Morgunblaðið - 10.11.2003, Page 2
AP
Baráttumaðurinn mikli Hermann Hreiðarsson og samherjar hans hjá Charlton hafa staðið sig
mjög vel að udanförnu – fagna marki frá Jonatan Johansson í sigurleiknum á Fulham, 3:1.
ÍÞRÓTTIR
2 B MÁNUDAGUR 10. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DALLAS gengur allt í haginn á
fyrstu vikum NBA-deildarinnar.
Liðið heimsótti meistara San Ant-
onio Spurs um helgina og gerði
sér lítið fyrir og lagði þá, 78:81.
Jón Arnór Stefánsson var ekki í
leikmannahópi Dallas frekar en í
þeim leikjum sem liðið hefur leikið
það sem af er vetri. Antawn Jam-
ison kom sterkur af bekknum, lék
í 32 mínútur og skoraði 20 stig,
var stigahæstur í liði Dallas. Steve
Nash og Dirk Nowitzki gerðu 15
stig hvor um sig. Nowitzki tók 11
fráköst en Jamison níu.
Í gærkvöldi fór Vince Carter á
kostum í liði Toronto Raptors sem
tók á móti Denver Nuggets. Cart-
er gerði 34 stig, tók 10 fráköst og
átti auk þess sex stoðsendingar.
Framganga hans átti stærstan
þátt í 89:76 sigri Toronto.
Annar leikmaður sem náði sér
virkilega vel á strik um helgina er
Baron Davis hjá Hornets. Lið hans
tapaði 109:106 fyrir Chicago en
Davis gerði 35 stig, átti 13 stoð-
sendingar og stal fimm sinnum
knettinum af heimamönnum. Hjá
Chicago var Jalen Rose stigahæst-
ur með 34 stig, en hann hóf ekki
leikinn og spilaði í 30 mínútur.
Það var mikil barátta þegar
New York Knicks tók á móti
Sakramento Kings en heimamenn
höfðu betur, 114:111, við mikinn
fögnuð 20.000 áhorfenda í
Madison Square Garden. Allan
Houston var í miklu stuði í liði
heimamanna, gerði 39 stig en hin-
um megin var Peja Stojakovic
stigahæstur með 36 stig.
Dallas lagði meistara
San Antonio Spurs
ASHLEY Cole, bakvörður Arsen-
al og enska landsliðsins, upplýsti um
helgina að einn leikmanna Tyrkja
hefði hrækt í andlit sitt þegar þeir
gengu af velli í landsleik Englands
og Tyrklands í Istanbúl í síðasta
mánuði. Mikill hasar varð á milli
leikmanna liðanna þegar þeir gengu
til búningsherbergja.
COLE sagði við News of the World
í gær að leikmaðurinn hefði gengið
alveg upp að sér og hrækt framan í
sig. „Ég reiddist, og láir einhver mér
það? Þetta er mesta lágkúra sem til
er, og þetta var upphafið að látun-
um,“ sagði Cole en á sjónvarpsupp-
tökum sást til hans og Emile Heskey
með hnefa á lofti í miðri þvögunni.
BRADFORD rak á laugardaginn
Nicky Law, knattspyrnustjóra, en
félagið er í fallbaráttu í 1. deildinni.
Law var látinn fara efitr 1:1 jafntefli
við Walsall á laugardaginn en liðið
hefur nú leikið 11 leiki án þess að
sigra. Ekki er talið ólíklegt að Stuart
McCall taki við liðinu, en hann lék
með Bradford í eina tíð en er nú hjá
Sheffield United.
LAW fékk fréttirnar af brott-
rekstri sínum á heimasíðu Bradford.
Hann var nýkominn af blaðamanna-
fundi eftir leik þar sem hann sagði að
baráttan héldi áfram, þegar fregnir
bárust af því að á heimasíðu félags-
ins væri komin tilkynning um að þol-
inmæði forráðamanna væri á þrotum
og Law hefði verið sagt upp störfum.
MARK Viduka lék ekki með Leeds
í Portsmouth en hann sat heima á
meðan félagar hans héldu til hafn-
arborgarinnar við Ermarsund. Vid-
uka lenti upp á kant við Peter Reid,
knattspyrnustjóra, í vikunni og var
ekki valinn í hópinn. Óvíst er með
framtíð Ástralans hjá félaginu.
KEVIN Stuhr-Ellegaard, tvítugur
danskur markvörður, lék sinn fyrsta
deildaleik með Manchester City í
gær. Hann var settur í liðið á síðustu
stundu þegar David Seaman stóðst
ekki meiðslapróf vegna tognunar í
læri. Stuhr-Ellegaard byrjaði ekki
vel því City steinlá óvænt heima
gegn Leicester, 0:3.
MANCHESTER City hefði komist
í fjórða sæti deildarinnar með sigri
og Kevin Keegan, knattspyrnustjóri
félagsins, var sleginn yfir frammi-
stöðu sinna manna. „Það vantaði alla
hugsun, vinnu og hungur, við vorum
ekki með og fengum það sem við átt-
um skilið,“ sagði Keegan.
ROBBIE Savage, miðjumaður
Birmingham, skorar á sína menn að
festa kaup á finnska sóknarmannin-
um Michael Forssell. Sá finnski er í
láni frá Chelsea til áramóta og skor-
aði sitt fimmta mark fyrir Birming-
ham þegar liðið gerði jafntefli, 1.1,
við Wolves á laugardaginn.
FÓLK
Góð byrjun
hjá Adams
TONY Adams, fyrirliði Ars-
enal og enska landsliðsins
um árabil, hóf feril sinn sem
knattspyrnustjóri með
glæsibrag á laugardaginn.
