Morgunblaðið - 26.10.2003, Síða 11
strönd í þessum bæ. Garachico er
vinalegur bær og landslagið í kring
tilkomumikið. Í fjöruborðinu er búið
að útbúa mjög skemmtilegan bað-
stað í kletti sem gengur út í sjó.
Sjórinn hefur með tímanum sorfið
klettinn og þar geta bæjarbúar nú
baðað sig í litlum náttúrulaugum.
Í miðbænum er fallegt markaðs-
torg. Þar var líf og fjör þennan dag
sem við vorum á ferðinni. Fólkið úr
nálægum sveitum var að selja afurð-
ir sínar, einkum matvörur eins og
vín, heimabakað brauð og sultur.
Þarna lék einnig skemmtilega sam-
sett hljómsveit þjóðlega tónlist sem
unun var að hlusta á. Litlar stelpur í
þjóðbúningum sungu og fullorðnar
konur og karlar léku undir á gítara
og önnur strengjahljóðfæri.“
Innfluttur sandur á ströndinni
Þorfinnur mælir einnig með
heimsókn til höfuðborgar eyjarinnar
sem er Santa Cruz.
„Þennan part úr degi sem við
dvöldum þarna upplifðum við þetta
sem nokkuð vinalega borg. Við
sáum ekki mikið af henni nema hvað
við gengum upp eina helstu versl-
unargötu borgrinnar sem er bæði
falleg og með ágætum verslunum
fyrir þá sem hafa gaman af því að
skoða í búðir.
Spölkorn norður af borginni er
svo stór og falleg sandströnd sem
fólk hefur gaman af að heimsækja.
Flestar strendurnar á Tenerife eru
með svörtum sandi en þessi er sem-
sagt með ljósum sandi sem var flutt-
ur inn frá Sahara.“
Úlfaldasafarí og kúrekagarður
Þegar hann er spurður hvort nóg
sé af afþreyingarmöguleikum fyrir
fjölskyldufólk kemur í ljós að það
eru einna helst dýragarðar og
vatnsrennibrautagarðar.
„Þarna eru tveir mjög fallegir og
passlega stórir dýragarðar. Annar
er Loropark, sem var upprunalega
páfagaukagarður. Þar hafa hins
vegar bæst við ýmsar fleiri dýrateg-
undir. Hinn dýragarðurinn heitir
Las Aguilas og er tiltölulega stutt
frá Playa de las Americas.
Þar eru til dæmis órangútanar,
hvít ljón og tígrisdýr og skallaernir.
Gróður er mikill í báðum görðum,
risavaxnir kaktusar og léttilega
hægt að eyða heilum degi í báðum
þessum görðum. Þá er hægt að
spóka sig í vatnsrennibrautagarði ef
fólk vill hvíla sig á sandinum á
ströndinni.
Á eyjunni er einnig hægt að
bregða sér í úlfaldasafarí eða heim-
sækja kúrekagarð svo dæmi séu
tekin. Þorfinnur segir að sér hafi
fundist tvær vikur passlega langur
tími til að dvelja á Tenerife.
„Sá tími dugar til að skoða það
helsta sem eyjan hefur upp á að
bjóða og nægur tími gefst einnig til
að njóta sólarinnar og strandlífsins.“
Ljósmynd/Þorfinnur Sigurgeirsson
Í bænum Garachico er skemmtilegur baðstaður í klettinum sem gengur út í sjó.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gunnar Schweizer fyrir utan húsið sitt í Diessen.
og eru íslenskir ferðamenn sérstak-
lega velkomnir.
Á hjólabát milli þorpa
Einnig er skemmtilegt að fara nið-
ur að vatninu sem bærinn stendur
við. Þar er einstaklega fallegt um að
litast og á sumrin fer fólk gjarnan í
sólbað og skemmtir sér við alls kyns
vatnaíþróttir.
Hægt er að sigla um vatnið með
stórum hjólabátum til annarra þorpa
en þeir koma á reglulegum tímum
nokkrum sinnum yfir daginn. Um
borð er hægt að fá sér ljúffengar
veitingar meðan dáðst er að fallegu
landslaginu en það tekur um klukku-
tíma að sigla yfir vatnið endilangt.
Tinverslunin og kaffihúsið
Herrenstrasse 17
Diessen am Ammersee
Bæjaralandi
Þýskalandi
Síminn er 0049 8807350.
Flestar strendurnar á Tenerife eru með svörtum sandi.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 2003 B 11
ferðalög