Morgunblaðið - 30.07.2003, Blaðsíða 6
6 B MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Vagnhöfða 6 - 110 Reykjavík
Sími 577 6090 - Fax 577 6095
Eigum til vatnskassa/bensíntanka
og miðstöðvar, ásamt aukamiðstöðvum
ætluðum bifreiðum/bátum og vinnuvélum.
Einnig intercoolera í vörubíla og vinnuvélar.
Fjarstýrð
módel í
miklu úrvali
Glaciar Motorsport • Tómstundahúsið - Nethyl 2
Sími 5870600 • www.glaciar.is
BÍLSKÚRS
OG IÐNAÐARHURÐIR
Eldvarnar-
hurðir
Öryggis-
hurðirÁrmúla 42 - sími 553 4236
netfang: glofaxi@simnet.is
Hurðir
til á lager
Smíðað
eftir máli
SMÁRÉTTINGAR
NÝTT Á ÍSLANDI !
EINFÖLD OG FLJÓTLEG RÉTTINGAÞJÓNUSTA
Er bíllinn dældaður?
Fjarlægjum dældir - lagfærum á staðnum
Þú hringir - við komum 898 4644 - 895 4544
• Lægri viðgerðarkostnaður
• Engin fylliefni
• Engin lökkun
• Gerum föst verðtilboð
Bílskúrs og Iðnaðarhurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir í
öllum stærðum og gerðum.
Fjölbreytt litaúrval.
Stuttur afgreiðslufrestur
Gluggasmiðjan hf
Viðarhöfða 3
Sími 577-5050
ÞAÐ hlýtur að hafa komið eins og
köld vatnsgusa framan í andlit
stjórnenda Mercedes-Benz í Stutt-
gart þegar niðurstöður gæðakönn-
unar JD Power í Bandaríkjunum
voru birtar á síðasta ári. Þá hrapaði
merkið úr 16. sæti í 26. sæti sem er
átta sætum undir meðaltalinu. Frá
þessu var greint nýlega í tímaritinu
Business Week og orsakir vanda-
mála Mercedes-Benz í Bandaríkjun-
um greindar.
Mercedes-Benz var fyrir neðan
Chrysler, Ford og Plymouth í könn-
uninni en árið 1990 trónaði merkið á
toppi þessarar árlegu gæðakönnun-
ar hins virta fyrirtækis JD Power. Í
skýrslunni sem fylgdi könnuninni
kom fram að það var einkum ólag á
hemlum, aksturseiginleikum, demp-
urum og fjöðrunarkerfi, stjórnrof-
um fyrir rafmagnsrúður og óná-
kvæmir eldsneytismælar sem
orsakaði slæma útkomu Mercedes-
Benz í könnuninni.
Við fyrstu sýn myndu flestir frek-
ar tengja slík vandamál við bíla frá
Chrysler, systurfyrirtæki Merced-
es-Benz, sem hefur þótt talsverður
gallagripur í gegnum tíðina. En
bæði Chrysler og einnig Dodge
komu betur út úr könnuninni en
Mercedes-Benz.
Í grein Business Week segir
að gæðavandamál hjá Daiml-
erChrysler, móðurfyrirtæki
Mercedes-Benz og Chrysler,
veki spurningar um áhrif
sameiningar fyrirtækjanna
árið 1998 á gæðaímynd
Mercedes-Benz. Síðan fyrir-
tækin sameinuðust hefur
Jürgen E. Schrempp, aðal-
forstjóri DaimlerChrysler,
sent nokkra af annáluðustu
yfirmönnum fyrirtækisins til
Detroit til þess að koma Chrysler á
réttan kjöl. Spurningin er sú hvort
Mercedes-Benz blæði vegna þess.
Gæðavandamálin sem fram koma
í skýrslu JD Power eiga þó einkum
við um þrjár gerðir Mercedes-Benz
sem framleiddar voru á árinu 2000.
Einn þeirra er E-bíllinn sem er
helsti sölubíll Mercedes-Benz. Hann
hefur reyndar verið leystur af hólmi
með nýrri kynslóð sem fengið hefur
afar lofsamlega dóma hjá bílablaða-
mönnum. M-jeppinn fékk síðan
mikla andlitslyftingu í september
2001 þar sem skipt var meðal ann-
ars um 1.100 hluti í bílnum.
