Morgunblaðið - 08.08.2003, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 8 . Á G Ú S T 2 0 0 3 B L A Ð B
SÖNGGLAÐIR FARFUGLAR /2 HEITU POTTARNIR HEILLA/3
LIFI HINN FRJÁLSI LEIKUR /4 RÆTUR VANDANS /5 SVIMI OG
SUNDL /6 NÝJAR LÍNUR Á MEÐGÖNGU /7 AUÐLESIÐ EFNI /8
LITLIR knettir úr rúskinni og leðri, fylltirgrjónum eða sandi, leika lausum hala áalmenningstúnum borga og bæja ásumrin. Í útlandinu kallast þeir hackey-
sacks og sums staðar footbags, en nýyrðadeild
kvikmyndafélagsins Lorts hefur nefnt þá upp á ís-
lensku fótpoka. Félagarnir í Lorti eru einmitt for-
fallnir áhugamenn um fótpoka og eru mennirnir á
bakvið fyrsta liðamótið í fótblaki sem fram fer á
morgun. Er það íþróttadeild félagsins, Sportlort-
ur, sem stendur fyrir mótinu.
„Þetta er voðalega þægilegt sport að því leyti
að lítið þarf að hlaupa,“ útskýrir glottandi Hlynur
Pálsson, frammámaður í Sportlorti. „Þegar við
tókum okkur til, kyrrsetumennirnir, og hugðumst
fara að hreyfa okkur lá beint við að reyna venju-
lega knattspyrnu. Ein fótboltaæfing var haldin, en
þegar menn voru farnir að hrækja
blóði lagðist það sjálfkrafa af. Þá sner-
um við okkur að fótpokaiðkuninni.“
Hingað til hefur frægð Lorts fyrst
og fremst byggst á hreyfimyndafram-
leiðslu, svo sem stuttmyndum og heim-
ildamyndum, og unnu liðsmenn m.a. Stutt-
myndadaga í Reykjavík 2000 og 2002. „Við erum
hátt í þrjátíu manns ef allt er talið. Og þetta er
mikil samvinna, ef einn gerir eitthvað gott er það
allra heiður,“ segir Hlynur og líkir andanum við
eina stóra hljómsveit með róturum og tilheyrandi.
En fótpokamótið góða er hins vegar opið öllum.
„Við dreifðum flugritum fyrir nokkrum vikum og
höfum líka gengið að fólki sem við höfum séð með
fótpoka á lofti. Þetta er farið að sjást víða, sér í
lagi á góðviðrisdögum.“
Mótið á morgun þykir sérstakt að því leyti að
bæði er keppt í liðum og einstaklingshæfni. Liða-
keppnin fer fram líkt og blak, leikið er yfir net og
í hvoru liði eru þrír leikmenn. Sjö stig þarf til að
vinna lotu og þær eru tvær, nema oddalotu þurfi
til. „Svo leyfum við innáskiptingar ef menn þreyt-
ast, en á hverjum tíma eru aðeins þrír inná,“ segir
Hlynur og tekur fram að þaulvanir dómarar fari
með úrskurðarvald. „Það má til dæmis ekki
snerta knöttinn með hendi, semsé fyrir neðan öxl,
og svo er bannað að bíta í boltann. Þetta þarf að
taka fram, því iðkendur hafa orðið upp-
vísir að því að grípa knöttinn með tönn-
unum,“ segir Hlynur hlæjandi.
Slíkar hundakúnstir má þó hugs-
anlega geyma fyrir einstaklings-
keppnina, en þar er keppt í stíl og leikni.
„Hver keppandi fær tvær til fimm mínútur til þess
að halda knettinum á lofti. Við köllum það frjálsa
aðferð og meðal annars er dæmt eftir því hversu
oft viðkomandi missir boltann og hversu flott
brögð hann kann.“
Fótpokamót Sportlorts hefst á Melaskólavell-
inum kl. 13 á morgun. Enn er því færi á að lesa sér
til um reglurnar á heimasíðu, æfa réttu taktana
og skrá sig til leiks. Hlynur segir að tekið verði við
skráningum fram að setningu mótsins. Á staðnum
verða einnig plötusnúðar, grill og aðrir stuð-
gjafar. Keppt verður um farandbikar og fjöl-
breytta vinninga. Og blíðviðri hefur verið pantað.
Breki, Hlynur, JT og Ragnar Ísleifur í sveiflu við Seðlabankahúsið. Fótpokann ber við himin.
TENGLAR
...............................................................
http://sport.lortur.org
Morgunblaðið/Arnaldur
Dagur
fljúgandi
grjóna
Svo er
bannað að
bíta í boltann
Fótpokamót á Melaskólavelli
Alvöru fótpokar fást ekki hérlendis, sem Lorts-
mönnum þykir í meira lagi skrýtið. Þeir pöntuðu
sína frá Danmörku.