Morgunblaðið - 27.07.2003, Qupperneq 1
! "! ! #
! $
% & '
$
%( $
% )
$ % ! * + %( ,- ! .
/ % $ ! *
/ --
0 ) '%( ! 1 ( "!
+ ! ! 23 4 (
5 !)
( )
5 6 % 5 6 $ ( 5 7* (
5
5 $ % % ( ! * 5 6 $ !( ( 5 6 !( 5 8 5 ) ( $
*$
5 6
5 6
9 :;<
5 =) )
(
! 5 >
! ! ! *
% *(
!
"
!
" # $!
Skrifstofustarf
24ra ára, reyklaus og reglusöm kona óskar eftir
framtíðarstarfi. Hef reynslu af innflutningi og
skrifstofustörfum. Hef góð meðmæli og get
byrjað strax. Upplýsingar gefur Dagmar í síma
564 6369 og 868 9544.
Framkvæmdastjóri
Fyrirtæki í afþreyingariðnaði óskar eftir að
ráða framkvæmdastjóra.
Hæfniskröfur eru: Færni í mannlegum sam-
skiptum, en þau eru stór þáttur í starfinu,
reynsla í stjórnun fjármála, nákvæmni,
skipulagshæfileikar, verkstjórnun.
Vinsamlegast sendið umsóknir á augldeild
Mbl. eða á box@mbl.is merktar:
„L — 13956“ fyrir 1. ágúst.
Í Hafnarfirði búa um 21 þúsund manns. Bærinn stendur í
fallegu umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá
bæjarsál sem einkennir búsetu við sjó og státar um leið af
hagkvæmni stærðarinnar og staðsetningar í jaðri höfuð-
borgarsvæðisins. Það er gott að búa og starfa í Hafnarfirði.
Sviðsstjóri umhverfis-
og tæknisviðs
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða sviðsstjóra umhverfis-
og tæknisviðs. Sviðsstjórinn er jafnframt skipulags- og bygg-
ingarfulltrúi. Næsti yfirmaður er bæjarstjóri. Sviðsstjórinn er
einnig framkvæmdastjóri skipulags- og byggingarráðs. Svið-
inu er skipt í 3 deildir: skipulags- og byggingareftirlitsdeild,
umhverfis- og hönnunardeild og rekstur þjónustumiðstöðvar
(áhaldahúss).
Menntun og hæfni
Gerð er krafa um að sviðsstjórinn uppfylli þær kröfur sem
fram koma í 48. og 49. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997 sem og ákvæði gr. 2.7 í skipulagsreglugerð.
Reynsla á sviði stjórnunar er æskileg.
Æskilegt er ennfremur að umsækjendur hafi reynslu/þekk-
ingu á stjórnsýslu sveitarfélaga. Leitað er að metnaðarfullum,
skipulögðum og sjálfstæðum stjórnanda sem á létt með sam-
starf bæði við starfsmenn sína og þá bæjarbúa sem eiga
samskipti við umhverfis- og tæknisvið.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ræður í starfið.
Um kaup og kjör fer samkvæmt viðkomandi kjarasamningi
Launanefndar sveitarfélaga.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.
Upplýsingar
Þeim, sem vilja spyrjast nánar fyrir um þetta starf, er bent á
að hafa samband við Þórð S. Óskarsson hjá Intellecta í
síma 511 1225.
Umsókn
Sendist til Intellecta ehf., Lágmúla 6, 108 Reykjavík, eða á
thordur@intellecta.is fyrir 1. ágúst 2003.
Umsókn þarf að vera ítarleg. Greint skal frá menntun, fyrri
störfum, helstu verkefnum sem viðkomandi hefur fengist við
og sem hann telur að gagni megi koma í þessu starfi.
Gætt verður trúnaðar varðandi fyrirspurnir.
Öllum umsóknum verður svarað.
Lýðræðis- og jafnréttisfulltrúi
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða lýðræðis- og jafnréttis-
fulltrúa. Starf fulltrúans er á stjórnsýslusviði og næsti yfirmaður
hans er bæjarlögmaður. Hann starfar með lýðræðis- og jafn-
réttisnefnd. Með ráðningu fulltrúans hyggst bæjarstjórn Hafn-
arfjarðar styrkja lýðræðis- og jafnréttismál í allri stjórnsýslu
sveitarfélagsins.
Hæfnis- og menntunarkröfur:
Gerð er krafa um lögfræðimenntun. Æskileg er reynsla af
jafnréttismálum í víðtækum skilningi.
Umsækjendur hafi staðgóða þekkingu á stjórnsýslu sveitar-
stjórnarstigsins, sé lipur í mannlegum samskiptum, sjálfstæður
og skipulegur í vinnubrögðum.
Lýðræðis- og jafnréttisfulltrúi er ráðinn af bæjarstjóra.
Um kaup og kjör fer eftir viðkomandi kjarasamningi Launa-
nefndar sveitarfélaga.
Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.
Umsókn skal vera ítarleg, greint skal frá menntun og fyrri
störfum. Umsóknir skulu berast bæjarstjóranum í Hafnarfirði,
Strandgötu 6, eigi síðar en 1. ágúst nk. Nánari upplýsingar
um starfið veita auk bæjarstjóra, bæjarlögmaður og forstöðu-
maður starfsmannahalds.
„Au pair“
Þýsk fjölskylda með 2 börn leitar að „au pair“
í eitt ár frá 1. september nk. Þarf að vera 18 ára
eða eldri, með bílpróf og reyklaus.
Upplýsingar í síma 0049 871 9511518 (Sabína).
Sunnudagur
27. júlí 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 6.075 Innlit 11.392 Flettingar 44.767 Heimild: Samræmd vefmæling