Morgunblaðið - 16.10.2003, Qupperneq 8
8 B FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NVIÐSKIPTI T
VEIR hagfræðingar
fengu á dögunum Nób-
elsverðlaun fyrir nokkuð
sem óhætt er að fullyrða
að hljómi fullkomlega
óskiljanlega í eyrum flestra, en flokk-
ast undir nokkuð sem kallast hag-
rannsóknir eða ef til vill frekar tíma-
raðagreining. En þrátt fyrir að þetta
hljómi flókið hafa rannsóknir þeirra
og uppgötvanir haft töluverða þýð-
ingu og eru við nánari athugun ekki
eins óskiljanlegar og ætla mætti í
fyrstu.
Nóbelsverðlaunin í hagfræði hafa
verið veitt frá árinu 1968 og njóta
stuðnings Seðlabanka Svíþjóðar. Þau
eru einu Nóbelsverðlaunin sem ekki
eru veitt samkvæmt sérstakri ósk í
erfðaskrá Alfreds Nóbels, sem árið
1866 fann upp dínamítið með því að
bæta kísilgúr út í nítróglyserin. Al-
fred Nóbel var ekki eini áhugamað-
urinn um sprengiefni í fjölskyldu
sinni og rannsóknir á slíkum efnum
leiddu til þess að hann missti bróður
sinn í sprengingu. En þó að þessi
áhugi kostaði Alfred Nóbel þannig
mikið skilaði hann honum miklu í aðra
hönd. Þegar hann lést árið 1896 var
hann auðugur maður og vildi láta gott
af sér leiða í þágu vísindanna með því
að verðlauna afburðamenn.
Tímaraðagreining
Nóbelsverðlaunahafinn Robert F.
Engle er Bandaríkjamaður, fæddur
árið 1942, og hlaut doktorsgráðu frá
Cornell-háskóla árið 1969. Hann er
nú prófessor við New York-háskóla
og fékk verðlaunin „fyrir aðferðir til
að greina hagfræðilegar tímaraðir
með breytilegu flökti yfir tíma
(ARCH)“, eins og það er orðað.
Nóbelsverðlaunahafinn Clive W. J.
Granger, fæddist í Wales árið 1934 og
hlaut doktorsgráðu frá Nottingham-
háskóla 1959. Hann er emeritus pró-
fessor í hagfræði við Kaliforníuhá-
skóla og hlaut verðlaunin „fyrir að-
ferðir við að greina hagfræðilegar
tímaraðir með sameiginlega breyti-
legum eiginleika (samheildun)“.
Hagfræðingar fást mikið við tíma-
raðir og þeir sem stunda það sem kall-
ast hagrannsóknir leitast margir við
að greina tímaraðir og rannsaka með-
al annars hvort í tveimur eða fleiri
tímaröðum er sameiginlegur eigin-
leiki. Tímaraðir geta til að mynda ver-
ið tölur yfir þróun landsframleiðslu,
vaxtaþróun yfir tíma eða svo að segja
hvaða önnur hagfræðileg stærð sem
er.
Hagfræðilegar tímaraðir sveiflast,
en þær eru iðulega þannig að þær
fara ýmist vaxandi eða minnkandi yfir
ákveðin tímabil og kallast þess vegna
ósístæðar. Hlutabréfaverð fer til að
mynda ýmist hækkandi eða lækkandi
og verðið sveiflast því um breytilegt
meðaltal. En það sem meira er, sveifl-
urnar, eða flöktið, breytast líka oft yf-
ir tíma í hagfræðilegum tímaröðum.
Stundum koma tímabil þar sem
sveiflurnar eru litlar og stundum
tímabil þar sem þær eru miklar og
þetta þvælist fyrir þeim sem ætla að
spá fyrir um næstu gildi raðarinnar
með aðferðum sem gera ekki ráð fyrir
þessum eiginleika.
Þetta voru þekkt vandamál áður en
Engle og Granger gerðu uppgötvanir
sínar, en það var ekki til lausn á þeim
og líkönin gerðu ráð fyrir sístæðum
röðum með föstu flökti. Með fyrri að-
ferðum gat niðurstaðan þess vegna
orðið sú að alls óskyldar raðir gátu
virst tengdar, en slíkt getur leitt til
þess að dregnar eru rangar ályktanir
um samhengi stærða í efnahagslífinu.
