Morgunblaðið - 22.06.2003, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2003 B 11
ferðalög
Í SUMAR skipta Halldór Leifsson
og Ingibjörg Ólafsdóttir um húsnæði
við útlendinga í sjötta sinn, að þessu
sinni ætla þau að dvelja í húsi í Pýr-
eneafjöllunum Frakklandsmegin.
Þau eru meðlimir í Homelink-sam-
tökunum.
„Við byrjuðum að skipta svona á
húsnæði áður en við gengum í
Homelink og það var fyrir daga
tölvutækninnar með auglýsingu og í
gegnum kunningsskap.
Síðar fór ég svo á Netið að skoða
hvað væri í boði og fann þar þessi al-
þjóðlegu samtök sem heita Home-
link en þau eru stærstu samtökin
sem eru með svona húsnæðismiðl-
un,“ segir Halldór.
„Í sumar erum við semsagt að fara
í annað sinn á vegum Homelink en
við höfðum farið fjórum sinnum þeg-
ar við gengum í samtökin.“
Halldór segir að hlutirnir virki
þannig að fólk skráir sig og húsnæð-
ið sem það býr í, hvenær það vill fara
í frí og hvert það langar að fara. Það
er líka hægt að hafa alla möguleika
opna með áfangastaði ef þannig ligg-
ur á fólki.
Mikill áhugi á Íslandi
„Við fundum strax fyrir miklum
áhuga á Íslandi og höfum ekki haft
undan að taka við tilboðum frá fólki
víða um heim.
Í ár höfum við fengið yfir 50 tilboð
um húsnæðisskipti frá íbúum landa
eins og Hollands, Belgíu, Þýska-
lands, Bandaríkjanna, Kanada,
Frakklands, Írlands, Englands,
Austurríkis, Sviss, Ítalíu og Spánar.“
Hann segist hafa orðið var við að
margir reki tvö heimili og því þurfi
skiptin ekki endilega að vera á sama
tíma hjá báðum aðilum.
„Fyrir nokkrum árum fórum við
til dæmis til Danmerkur í þrjár vikur
en hjónin sem áttu húsið voru bara á
Íslandi í tvær vikur og dvöldu á hinu
heimilinu sínu þessa viku sem við
vorum í húsinu þeirra.“
– Hafa húsin sem þið hafið gist í
yfirleitt litið vel út?
„Já það er reynsla okkar og sér-
staklega eftir að við fórum að skoða
og panta á Netinu. Á Homelink eru
allar upplýsingar mjög aðgengileg-
ar, yfirleitt eru myndir af húsunum
og ítarlegar upplýsingar.“
– Hvað með muni sem fólk vill
kannski ekki að aðrir séu að skoða?
„Við höfum aldrei séð ástæðu til
þess að hafa eitt eða tvö herbergi
læst en það er hægt að gera það ef
því er að skipta og setja þar hluti
sem fólk vill ekki að aðrir hafi not af.
Auðvitað vilja allir koma í hreint hús
og við höfum bara gert jólahrein-
gerninguna á sumrin áður en við för-
um í frí og sinnt viðhaldi sem þarf
þá.“
Í morgunkaffi úti í garði
En hvað er það sem heillar þau við
þennan ferðamáta?
„Upphaflega var það af fjárhags-
ástæðum, það kom einfaldlega betur
út fyrir okkur að þurfa bara að
kaupa farseðlana og vera svo með
íbúð og bíl með þessum hætti. Í dag
finnst okkur þetta algjör lúxus. Við
njótum þess miklu betur en að vera á
hóteli. Við erum yfirleitt með rúm-
gott hús fyrir okkur og garð og jafn-
vel bíl og dettum beint inn í daglegt
líf þar sem við búum í miðju íbúðar-
hverfi. Húsráðendur hafa undirbúið
komu okkar með gagnlegum upplýs-
ingum um skemmtilega staði í ná-
grenninu til að skoða og það er fátt
sem jafnast á við það í fríi að vakna
að morgni í útlandinu og geta rölt út í
fallegan garð með kaffibollann sinn.“
Húshjálpin fylgdi með
Halldór segir að í fyrra hafi þau
lent í ævintýri því þau hafi fengið
upp í hendurnar stóran herragarð
rétt hjá Bordeaux í Frakklandi.
„Við vorum nú hálfsmeyk í fyrstu
við að taka þessu tilboði, sáum okkur
í anda með tuskuna á lofti allan dag-
inn að halda þessu húsi þokkalega
hreinu.
Það kom á daginn að vistarverurn-
ar voru stórar en húshjálpin fylgdi
með svo það þurfti ekki að hafa
áhyggjur af þrifum og umsjónarað-
ilinn á landareigninni sá um að
hreinsa sundlaugina fyrir okkur á
morgnana. Á eigninni, sem er tíu
hektarar, var líka tennisvöllur.
