Vísir - 22.10.1980, Blaðsíða 11

Vísir - 22.10.1980, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 22. október 198». vísm n - segir Pétur Már „Sambæri- legur áfangi fyrir okkur og opnun Múlaveg- arins var” Jónsson. bæjar- stjöri í ólafsflrði „Ég vona að Ólafsfirðingar kunni að meta þá samgöngubót sem áætlunarfiugið er, og ég tel sambærilegan áfanga fyrir okk- ur og opnun Múlavegarins á sin- um tima”, sagði Pétur Már Jónsson, bæjarstjóri i ólafsfiröi i samtali viö Visi, eftir að fyrsta áætlunarferö Flugfélags Norðurlands hafði verið farin. „Við erum einnig ánægðir Fjölmargir ólafsfirðingar tóku á móti fyrstu með að Flugfélagi Norðurlands hefur verið falið að þjóna Ólafs- firðingum, þar var farið að okk- ar óskum”, sagði Pétur enn- fremur. „Þar með erum við þó engan veginn að gera litið úr Arnarflugi. Það félag ætlaði hins vegar eingöngu að fljúga leiöina Reykjavik — Ólafs- fjörður, en Flugfélag Norður- lands tengir okkur einnig við Akureyri. Það riður baggamun- áætlunarvélinni. inn i afstöðu okkar. Ég á von á að það taki Ólafs- firðinga nokkurn tima að átta sig á þessum ferðamöguleika. En ég er sannfærður um að það kemur og ég óska Flugfélagi Norðurlands velfarnaðar á þessari flugleið sem öðrum. Ólafsfirðingum óska ég til ham- ingju með þessa miklu sam- göngubót”, sagði Pétur Már i lok samtalsins. G.S. Flugskvlið var brennt daglnn áður en áætlunarflugið héfsll Það var tekið vel á móti flugvél Flugfélags Norðurlands, þegar hún lenti á Ólafsfjarðar- flugvelli i fyrstu áætlunarferð félagsins til Ólafsfjarðar um hádegisl. mánudag. Fjölmargir Ólafsfirðingar tóku á móti vél- inni á flugvellinum og var þeim sem vildu boðið i útsýnisflug. Gerði það mikla lukku, sér i lagi hjá yngri kynslóðinni. Flugvöllurinn f Ólafsfiröi er góöur, að sögn Torfa Gunn- laugssonar, flugmanns, flugum- feröarstjóra og stjórnarfor- manns hjá Flugfélagi Noröur- lands hf., en hann flaug „Otternum” fyrstu áætlunar- ferðina ásamt Siguröi. Sagði Torfi að það eina sem þyrfti að gera, væri að ýta snjóruðningnum út, þannig að minna skæfi á völlinn og vatn stæði ekki upp á honum þegar hlánaöi. Einnig vantar flugskýli fyrir farþega. Það datt út úr Pétri Má, bæjarstjóra þegar menn voru að berja sér til hita á Ólafsfjarðarflugvelli á manudaginn, aö hann yröi nú að viðurkenna að hafa látið brenna flugskýliö daginn áður. Urðu menn hvumsa við i fyrstu, en hresstust eftir aö Pétur uipplýsti, að um aflóga skúr var að ræða sem notaður var þegar flogið var á sjóflugvélum til Ólafsfjarðar fyrir rúmum 30 árum. — G.S. „Fllúgum nmm sinnum I vlku” - „iafnvei bó ekki verði nema einn farbegi” segir Sigurður Aðalsteínsson, framkvæmdastjóri Flugféiags Norðurlands „Við ætlum að fljúga á þess- ari áætlun fimm sinnum i viku, þ.e. alla virka daga, jafnvel þó ekki verði nema einn farþegi”, sagði Sigurður Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Noröurlands hf„ sem f gær flaug sina fyrstu áætlunarferð milli Akureyrar og Ólafsfjarðar. Við förum frá Akureyri kl. hálf tólf, frá ólafsfirði kl. tólf og áætlum að koma til Reykjavik- ur kl. eitt. Þaðan förum við aft- ur kl. hálf tvö, komum til ólafs- fjarðar kl. hálf þrjú og Akureyr- ar hálftima siðar. Þá geta far- þegar frá Ólafsfirði náð i áætlunarvél Flugleiða til Reykjavikur, sem fer kl. hálf fjögur. Þannig hafa Ólafs- firðingar fengið möguleika á flugferðum til Reykjavikur tvis- var á dag”, sagði Sigurður. Attu von á að þessi