Morgunblaðið - 14.07.2003, Blaðsíða 4
KNATTSPYRNA
4 B MÁNUDAGUR 14. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BJARKI Gunnlaugsson
gerði á laugardag sitt
fyrsta deildamark í ár og
var það honum greini-
lega mjög hjartnæmt.
Bjarki fagnaði eins og
hann hefði aldrei áður
skorað á ævinni og sam-
herjar hans samglöddust
honum innilega. „Það
var kominn tími til að
skora loksins. Ég var
hálfpartinn búinn að
gleyma því hvernig til-
finning það er að skora mark, og
það er óhætt segja að það hafi verið
ljúft – sérstaklega í svona mikil-
vægum leik. Við urðum að vinna
þennan leik. Þetta var
mikill baráttusigur en
sanngjarn að mér fannst.
Við KR- ingar virðumst
hins vegar alltaf vilja fara
erfiðu leiðina að sigri og
tekst aldrei að gera út um
andstæðinga okkar.“
Bjarki fór í smá frí fyrir
um tveimur vikum og
hann segist hafa haft gott
af því. „Ég kom alveg end-
urnærður eftir fríið. Ég
þurfti á þessu að halda því
líkami minn ræður ekki við mikið
álag. Hugsanlega þarf ég að taka
aftur smá frí þegar líða fer á tíma-
bilið.“
Bjarki Gunnlaugsson
endurnærður eftir frí
UNGMENNALANDSLIÐ kvenna
skipuðum leikmönnum 21 árs og
yngri heldur í lok þessa mánaðar til
Danmerkur og tekur þátt í Opna
Norðurlandamótinu. Auk Norður-
landanna taka Grikkir, Þjóðverjar
og Bandaríkin einnig þátt í mótinu.
Úlfar Hinriksson, landsliðsþjálfari,
hefur tilkynnt landsliðshópinn sem
tekur þátt fyrir Íslands hönd. Í
mótinu er leyfilegt að nota allt að
fjóra eldri leikmenn og af því tilefni
voru Edda Garðarsdóttir, Hrefna
Jóhannesdóttir, Íris Andrésdóttir
og Rakel Logadóttir valdar. Áður
mátti nota tvo eldri leikmenn.
Markverðir:
Dúfa Ásbjörnsdóttir, Breiðabliki,
María B. Ágústsdóttir, Stjörnunni,
Aðrir leikmenn:
Björg Á. Þórðardóttir, Breiðab.,
Elín A. Steinarsdóttir, Breiðab.,
Ólína G. Viðarsdóttir, Breiðab.,
Edda Garðarsdóttir, KR,
Embla S. Grétarsdóttir, KR,
Hólmfríður Magnúsdóttir, KR,
Hrefna H. Jóhannesdóttir, KR,
Sólveig Þórarinsdóttir, KR,
Þórunn H. Jónsdóttir, KR,
Dóra María Lárusdóttir, Val,
Dóra Stefánsdóttir, Val,
Íris Andrésdóttir, Val,
Laufey Jóhannsdóttir, Val,
Málfríður E. Sigurðardóttir, Val,
Rakel Logadóttir, Val,
Ásta Árnadóttir, Þór.
Ungmennalandsliðið
til Danmerkur
SKAGAMENN ætla að setj-
ast niður með færeyska
landsliðsmanninum Julian
Johnsson í vikunni og gera
við hann nýjan samning en
Færeyingurinn er samn-
ingsbundinn ÍA út leiktíð-
ina. Gunnar Sigurðsson, for-
maður Rekstrarfélags
meistaraflokks karla hjá ÍA,
sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ÍA vildi gera við
hann tveggja ára samning
en það gæti farið svo að
samningurinn yrði bara til
eins árs.
Johnsson, sem er 28 ára
gamall miðjumaður, kom til
Skagamann
uði frá fære
og hefur spi
með Akurne
bankadeildi
Johnson s
netmiðilinn
hann sé ánæ
veruna á Sk
islegt haft k
óvart. „Kna
leikin er á Í
öðruvísi en
Íslandi er m
sendingar f
mér finnst h
mikill í leikj
Færeyjum,“
Skagamenn vilj
halda Johnsson
KR 2:1 Þróttur R.
Leikskipulag: 4-3-3 Landsbankadeildin, 10. um-
ferð
KR-völlur
Laugardaginn 12. júlí 2003
Aðstæður:
Rigning, völlur blautur en góð-
ur
Áhorfendur: 1.841.