Húsið sjálft var á þremur hæðum
með kjallara og á veggjum verk eftir
þekkta listamenn og glæsikerrur í
bílskúrnum.
„Fólkið sem skipti við okkur á
húsnæði var yfir sig hrifið þótt það
hefði farið víða um lönd og vildi
dvelja lengur eða í allt að þrjá mán-
uði en við vorum ekki búin undir
slíka útiveru.“
Þegar Halldór er spurður hvort
þau hafi náð að kynnast fólki vel sem
þau hafa skipt á húsnæði við segir
hann að í síðustu þrjú skipti hafi þau
náð að kynnast fólkinu vel og þau
hafa farið í heimsókn til þessa fólks
og það er sömuleiðis velkomið hing-
að.
En hafa þau aldrei verið hrædd
um að þau væru að kaupa köttinn í
sekknum eða að fá til sín fólk sem
tæki hluti ófrjálsri hendi?
„Nei. Þegar komið er að ferðalag-
inu er fólkið búið að vera í sambandi
bæði í síma og á Netinu og með því
að tala við fólkið, fá myndir af því og
húsnæðinu og kynna sér bakgrunn
þess myndast gagnkvæmt traust.“
Halldór bendir á að húsið sem
maður tekur við í fríinu eigi að vera
eins og maður kemur að því þegar
því er skilað.
– Hvert á að halda í sumar?
„Við skiptum við hjón í Pýrenea-
fjöllunum Frakklandsmegin í þrjár
og hálfa viku og hlökkum mikið til
þess ferðalags.“
Voru í vellystingum á stórum frönskum herragarði í fyrra
Fengu yfir 50 tilboð
um húsnæðisskipti
Í fyrra gistu Halldór og Ingibjörg á frönskum herragarði og höfðu við húsið
einkasundlaug og tennisvöll. Umsjónarmaður kom og hreinsaði laugina daglega.
Ingibjörg Ólafsdóttir og Halldór Leifsson ásamt dótturinni Katrínu Rut.
haft beint samband við
þau heimili sem vekja
áhuga.
Þegar búið er að velja
heimili til að skipta við
er vaninn að skrifa und-
ir samning um hús-
næðisskiptin. Á Netinu
er hægt að sjá hvernig
slíkur samningur er bú-
inn til. Fólk þarf einnig
að taka ákvörðun um
hvort það vill skipta á
bílum líka og ef svo er þá er einnig
samningur gerður þar að lútandi.
Að lokinni dvöl eru meðlimir síð-
an beðnir um að taka þátt í könnun
hjá samtökunum þar sem þeir eru
beðnir um að gefa húsnæðinu sem
þeir dvöldu í umsögn sína.
HOMELINKer nafnið á
samtökum sem hafa í
fimmtíu ár verið með
skrá yfir fólk víðs vegar
um heim sem vill skipta
áheimili við aðra í fríinu
sínu. Í ár eru um 11.000
heimili í yfir fimmtíu
löndum á skrá hjá
Homelink samtökunum.
Arne Haukeland sem
sér um Homelink-
samtökin í Noregi og
víðar á Norðurlöndum segir að það
kosti fólk um fimm þúsund krónur
að gerast meðlimur í eitt ár. Í augna-
blikinu eru fimm íslenskar fjöl-
skyldur skráðar í Homelink sem
Arne segir allt of lítið miðað við
spurnina eftir heimilum á Íslandi.
Hann bendir á að samtökin
stækki ár frá ári og nú eru þau
stærstu samtök í heimi sem miðla
upplýsingum um fólk og heimili
þeirra sem vilja skipta á húsnæði í
fríinu sínu.
Meðlimir samtakanna fá sendan
heim veglegan bækling þar sem allar
upplýsingar eru tíundaðar og hægt
að skoða heimili víða um heim sem
eru tilbúin í skipti.
Meðlimir setja inn upplýsingar um
sín heimili með mynd og hvert þeir
vilji fara og hvenær.
Veittar eru upplýsingar um síma-
númer, tölvupóstföng og heimilis-
föng þeirra sem eiga aðild að sam-
tökunum og áhugasamir geta þá
Allar nánari upplýsingar
fást hjá norskum armi
Homelink sem heitir Norsk
BoligBytte (HomeLink
Norway)
Tømmerneset 5
5730 Ulvik
Noregur.
Íslendingar geta gerst með-
limir gegnum norsku skrif-
stofuna en vefslóðin þeirra er
www.boligbytte.no og síma-
númerið er 0047 56526616.
Tölvupóstfang:
norway@homelink.org
Skipst á húsnæði í sumarfríinu
Vantar Íslendinga á skrá
Sumartónleikar - Sund - Kajak - Golf - Jónsmessuganga á Drápuhlíðarfjall 23. júní
- Fjölbreytt afþreying
- fjölbreytt þjónusta
- í fallegum bæ!
Velkomin í Stykkishólm!