áætlunar- leið standi undir sér? ,,Við gerum okkur fulla grein fyrir þvi, að það tekur einhvern tima að vinna þessa leið upp, sennilega ár eða- meira”, svaraði Sigurður. „Það tekur sinn tima'fyrir Ólafsfirðinga að átta sig á þessum möguleika og ef til vill hafa einhverjir þeirra vantrú á litlum flugvélum, þó reynslan hafi sýnt að slikt er ástæðulaust. En þetta kemur, ég trúi ekki öðru. Það var til dæmis enginn farþegi til Reykjavikur i dag, en þegar hafa tveir farþegar bókað sig á morgun, þannig að þetta er i áttina”, sagði Sigurður. Tekur Flugfélag Norðurlands upp „strætóferðir” um Eyjafjörð? Næst var Sigurður spurður um aðra staði við Eyjafjörð, hvort á döfinni væri að þétta áætlunarnet félagsins enn frek- ar en orðið er? „Það eru engari nýjungar á döfinni alveg á næstunni, en við höfum ekki gleymt þéttbýlis- stöðunum hér i Firðinum, hvenærsem þeir koma svo inn i myndina”, svaraði Sigurður. „Sú hugmynd hefur verið rædd, að taka inn i áætlunina hring- ferðir um fjörðinn tvisvar á dag, við getum nefnd Dalvik, Ólafs- fjörð, Hrisey og Grenivik i þessu sambandi. Þetta yrði þá nokkurskonar „strætisvagna- ferðir”. 1 svona flug væri best aðnota vélar likar „Otternum”, sem eru hægfleygar en geta flogið við erfiö skilyrði, bæði hvað varðar flugbrautir og veðurfar. Ég reikna með að „Otterinn” sé óþarflega stór, en þá er að finna minni vélar með lika eiginleika”, sagði Sigurður i lok samtalsins. Fargjaldið frá Ólafsfirði til Reykjavikur kostar kr. 29.550, en til Akureyrar kr. 10.550. G.S. „Var flugvelk alla leiðlna segir Pórgunnur Rðgnvaldsdóttir um flugferð fyrir 32 árum síðan . „Það er best ég komi meö i þessa fyrstu áætlunarferð til Akureyrar, til að reyna þessa þjónustu, þannig að ég hafi ein- hverja hugmynd um hvað ég er að bióða fólki”, sagði Þór- gunnur Rögnvaldsdóttir, um- boðsmaður Flugfélags Noröur- lands i ólafsfirði, um leið og hún vatt sér upp i flugvéi félagsins á Ólafsfjarðarflugvelli. „Ég hef aöeins einu sinni flog- ið þessa leið áöur”, sagði Þór- gunnur i samtali Við Visi þegar vélin var komin i loftiö. „Þaö var að ég held fyrir 32 árum, þegar ég var 12 ára gömul. Þá flaug ég með Gruman flugbát, sem hélt uppi áætlun til Ólafsfjarðar eitt sumar, að ég held á vegum Flugfélags Is- lands. Mér er það minnis- stæðast úr þessari ferð, hvað ég var flugveik alveg frá þvi að vélin sleppti ólafsfjarðarvatni og þar til hún lenti á Pollinum á Akureyri. Ég man samt ekki til þess að vélin léti illa, en ég var bara þannig sem barn, aö ég varð veik með hvaða fárartæki sem var”, sagöi Þórgunnur. En þetta hefur elst af Þór- gunni, þvi hvorki hún néö aðrir farþegar urðu veikir i fyrsta áætlunarflugi Flugfélags Norðurlands til Ólafsfjarðar. — G.S. Til sölu er þessi gullfallegi PEUGEOT 504 GL SJÁLFSK. ÁRG. 1978 Bifreiðin er tii sýnis hjá BÍLASÖLU GUÐFINNS simi 81588 og á kvöidin i sima 41438 Okkur vantar umboðsmann w i SANDGERÐI Upplýsingar í síma 86611 8- 28383 Athygli skal vakin á því að símnotendur# sem auglýstu í símaskrá 1980/ hafa forgang aðeins til 1. nóvember 1980 að sambærilegri staðsetn- ingu fyrir auglýsingar sínar / Símaskrá 1981 Nánari upplýsingar i síma 29140. Símaskrá — Auglýsingar Pósthólf 311 — 121 Reykjavik. Vissir þú að ejoe|K»cil'>o!íii''» býður mesta úrvai ungiinga- húsgagna á lægsta verði og á hagkvæm- ustu afborgunar kjörunum? Bíldshöföa 20, Reykjavik Simar: 81410 og 81199

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.