Veikleiki Mercedes-Benz
Engu að síður virðist sem viðhorf
bílkaupenda til Mercedes-Benz sé
að gæðum tegundarinnar hafi farið
hnignandi. Þótt Mercedes-Benz hafi
brugðist fljótt við vandamálum sem
upp hafa komið í bílum fyrirtæk-
isins virðist það ekki hafa nægt til
þess að halda á lofti því viðhorfi sem
eitt sinn ríkti meðal bílkaupenda að
allir Mercedes-Benz bílar séu gæða-
bílar.
Veikleiki Mercedes-Benz kom
berlega í ljós á tíunda áratugnum
þegar Toyota og Nissan hófu inn-
reið sína á Bandaríkjamarkað með
ódýrum gæðabílum. Til þess að
keppa við framleiðslu Japana varð
Mercedes-Benz að endurskoða allt
hönnunarferli sinna bíla. Í stað þess
að láta hönnunina ráða kostnaði
bílsins þurftu verkfræðingar Merce-
des-Benz nú að hanna bíla innan
ákveðins kostnaðarramma. Sér-
fræðingar segja að þarna hafi veik-
leiki Þjóðverjanna komið í ljós.
Eldri gerð E-bílsins var fyrsti bíll-
inn sem hannaður var innan kostn-
aðarramma og hann ber þess merki
ef niðurstöður gæðakönnunarinnar
eru hafðar að leiðarljósi. M-jeppinn
sem könnunin byggðist á var fórn-
arlamb niðurskurðar á framleiðslu-
kostnaði og flýtingu á framleiðslu til
þess að mæta harðri samkeppni frá
japönskum jeppum. Gallar leyndust
í viðarklæðningu bílsins að innan,
lakk á flötum að innan hafði til-
hneigingu til að flagna af og mæla-
borðið þótti ekki standast sam-
keppni frá keppinautunum.
„Þegar Mercedes-Benz kemur
með innréttingu sem er ekki í takt
við framleiðslu þeirra vekur það
spurningar um hve langt fyrirtækið
er tilbúið að fara til að draga úr
framleiðslukostnaði,“ segir Paul A.
Eisenstein, útgefandi TheCarConn-
ection.com.
Annað upp á teningnum í Evrópu
Gæðavandamál af þessu tagi eru
sögð geta haft áhrif á endursöluverð
á Mercedes-Benz bílum sem lengi
hefur verið eitt hið hæsta.
Business Week hefur það eftir
stjórnendum hjá Mercedes-Benz að
gæðavandamál eins og þau sem
fram koma í könnun J.D. Power
heyri sögunni til og að niðurskurður
á kostnaði hafi ekki áhrif á gæða-
mál hjá fyrirtækinu. Í sams
konar JD Power gæðakönn-
un í Evrópu lenti E-bíll
Mercedes-Benz til dæmis
í fyrsta sæti og segir
Business Week ástæð-
ur þess m.a. þær að í
Evrópu séu japanskir
keppinautar fáir auk
þess sem Evrópubúar geri
aðrar væntingar til bíla en
Bandaríkjamenn. Í greininni er
einnig bent á að í Evrópu verði
ekki lengi öruggt skjól fyrir
Mercedes-Benz því Toyota hafi nú
hafið mikla markaðssókn með lúx-
usmerki sitt Lexus og sömuleiðis
hafi Yaris smábíllinn lent í efsta
sæti í gæðakönnun TÜV í Þýska-
landi.
„Mercedes-Benz framleiðir, að
sjálfsögðu, ennþá úrvals bíla. En
tímarnir hafa breyst og nú er erf-
iðara en nokkru sinni að halda for-
skoti,“ segir í lok greinarinnar í
Business Week.
Slæm útkoma Mercedes-Benz í JD Power-gæðakönnun í Bandaríkjunum
Úr fyrsta í 26. sæti í gæðum
Mercedes-Benz árgerð 2000 hefur fallið í gæðakönnun í Bandaríkjunum.
M-jeppinn leið fyrir niðurskurð á kostnaði
og það að framleiðslu var flýtt.
TENGLAR
..............................................
Unnið upp úr BusinessWeek.com.
Mercedes-Benz hefur fallið
niður listann í gæðakönnunum
J.D. Power. Aðferðafræði könn-
unarinnar, sem nær yfir þriggja
ára gamla bíla, hefur breyst í
gegnum tíðina.
1990: 1. sæti
1995: 3. sæti
2000: 6. sæti
2003: 26. sæti