Morgunblaðið - 16.11.2003, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2003 B 9
Er þetta ekki eitt-
hvað fyrir þig?
Vegna aukinna verkefna leitar Fagkynning ehf. að
starfsfólki í störf við vörukynningar í verslunum.
Viðkomandi þarf að vera eldri en 20 ára, ófeim-
in(n), með aðlaðandi framkomu, söluhæfileika og
reiðubúin(n) að veita framúrskarandi þjónustu.
Í boði er fjölbreytt og skemmtilegt starf, góð
starfsþjálfun, sveigjanlegur vinnutími og góðir
tekjumöguleikar.
Áhugasamir hafi samband við Jóhönnu í síma
588 0779 á virkum dögum á milli kl 9:00 og 11:00,
eða sendið tölvupóst á: johanna@fagkynning.is .
Golfkennarar
Golfklúbbur Kópav. og Garðabæjar aug-
lýsir eftir golfkennara, einum eða fleirum
Starfssvið: Golfkennsla barna og unglinga,
annarra félagsmanna auk fræðslustarfa og
mótun starfs innan íþróttasviðs.
Núverandi aðstæður til æfinga og golfiðkunar
hjá GKG eru góðar. Innan tveggja til þriggja
ára verður stækkun vallarins úr 18 holum í 27
holur tekin í notkun . Þá má ætla að félögum
geti enn fjölgað um tvö til þrjú hundruð.
Höggæfingasvæðið sem er fyrir um 30 kylfinga
er að hluta til undir þaki og með séraðstöðu
fyrir kennara. Púttflöt, tvær flatir til vippæfinga
og lítill par 3 holu völlur er einnig á svæðinu.
Félagsmenn í GKG eru nú um 1.150 og þar af
um 250 börn og unglingar.
Umsóknum skulu fylgja nákvæmar upplýsingar
um menntun og fyrri störf. Umsóknarfrestur
er til 24. nóvember.
Umsóknir sendist á Golfklúbb Kópavogs og
Garðabæjar, pósthólf 214, 212 Garðabæ eða
með tölvupósti gkg@gkg. Nánari upplýsingar
veitir Hákon Sigurðsson framkvæmdastj. GKG,
sími 897 7272.
Við viljum þig —
ef þér líður vel að tala í síma!
Við hjá PSN-samskiptum ehf. sjáum um skipu-
lag og framkvæmd úthringinga vegna sölu-
og kynningaherferða og annarra markaðsátaka
fyrir fyrirtæki og félagasamtök.
Við sækjumst eftir skemmtilegum og dug-
legum þjónustufulltrúum í úthringingar:
Eldri en 24 ára.
Mikil þjónustulund.
Reynsla af sölumennsku ekki skilyrði.
Getur unnið undir álagi og verið skipulagður.
Dag-, kvöld- og helgarvinna.
Grunnskólinn í Ólafsvík
„Viska - Virðing - Víðsýni"
Stærðfræðikennari
Laus er til umsóknar staða stærðfræðikennara
8.—10. bekkjar. Umsóknir berist undirrituðum
sem jafnframt veitir frekari upplýsingar. Um-
sóknarfrestur til 21. nóvember nk. Sveinn Þór
Elinbergsson, skólastjóri, s. 436 1150,
436 1251, 895 2651. Netfang: sveinn@olafsvik
Smárabrauð
Dalshrauni 13, Hafnarfirði
auglýsir eftir starfsmanni í smurbrauð og
afgreiðslu.
Vinnutími frá 6.30 til 13.00 alla virka daga og
aðra hvora helgi. Aldurstakmark 25 ára og
eldri. Uppl. gefur Ingibergur í síma 863 5950.
Hestaþjálfun/
leiðsögn/hótelvinna
Stúlka/piltur undir 18 ára óskast, ár í senn, á
stórt hótel í Danmörku með 70 íslensk hross.
Starfið felur í sér:
Þjálfun unghrossa, ferðir með gesti, eldhús-
vinnu, þrif, útivinnu.
Húsnæði á staðnum.
Upplýsingar í síma 0045 22343727 íslenskur,
0045 747555122, fax 0045 74755922.
www.kommandoergaarden.dk
Öflugir liðsmenn
óskast
Við leitum að öflugum liðsmönnum til að taka
þátt í krefjandi verkefnum sem framundan eru.
Lögfræðingur
Starf löglærðs fulltrúa til að sinna almennum
innheimtustörfum á lögfræðistigi, lögfræðiráðgjöf
til viðskiptavina í innheimtumálum auk almennra
fulltrúastarfa. Leitum að metnaðarfullum lög-
fræðingi í spennandi og krefjandi starf. Lögð er
áhersla á samskiptahæfileika, öguð vinnubrögð og
sjálfstæði í starfi.
Innheimtufulltrúi
Skrifstofustörf tengd meðferð innheimtumála.
