Morgunblaðið - 21.08.2003, Síða 2
!""
!
!"#
!$
%
"$ &
$&#
'%
( )*+,
-
./
"$/
. .
#
".
!$
!"
!$
"&
$$
!"!
"/
/
! "
##.
# $ %&''
HAGNAÐUR samstæðu Trygg-
ingamiðstöðvarinnar á fyrstu sex
mánuðum þessa árs var 333 milljónir
króna en var 152 milljónir fyrir sama
tímabil árið áður. Hagnaður af rekstri
dótturfélaga félagsins á tímabilinu
var 3,8 milljónir hjá Líftryggingamið-
stöðinni, en 0,5 milljóna tap varð af
rekstri Tryggingar.
Hagnaður af vátryggingarekstri
var 291 milljón á móti 144 milljónum
fyrir sambærilegt tímabil árið áður.
Bókfærð iðgjöld voru 4.935 milljónir
króna á móti 5.043 milljónum árið áð-
ur og lækkuðu um 2,1%. Samkvæmt
fréttatilkynningu frá Tryggingamið-
stöðinni er meginskýringin á lækkun
iðgjalda aukinn afsláttur til viðskipta-
vina félagsins í TM-öryggi, einkum í
ökutækjatryggingum. Bókfærð ið-
gjöld vegna líf- og sjúkdómatrygg-
inga á tímabilinu voru 17 milljónir
króna en líftryggingastarfsemi sam-
stæðunnar byrjaði í janúar á þessu
ári. Bókfært verð hlutabréfaeignar
félagsins í félögum skráðum í Kaup-
höll Íslands er 5.649 milljónir króna
en skráð sölugengi þeirra 30. júní var
6.766 milljónir króna.
Viðunandi afkoma
Í tilkynningunni segir að stjórnendur
telji afkomonuna viðunandi og í sam-
ræmi við væntingar.
Um framtíðina segir að það sé mat
stjórnenda félagsins að hagnaður af
rekstri félagsins á síðari hluta ársins
verði svipaður og á fyrri hluta ársins.
Hlutafé félagsins samkvæmt sam-
þykktum þess er 932 milljónir króna.
Hluthafar voru 527 hinn 30. júní en
518 í ársbyrjun. Stjórn Trygginga-
miðstöðvarinnar hefur ákveðið að
beiðni Kaldbaks hf. að boða til hlut-
hafafundar hinn 11. september næst-
komandi. Á dagskrá fundarins verður
kjör til stjórnar félagsins. Kaldbakur
hefur frá síðasta aðalfundi fest kaup á
20,41% hlut í Tryggingamiðstöðinni
en átti ekkert fyrir.
Tryggingamiðstöðin með
333 milljónir í hagnað
2 B FIMMTUDAGUR 21. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NFRÉTTIR .
/
(0( ((
(0( ((
.
!
" # $
% $
(0( ((
! !&
# ( /12
/1
/1
/1
/1
/1
!
) % %
$
(0( ((
21
1
1/
1
1
1
. 3
$
$* '
*!45
(0( ((
1
01
/1
21
1
1
*+),- #.
#
!! " #
$"%
&!
! '!'"" '
#!
% ( "' $!"#
)' '
* " ! &#!
!
$
"+ !
*
!
, -
!
TÍUNDA Brautargengisnám-
skeið Impru, nýsköpunarmiðstöðv-
ar á Iðntæknistofnun, hefst 29.
ágúst nk. Námskeiðið er hið fyrsta
á þessu ári en hingað til hafa tvö
námskeið verið haldin árlega.
Helga Sigrún Harðardóttir verk-
efnisstjóri segir að af þeim sökum
búist hún við meiri aðsókn á nám-
skeiðið en áður.
Brautargengi er styrkt af Reykj-
víkurborg, Mosfellsbæ, Bessa-
staðahreppi, Kópavogi, Seltjarn-
arnesi, Hafnarfirði, Akureyrarbæ
og Byggðastofnun.
Helga segir að með niðurgreiðslu
þessara aðila sé hægt að bjóða
Brautargengisnám á góðu verði en
Brautargengi er að hennar sögn
eina sérhæfða námið af þesu tagi
sem eingöngu er í boði fyrir konur.
Brautargengisnám kostar nú
45.000 krónur á höfuðborgarsvæð-
inu og 30.000 krónur
á landsbyggðinni en eingöngu
verður boðið upp á fjarnám á lands-
byggðinni í samvinnu við at-
vinnuþróunarfélög.
300 konur lokið námi
Í fréttatilkynningu frá Brautar-
gengi segir að á þriðja hundrað
konur hafi lokið Brautargengi og
skrifað heildstæða viðskiptaáætlun
í kringum viðskiptahugmynd sína.
Samkvæmt rannsókn sem Brautar-
gengi gekkst fyrir í sumar eru
50–60% þessara kvenna með eigin
rekstur í dag. Í könnuninni kemur
fram að flestar konurnar telja að
námskeiðið hafi skipt mjög miklu
máli varðandi það hvort þær færu
af stað með rekstur. Einnig telja
langflestar að þær séu mun hæfari
stjórnendur eftir að hafa lokið
náminu. „Kannanir okkar sýna að
stór hluti þátttakenda er háskóla-
menntaður, flest fyrirtækin sem
stofnuð hafa verið eru í verslun og
þjónustu og þau fyrirtæki sem í bí-
gerð er að stofna eru í þeim grein-
um líka. Flest þessara fyrirtækja
eru með 10 starfsmenn eða færri en
þó eru einhver með yfir 30 starfs-
menn og má nefna fyrirtæki eins og
No Name Cosmetics (Kristín Stef-
ánsdóttir), Kaffitár (Aðalheiður
Héðinsdóttir), Baðhús Lindu (Linda
Pétursdóttir) og Gestamóttökuna
(Inga Sólnes) sem dæmi um vel
heppnuð Brautargengisfyrirtæki,“
segir í fréttatilkynningu frá Braut-
argengi.