Dómari:
Erlendur Eiríksson,
Fram, 4.
Aðstoðardómarar:
Ingvar Guðfinnsson, Eyjólfur
Finnsson.
Skot á mark: 14(5) - 11(5)
Hornspyrnur: 5 - 5
Rangstöður: 5 - 2
Leikskipulag: 4-5-1
Kristján Finnbogason M
Gunnar Einarsson
(Sverrir Bergsteinsson 78.)
Kristján Örn Sigurðsson M
Sigursteinn Gíslason M
Kristinn Hafliðason M
Jón Skaftason
Veigar Páll Gunnarsson M
Arnar Jón Sigurgeirsson
(Sigurður Ragnar Eyjólfsson 46.)
Bjarki B. Gunnlaugsson M
Garðar Jóhannsson
(Sölvi Davíðsson 84.)
Fjalar Þorgeirsson M
Ingvi Sveinsson
(Erlingur Þ. Guðmundsson 88.)
Eysteinn P. Lárusson
Hilmar Ingi Rúnarsson
(Hjálmar Þórarinsson 68.)
Ólafur Tryggvason M
Guðfinnur Þ. Ómarsson M
Jens Sævarsson
Halldór A. Hilmisson
Páll Einarsson M
Charles McCormick M
Sören Hermansen
(Björgólfur Takefusa 46.)
1:0 (50.) Veigar Páll Gunnarsson sendi knöttinn fyrir mark Þróttar, og Sigurður
Ragnar Eyjólfsson skallaði boltann inn að markteig. Þar kom varn-
armaður Þróttar og skallaði boltann frá marki en beint til Kristins Haf-
liðasonar sem fékk boltann fyrir utan vítateig og skoraði með við-
stöðulausu skoti, glæsilegt mark.
2:0 (61.) Garðar Jóhannsson sendi á Veigar Pál sem lék boltanum inn að víta-
teig. Dró til sín varnarmann Þróttar og sendi á Bjarka Gunnlaugsson
sem skoraði með vinstrifótarskoti.
2:1 (74.) Charles McCormick tók aukaspyrnu frá vinstri. Kristján Finnbogason
markvörður ætlaði að slá boltann frá marki en sló sinn eiginn sam-
herja. Guðfinnur Eyjólfsson náði boltanum við endalínu á hægri kannti
og sendi á Pál Einarsson sem skoraði af öryggi.
Gul spjöld: Veigar Páll Gunnarsson, KR (51.) fyrir brot. Ingvi Sveinsson, Þróttur R. (54.)
fyrir brot. Kristján Örn Sigurðsson, KR (71.) fyrir brot.
Rauð spjöld: Engin.
Það vakti athygli áhorfenda á laug-ardag að Ásgeir Elíasson, þjálfari
Þróttar, ákvað að láta Björgólf Takef-
usa, markahæsta leik-
mann efstu deildar,
byrja á varamanna-
bekknum. KR-ingar
voru meira með boltann
í byrjun en það voru gestirnir úr Þrótti
sem fengu betri í færi í fyrri hálfleik.
Guðfinnur Þórir Ómarsson var mjög
sprækur á hægri kanti og átti fyrsta
færi leiksins á 14. mínútu en Kristján
Finnbogason, markvörður KR, varði
skot hans. Áfram héldu Þróttarar að
sækja og á 26. mínútu tætti Páll Ein-
arsson upp vörn KR og lagði boltann á
Sören Hermansen en Kristján í marki
heimamanna varði meistaralega. KR-
ingar fengu aðeins eitt umtalsvert færi
í fyrri hálfleik, þá átti Veigar Páll
Gunnarsson góða sendingu inn á Krist-
in Hafliðason sem skaut framhjá úr
dauðafæri af markteig.
Fyrri hálfleikur var vægast sagt
slakur hjá KR-ingum. Liðinu gekk illa
að spila út úr vörninni og leikur þeirra
var tilviljunarkenndur og ómarkviss.
Báðir þjálfararnir notuðu hálfleikinn til
innáskiptinga og sendu sóknarmann
inn á völlinn. Sigurður Ragnar Eyjólfs-
son kom inn á í liði KR og Björgólfur
Takefusa í liði Þróttar.
