Morgunblaðið - 14.07.2003, Side 1
2003 MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ BLAÐ B
Útsala
Útsala
Útsala
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
HARALDUR INGÓLFSSON Á HEIMLEIÐ/B5
BANDARÍSKUR áhugamaður í
golfi, Mike Freeman frá Orlando,
hefur misst áhugamannaréttindi sín
þar sem hann þáði bifreið að gjöf
frá sjálfum Tiger Woods 1. maí sl.
Málavextir eru þeir að Freeman
var að leika golf ásamt félögum sín-
um á Legacy-golfvellinum í
Longwood í Orlando og þegar þeir
gengu á teig við 12. braut vallarins
sem er par 3 hola birtist Woods
skyndilega og spurði hvort hann
mætti leika með þeim næstu holur
vallarins. Að sjálfsögðu var Woods
boðið að vera með og sagði Woods
að best væri að þeir kepptu um hver
yrði næstur holu á 12. braut.
Freeman náði besta högginu og
var um 3 metra frá holu og þegar
úrslitin voru ljós afhenti Woods
honum bíllykla að Buick-bíl sem
stóð við flötina og sagði að bílinn
væri nú í eigu Freemans og þáði
áhugamaðurinn gjöfina af Woods.
Það sem Freeman og félagar
hans vissu ekki var að ESPN-sjón-
varpsstöðin hafði sett upp margar
myndavélar við brautina og tók allt
ferlið upp frá upphafi til enda og var
þessi atburður uppistaðan í auglýs-
ingaherferð á vegum Buick á
ESPN-sjónvarpsstöðinni.
Bandaríska golfsambandið,
USGA, brást við með þeim hætti að
svipta Freeman áhugamannarétt-
indum enda var verðmæti bifreið-
arinnar langt yfir leyfilegum mörk-
um hvað varðar áhugamannreglur.
Freeman er ósáttur við niðurstöð-
una en hann segir að Buick-fyrir-
tækið og ESPN hafi notfært sér að-
stöðu sína og að hann hefði ekki
beðið um neitt frá Woods og vill nú
fá tækifæri til þess að skila bílnum
en áhugamenn mega aðeins taka við
verðlaunum að verðmæti um 45 þús-
und ísl. kr á þeim mótum sem þeir
taka þátt í.
Forráðamenn USGA eru hins
vegar ekki á því að gefa neitt eftir í
þessu máli og getur Freeman ekki
varið titil sinn sem áhugamanna-
meistari í Orlando-fylki hinn 25.–27.
júlí nk.
Reuters
Svíinn Christian Olsson sigraði í þrístökki á Stigamóti IAAF í Gateshead á Englandi í gærkvöldi,
stökk 17,92 metra, sem er lengra en Norðurlandamet hans. Meðvindur var rétt yfir mörkum og Ols-
son fær met því ekki staðfest. Rússinn Jelena Isinbayeva setti heimsmet í stangarstökki kvenna á
mótinu, lyfti sér yfir 4,82 og bætti met Stacy Dragila frá Bandaríkjunum um einn sentímetra.
Bjarnargreiði frá
Tiger Woods
„ÉG veit vonandi eitthvað
meira á morgun [í dag] en
ég ætla að tala við menn frá
Real Betis og þá fæ ég von-
andi að vita hvernig mín mál
standa,“ sagði landsliðsmað-
urinn Jóhannes Karl Guð-
jónsson við Morgunblaðið í
gærkvöldi en enska blaðið
Daily Mirror greindi frá því
um helgina að Kevin Keeg-
an, knattspyrnustjóri Man-
chester City, væri að undir-
búa kauptilboð í Jóhannes
upp á 1,5 milljónir punda
eða sem samsvarar 190
milljónum íslenskra króna.
„Ég veit í rauninni ekkert
meira en það sem fram hef-
ur komið í blöðum en von-
andi er eitthvað til í þessu
með Manchester City. Það
yrði frábært að fara til City
en ég hef svo sem heyrt af
áhuga hjá hinum og þessum
liðum án þess að nokkuð
hafi gerst svo ég er bara ró-
legur yfir þessum skrifum,“
sagði Jóhannes Karl sem er
samningsbundinn Real Betis
á Spáni til næstu þriggja
ára.
Yrði gaman
að fara til
Man. City