Hið nýja lið hans, Wycombe
Wanderers, sem situr á
botni 2. deildar, vann þá eitt
af efstu liðum deildarinnar,
Swindon, 4:1, í 1. umferð
ensku bikarkeppninnar.
Adams ætlaði að fylgjast
rólegur með leiknum ofan
úr stúku og láta aðstoð-
armann sinn, John Gorman,
um að stjórna liðinu. En
spennan varð of mikil og
hann var mættur við hlið
Gormans þegar síðari hálf-
leikurinn hófst.
Accrington Stanley, forn-
frægt félag sem varð enskur
bikarmeistari árið 1922 en
hætti í deildakeppninni og
var lagt niður fyrir 40 árum,
er einnig komið í 2. umferð
bikarsins. Accrington, sem
var endurreist nokkru síðar
og hefur síðustu árin klifrað
upp utandeildirnar í Eng-
landi, vann Huddersfield,
1:0, í gær og mætir Bour-
nemouth í 2. umferð.
STUTTGART hélt áfram sigur-
göngu sinni í þýsku 1. deildinni í
knattspyrnu á laugardaginn og vann
þá Frankfurt, 2:0, á útivelli. Ung-
verjinn Imre Szabics skoraði í fyrri
hálfleik og þýski landsliðsmiðherjinn
Kevin Kuranyi í þeim síðari. Stutt-
gart er taplaust eftir tólf leiki, hefur
ekki fengið á sig nema tvö mörk, og
er með eins stigs forystu á Leverkus-
en sem vann Schalke, 3:1. Bremen,
sem burstaði Hannover 5:1 á útivelli,
er í þriðja sætinu, stigi þar á eftir.
Stuttgart hefur nú unnið sjö leiki í
röð, fjóra í 1. deildinni og þrjá í
Meistaradeild Evrópu, og ungu
strákarnir í liðinu, Kuranyi, Andreas
Hinkel og Hvít-Rússinn Aliaksandr
Hleb, hafa allir farið á kostum og eru
orðnir afar eftirsóttir af stórliðum
Evrópu. Útsendarar þeirra gera sér
tíðförult á Gottlieb-Daimler-leik-
vanginn í Stuttgart þessar vikurnar.
Bayern München er aðeins að
hressast og vann Dortmund, 4:1, í
stórleik helgarinnar á Ólympíuleik-
vanginum í München í gær. Bayern
komst þar með upp fyrir Dortmund
og í fjórða sætið, sex stigum á eftir
Stuttgart. Leikmenn Bayern voru
manni fleiri eftir að Markus
Brzenska hjá Dortmund fékk rauða
spjaldið í sínum fyrsta deildaleik.
„Við vorum komnir í öngstræti
með okkar leik en nú geri ég ráð fyrir
að við séum búnir að snúa blaðinu
við,“ sagði Ottmar Hitzfeld, þjálfari
Bayern. Bochum er farið að blanda
sér í toppbaráttuna, er komið í sjötta
sætið og vann nú Köln mjög sann-
færandi, 4:0. Þórður Guðjónsson sat
á varamannabekk Bochum allan tím-
ann en Bjarni Guðjónsson var ekki í
leikmannahópnum.
Strákarnir
í Stuttgart
sigra enn DAMIEN Duff, félagi Eiðs SmáraGuðjohnsen hjá Chelsea, er ekki ásama máli og knattspyrnustjórinn,Claudio Ranieri, sem vill ekki gera
mikið úr möguleikum liðsins á að
vinna enska meistaratitilinn í vetur.
„Við erum fullir sjálfstrausts og
trúum allir að við getum farið alla
leið,“ sagði írski kantmaðurinn, sem
hefur farið á kostum með Chelsea í
vetur.
„Í dag tókst okkur að halda leik
okkar á sama plani og þegar við unn-
um Lazio. Allir lögðu hart að sér og
aldrei þessu vant vorum við með
sama byrjunarliðið tvisvar í röð –
ótrúlegt. En við spiluðum vel og
þetta var afar verðskuldað,“ sagði
Duff.
Miðjumaðurinn Frank Lampard,
sem skoraði úr vítaspyrnu gegn
Newcastle í gær, telur að Chelsea
muni vera með í baráttunni um tit-
ilinn allt til loka. „Sumir hafa eflaust
búist við því að við slökuðum á eftir
sigurinn á Ítalíu en við spiluðum vel í
dag og sönnuðum að við erum komn-
ir til að vera í toppbaráttunni. Stjór-
inn sagði við okkur fyrir leikinn:
„Farið og gerið þetta aftur.“ Núna
getum við sagt með fullri vissu að við
trúum virkilega á að við getum farið
alla leið í vetur. Meistaratitillinn er
okkar markmið,“ sagði Lampard.
Bobby Robson, hinn aldni knatt-
spyrnustjóri Newcastle, var ekki
ánægður með þá ákvörðun dómar-
ans að reka Andy O’Brien varnar-
mann af velli undir lok fyrri hálf-
leiks. Dæmd var vítaspyrna sem
Lampard skoraði úr, 3:0, og þar með
voru úrslitin endanlega ráðin.
„Við stóðum okkur vel í seinni
hálfleiknum, manni færri, en enduð-
um leikinn illa. Ég veit ekki hvar
varnarmenn mínir voru þegar Guð-
johnsen skoraði fimmta markið.
Kannski voru þeir sestir við hliðina á
mér á bekknum, en Guðjohnsen fékk
nægan tíma til að skalla boltann í
markið. Við mættum hingað fullir
sjálfstrausts eftir góðan Evrópusig-
ur í Basel en þeir völtuðu yfir okk-
ur,“ sagði Robson.
Chelsea stefni
á meistaratitil