Vísir - 22.10.1980, Blaðsíða 4

Vísir - 22.10.1980, Blaðsíða 4
vtsm Miðvikudagur 22. október 1980. HUGMYNDAÞJÚF- AR LlKJA EFTIR TÍSKUVðRUNUM Það er vitað, að úti i hinum stóra heimi leynast ýmsir óprúttnir náungar, sem skirrast ekki við að stela hugmyndum annarra og gera sér mat úr. Al- ræmdir eru snældu- og skifuræningjarnir, sem hella inn á pop-markaðinn eftirtökum sinum af nýjustu popplögunum og selja á hálfvirði, enda greiða þeir hvorki útgáfurétthafa né höfundi. Hitter minna kunnugt, að úr verksmiðjum á ítaliu, Suður-Kóreu, Taiwan og Suður-Amerikulöndum ýmsum flæða tiskuvörur velmerktar með nöfn- um tiskukónganna Christian Dior, Hermes og Lanvin og jafnvel með ,,made in France” i einhverju horninu — nauðalikar frumsmiðinni, og eru þó ekki annað en ólöglegar eftirlikingar og nafnstuldur. Milljónahagsmunír Franskir tiskuírömuðir telja sig tapa milljónum franska ár- lega á þessum hugmyndaþjófum, sem likja eftir sköpunarverkum þeirra og selja á svarta markaðn- um fyrir brot af þvi verði, sem ekta varan kostar. I Frakklandi er höíundarréttur tiskunnar jafn lögverndaður og einkaleyfi, og sérstök stofnun, sem sett var á laggirnar árið 1872, hefur eftirlit með einkaleyfum i iðnaði og listiðnaði. 1 skrifstofu hennar i Rue de la Faisanderie i hinu iburðarmikla 16. -hverfi Parisar situr Alain Thriérre, for- stöðumaður og glimir við vanda- málið, sem tiskuræningjarnir valda. Töskur, ilmvötn og vín Það eru fyrst og fremst ýmsir fylgihlutir meö tiskufatnaði, sem þarna er um aö ræða, og ýmsar tiskuvörur yfirleitt. Ilmvötn og vin breytast litið frá ári til árs, en tiskuhúsin skipta svo ört um tiskusnið, að þau eru nánast kom- in aftur úr tisku, þegar iönnjósn- arar geta skellt ódýrum eftirlik- ingum inn á markaðinn. t einkaleyfisstofnuninni i Rue de la Faisanderie er litið safn með frumútgáfum og i sýningar- kössum og við hliðina á sýnis- hornum eftirlikinga, sem hald hefur verið lagt á. CttT r' ■K . . r KffTl ' 11 f /EiJ pjiS JfS MiŒ i'X{4 1 l* 1 ? fx/~| f 1 Umvötn af frægustu tegundum verða lika fyrir barðinu á nafnþjófum, en þar er fyrst og fremst hermt eftir umbúöum, meðan innihaldið reynist kannski gefa lykt, sem minnir meir á fjóshauginn. Sólgleraugu velmerkt Dior eru eitt af þvl, sem hugmyndaþjófar sjá ekki I friði. 1 ir- . ■ t 1 I r 1 fg K- p . 1 ■ •■ i j K Jk % A «4 1 fki 1 Þar má sjá ferðatösku með hinu virta Louis Vuittonvöru- merki, en vinnan á gripnum stendur langt að baki hinum ekta varningi. Þar er eftirliking, nær óþekkjanleg frá flöskunum, sem geyma hið fræga ilmvatn Chanel, númer fimm, en lyktin þykir hins vegar minna meir á fjósið. Þar er einnig nafnstolin út- gáfa af kampavini Moet og Brut i nákvæmlega eins flöskum og ekki vantar gylltan glyspappirinn yfir tappann, en bragðið af innihald- inu þykir likara hárvatni með gosi i. FiölDióðasamstarf falsara Yfirvöld Suður-Kóreu hafa tek- ið upp samvinnu við frönsk yfir- völd, létu til skarar skriða gegn eins konar vasaútgáfu af Avenue Montaigne tiskuhverfinu, sem finna mátti i Seoul. Fjölda versl- ana þar var lokað, en þær höfðu á boðstólum handtöskur, sólgler- augu, belti og slæður — allt i allt um tiu þúsund hluti, sem fram- leiddir höfðu verið i Kóreu eða Taiwan, en voru vandlega merkt- ir Dior, Hermes og Channel. Það er vitað, að tiskuþjófarnir beita hinni slungnustu njósna- tækni til að nálgast tiskukóngana i eftirlikingum sinum. I mörgum tilvikum reyndust aðilar aö einhverri eftirlikingunni dreifðir i kannski þrem löndum. Eitt útvegaði fáeina dropa af hinni nauðsynlegu oliu, eða