Morgunblaðið - 06.07.2003, Qupperneq 6
Með AVIS kemst þú lengra
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú
leggur af stað – Það borgar sig
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000
Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is
Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging,
vsk. og flugvallargjald. (Verð miðast við
lágmarksleigu 7 daga). Ekkert bókunargjald.
Bretland kr. 2.800,- á dag m.v. A flokk
Danmörk kr. 3.200,- á dag m.v. A flokk
www.avis.is
Við
gerum
betur
Á slóðinni www.isafjordur.is
eru m.a. upplýsingar um
siglingadaga, tíu daga hátíð
sem tileinkuð er sjó og sjó-
íþróttum sem hefst 18.júlí.
Morgunblaðið/Sverrir
KANÍNUR, kindur, kálfur, endur,
kisur og einn lítinn grís er með-
al annars að finna í glænýjum
húsdýragarði í Húnaveri.
„Garðurinn var opnaður fyrir
fáeinum dögum og hingað eru
allir velkomnir, ekki síst börn-
in,“ segir Páll Stefánsson stað-
arhaldari í Húnaveri.
„Við ætlum að hafa opið alla
daga, frá morgni og fram á
kvöld. Börnin fá að klappa kis-
unni og nálgast dýrin og við
verðum einnig með hestaleigu
fyrir þá sem vilja stíga á bak.
Einnig er hægt að teyma undir
börnunum.“
Hefð er fyrir búskap í Húna-
veri, og því er enn þar að finna
hesthús, fjárhús og hlöðu.
Húnaver er stórt svæði, um
það bil 30 hektarar, þar er
skógur, reiðvöllur hestafélags-
ins, íþróttavöllur, tjaldsvæði og
svefnpokapláss býðst í félags-
heimilinu allt árið.
Það kostar 250 krónur í
húsdýragarðinn í Húnaveri, og
það er veitingasala og söluturn
í félagsheimilinu.
Húnaver. sími 452 7110.
Netang:hunaver@
visir.is
Húsdýragarður opnaður í Húnaveri
Börnin fá að klappa kisum og nálgast dýrin í Húnaveri.
Vestfirskar afurðir eru á boðstólum í endurbættum veitingasal Hótels Ísafjarðar.
ÚTSÝNI yfir Djúpið og litskrúðug húsþökin á eyr-
inni fylgja leigu á nýjum herbergum á fimmtu hæð
Hótels Ísafjarðar.
Miklar endurbætur hafa staðið yfir á hótelinu
undanfarið, herbergjum hefur verið fjölgað um fjög-
ur, hluti herbergjanna hefur verið tekinn í gegn svo
og hluti gestamóttökunnar og veitingasalurinn.
„Nú er allt að verða eins og nýtt, en í haust stend-
ur til að taka það sem eftir er af herbergjunum í
gegn,“ segir Áslaug S. Alfreðsdóttir hótelstjóri.
Fjögur ný herbergi með baði er nú að finna á
fimmtu hæð hótelsins þar sem áður var fundarsalur.
Öll eru herbegin reyklaus, það er krafan í dag, að
sögn Áslaugar. Eitt herbergjanna segir hún að
flokkist undir að vera lúxusherbergi. Einnig sé unnt
að leigja það fyrir alls kyns fundi, sér í lagi yfir
vetrartímann.
Herbergi hótelsins eru því orðin 36 talsins og öll
með baði.
Veitingasalurinn hefur fengið nýtt og hressilegt
yfirbragð og á boðstólum er góðgæti ýmiss konar.
„Á matseðlinum er fjölbreytt úrval af fiskréttum og
við leggjum mikla áherslu á að vinna úr staðbundnu
hráefni og kynna vestfirskar afurðir svo sem salt-
fisk, rækju og svartfugl. Á haustin má sjá bláber,
krækiber og ýmsar villtar kryddjurtir á matseðl-
inum. Veitingasalinn skreytum við með blómum og
jurtum úr vestfirskri náttúru.“
Auk gistirýmis á Hótel Ísafirði er á vegum hót-
elsins rekin sumargisting í Menntaskólanum á Ísa-
firði og þar er einnig svefnpokaaðstaða og tjald-
stæði.
