húsafells-hellunnar. En þessi stóri steinn, sem er 186 kíló að þyngd, er þá borinn eins langt og menn geta. Sá sem bar steininn lengst komst 68 metra áður en hann gafst upp. Sterkasti Íslendingurinn Hérna heldur Benedikt á Húsafellshellunni. En hellan er 186 kíló að þyngd. ÞÝSKUR smygl-hringur smyglaði 15 kílóum af hassi til Íslands í fyrra-sumar. Hassinu var smyglað með ferjunni Norrænu en smyglararnir földu það í húsbíl um borð í ferjunni. Þeir ætluðu að smygla 50 kílóum af hassi til viðbótar nokkrum mánuðum seinna. Sú sending átti einnig að fara með skipi, en þó ekki Norrænu. Það tókst ekki þar sem lögreglu-yfirvöld fundu hassið áður. Það fannst í bíl á landa-mærum Spánar og Frakklands. Tíu manns hafa verið handteknir vegna þessa máls, á Íslandi, í Þýskalandi og á Spáni. Tveir sitja í gæslu-varðhaldi hér á landi og bíða dóms. Hassi var smyglað með Norrænu síðasta sumar. Smygluðu hassi með Norrænu LAUNABIL milli karla og kvenna er meira á Íslandi en á hinum Norður-löndunum. Þetta kemur fram í skýrslu frá Norrænu ráðherra-nefndinni. Á öllum Norður-löndunum voru laun kvenna lægri en laun karla árið 2000. Á Íslandi höfðu konur í laun 79% af því sem karlar höfðu. Í Noregi höfðu konur í laun 80% af því sem karlar höfðu. Sænskar og finnskar konur höfðu í laun 82% af því sem karlar höfðu. Á Norður-löndunum hefur munur á launum karla og kvenna lítið breyst frá 1990. Laun íslenskra kvenna hafa þó hækkað lítillega miðað við laun karla á þessu tímabili. Árið 1990 voru þau 76,1% af launum karla, en 79% 2000. Laun kvenna mun lægri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.