Afgreiðsla og upplýsingagjöf til greiðenda og starfs-
manna í innheimtudeildum viðskiptavina, eftirlit
og hringingar í greiðendur auk almennra skrifstofu-
starfa. Við leitum að nákvæmum og talnaglöggum
einstaklingi með góða tölvuþekkingu. Lögð er
áhersla á þjónustulund og hæfni í mannlegum
samskiptum.
AM Kredit er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður
fjölbreyttar innheimtu-, greiðslu-, og fjármögnunarlausnir.
AM Praxis veitir fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum
alhliða lögfræðilega ráðgjöf og þjónustu, sem byggir á
víðtækri þekkingu og reynslu. Fyrirtækin leggja áherslu á
að koma á móts við þarfir viðskiptavina með persónulegri,
sveigjanlegri og árangursríkri þjónustu. Skrifstofur AM Kredit
og AM Praxis eru í Sigtúni 42 í Reykjavík.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að skila umsóknum
fyrir 21. nóvember í tölvupósti á amkredit@amkredit.is eða
á skrifstofu AM Kredit ehf., Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Staða hjúkrunardeildar-
stjóra við dvalar- og
hjúkrunarheimilið Hlíð
á Akureyri
Laust er til umsóknar starf hjúkrunardeildar-
stjóra á 22ja manna hjúkrunardeild í Hlíð.
Um er að ræða fullt starf sem veitist frá 1. febrúar 2004.
Æskilegt er að viðkomandi hafi góða starfs- og stjórnun-
arreynslu auk þekkingu á sviði öldrunarhjúkrunar.
Hjúkrunardeildarstjóri ber ábyrgð á hjúkrun, daglegum
rekstri, áætlanagerð og starfsmannahaldi. Sér um þróun
og uppbyggingu deildarinnar. Áhersla er lögð á frum-
kvæði, jákvæðni og samskiptahæfileika.
Akureyrarbær rekur umfangsmikla öldrunarþjónustu bæði
innan og utan stofnana. Stofnanirnar eru dvalar- og
hjúkrunarheimilið Hlíð þar sem eru 100 hjúkrunarrými og
24 dvalarrými, heimili aldraðra í Kjarnalundi þar sem eru
48 dvalarrými og sambýli aldraðra við Bakkahlíð en þar
eru 8 hjúkrunarrými. Dagþjónusta er starfrækt í tengslum
við dvalarheimilið Hlíð og eru þar 12 rými. Fjöldi starfs-
manna stofnananna er um 220.
Upplýsingar um starfið veita Helga Tryggvadóttir hjúkr-
unarforstjóri og Díana Helgadóttir hjúkrunardeildarstjóri í
Hlíð, Austurbyggð 17, Akureyri, eða í síma 462 7930.
Laun eru skv. gildandi kjarasamningum viðkomandi stétt-
arfélags.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Hlíðar og í upplýs-
ingaanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, einnig á
heimasíðu bæjarins: www.akureyri.is
Umsóknir skulu berast á dvalar- og hjúkrunarheimilið
Hlíð, Austurbyggð 17, 600 Akureyri
fyrir 3. desember 2003.
Akureyrarbær • Geislagötu 9 • 600 Akureyri
Sími 460 1000 • Fax 460 1001 • www.akureyri.is
Starfsfólk óskast
Vegna mikilla anna þurfum við að bæta við
starfsfólki nú þegar og fram til jóla.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í
Upplýsingabás Garðheima.”
„Au pair“ — Danmörk
Við óskum eftir ungri manneskju til að hjálpa
við hundahótelið okkar og hestana. Þú hefur
gaman af börnum og hefur ekkert á móti því
að hjálpa til við heimilishaldið. Sem persóna
ert þú ábyrgðarfull, sjálfstæð og lífsglöð. Það
er kostur ef þú hefur bílpróf. Við bjóðum fæði
og húsnæði ásamt 2.500 dkr. í vasapening á
mánuði.
Sendu okkur nokkrar línur um þig og áhugamál
þín á: hansennens@hundecenter.dk
eða hringdu í okkur í síma: (+45) 58189007,
Kuno og Dorthe Hansen, Svendbjergvej 138,
4230 Skælskør, Danmark.
Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins
óskar eftir að ráða
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins óskar eftir
að ráða rannsóknarmann á rannsóknarsviði.
Starfið felst m.a. í undirbúningi sýna og ýmsum
efnagreiningum.
Menntun og reynsla:
BS próf í raungreinum eða sambærileg menntun
er æskileg. Reynsla af störfum á rannsóknarstofu
er kostur.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
opinberra starfsmanna.
Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að
öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfs-
manna ríkisins, nr. 70/1996.
Upplýsingar veitir Helga Gunnlaugsdóttir í
síma 530 8600.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf óskast sendar
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Skúlagötu
4, 101 Reykjavík, eða með tölvupósti til
helgag@rf.is fyrir 1. desember 2003.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.