Fram á þetta sýndu Clive Granger og
félagi hans Paul Newbold árið 1974.
Þá getur niðurstaða greiningar tíma-
raða með röngum aðferðum einnig
leitt til þess að tvær raðir, sem í raun
tengjast, virðast ótengdar.
Gengi og verðlag
Það var á níunda áratug síðustu aldar
sem Granger kom fram með aðferð til
að greina tímaraðir með sameiginleg-
an breytilegan eiginleika, og notaði
um þetta hugtakið samheildun eða
samþætting (e. cointegration). Notk-
un þessarar uppgötvunar varð hagnýt
í framhaldi af kenningarprófi sem
Granger og Engle kynntu í grein sem
þeir rituðu saman árið 1987, en það
gengur út á að prófa þá kenningu að
ósístæðar breytur hafi ekki sameig-
inlegan breytilegan eiginleika.
Granger hefur haldið áfram að
þróa aðferðir til að meta samhengi
tímaraða og nú eru tæki til að meta
þetta algeng í tölvum þeirra hagfræð-
inga sem stunda hagrannsóknir. Þau
eru meðal annars notuð til að meta
samhengi á milli gengisþróunar og
verðlags, en til lengri tíma litið hlýtur
að vera samhengi þar á milli. Þegar
gengi krónunnar hækkar eiga inn-
fluttar vörur að lækka í verði. Til
skamms tíma er af ýmsum ástæðum
ekki víst að sú sé raunin, en með að-
ferðum sem nú hafa verið verðlaun-
aðar á að vera hægt að sjá við þessum
skammtímaáhrifum og greina lang-
tímasambandið. Hið sama á við um
margs konar annað
samhengi, svo sem
samhengi hlutabréfa-
verðs og arðgreiðslna
eða neyslu og tekna.
Áhætta banka
Mat á áhættu skiptir
miklu máli á fjármála-
markaði, svo sem í
rekstri banka. Bankar
og þeir sem hafa eftirlit
með bönkum vilja hafa
sem bestar upplýsing-
ar um hver áhættan er
í rekstri bankanna.
Menn vilja til að mynda
vita hversu miklar líkur
eru á að banki tapi tíu
milljörðum króna á ein-
um degi og vegna rann-
sókna Engle komast
menn nær því að spá
fyrir um þetta en áður.
Engle hefur eins og
áður segir fengist við sveiflur, eða
flökt, sem eru breytilegar yfir tíma og
tímabil, til dæmis miklar nokkrar vik-
ur í röð og svo litlar næstu vikur á eft-
ir, eins og þekkist á fjármálamörkuð-
um.
Fyrri líkön gerðu ráð fyrir því að
flöktið væri fast yfir tíma og með
þeim tókst illa að lýsa veruleikanum,
sem þýddi að spárnar urðu verri.
Engle gerði ráð fyrir – og hér kemur
notalegt hugtak – sjálfsaðhverfri skil-
yrtri misdreifni (e. autoregressive
conditional heteroskedasticity,
ARCH), eða gerði með öðrum orðum
ráð fyrir því að flöktið, eða óvissan, á
hverjum tíma væri háð flöktinu á und-
an. Þetta setti hann fram í grein árið
1982 og aðferðin hefur verið þróuð
áfram síðan. Mest notaða útfærslan á
þessu líkani er almenna útgáfan, sem
heitir eins og gefur að skilja GARCH
(e. generalized ARCH).
Ekið eftir kindaslóða
Þetta hljómar nú svo sem allt ágæt-
lega og með vali sínu á þessum tveim-
ur hagrannsakendum má segja að
konunglega sænska vísindaakadem-
ían hafi viðurkennt þær miklu fram-
farir sem orðið hafa í hagrannsóknum
á síðasta aldarfjórðungi eða svo, og þá
sérstaklega í rannsóknum á tímaröð-
um. Því fer þó fjarri að nýjar aðferðir
hafi orðið til þess að líkön hagfræð-
inga eða forrit hagrannsakenda séu
farin að lýsa veruleikanum með full-
komnum hætti eða spá rétt fyrir um
framtíðina. Þau hafa enn, og munu
víst alltaf hafa, afar ófullkomið for-
sagnargildi. Þess vegna er full ástæða
til að hafa í huga orð sem The
Economist vitnar til í umfjöllun sinni
um þessa nýjustu Nóbelsverðlauna-
hafa. Orðin eru höfð eftir bandarísk-
um hagfræðingi sem lýsti notkun nýj-
ustu aðferða í hagrannsóknum við að
rannsaka raunveruleikann eitthvað á
þá leið, að hún væri eins og að „aka
Mercedes eftir kindaslóða“.
