Morgunblaðið - 07.08.2003, Side 4
4 B FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI ATHAFNALÍF S
AMVINNUFÉLAGIÐ Kaupfélag Ár-
nesinga hefur fengið framlengda
greiðslustöðvun til 31. október nk. en
félagið hefur verið í greiðslustöðvun frá
14. júlí sl. og leitar nú nauðasamninga
við lánardrottna sína.
Að sögn stjórnarformanns félagsins
er leiðarljósið í vinnu þeirra er nú
stjórna félaginu að leita að lausn sem kemur sem best út
fyrir alla hlutaðeigandi aðila, viðskiptavini, kröfuhafa,
innlánseigendur og starfsmenn. Eins og greint er frá í
blaðinu í dag hefur búrekstarvörusvið félagsins verið
selt til Fóðurblöndunnar og Olíufélagið hefur sagt upp
samningi um rekstur fimm söluskála sem tilheyra skála-
sviði. Þá er aðeins eitt svið rekstrar eftir, hótelsvið, fari
svo sem horfir.
Félagið hefur átt í miklum fjárhagserfiðleikum og eru
skuldir þess 320 milljónir króna umfram eignir. Rætur
fjárhagserfiðleikanna má rekja til þátttöku kaupfélags-
ins í endurbyggingu Hótels Selfoss en mikil fjárbinding
og fjármagnskostnaður vegna hótelsins hefur reynst fé-
laginu ofviða.
Í lok júní sl. hættu bæði framkvæmdastjóri félagsins
og fjármálastjóri störfum en á greiðslustöðvunartíman-
um halda þeir Einar Gautur Steingrímsson hrl., aðstoð-
armaður á greiðslustöðvunartíma, og Jón Steingrímsson
rekstrarráðgjafi um taumana og leita leiða út úr þeirri
stöðu sem kaupfélagið er komið í. Eins og fram hefur
komið í Morgunblaðinu sjá þeir fyrir sér að veð- og for-
gangskröfuhafar fái sínar kröfur greiddar að fullu en
kröfur hátt í 300 almennra kröfuhafa, sem samanlagt
eiga 755 milljóna króna kröfu í félagið, eru í uppnámi.
Fleiri vandræði steðja að félaginu. Skálasvið félagins
leggst að óbreyttu niður 1. október nk. eins og fyrr segir
en sviðið hefur skilað tæplega milljarði króna í tekjum til
kaupfélagsins árlega. Sviðið er jafnframt það svið félags-
ins sem var í skástum rekstri, en hin sviðin eru hótelsvið
og búrekstrarsvið.
Ennfremur eru ýmis dóttur- og hlutdeildarfélög kaup-
félagsins í verulegum rekstrarerfiðleikum. Þar má nefna
Áburðarsöluna Ísafold en þar liggur gjaldþrotabeiðni
fyrir, Áleiningar hf. á Hvolsvelli en starfsemin hefur ver-
ið innsigluð, gjaldþrotabeiðni liggur fyrir hjá HK-búvél-
um og Vélsmiðja KÁ er í nauðasamningum. Ennfremur
liggur fyrir gjaldþrotabeiðni vegna fyrirtækisins X-föt.
Einnig eru fyrirtækin Búaðföng, sem KÁ á 50% hlut í, og
Hótel Flúðir, sem KÁ á 61% hlut í, í erfiðum rekstri.
Hugmyndin verður til
Hugmyndin að stofnun Kaupfélags Árnesinga mun hafa
komið upp í viðræðum Egils Thorarensens kaupmanns í
Sigtúnum og síðar kaupfélagsstjóra, og Helga Ágústs-
sonar, frænda Egils, en hann var hreppstjóri og oddviti á
Syðra-Seli í Hrunamannahreppi. Egill sagðist ekki vera
smeykur við að reka verslun sína áfram en hann sagðist
sjá að fyrr en seinna myndu Árnesingar stofna öflugt
kaupfélag og alveg eins þó að hann kæmi þar hvergi
nærri. Því vildi hann heldur taka þátt í þeirri þróun.