gervi- efni i blönduna, annað land fram- leiddi flöskurnar og það þriðja annaðist pökkunina. Tíl S-Ameríku og Afríku Fyrr á þessu ári braust italska lögreglan fyrir ábendingu frá Frökkum inn i litla verksmiðju inni i Milanó miöri. Kom i ljós, að þar var unnið að framleiðslu 3.500 hluta daglega. Þess á meðal voru Dior og Vuitton-handtöskur, Cartier-armbandsúr, auk mittis- óla með upphafsstöfum á beltis- sylgjum og þriggja km langs stranga af segldúk i handtöskur, sem ofinn hafði verið að fyrir- mynd Diors. — 40% þessa varn- ings var dreift á markað i ítaliu. 60% voru flutt til Suður-Ameriku, V-Þýskalands, Nigeriu, Zambiu, Austurlanda fjær og Frakklands jafnvel. Þessum nafnþjófum er að þvi leyti til hægara um vik, en snældu- og skifuræningjunum, að meðan höfundur fær greiðslu i hvert sinn, sem vinsælt dægurlag hans er leikið opinberlega erlend- is, nýtur tiskan ekki sliks höfundarréttar. væg viðurlög Stofnunin i Rue de la Faisanderie vinnur að þvi að vekja yfirvöld um heim allan til umhugsunar um þessi atriði til að vernda rétt tiskuhöfunda. — Thrierre forstöðumaður stofn- unarinnar segir, að hvert hafi sin eigin lög i þessum efnum, en algengt sé, að dómstólarnir túlki þau nokkuð rýmilega. Nýlega var einn svona falsari dæmdur i Taiwan i nokkurra mánaða fangelsi, en með sektar- greiðslum var hann kominn aftur til iðju sinnar eftir tveggja daga setu i fangelsinu. Nágrannlnn faðir elns at gíslunum Forsætisráðherra lran, Mohammed Aii Ra jai sem er um þcssar mundir staddur I Banda- rikjunum þar sem hann situr þing Sameinuðu þjóðanna er nágranni föður eins af bandarfsku gfsiun- um f sendiráði Bandarikjamanna i Teheran á meðan hann gistir New York. Moorhead Kennedy scm er faö- ir eins gisianna og býr rétt hjá þar sem forsætisráðherra íran gistir sagöist ekki hafa hugsaö sér að tala viö forsætisráöherr- ann eða gera tilraun til þess. Dómararnir gengu ut Ungur vletna mskur pianoieikari varösigurvegari i 10. „Chopin pianokeppninni’’ sem fram fór i Póllandi á dögunum, en það sem setti mestan svip á keppnina var aö tveir dómarar f keppninni gengu út úr hljóm- leikasalnum i miðri keppninni. Þaö voru þau Martha Argerch frá Argentinu og Mauis Kentner Breti af ungverskum ættum. Þau voru að mótmæla dómi félaga sinna I dómstólnum. Hinn 22ára gamli sigurvegari I keppninni sem heitir Thai Son Dang og er frá Hanoi fékk 30 þús- unddoilara i verðlaun ogauk þess fullvissu um frægö I framtiðinni. óánægðir Hjólin eru nú farin aö snúast á nýjan leik hjá Fiat-verksmiöjun- um itöisku eftir fimm vikna verkfall sem hefur staðið þar yfir að undanfömu. Greinilegt er þó að ekki eru all- ir ánægðir með að verkfallinu skuli vera aö ljúka. Einhver sprengdi öfluga sprengju fyrir ut- an sýningarflugga FIAT i Torino og i sömu borg kom einnig til mótmæla fyrir utan verksmiðju- byggingarnar eftir aö vinna hófst að nýju og var talið að þar væru aö verki einhverjir sem vildu vera i lengra verkfalli og ætla sér það. r I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I L. Sklðaáhugamenn uröu fegnlr Skiöaáhugamenn i Sviss uröu himiniifandi á dögunum er mikl- um snjó kyngdi niöur I Olpunum en þarféll 80 cm jafnfallinn snjór um siðustu helgi. Þessisnjórféll tveimur mánuð- um fyrr en venja er tii á þessum slóðum, og skiðaáhugamennirnir tóku þegar að flykkjast til fjalla. Slónvarpsleysi hjá kinverjum Það verður ckki hægt að segja um Kfnverja aö þeir séu iniklir „sjónvarpsgláparar” þvi þar I landi eru aöeins til um 4 milljónir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.