Nóbelsverðlaun í
tímaraðagreiningu
Tveir hagfræðingar hafa hlotið Nóbelsverðlaun fyrir að auðvelda rann-
sóknir á hagstærðum sem breytast yfir tíma. Haraldur Johannessen út-
skýrir um hvað málið snýst og hvaða gagn hefur verið að rannsóknunum.
haraldurj@mbl.is
Clive W. J. Granger
hefur auðveldað mönnum
að finna langtímasamhengi
hagstærða, til að mynda
gengis og verðlags, þrátt
fyrir að skammtímaþróun
geti bent til að samhengi sé
ekki fyrir hendi.
Robert Engle
hefur með rannsóknum sín-
um auðveldað mat á áhættu
vegna verðsveiflna á fjár-
málamörkuðum, meðal ann-
ars þeirri áhættu sem bank-
ar standa frammi fyrir vegna
verðbréfasafna sinna.
NETRANNSÓKNIR eru meðal
þess sem markaðsrannsóknarsvið
Viðskiptaráðgjafar IBM á Íslandi
ætlar að marka sér sérstöðu í á
næstu misserum. Heiður Agnes
Björnsdóttir, nýráðinn rannsóknar-
stjóri IBM í Skógarhlíð, segir í sam-
tali við Morgunblaðið að þegar hún
hóf störf sl. sumar hafi hún byrjað á
því að kanna þörfina á markaðnum
fyrir kannanir. Hún segir að þar
hafi hún séð mikla möguleika í að
bjóða fyrirtækjum sérsniðnar mark-
aðsrannsóknir og einnig hafi komið
skýrt í ljós að þörf var fyrir nýjar
aðferðir eins og netkannanir.
Ódýrt og sveigjanlegt
Heiður segir að það að gera könnun
í gegnum Netið, í stað hefðbundinna
leiða eins og í gegnum síma, viðtöl
eða póst, geti verið allt að helmingi
ódýrara. Hún segir að netkönnun sé
einnig mun sveigjanlegra form og
hægt sé að framkvæma netkönnun
með stuttum fyrirvara og kanna fá
atriði í einu án þess að því fylgi allt
of mikill kostnaður. Ennfremur fylgi
sá kostur netkönnunum að mynd-
ræn hjálpargögn geta fylgt og svar-
andinn getur svarað þegar honum
hentar.
Með netkönnun er átt við kann-
anir sem framkvæmdar eru á Net-
inu. Þær eru ýmist sendar til skil-
greindra þátttakenda í tölvupósti
eða eru birtar á vefsíðum.
Heiður segir að gerð netkönnunar
sé þó ekki mjög frábrugðin öðrum
könnunum í heildina litið. Það sé
einungis öflun þeirra gagna, sem
unnið er úr, sem sé frábrugðin.
Hönnun rannsóknar, undirbúningur
og úrvinnsla sé jafnmikilvæg og í
hefðbundnum könnunum. „Í sjálfu
sér eru netrannsóknir sem slíkar
ekki nýjar af nálinni en þeim hefur
kannski ekki verið mikið haldið á
lofti sem möguleika hingað til. Það
hefur líka margt verið sagt um þess-
ar kannanir sem þarfnast leiðrétt-
ingar. Það varð til dæmis mikil um-
ræða um það þegar Sveppi á
Popptíví sagðist hafa kosið sjálfan
sig margoftí netkosningu um sjón-
varpsmann ársins í fyrra, og sigraði.
Í opnum könnunum á Netinu velur
úrtakið sig sjálft og því er varasamt
að álykta um niðurstöður slíkra
kannana í víðara samhengi. Slíkar
kannanir, eða kosningar, eru allt
annað heldur en faglegar netrann-
sóknir.