Síðari hálfleik hófu Íslandsmeistar-
arnir af krafti og í hönd fór besti leik
kafli liðsins á þessu Íslandsmóti. Á
tuttugu mínútna kafla kaffærðu KR
ingar nýliðana og gerðu tvö glæsile
mörk, en um leið og Bjarki Gunnlaugs
son hafði gert seinna mark KR og sit
fyrsta í ár var sem Vesturbæinga
væru saddir og í stað þess að hald
áfram að sækja fóru þeir til baka o
freistuðu þess að halda fengnum hlut
Þróttarar gengu á lagið og þjörmuð
að marki KR. Páll Einarsson minkað
munninn þegar um 20 mínútur lifðu a
leiknum. Halldór Hilmisson átti skot
78. mínútu sem Kristján í marki Þrótt
ar varði en hélt ekki og Hjálmar Þór
arinsson náði frákastinu en Kristján s
einnig við honum.
Undir lokin reyndu Þróttarar a
jafna metin en allt kom fyrir ekki og Ís
landsmeistararnir fögnuðu dýrmætum
sigri.
Leikur KR-liðsins var mjög kafla
skiptur. Fyrri hálfleikur var slakur en
upphafi síðari hálfleiks sýndi liðið sann
kallaða meistaratakta. Kristján Finn
Charles McCormick skrefinu á undan Jóni Skaftasyni í boltann. Halldór Hilmisson fylg
Risinn rums
KR sigraði nágranna sína úr Þótti, 2:1, í fyrsta leik 10. umferðar Lands-
bankadeildar karla á KR-vellinum á laugardag. Þeir Kristinn Hafliðason
og Bjarki Gunnlaugsson komu heimamönnum yfir í upphafi síðari hálf-
leiks en Páll Einarsson minnkaði muninn fyrir gestina. Þrátt fyrir sigur er
ekki hægt að segja að Vesturbæjarrisinn sé vaknaður þó að vissulega
hafi hann rumskað í upphafi síðari hálfleiks. Bæði lið léku sinn þriðja leik
á sjö dögum og leikmenn voru margir hverjir orðnir örþreyttir undir lok
leiks.
Hjörvar
Hafliðson
skrifar
Willum Þór Þórsson var hæst-ánægður í rigningunni í Vest-
urbænum á laugardag eftir sigurinn
á Þrótti sem færði
liði hans annað sætið
í deildinni, alltént
um stundarsakir:
„Allt liðið barðist vel
í leiknum. Við náðum aldrei tökum á
leiknum í fyrri hálfleik en þó lögðu
leikmenn sig fram og um það snýst
fótboltinn. Í stöðunni 2:0 fórum við
að gera okkur lífið erfiðara. Það var
alls ekki ætlunin að hopa aftar á völl-
inn, stundum gerist þetta bara
ómeðvitað. Ég var vissulega orðinn
mjög spenntur þegar Gunnar Ein-
arsson þurfti að fara af leikvelli en ég
er með unga stráka á bekknum sem
ég treysti fullkomlega. Nú setjumst
við KR-ingar niður og förum yfir
stöðuna í hópnum og ákveðum hvaða
leikmenn verður farið með í langt
ferðalag til Armeníu.“
Þreyttir Þróttarar
Ásgeir Elíasson, þjálfari Þróttar,
var vonsvikinn í leikslok. „Ég er
aldrei sáttur við að tapa. Það hefði
óneitanlega verið afar gott að vinna
þennan leik. Ég óttaðist það að mínir
menn væru orðnir þreyttir sem varð
raunin. Yfir heildina var þetta jafn
leikur en við misstum einbeitinguna
þegar við vorum orðnir þreyttir. Við
vorum sterkari aðilinn í fyrri hálf-
leik. Willum [þjálfari KR] var klókur
í hálfleik og setti Sigurð Ragnar inn
á og Veigar komst framar á völlinn
þar sem hann nýtist betur.“
Hvers vegna lést þú Björgólf
Takefusa, markahæsta leikmann
deildarinnar, byrja á varamanna-
bekknum? „Björgólfur hefur beðið
um skiptingu snemma í síðari hálf-
leik í undanförnum leikjum. Hefði ég
byrjað með Sören [Hermansen] og
Björgólf inni á hefði ég þurft að
skipta þeim báðum út af. Því skipti
ég hálfleikjunum á milli þeirra.“
„Nú ætlum við Þróttarar okkur að
halda ótrauðir áfram að safna stigum
og halda okkur í deildinni,“ sagði Ás-
geir Elíasson, þjálfari Þróttar.
Þjálfararnir eftir viðureignina á KR-vellinum
„Gerðum
okkur lífið
erfitt“
Eftir
Hjörvar
Hafliðason