Morgunblaðið - 26.10.2003, Blaðsíða 1
Sunnudagur
26. október 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 9.196 Innlit 17.265 Flettingar 70.460 Heimild: Samræmd vefmæling
Bíldshöfða 16 - 110 Rvík - Sími 550 4600 - Fax 550 4610
Netfang: vinnueftirlit@ver.is - Heimasíða: www.vinnueftirlit.is
Vinnueftirlit ríkisins starfar samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustað nr. 46/1980. Markmið stofnunarinnar
er að stuðla að fækkun slysa, atvinnutengdra sjúkdóma og góðri
líðan starfsmanna á vinnustað.
Lögfræðingur
Laust er til umsóknar starf lögfræðings hjá
Vinnueftirlitinu. Starfshlutfall 100%.
Starfið felur í sér eftirfarandi:
Undirbúning reglna og reglugerða skv. lög-
um nr. 46/1980.
Ýmis lögfræðileg úrlausnarefni er varða
framkvæmd laga og reglna á verksviði
Vinnueftirlitsins.
Umfjöllun um EES reglur á undirbúnings-
stigi.
Samskipti við eftirlitsstofnun EFTA og fleiri
alþjóðastofnanir.
Æskilegt er að umsækjandi hafi sérmenntun
og/eða reynslu á sviði vinnuréttar og einnig
sérmenntun og/eða reynslu á sviði Evrópurétt-
ar. Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja
um starfið.
Laun eru samkvæmt launakerfi opinberra
starfsmanna. Umsóknum, ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf, skal skila til Vinnu-
eftirlitsins, Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík, fyrir
15. nóvember 2003. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur
verið tekin. Ekki eru notuð umsóknareyðublöð.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyjólfur
Sæmundsson, forstjóri, í síma 550 4600.
Lögfræðingur óskast
Jafnréttisstofa óskar að ráða til sín lögfræðing
í hálft starf frá og með næstu áramótum
eða skv. samkomulagi.
Í starfinu felst m.a. eftirlit með framkvæmd
laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og jafnan rétt
kvenna og karla og leiðbeiningar og ráðgjöf
til einstaklinga, stofnana og fyrirtækja.
Umsækjendur skulu hafa grundvallarþekkingu
á jafnréttismálum kvenna og karla, búa yfir
tölvufærni og góðri þekkingu á ensku og Norð-
urlandamáli. Starfið krefst lipurðar í samskipt-
um og sjálfstæðra vinnubragða.
Nánari upplýsingar veitir Margrét María
Sigurðardóttir á Jafnréttisstofu í síma 460 6200
eða 862 0414. Upplýsingar um Jafnréttisstofu
er einnig að finna á heimasíðu stofunnar:
www.jafnretti.is
Laun greiðast samkvæmt samningi fjármála-
ráðuneytis og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist til Jafnréttisstofu,
Hvannavöllum 14, 600, Akureyri.
Umsóknarfrestur er til 17. nóvember nk.
Öllum umsóknum verður svarað.