Morgunblaðið - 17.11.2003, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2003 B 3
LANDSLIÐSKAPPINN Sigfús Sig-
urðsson hefur framlengt samning
sinn við þýska stórliðið Magde-
burg til ársins 2005.
Sigfús gekk í raðir þýska liðsins
frá Val fyrir einu og hálfu ári og
er þegar orðinn einn af lyk-
ilmönnum liðsins, í vörn jafnt sem
sókn. Samningur hans við félagið,
sem Alfreð Gíslason hefur þjálfað
í nærri fimm ár með framúrskar-
andi árangri, átti að renna út í
vor en ákveðið var að lengja hann
um eitt ár.
Sigfús er 28 ára gamall og hef-
ur leikið á áttunda tug landsleikja
fyrir Íslands hönd.
Sigfús fram-
lengdi við
Magdeburg
Alfreð sagðist ekki hafa örvæntþegar Haukar náðu forystu
um tíma. „Við höfum alltaf verið
að vinna leiki þrátt
fyrir að vera undir
eftir 50 mínútur en
við vorum að spila
svo illa að ég átti
alveg eins von á að það gerðist
ekki hér í kvöld. Það kemur lítið
úr hægra horninu en Kretzmar á
góðan leik. Okkur vantaði tvo leik-
menn, sem spila venjulega fyrir
miðri vörn svo að við vorum með
neyðarlausn með tvo unga í stað-
inn og það er ekki hægt að búast
við of miklu af þeim en þetta var
langlélegasti varnarleikur okkar í
keppninni,“ bætti Alfreð við en
stefnir ótrauður á sigur í riðlinum.
„Við ætlum að vinna í riðli okkar
og staðan er óbreytt. Barcelona
vann í Skopje og þá mun innbyrðis
leikur okkar við Barcelona líklega
skera úr um hvort liðið er í efsta
sæti. Það er hörð barátta fram-
undan, við ætlum að vinna Barce-
lona í Barcelona til að ná efsta
sætinu en verðum að spila betri
vörn til þess.“
„Ég held að það sé enginn vafi á
að þetta var besti leikur okkar í
keppninni og verulega sárt að
komast ekki með annað stigið úr
honum,“ sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari Hauka, eftir leikinn en
hans menn náðu forskoti um tíma
eftir fjögur mörk í röð. „Ég hélt að
þetta væri að koma hjá okkur þeg-
ar við vorum yfir en þá klikkum
við á víti og svo var jafnt þegar sjö
mínútur voru eftir. Við ráðum
mjög vel við þá þegar við náum að
stilla upp vörninni en Kretzmar
gerir afdrifarík mörk úr horninu
og Sigfús af línunni, sem gerði
gæfumuninn. Við hefðum þurft að
taka eitthvað af þeim boltum. Við
fáum ekki nóga góða markvörslu í
síðari hálfleik en það var líka erfitt
fyrir Birki, hann stendur í mark-
inu alla leikina og mikið álag á
honum svo það er ekki við hann að
sakast. Við erum ekki með nógu
mikla breidd en börðumst ótrúlega
vel og spiluðum frábæran hand-
bolta. Nú gerði allt liðið mjög vel
enda þurftum við á því að halda til
að eiga möguleika. Það var mikið
af mörkum en svona er handbolt-
inn hraður í dag, eins og við sjáum
í öðrum leikjum,“ bætti Viggó við
og ætlar sér enn þriðja sætið.
„Mér fannst við óheppnir og dóm-
gæslan var með Magdeburg síð-
ustu tíu mínúturnar eins og venju-
lega þegar stórlið er að keppa.
Dómararnir tóku af okkur mark í
hraðaupphlaupi og það voru nokk-
ur vafaatriði, sem féllu þeim
greinilega í skaut þó að dómararn-
ir hafi verði góðir í fimmtíu mín-
útur. Við getum samt verið ánægð-
ir með margt í þessum leikjum í
riðlinum. Við stefndum á þriðja
sætið og grætilegt að ná ekki einu
stigi hér en þá verðum við bara að
gera það í Skopje.“
Morgunblaðið/ÞÖK
Sigfúsi Sigurðssyni var ekki sýnd nein gestrisni þegar hann mætti með félögum sínum í Magdeburg á Ásvelli í Hafnarfirði í gær. Hér
taka tveir leikmenn Hauka, Robertas Pauzolis og Vignir Svavarsson, fast á línumanninum sterka og veitir ekki af.