Helgi sagði föður sínum, Ágústi Helgasyni í Birtinga-
holti, frá viðræðum þeirra Egils, en Ágúst var brautryðj-
andi um stofnun rjómabúanna og Sláturfélags Suður-
lands 1907. Ágúst fór fram í Flóa og hitti Guðmund
Þorvarðarson í Litlu-Sandvík og fleiri félaga úr kaup-
félaginu Heklu. Þeir ákveða að stofna kaupfélag á Sel-
fossi.
Föstudaginn 31. október 1930 var fundur haldinn á
heimili Egils að Sigtúnum og stofnun félagsins undirbú-
in. Daginn eftir komu 27 menn saman í Pósthúsinu og
stofnuðu Kaupfélag Árnesinga.
Í fyrstu stjórn voru kosnir Gísli Jónsson á Stóru-
Reykjum, Ágúst Helgason í Birtingaholti og Þorvaldur
Ólafsson í Arnarbæli. Ágúst var kosinn formaður stjórn-
ar og gegndi því embætti til dánardægurs 1948. Vara-
maður í stjórn var kosinn Guðmundur í Sandvík, sem tók
sæti Þorvaldar í stjórn á fyrsta aðalfundi í mars 1932.
Á stjórnarfundi 2. nóvember 1930 var Egill Thoraren-
sen ráðinn kaupfélagsstjóri. Laun hans voru ákveðin sjö
þúsund krónur á ári auk 20% nettóágóða. Þeim var
breytt að þremur árum liðnum í 12 þúsund króna árs-
laun.
Egill afsalaði síðan til Kaupfélags Árnesinga fasteign-
um sínum á Selfossi. Verðið var 85.000 krónur, þar af
voru bankaskuldir 62.000 krónur. Þessar eignir voru:
félagsstjóra þótti ekkert eðlile
og aðrir gæti selt fólki lyf.
Kjörbúð opnaði KÁ á Selfos
og í Hveragerði 1957. Árið 195
gagnadeild.
Kaupfélagið gerðist hlutha
smiðju í Þorlákshöfn árið 1965
Eftir 1960 var oft rekstrarv
söfnuðust upp miklar skuldir.
rekstrinum og endurskipulag
reisti kaupfélagið árið 1940
en var lagt af 1948. Kjötbúð
var opnuð árið 1948 með al-
hliða kjötvinnslu og mjólk-
urbúð hóf kaupfélagið að
reka árið 1950. Var hún
starfrækt þar til farið var að
selja mjólk í Tetra pak-um-
búðum sem allir þekkja og
var sala mjólkur þá flutt í
venjulegar búðir. Í mjólkur-
búðinni hafði hún verið af-
greidd úr mjólkurbrúsum
með dælum.
Vorið 1948 keypti kaup-
félagið bakarí, en það var
lagt niður eftir eldsvoða
1991.
Kaupfélagið opnaði útibú
á Eyrarbakka í maí árið 1942 en rekstur þess var seldur
árið 1989. Á Stokkseyri var einnig opnað útibú árið 1942
og í Hveragerði var opnað útibú 1944, í Þorlákshöfn 1951
og á Laugarvatni 1963.
Á árunum 1949–1951 byggði sláturfélagið í samvinnu
við kaupfélagið og mjólkurbúið stórt hraðfrystihús.
Kaupfélagið hvarf úr þeim rekstri 1968.
Sumarið 1944 hóf kaupfélagið að gera hitaveitu og
boraði eftir heitu vatni. Var vatni hleypt á 35 hús árið
1948. Þetta var þriðja hitaveitan á landinu. Kaupfélagið
seldi Selfosshreppi hitaveituna árið 1968 fyrir 14 millj-
ónir króna, en rekstur hennar hjá kaupfélaginu gekk
brösuglega framan af.
Kaupfélagið hóf rekstur þvottahúss vorið 1953 en það
var selt síðla árs 1994.
Apótek hóf kaupfélagið að starfrækja 1. nóvember
1950 eftir mikil mótmæli lyfjafræðinga, en nær óþekkt
var að aðrir en lyfjafræðingar rækju apótek. Agli kaup-
34.500 fermetrar lands, ræktað og girt, Sigtún, 87 fer-
metrar við Sigtúnahlað, 21 metra langt og 156 fermetra
að stærð, skúrbygging sunnan við það, 55 fermetrar að
stærð og lítið þvottahús. Sunnan við hlaðið var heyhlaða
og fjós. Þá fylgdi rafstöð til ljósa í öllum húsunum og til
húsa í nágrenni.