Hótel Ísafjörður breytir um svip
Hótel Ísafjörður
Heimilfang er að Silfurtorgi 2, 400 Ísafjörður.
Sími er 456-4111
Netfang info@hotelisafjordur.is,
www.hotelisafjordur.is
FLUGFÉLÖG spara verulegar fjárupphæðir með sölu
farmiða á Netinu. Hluti sparnaðarins kemur í vasa
ferðamanna enda auglýsa flugfélögin gjarnan að ódýr-
ast sé að kaupa farseðla á Netinu.
Engu að síður getur borgað sig að bera saman verð
á Netinu annars vegar og hins vegar með símtali til
ferðaskrifstofu eða flugfélags.
Vefútgáfan boarding.no, sem helgar sig umfjöllun um
ferðalög, gerði samanburð á farseðlakaupum í gegnum
Netið og með beinu símtali til flugfélags. Það kom á
daginn að hjá norska flugfélaginu Braatens reyndist
ódýrara að kaup ferð í síma. Talsmaður Braatens var
fljótur til að svara að ástæðan hefði verið sú að end-
urnýjun stóð yfir á heimasíðu flugfélagsins og því væru
ódýrstu fargjöldin ekki þar inni.
Það getur borgað sig að athuga fleiri en einn mögu-
leika á kaupum á farseðlum. Boarding.no bendir á að í
sumum tilvikum hafa flugfélög selt sæti í heildsölu til
ferðaskrifstofa sem geta jafnvel boðið ódýrari fargjöld
til einstakra viðskiptavina en flugfélagið sjálft.
Á netútgáfunni boarding.no athuguðu starfsmenn
hvað það kostaði að kaupa farseðil fyrir einn fullorðinn
frá Ósló til New York. Fara átti 16. júní og koma heim
23. júní.
Leitarsíðan Ebookers.com var notuð við leitina og í
ljós kom að munurinn á dýrasta og ódýrasta fargjald-
inu nam um sem samsvarar 38.000 íslenskum krón-
um. Ódýrast reyndist að fljúga með Flugleiðum en dýr-
ast með hollenska flugfélaginu KLM. Í báðum tilfellum
voru skattar og önnur gjöld innifalin í verðinu. Ekki var
tekið tillit til flugtíma.
Farseðlakaup á
Netinu ekki alltaf
ódýrasti kostur
TÍMARITIÐ Golf Digest birti nýlega
lista yfir 100 bestu golfvelli Bandaríkj-
anna til almenningsnota og var King’s
North í borginni Myrtle Beach í Suður-
Karólínu Bandaríkjanna í 75. sæti.
Á vellinum eru 18 holur af ýmsum
gerðum. Ferðaskrifstofan GB-ferðir
býður vikuferðir þangað í sumar.
King’s North-
golfvöllurinn valinn
Veffang GB-ferða er www.gbferdir.is
SVALASTA borgin á Bretlandi þetta
sumarið er Glasgow ef marka má
grein sem birtist í nýjasta hefti Nat-
ional Geographic traveler.
Greinarhöfundur segir borgina iða
af lífi, heilu húsaraðirnar hafa tekið
stakkaskiptum undanfarið, þar þrífast
gallerí af ýmsum toga, tískuhönnuðir,
verslanir og kaffibarir.
Norðurhluti borgarinnar er nú mik-
ilvægur hluti af nútímalistasögu, þar
er t.d. að finna listaskóla borgarinnar
sem er afar falleg bygging.
Borgarbúar setja punktinn yfir i-ið,
þeir eru álitnir hlýir og tilgerðarlausir.
Glasgow valin
svalasta borgin
Frekari upplýsingar er að finna á
seeglasgow.com