Við hjá IBM notum netkannanir
til að afla upplýsinga frá sérvöldum
hópum, t.d. viðskiptavinum eða
starfsmönnum tiltekinna fyrirtækja.
Kannanirnar eru sérsniðnar hverju
sinni. Það að leita álits hjá viðskipta-
vini um þá þjónustu sem þú ert að
veita og viðhorf hans til fyrirtæk-
isins gefur fyrirtækinu verðmætar
upplýsingar, t.d. um þjónustuna og
ímyndina.“
Heiður segir að sem dæmi ætli
matarklúbburinn Matarlist, sem
heldur úti vefsíðunni www.matarlist
.is, að gera könnun á vefsíðu sinni
meðal viðskiptavina sinna, í sam-
starfi við IBM. Nýbúið er að gera
breytingar á útliti og innihaldi síð-
unnar og kanna á hvernig þær
breytingar leggjast í notendur.
„Það er mikils virði að fá viðbrögð
viðskiptavinanna strax beint í æð,
annars renna fyrirtæki blint í sjóinn
með það hvernig þeir fjármunir sem
varið er til þess að ná markmiðum
fyrirtækisins nýtast í reynd.“
Hvar er styrkurinn?
Heiður segir að það sé ekki alltaf
auðvelt fyrir fyrirtæki sem vill bæta
þjónustu eða ímynd meðal við-
skiptavinanna að vita hvaða þættir
skipta þar mestu máli. „Ef fyrirtæk-
ið aflar sér ekki upplýsinga og legg-
ur síðan fé í verkefni sem skiptir við-
skiptavinina ekki miklu máli er það
ekki að nýta fjármunina á skilvirkan
hátt. Einföld rannsókn gæti þar gef-
ið mikilvægar upplýsingar. Stund-
um kemur í ljós að fyrirtæki standa
sig best í þáttum sem skipta við-
skiptavinina litlu máli. Slík könnun
gerir fyrirtækinu kleift að bregðast
hárrétt við veikleikum sínum.“
Aðspurð segir Heiður að fyrir-
tæki gætu almennt nýtt sér rann-
sóknir meira til að ná betri árangri í
því sem þau eru að fást við. „Nið-
urstöður markaðs- og þjónustu-
rannsókna eru efniviður í ákvarð-
anatökur. Fyrirtækjum sem hugsa
til framtíðar er nauðsynlegt að vita
hvar þau standa í dag. Það auðveld-
ar þeim að ákveða hvert þau vilja
stefna og hvaða leiðir eru ákjósan-
legar til að ná markmiðunum,“ sagði
Heiður að lokum.
IBM með
áherslu á net-
rannsóknir
HAGNAÐUR Norræna fjár-
festingarbankans, NIB, jókst um
3,6% á fyrstu átta mánuðum árs-
ins, úr 8,65 milljörðum íslenskra
króna í 8,92 milljarða króna. Á
tímabilinu fengu eigendur bank-
ans, Norðurlöndin fimm, greiddan
40,3 milljóna evra arð af hagnaði
ársins.
Alls lánaði bankinn út 910 millj-
ónir evra á fyrstu átta mánuðum
ársins og í lok ágúst námu heildar-
útlán NIB 10.323 milljónum evra.
Flest lán NIB eru til fram-
leiðslu- og matvælaiðnaðar, m.a.
til umhverfisverkefna og kaupa á
fyrirtækjum á Norðurlöndum.
Fjórðungur lána var til orkugeir-
ans þar sem NIB fjármagnaði
meðal annars fyrirtækjakaup í
Svíþjóð, fjárfestingu í lífrænu
orkuveri í Finnlandi, vindorkuveri
í Danmörku, vatnsaflsvirkun í
Noregi og í dreifineti raforku í
Danmörku og Íslandi.
Alþjóðleg lán NIB voru einkum
til orkugeirans, til samgangna og
fjarskipta.
Aukinn hagnaður NIB
Lestu meira um þetta einstaka tilboð á www.microsoft.is/frabaerttilbod og hvað þú græðir á því...
G
R
E
Y
C
O
M
M
U
N
IC
AT
IO
N
S
IN
TE
R
N
AT
IO
N
A
L
G
C
I
IC
E
LA
N
D
Microsoft og HP gera þér frábært tilboð!
Fáðu leyfin á hreint og þú færð
fartölvu í staðinn