Egilstímabilið
Um kaupfélagsstjórann Egil segir í bókinni Sögu Selfoss
að hann hafi verið skapmaður mikill, ráðríkur og fór sínu
fram um framkvæmdir sem hann hafði trú á. Hann var
mannblendinn, gestrisinn og höfðingi heim að sækja.
Hann hafði yndi af bókmenntum og listum.
Þegar Egill lést 15. janúar 1961 skrifaði Björn Sig-
urbjarnason í dagbók sína að nú væri hniginn í hadd
jarðar mesti héraðshöfðingi Sunnlendinga síðan á öld
Sturlunga.
Egill náði því að stjórna Kaupfélagi Árnesinga í náinni
samvinnu við Mjólkurbú Flóamanna, þar sem hann var
stjórnarformaður, í rétt 30 ár. Það er samkvæmt því sem
fram kemur í Sögu Selfoss mesti uppgangstími sem
nokkru sinni hefur gengið yfir sveitir Suðurlands og því
stundum kallað Egilstímabilið.
Kaupfélagið hóf verslun 2. janúar 1931 í Sigtúnum
með fimm starfsmenn. Óx félagið og dafnaði jafnt og þétt
og umfang og fjölbreytni starfseminnar sömuleiðis sem
miðaði að því m.a. að kaupfélagið og félagsmenn væru
sjálfum sér nógir um nánast allt er þyrfti til daglegs lífs.
Árið 1949 keypti kaupfélagið þrjá hópferðabíla af Guð-
mundi Jónassyni og hóf rekstur ferðaskrifstofu og var
hún rekin til ársins 1968. Félagið hóf útgerð frá Þorláks-
höfn árið 1940 og búskap í Laugardælum 1937 og var að
fáum árum liðnum orðinn stærsti mjólkurframleiðandi á
Suðurlandi. Þeim búskap lauk 1952. Saumastofu opnaði
kaupfélagið 24. september 1940, en hún var lögð niður í
árslok 1953 vegna tilkomu samkeppni frá hraðsauma-
stofum í Reykjavík sem fjöldaframleiddu fatnað. Íshús
Kaupfélag í krö
Sögu Kaupfélags Árnesinga gæti
lokið á 73 ára afmælisdegi félags-
ins hinn 1. nóvember nk. takist
ekki að greiða úr fjárhagsvanda
félagsins fyrir þann tíma. Þór-
oddur Bjarnason og Árni Sæberg
ljósmyndari fóru um Suðurland
og kynntu sér sögu kaupfélagsins
og ræddu við tengda aðila.
Stærsta eign Kaupfélags Árnesinga, verslunar- og skrifstofuhúsnæðið á Austurvegi 3–5 á Selfossi.
Í SÖGU Kaupfélags Árn
Brynjólfsson, Baráttunni
tímamót hafi orðið árið 19
aði húsgagnaverslun, því
félaginu fengjust allar þæ
menn hefðu not fyrir og þ
huga að gera nú húsgagn
staðar. „Sannaðist þar hið
sinn var haft eftir gömlum
ekki til staðar í Kaupfélag
hana ekki,“ segir í bókinn
„Óhætt er að segja að á
félag Árnesinga staðið á h
ugu árum hafði félaginu t
á öllum sviðum svo nú gat
varningi af öllu tagi. Fólk
hafði byggt úr efni frá kau
voru hituð með hinu misg
Kjötið kom frá kaupfélagi
úr Þorlákshöfn. Rúmin m
gagnadeildinni og trésmið
að gera herbergin heimili
innréttingum og fataskáp
bakaríi félagsins. Smjörið
mjólkurbúinu. Bensínið á
í hann fengust hjá kaupfé
varð veikur fengust meðö
ið fékk vinnu og peninga f
félaginu og föt og fataefn
varan fékkst ekki í kaupfé
panta hana þar. Kaupféla
gat til að fólkinu liði vel.“
bls. 202.)
Ef varan
ekki til v
mig han
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hótel Selfoss er eftir stækkun ríflega 10.000 fermetrar að stærð og 100 herbergja. Uppbyggingin varð kaupfélaginu ofviða.
Egill Gr. Thorarensen var
fyrsti kaupfélagsstjóri KÁ.