Þar kemur einnig fram að í und-
irbúningi sé að halda Brautargeng-
isnámskeið nú í fyrsta sinn á lands-
byggðinni, á Akureyri,
Egilsstöðum og Ísafirði.
Brautargengi er 75 tíma nám
fyrir athafnakonur sem vilja hrinda
viðskiptahugmyndum sínum í fram-
kvæmd.
Brautargengi
í tíunda sinn
Morgunblaðið/Arnaldur
Hellt upp á kaffi í Brautargengisfyrirtækinu Kaffitári við Bankastræti.
SAMSTÆÐA Jarðborana hagn-
aðist um 75 milljónir króna eftir
skatta á fyrstu sex mánuðum ársins,
en um 55 milljónir króna á sama tíma
í fyrra. Rekstrartekjur voru 596
milljónir en 539 milljónir á sama
tíma árið 2002 og rekstrargjöld
námu 510 milljónum, en 492 millj-
ónum í fyrra. Í tilkynningu frá félag-
inu segir að afkoman sé í samræmi
við rekstraráætlun ársins.
Eignir 30. júní námu 1.904 millj-
ónum króna og eigið fé 1.032 millj-
ónum. Eiginfjárhlutfall var því
54,2%, en það var 47,4% á sama tíma
í fyrra. Veltufé frá rekstri var 116
milljónir, en 89 milljónir á sama tíma
2002. Veltufjárhlutfall var 1,6, en 1,7
fyrir ári. Arðsemi eigin fjár er 16,4%.
Í tilkynningunni segir m.a. um
starfsemi innanlands: „Viðfangsefni
hérlendis hafa verið fjölbreytt fyrstu
sex mánuði ársins 2003 og almenn
starfsemi fyrirtækisins gengið vel.
Stærstu verkefni ársins hafa verið
unnin á Reykjanesi fyrir Hitaveitu
Suðurnesja og á Hellisheiði fyrir
Orkuveitu Reykjavíkur. Mikilvæg-
asta verkefnið, sem nú er unnið að,
er háhitaborun í Hágöngum á nýju
jarðhitasvæði Landsvirkjunar.“
12% af veltu erlendis
Um starfsemina erlendis segir: „Á
fyrstu sex mánuðum ársins 2003
nema tekjur samstæðunnar af fram-
kvæmdum erlendis yfir 12% af veltu.
Dótturfélag Jarðborana, Iceland
Drilling (UK) Ltd., starfrækir nú tvo
bora á Azoreyjum vegna rannsókn-
arborana á eyjunum og er verkefnið
nýhafið. Framkvæmdirnar eru á
vegum orkufyrirtækisins Geoter-
ceira og fara fram á eyjunni Terc-
eira. Verkkaupinn, GeoTerceira, er í
eigu rafveitna Azoreyja, EDA, sem
annast alla vinnslu, dreifingu og sölu
á raforku á eyjunum en stefnt er að
byggingu 12 MW raforkuvers á
næstu árum.“
Afkoma Jarðbor-
ana betri en í fyrra
75 milljóna króna hagnaður á fyrri hluta árs
UM 13.000 gestir koma til Íslands
með leiguflugi Katla Travel, Troll
Tours og Thomas Cook í sumar, eða
frá maí til september og er sætanýt-
ing tæplega 90% að meðaltali. Sæta-
nýtingin er best í júlí eða rösklega
99%. Fyrr á þessu ári var gert ráð
fyrir að farþegar í orlofsferðum til
Íslands á vegum Katla Travel yrðu
tvöfalt fleiri en á síðasta ári og hefur
sú áætlun gengið eftir, að því er seg-
ir í fréttatilkynningu frá Katla Trav-
el. Flogið er frá þremur stórborgum
í Þýskalandi; Berlín, Frankfurt og
München auk Vínar í Austurríki.
Íslandsflugið er samstarfsverk-
efni Katla Travel, Troll Tours og
Thomas Cook í Þýskalandi, en hið
síðastnefnda rekur rúmlega 16 þús-
und umboðsferðaskrifstofur á þýska
markaðnum og hefur á að skipa rúm-
lega 60 þúsund starfsmönnum.
Terra Nova sér um að selja í ferðir
héðan til fyrrnefndra borga. Pétur
Óskarsson, framkvæmdastjóri Katla
Travel, segir í fréttatilkynningu að
ætla megi að markaðshlutdeild
þýsku flugfélaganna árið 2003 í
flutningi þýskra og austurrískra
ferðamanna með beinu flugi til
landsins sé nálægt 60% á ársgrund-
velli og fari ört vaxandi. Sé skoðað
frá hvaða löndum flestir ferðamenn
koma sem skoða landið eru Þjóðverj-
ar og Austurríkismenn meðal þeirra
fimm efstu. Þeir ferðast mest um
landið og hafa lengsta viðdvöl, að-
allega fimm dýrustu mánuði ársins
og gefa því mest af sér til greinarinn-
ar og þjóðarbúsins, að sögn Péturs í
fréttatilkynningu.
Um 13.000 farþegar með
Katla Travel til Íslands
Um 90% sætanýting hefur verið hjá Katla Travel í sumar.