Ég er engan
veginn sáttur
„ÉG er engan veginn sáttur við þennan leik,“ sagði Alfreð Gíslason,
þjálfari Magdeburg, eftir leikinn. „Varnarleikurinn var skelfilegur,
okkar lélegasti hingað til og markvarslan einnig í kjölfarið, það er
ekki hægt að kvarta mikið yfir 37 mörkum í sókninni en við vorum
samt að ljúka sóknum okkar illa, þar skipti miklu að Birkir Ívar átti
frábæran leik í marki Hauka.“
Stefán
Stefánsson
skrifar
GUNNAR Berg Viktorsson skor-
aði 5 mörk fyrir Wetzlar sem sigraði
Pfullingen, 22:19, í þýsku 1. deildinni
í handknattleik um helgina. Róbert
Sighvatsson lék ekki með Wetzlar
vegna meiðsla.
JALIESKY Garcia skoraði 6 mörk
fyrir Göppingen og var markahæst-
ur í liði þeirra sem tapaði fyrir
Gummersbach á heimavelli, 33:27.
Göppingen er í neðsta sæti þýsku 1.
deildarinnar.
RÚNAR Sigtrygsson skoraði 2
mörk og Einar Örn Jónsson 1 þegar
lið þeirra, Wallau Massenheim, lagði
Stralsunder, 29:20.
GYLFI Gylfason skoraði 4 mörk
fyrir Wilhelmshavener og Kronau/
Östringen, lið Guðmundar Hrafn-
kelssonar, en liðin skildu jöfn, 26:26.
Guðmundur lék í 38 mínútur í marki
Kronau/Östringen og varði 9 skot.
ALEXANDERS Peterson lék ekki
með Düsseldorf vegna meiðsla þegar
liðið vann HSG Konstanz, 20:19, á
útivelli í suðurhluta þýsku 2. deild-
arinnar. Düsseldorf er í efsta sæti
deildarinnar með 20 stig að loknum
11 leikjum.
HRAFNHILDUR Skúladóttir
skoraði 7 mörk fyrir Tvis Holstebro í
sigri liðsins á Kollund/Lind, 27:21, í
1. deildinni í Danmörku. Inga Fríða
Tryggvadóttir skoraði 6 mörk og
Hanna G. Stefánsdóttir 3. Helga
Torfadóttir stóð í marki Tvis Holste-
bro og varði mjög vel en Kristín Guð-
mundsdóttir, fimmti Íslendingurinn í
liðinu, gat ekki leikið vegna meiðsla.
DAGNÝ Skúladóttir, yngri systir
Hrafnhildar, skoraði 4 mörk fyrir
Lutzellinden þegar liðið gerði jafn-
tefli, 28:28, við Oldenburg í þýsku úr-
valsdeildinni.
ARNAR Geirsson skoraði 2 af
mörkum Gelnhausen sem tapaði fyrir
Bayer Dormagen í þýsku 2. deildinni í
handknattleik í gær.
PAVEL Ermolinskij skoraði 17
stig, tók 11 fráköst og gaf 5 stoðsend-
ingar í leik með unglingaliði franska
liðsins Vichy gegn Pau-Orthez. Pavel
lék einnig með aðalliði Vichy gegn
Pau-Orthez og skoraði eitt stig í þeim
leik.
ÓÐINN Ásgeirsson lék í 12 mín-
útur með liði sínu Ulriken Eagles í
norsku úrvalsdeildinni á föstudag er
liðið vann Tromsö á útivelli 87:79. Óð-
inn skoraði alls 9 stig, tók 3 fráköst
og gaf 3 stoðsendingar. Ulriken er í
þriðja sæti deildarinnar með 10 stig
að loknum 7 umferðum.
HENNING Berg fyrirliði Norð-
manna missir af síðari leiknum á móti
Spánverjum í umspili Evrópumóts
landsliða á miðvikudaginn. Berg
nældi sér í gult spjald og er þar með
kominn í leikbann. Klaus Lunde-
kvam hjá Southampton mun taka við
fyrirliðabandinu í stað Bergs.
FÓLK